Síða 1 af 1

Varahlutir í bíla. hvar á að versla?

Sent: Lau 12. Nóv 2011 13:21
af Aimar
Er að fara að kaupa loftsíu, olíusíu, bremsuklossa. ofl.

Hvar mæla menn að kaupa ætti þessa hluti (ódýrast) og hvar á að láta setja þetta í (ódýrast, besta þjónustan).

kv.

Re: Varahlutir í bíla. hvar á að versla?

Sent: Lau 12. Nóv 2011 13:32
af cure
Kaupir loftsíu og bremsuklossa í N1 og skiptir um það sjálfur það er ekkert mál, skipta þeir ekki um olíusíu þegar þú ferð með bílinn í smurningu ?? ég myndi halda að það væri lang ódýrast að gera þetta svona.

*edit* já var allveg búinn að gleyma AB mæli eindregið með þeim

Re: Varahlutir í bíla. hvar á að versla?

Sent: Lau 12. Nóv 2011 13:35
af Kosmor
ab varahlutir og gerir þetta sjálfur

Re: Varahlutir í bíla. hvar á að versla?

Sent: Lau 12. Nóv 2011 13:36
af Black
N1 Verslun eða stilling eru ódýrastir í bremsuklossum og svoleiðis..en varðandi olíuskiptin viewtopic.php?f=9&t=38365&p=348714&hilit=smyrja#p348714

annars geri ég þetta bara sjálfur ;þ

Re: Varahlutir í bíla. hvar á að versla?

Sent: Lau 12. Nóv 2011 13:41
af capteinninn
Ég fíla mjög mikið AB varahluti. Alltaf góð þjónusta og þar sem ég veit voða lítið um bíla þá hef ég ótrúlega oft getað bara lýst því nokkurn veginn hvað þetta er og þeir vita hvað er verið að tala um.

Svo færðu held ég 15% afslátt með Atlantsolíulykli

Re: Varahlutir í bíla. hvar á að versla?

Sent: Lau 12. Nóv 2011 13:55
af blitz
+1 á AB varahluti

Mikið um rasshausa í N1 og ekki mikil þjónustulund.. Topp þjónusta í AB

Re: Varahlutir í bíla. hvar á að versla?

Sent: Lau 12. Nóv 2011 13:56
af beatmaster
AB Varahlutir er alveg málið :happy

Re: Varahlutir í bíla. hvar á að versla?

Sent: Lau 12. Nóv 2011 14:19
af rkm
Stilling líka frábær þjónusta

Re: Varahlutir í bíla. hvar á að versla?

Sent: Lau 12. Nóv 2011 14:57
af gardar
Kosmor skrifaði:ab varahlutir og gerir þetta sjálfur



This

Re: Varahlutir í bíla. hvar á að versla?

Sent: Lau 12. Nóv 2011 15:48
af Danni V8
Ég kaupi flesta almenna slitfleti í N1, AB eða umboðinu. Það kemur á óvart hvað umboðið getur stundum boðið góð verð á algengum viðhaldsvörum eins og olíusíum og bremsuklossum en síðan alveg himin há verð á einhverju óalgengara eins og skynjurum og svona.

Ég hef enga reynslu á því hvar er best að láta skipta um hlutina þar sem ég geri allt í mínum bílum sjálfur.

Re: Varahlutir í bíla. hvar á að versla?

Sent: Lau 12. Nóv 2011 15:55
af AntiTrust
Ekki spyrja um álit í þessu samhengi, hringdu á milli og fáðu verð frá helstu fyrirtækjum á nákvæmlega öllum þeim hlutum sem þig vantar.

Ég geri þetta í hvert einasta skipti sem mig vantar e-ð dýrara en olíu, og ég hef sparað mér tugi ef ekki hundruði þúsunda samtals með þessu. Þótt að fyrirtæki sé með einn af þessum hlutum á betra verði annarsstaðar þarf það ekki að ganga yfir hina hlutina, og munurinn er oft meiri en manni dytti í hug.

Hvað varðar að gera þetta, ekki glóru - þetta eru svo basic hlutir sem þú ert að skipta um, maður hefur alltaf bara gert þetta sjálfur. Google getur yfirleitt bent á DIY fyrir nánast allt þegar kemur að bílaviðhaldi.