Síða 1 af 2

Mindf*ck þráður

Sent: Fös 26. Ágú 2011 20:53
af daniellos333
Tilgangur þessara þráðs er að posta heilaspuna. Ég byrja á því að posta einum heilaspuna, og eftir að niðurstaðan er útkljáð og samþykkt meðal manna, þá getiði látið þráðin deyja út eða postað nýrri spurningu.

Mindfuck númer 1.

Þú finnur skyrtu sem kostar 9700 kr en þú átt enga peninga! þannig að þú færð lánað 5000 kr frá mömmu og 5000 kr. frá pabba. 5000+5000=10000. Þú kaupir skyrtuna og færð 300 kr. til baka. þú borgar 100 kr til mömmu og 100 kr til pabba, þá áttu 100 kr eftir sjálfur/sjálf... þú skuldar mömmu 4900 og pabba 4900, 4900 + 4900 = 9800 + þínar 100 krónur = 9900kr, Hvert í fjandanum fór síðasti 100 kallinn?

Mynd

Re: Mindfuck þráður

Sent: Fös 26. Ágú 2011 21:00
af SolidFeather
En hvert fór skyrtan?

Re: Mindfuck þráður

Sent: Fös 26. Ágú 2011 21:02
af kallikukur
9700/2=4850
300 (100 kall til mömmu og pabba + þinn hundraðkall) / 2 = 150

4850+150= 5000

Re: Mindfuck þráður

Sent: Fös 26. Ágú 2011 21:11
af KristinnK
Vá, þetta meikaði svo engann sens. Eftir lántökurnar og endurborganirnar stendur bókhaldið í:

-4.900 kr | Skuld til móður
-4.900 kr | Skuld til föður
100 kr | Eftirstandandi reiðufé
-----------------------------------------------------
-9.700 kr | Nettóskuld

Enda kostaði peysan 9.700 kr, og þú byrjaðir án penings.

Ath. fyrir áhugasama væri þetta bókfært svona í alvöru:

Mynd

Re: Mindfuck þráður

Sent: Fös 26. Ágú 2011 23:30
af rapport
Þú skuldar 2x4900 og inní þeirri tölu eru þessar 100 kr. sem þú ætlar svo að leggja við "höfuðstólin" aftur.

Skuldin er 9700 +100 = 9800.... afhverju að leggja þessar 100 aftur við?

Re: Mindfuck þráður

Sent: Fös 26. Ágú 2011 23:48
af beatmaster
Greidd skuld er glatað fé...

Re: Mindfuck þráður

Sent: Lau 27. Ágú 2011 01:14
af rapport
Mynd

Mynd

Re: Mindfuck þráður

Sent: Lau 27. Ágú 2011 07:31
af biturk
KristinnK skrifaði:Vá, þetta meikaði svo engann sens. Eftir lántökurnar og endurborganirnar stendur bókhaldið í:

-4.900 kr | Skuld til móður
-4.900 kr | Skuld til föður
100 kr | Eftirstandandi reiðufé
-----------------------------------------------------
-9.700 kr | Nettóskuld

Enda kostaði peysan 9.700 kr, og þú byrjaðir án penings.

Ath. fyrir áhugasama væri þetta bókfært svona í alvöru:

Mynd

af hverju hefur þú ekki eitthvað betra að gera en að bókfæra kjánalegt reikningsdæmi :uhh1

Re: Mindfuck þráður

Sent: Lau 27. Ágú 2011 10:08
af Eiiki
Síðasti 100 kallinn fór í þinn eigin vasa? Það var tekið fram í byrjun dæmisins

Lítið á þetta þannig að þú færð 5k og 5k að láni og því ertu með pening sem þú átt 100% ekkert í. Þú kaupir þér flíkina á 9700 fyrir peninga sem þú átt ekkert í. Þú borgar móður og föður sitthvoran hundrað kallinn fyrir afgangspeningana sem þú átt ekkert í, eftir standa 100 krónur sem þú átt jú ekkert í, það er 100 kallinn sem hvarf :catgotmyballs , skipta honum í 50 kall og láta ma og pa fá, þá er ekkert horfið.

deilingin er bara gerð vitlaus, kallikukur reiknar þetta rétt :happy

Re: Mindfuck þráður

Sent: Lau 27. Ágú 2011 10:14
af Eiiki
En næsta spurning!

Þú ert fastur inni í herbergi og það eru tvær hurðar á því, við hvora hurð stendur vörður, annar vörðurinn lýgur alltaf en hinn segir alltaf satt. Verðirnir eru bræður og þekkja því hvorn annan mjög vel. Ein hurðin liggur til frelsis en hin hurðin liggur til glötunar, þú veist ekkert hvor vörðurinn lýgur og hvor segir alltaf satt, þú veist heldur ekkert hvor hurðinn liggur til frelsis og hvor til glötunnar. Þú hefur einungis eina spurningu til að spurja til þess að geta komið þér út um réttar dyr.

og nú spyr ég, hver er spurningin?

Re: Mindfuck þráður

Sent: Lau 27. Ágú 2011 10:36
af natti
Eiiki skrifaði:En næsta spurning!

"Hvaða hurð mun hinn vörðurinn segja mér að taka"? Og svo vel ég hina hurðina.

Re: Mindfuck þráður

Sent: Lau 27. Ágú 2011 11:39
af KristinnK
biturk skrifaði:af hverju hefur þú ekki eitthvað betra að gera en að bókfæra kjánalegt reikningsdæmi :uhh1

Ég er veikur og mér leiddist. Besides, þetta er fyrsta skipti sem ég hef bókfært eitthvað síðan ég lærði það.

Re: Mindfuck þráður

Sent: Lau 27. Ágú 2011 12:37
af Halli13
Eiiki skrifaði:En næsta spurning!

Þú ert fastur inni í herbergi og það eru tvær hurðar á því, við hvora hurð stendur vörður, annar vörðurinn lýgur alltaf en hinn segir alltaf satt. Verðirnir eru bræður og þekkja því hvorn annan mjög vel. Ein hurðin liggur til frelsis en hin hurðin liggur til glötunar, þú veist ekkert hvor vörðurinn lýgur og hvor segir alltaf satt, þú veist heldur ekkert hvor hurðinn liggur til frelsis og hvor til glötunnar. Þú hefur einungis eina spurningu til að spurja til þess að geta komið þér út um réttar dyr.

og nú spyr ég, hver er spurningin?

spyrð fyrst annan vörðinn að eitthverju sem þú veist til dæmid hvað er 1+1 og spyrð síðan hinn vörðinn hvor hurðin er til frelsis. Ef að fyrri svarar spurningunni með 2 þá veist að hinn vörðurinn segir þér að fara í vitlausa hurð, en ef að fyrri svara svpurningunni vitluast þá veist að seinni segir þér að fara í rétta hurð.

Re: Mindfuck þráður

Sent: Lau 27. Ágú 2011 13:09
af bixer
þetta á væntalega að vera ein spurning sem má spurja?

Re: Mindfuck þráður

Sent: Lau 27. Ágú 2011 13:11
af Klaufi
Halli13 skrifaði:
Eiiki skrifaði:En næsta spurning!

Þú ert fastur inni í herbergi og það eru tvær hurðar á því, við hvora hurð stendur vörður, annar vörðurinn lýgur alltaf en hinn segir alltaf satt. Verðirnir eru bræður og þekkja því hvorn annan mjög vel. Ein hurðin liggur til frelsis en hin hurðin liggur til glötunar, þú veist ekkert hvor vörðurinn lýgur og hvor segir alltaf satt, þú veist heldur ekkert hvor hurðinn liggur til frelsis og hvor til glötunnar. Þú hefur einungis eina spurningu til að spurja til þess að geta komið þér út um réttar dyr.

og nú spyr ég, hver er spurningin?

spyrð fyrst annan vörðinn að eitthverju sem þú veist til dæmid hvað er 1+1 og spyrð síðan hinn vörðinn hvor hurðin er til frelsis. Ef að fyrri svarar spurningunni með 2 þá veist að hinn vörðurinn segir þér að fara í vitlausa hurð, en ef að fyrri svara svpurningunni vitluast þá veist að seinni segir þér að fara í rétta hurð.

Re: Mindfuck þráður

Sent: Sun 28. Ágú 2011 00:01
af daniellos333
kallikukur skrifaði:9700/2=4850
300 (100 kall til mömmu og pabba + þinn hundraðkall) / 2 = 150

4850+150= 5000

Jah, ég reiknaði þetta allavega svona..

Re: Mindfuck þráður

Sent: Sun 28. Ágú 2011 00:05
af Halli13
bixer skrifaði:þetta á væntalega að vera ein spurning sem má spurja?

Nei þetta eru tvær en veist ekki í hvorri spurningunni er logið að þér, gætir aldrei vitað það í einni.

Re: Mindfuck þráður

Sent: Sun 28. Ágú 2011 00:08
af Klaufi
Halli13 skrifaði:
bixer skrifaði:þetta á væntalega að vera ein spurning sem má spurja?

Nei þetta eru tvær en veist ekki í hvorri spurningunni er logið að þér, gætir aldrei vitað það í einni.

Ignorance.

*Rökstuðningur kemur í bjórleysi*

Re: Mindfuck þráður

Sent: Sun 28. Ágú 2011 00:25
af rapport
Eiiki skrifaði:En næsta spurning!

Þú ert fastur inni í herbergi og það eru tvær hurðar á því, við hvora hurð stendur vörður, annar vörðurinn lýgur alltaf en hinn segir alltaf satt. Verðirnir eru bræður og þekkja því hvorn annan mjög vel. Ein hurðin liggur til frelsis en hin hurðin liggur til glötunar, þú veist ekkert hvor vörðurinn lýgur og hvor segir alltaf satt, þú veist heldur ekkert hvor hurðinn liggur til frelsis og hvor til glötunnar. Þú hefur einungis eina spurningu til að spurja til þess að geta komið þér út um réttar dyr.

og nú spyr ég, hver er spurningin?

Ég er með eina spurningu en hversu oft má ég spyrja þá?

Re: Mindfuck þráður

Sent: Sun 28. Ágú 2011 00:26
af KristinnK
Halli13 skrifaði:Nei þetta eru tvær en veist ekki í hvorri spurningunni er logið að þér, gætir aldrei vitað það í einni.

Lausnin skal augljóslega felast í einni spurningu sem gerir þér kleift að ákveða hvor hurðin leiðir að öryggi, þótt svo þú vitir ekki hvor segir satt. Og lausnin er löngu komin:

natti skrifaði:"Hvaða hurð mun hinn vörðurinn segja mér að taka"? Og svo vel ég hina hurðina.

Re: Mindfuck þráður

Sent: Sun 28. Ágú 2011 21:21
af natti
KristinnK skrifaði:
Halli13 skrifaði:Nei þetta eru tvær en veist ekki í hvorri spurningunni er logið að þér, gætir aldrei vitað það í einni.

Lausnin skal augljóslega felast í einni spurningu sem gerir þér kleift að ákveða hvor hurðin leiðir að öryggi, þótt svo þú vitir ekki hvor segir satt. Og lausnin er löngu komin:

natti skrifaði:"Hvaða hurð mun hinn vörðurinn segja mér að taka"? Og svo vel ég hina hurðina.

Til þess að útskýra þetta betur áður en önnur redundant spurning kemur hingað.

Gefum okkur að "rétt" hurð sé sú hægri.

Og ég spyr "Hvaða hurð mun hinn vörðurinn segja mér að taka?"

Ef ég spyr þann sem segir alltaf satt, þá veit hann að sá sem lýgur alltaf myndi svara "vinstri", og svarar mér því "vinstri".
Ef ég spyr þann sem að lýgur alltaf, þá veit hann að sá sem segir alltaf satt myndi svara "hægri" og lýgur því að mér að hann myndi svara "vinstri, svarar mér því "vinstri".

Þannig að ég er með eina spurningu, ég spyr hana einu sinni, og það skiptir ekki máli hvorn vörðinn ég spyr, ég mun alltaf fá sama svarið. (vinstri)
Þar sem ég veit að svarið sem ég fæ er alltaf "röng" hurð, þá veit ég auðvitað að "rétt" hurð er andstæðan, eða sú "hægri".

Re: Mindfuck þráður

Sent: Sun 28. Ágú 2011 22:02
af Gúrú
natti skrifaði:Og ég spyr "Hvaða hurð mun hinn vörðurinn segja mér að taka?"

Þannig að ég er með eina spurningu, ég spyr hana einu sinni, og það skiptir ekki máli hvorn vörðinn ég spyr, ég mun alltaf fá sama svarið. (vinstri)
Þar sem ég veit að svarið sem ég fæ er alltaf "röng" hurð, þá veit ég auðvitað að "rétt" hurð er andstæðan, eða sú "hægri".

Ef að sannsöguli vörðurinn vill að þú glatist en ljúgandi vörðurinn að þú hljótir frelsi (og þeir vissu það vegna þess að þeir þekkja hvorn annan)
þá segir sannsöguli vörðurinn þér að sá ljúgandi myndi ljúga og segja glötunarhurð (vinstri) en
sá ljúgandi segir þér að sannsöguli vilji frelsishurð (hægri), þú ert því ekki með sama svarið. 8-[

Re: Mindfuck þráður

Sent: Sun 28. Ágú 2011 22:07
af angelic0-
Hvernig væri að breyta fyrirsögninni á þræðinum, proxy-inn á netinu sem að ég er á lokar á allt "klámtal"...

væri vel þegið að fá stjörnu í þetta... eða s.s. Mindf*ck í staðinn fyrir það sem að stendur, svo að það loadist ekki alltaf bara hálf síðan hjá mér :?:

Þarf að fara gegnum backinsurfip.info og gera Encode Page.... frekar böggandi :P

Veit að þetta er óþarfa væl kannski, en pínu böggandi bara og myndi auðvelda mér lífið alveg mikið ef að þið mynduð breyta þessu fyrir mig elsku drengirnir mínir (og stúlkur líka)

Re: Mindfuck þráður

Sent: Sun 28. Ágú 2011 22:09
af worghal
angelic0- skrifaði:Hvernig væri að breyta fyrirsögninni á þræðinum, proxy-inn á netinu sem að ég er á lokar á allt "klámtal"...

ertu með netvarann ?

Re: Mindfuck þráður

Sent: Sun 28. Ágú 2011 22:11
af angelic0-
worghal skrifaði:

Samskonar....