Háskólanám að loknum menntaskóla

Allt utan efnis
Skjámynd

Höfundur
Eiiki
/dev/null
Póstar: 1407
Skráði sig: Þri 09. Nóv 2010 14:23
Reputation: 2
Staðsetning: 1101101
Staða: Ótengdur

Háskólanám að loknum menntaskóla

Pósturaf Eiiki » Mið 18. Maí 2011 23:00

Sælir Vaktarar.

Nýverið kláraði ég nám við Menntaskólann í Kópavogi og útskrifaðist sem stúdent af Náttúrufræðibraut (líffræðilínu). Í upphafi skráði ég mig á náttúrufræðibraut vegna þess að ég hafði ekki hugmynd um hvað mig langaði að læra þegar ég myndi eldast. Núna langar mig rosalega mikið að hefja nám í Tölvunarfræði og læra allan fjandann um tölvur og þeirra búnað. Núna langar mig að spyrja hvort einhver góðvirkur vaktari sé menntaður tölvunarfræðingur eða þekkir einhvern slíkann? Getið frætt mig eitthvað mikið nánar um þetta nám og er það sniðugt?

PS. Ég stefni á að hefja námið í HR.


Asrock Z68 Pro3-M | i7 2600k | Intel 520 Series 120 GB | GTX 560-Ti | 8GB 1866Mhz | Home made Mahogany case |Custom Water Cooling
Build log: http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?f=1&t=47846


coldcut
Vaktari
Póstar: 2192
Skráði sig: Mið 21. Nóv 2007 02:25
Reputation: 0
Staðsetning: /dev/random
Staða: Ótengdur

Re: Háskólanám að loknum menntaskóla

Pósturaf coldcut » Mið 18. Maí 2011 23:15

Ef þú vilt fá alvöru Tölvunarfræðinám þá skaltu fara í HÍ frekar en HR.

En svo er spurning hvort að tölvu/rafmagnsverkfræði eigi betur við þig. 0,0004% af náminu í HÍ/HR snýst um vélbúnað.
Er sjálfur í tölvunarfræði og fyrsta árið er:
I. 3/4 stærðfræðiáfangar.
II. 3 "forritunaráfangar"
III. 1 *NIX áfangi (ekki góður)
IV. 1 áfangi um tölvutækni (ekki búðina því miður, ekki góður)

koma svo HR-ingar, take the bait!



Skjámynd

Höfundur
Eiiki
/dev/null
Póstar: 1407
Skráði sig: Þri 09. Nóv 2010 14:23
Reputation: 2
Staðsetning: 1101101
Staða: Ótengdur

Re: Háskólanám að loknum menntaskóla

Pósturaf Eiiki » Mið 18. Maí 2011 23:23

Afhverju HÍ frekar en HR? Ég hef heyrt mismunandi ráðleggingar, sumir segja HR og sumir HÍ, meira að segja frá tölvumenntuðu fólki.


Asrock Z68 Pro3-M | i7 2600k | Intel 520 Series 120 GB | GTX 560-Ti | 8GB 1866Mhz | Home made Mahogany case |Custom Water Cooling
Build log: http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?f=1&t=47846

Skjámynd

Fallout
Fiktari
Póstar: 55
Skráði sig: Fim 03. Mar 2011 11:42
Reputation: 0
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Háskólanám að loknum menntaskóla

Pósturaf Fallout » Mið 18. Maí 2011 23:41

mæli eindregið með tölvunarfræðinni í HR !



Skjámynd

russi
FanBoy
Póstar: 732
Skráði sig: Mán 02. Maí 2011 01:28
Reputation: 176
Staðsetning: Terran Empire
Staða: Ótengdur

Re: Háskólanám að loknum menntaskóla

Pósturaf russi » Mið 18. Maí 2011 23:52

coldcut skrifaði:Ef þú vilt fá alvöru Tölvunarfræðinám þá skaltu fara í HÍ frekar en HR.



Þetta statement er jafn fáranlegt og þegar fólk fer að rífast um apple vs pc, nikon vs canon, pulsa vs pylsa. Er svona trúarbragð, þitt trúarbragð.
Þú velur það sem þú telur henta þér, það marg gott við HR og það er margt gott við HÍ. Það er líka margt slæmt við báða kosti.
Ég er í HR, valdi það af því það hentaði mér betur vegna vinnu. Hef ekkert við það að kvarta, flestir happy þarna.
Þú virðist stefna á HR, haldu því bara áfram fyrst þú telur það henta þér betur, ekki láta e-n annan fokka í þér með það val, hefði sagt það sama ef þú hefðir valið HÍ.



Skjámynd

methylman
vélbúnaðarpervert
Póstar: 910
Skráði sig: Fim 13. Mar 2008 00:39
Reputation: 17
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Háskólanám að loknum menntaskóla

Pósturaf methylman » Mið 18. Maí 2011 23:53

Byrjaðu bara í Tölvudeildinni í Tækniskólanum þú kynnist þessu vel þar, síðan er bara að velja þegar þú veist hvað þig langar. Þú getur unnið með Tækniskólanum því ekki þarftu að taka grunninn.



Skjámynd

intenz
Besserwisser
Póstar: 3337
Skráði sig: Mið 08. Okt 2008 22:07
Reputation: 35
Staðsetning: /dev/null
Staða: Ótengdur

Re: Háskólanám að loknum menntaskóla

Pósturaf intenz » Fim 19. Maí 2011 00:10

Fallout skrifaði:mæli eindregið með tölvunarfræðinni í HR !

nei hún er ekki alvöru!


i7 920 @ 2.8 GHz | Gigabyte EX58-UD3R | CSX 3x2 GB DDR3 @ 1600 MHz | Gigabyte ATi Radeon HD 5850 | Sileo 500 | RealPower 600W | Corsair Force 3 120 GB | 27" FullHD | W7 x64

Skjámynd

Höfundur
Eiiki
/dev/null
Póstar: 1407
Skráði sig: Þri 09. Nóv 2010 14:23
Reputation: 2
Staðsetning: 1101101
Staða: Ótengdur

Re: Háskólanám að loknum menntaskóla

Pósturaf Eiiki » Fim 19. Maí 2011 00:16

intenz skrifaði:
Fallout skrifaði:mæli eindregið með tölvunarfræðinni í HR !

nei hún er ekki alvöru!

Endilega gefið ástæður og segi afhverju og afhverju ekki :happy


Asrock Z68 Pro3-M | i7 2600k | Intel 520 Series 120 GB | GTX 560-Ti | 8GB 1866Mhz | Home made Mahogany case |Custom Water Cooling
Build log: http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?f=1&t=47846

Skjámynd

intenz
Besserwisser
Póstar: 3337
Skráði sig: Mið 08. Okt 2008 22:07
Reputation: 35
Staðsetning: /dev/null
Staða: Ótengdur

Re: Háskólanám að loknum menntaskóla

Pósturaf intenz » Fim 19. Maí 2011 00:29

Eiiki skrifaði:
intenz skrifaði:
Fallout skrifaði:mæli eindregið með tölvunarfræðinni í HR !

nei hún er ekki alvöru!

Endilega gefið ástæður og segi afhverju og afhverju ekki :happy

Þetta var bara smá skot á coldcut þar sem hann virðist alltaf hafa svo mikla reynslu af Tölvunarfræðinni í HR


i7 920 @ 2.8 GHz | Gigabyte EX58-UD3R | CSX 3x2 GB DDR3 @ 1600 MHz | Gigabyte ATi Radeon HD 5850 | Sileo 500 | RealPower 600W | Corsair Force 3 120 GB | 27" FullHD | W7 x64


pjesi
has spoken...
Póstar: 179
Skráði sig: Þri 16. Mar 2004 23:56
Reputation: 0
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Háskólanám að loknum menntaskóla

Pósturaf pjesi » Fim 19. Maí 2011 00:33

Ég fór í tölvunarfræði eftir að klára náttúrufræðibraut. Það hentaði mjög vel og var ég vel undirbúinn eftir námið í MA. Mæli hiklaust með að þú skellir þér í tölvunarfræði. Það er mjög mikil eftirspurn eftir góðu fólki í greininni!


asdf

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7064
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1005
Staða: Ótengdur

Re: Háskólanám að loknum menntaskóla

Pósturaf rapport » Fim 19. Maí 2011 01:16

HÍ v.s. HR

Ef þetta er nám þar sem það er betra að kennararnir séu góðirí sögu, þá = HÍ.

Gervigreindarsetur + keppnir = raunverulegt hugvit put to the test = HR

HÍ er að verða svona hálfgerður listaháskóli finnst manni stundum... ekki að það sé eitthvað slæmt, nema ef maður sé í tæknigreinum.




coldcut
Vaktari
Póstar: 2192
Skráði sig: Mið 21. Nóv 2007 02:25
Reputation: 0
Staðsetning: /dev/random
Staða: Ótengdur

Re: Háskólanám að loknum menntaskóla

Pósturaf coldcut » Fim 19. Maí 2011 01:32

hahaha það var mikið að þið fóruð að þenja ykkur strákar :D Quoteið innleggið mitt þá sjáiði að ég var bara að grínast!

Áður en þú velur HÍ eða HR þá verðurðu fyrst að segja okkur á hverju þú hefur áhuga í tölvum og ef þig langar að verða forritari þá hvað viltu vera að forrita?

@intenz: ég hélt við værum búnir að útkljá það hér og á Hressó að ég er ekkert að dissa tölvunarfræðina í HR ;) Þetta er bara ekki alveg sama námið finnst mér og ég grandskoðaði bæði nám áður en ég valdi skóla og ákvað að fara frekar í HÍ.
En það var mitt val. Þú valdir annað og Eiiki virðist ætla að velja eins og þú. Sem er bara gott ef honum langar það og ekki er ég að fara að breyta því.

@rapport: þitt innlegg er jafn heimskulegt og það sem ég setti inn í gríni #-o



Skjámynd

intenz
Besserwisser
Póstar: 3337
Skráði sig: Mið 08. Okt 2008 22:07
Reputation: 35
Staðsetning: /dev/null
Staða: Ótengdur

Re: Háskólanám að loknum menntaskóla

Pósturaf intenz » Fim 19. Maí 2011 01:47

coldcut skrifaði:@intenz: ég hélt við værum búnir að útkljá það hér og á Hressó að ég er ekkert að dissa tölvunarfræðina í HR ;) Þetta er bara ekki alveg sama námið finnst mér og ég grandskoðaði bæði nám áður en ég valdi skóla og ákvað að fara frekar í HÍ.
En það var mitt val. Þú valdir annað og Eiiki virðist ætla að velja eins og þú. Sem er bara gott ef honum langar það og ekki er ég að fara að breyta því.

Hehe já en þú lætur það alltaf hljóma eins og HR sé bara einhver leikskóli á miðað við HÍ, sérstaklega þegar þú talar um "alvöru Tölvunarfræðinám". Það er bara einfaldlega ekki þjösnast eins mikið á stærðfræðinni í Tölvunarfræði við HR eins og í HÍ. Auk þess er allt minna fræðilegt/akademískt í HR og meira svona "hands on" verkefnatengd vinna. Hvort nýtist betur úti á vinnumarkaðnum ætla ég ekki að segja til um.


i7 920 @ 2.8 GHz | Gigabyte EX58-UD3R | CSX 3x2 GB DDR3 @ 1600 MHz | Gigabyte ATi Radeon HD 5850 | Sileo 500 | RealPower 600W | Corsair Force 3 120 GB | 27" FullHD | W7 x64


coldcut
Vaktari
Póstar: 2192
Skráði sig: Mið 21. Nóv 2007 02:25
Reputation: 0
Staðsetning: /dev/random
Staða: Ótengdur

Re: Háskólanám að loknum menntaskóla

Pósturaf coldcut » Fim 19. Maí 2011 01:59

intenz skrifaði:Hehe já en þú lætur það alltaf hljóma eins og HR sé bara einhver leikskóli á miðað við HÍ, sérstaklega þegar þú talar um "alvöru Tölvunarfræðinám". Það er bara einfaldlega ekki þjösnast eins mikið á stærðfræðinni í Tölvunarfræði við HR eins og í HÍ. Auk þess er allt minna fræðilegt/akademískt í HR og meira svona "hands on" verkefnatengd vinna. Hvort nýtist betur úti á vinnumarkaðnum ætla ég ekki að segja til um.


Ég var að segja að ég var að grínast í fyrsta innlegginu mínu...
[size= 10]koma svo HR-ingar, take the bait![/size]

En það sem þú segir hins vegar um muninn er alveg rétt. Akademískt og stærðfræði vs. verkefnatengt.
HÍ og HR kenna tölvunarfræðina ekki eins og spurning hvort býr þig betur undir vinnu eftir B.Sc. Það er allavegana enginn útskriftarnemi í HÍ sem verður ekki að vinna við forritun í sumar og ég reikna með að það sama sé uppi á teningnum hjá þeim sem eru að útskrifast úr HR.

Tölvunarfræði í HR = Alvörunám
Tölvunarfræði í HÍ = Alvörunám



Skjámynd

kubbur
/dev/null
Póstar: 1394
Skráði sig: Sun 14. Sep 2003 01:36
Reputation: 18
Staða: Ótengdur

Re: Háskólanám að loknum menntaskóla

Pósturaf kubbur » Fim 19. Maí 2011 02:08

ég mæli með að þú kynnir þér nánar hvað það er sem þú vilt læra


Kubbur.Digital

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7064
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1005
Staða: Ótengdur

Re: Háskólanám að loknum menntaskóla

Pósturaf rapport » Fim 19. Maí 2011 02:12

coldcut skrifaði:@rapport: þitt innlegg er jafn heimskulegt og það sem ég setti inn í gríni #-o


Afhverju er það svona heimskulegt? Hvað hefur tölvunarfræðin í HÍ að steita sig af?

Það getur vel verið að þetta sé plain fordómar og fáfræði í mér, en er það eitthvað sem þessi deild er að gera til að þróa sig og halda sér á "fresh"?



Skjámynd

hagur
Besserwisser
Póstar: 3095
Skráði sig: Mið 17. Des 2003 16:11
Reputation: 443
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Háskólanám að loknum menntaskóla

Pósturaf hagur » Fim 19. Maí 2011 08:42

Ég tók tölvunarfræðina í HR. Mæli alveg með henni.

Ástæðan fyrir því að ég valdi HR frekar en HÍ er afar einföld. HR býður uppá að taka fyrstu 60 einingarnar (120 ects) í námi með vinnu (HMV), sem er frábær kostur fyrir fólk sem er í 100% dagvinnu og getur/vill ekki hætt henni eða minnkað mikið við sig á meðan á námi stendur.

Þegar ég var búinn með HMV-ið hélt ég svo bara áfram og tók 30 einingarnar (60 ects) sem uppá vantaði til að klára Bs.c gráðuna, þá ýmist í HMV ef það bauðst, en annars bara í dagskóla. Náði samt allan tímann að stunda mína vinnu 100% með þessu og er því svo lánssamur (ef þannig má að orði komast) að hafa ekki tekið eina einustu krónu í námslán.



Skjámynd

Haxdal
Tölvutryllir
Póstar: 640
Skráði sig: Lau 14. Apr 2007 18:58
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Háskólanám að loknum menntaskóla

Pósturaf Haxdal » Fim 19. Maí 2011 09:32

er í HR, fínt nám þar. Sérstaklega ef maður vill taka þetta hægar og vinna jafnhliða náminu.

Hef heyrt að HÍ sé meira Theorískt og HR meira Practical, veit ekkert hvort það sé rétt þar sem ég er ekki í HÍ og hef ekkert til að bera saman við :)


Atvinnunörd - Part of the 2%
> FX8350 | Gigabyte 990FXA-UD3 | Nvidia GTX 760 | 8GB Somethingsomething | Corsair Graphite 600T <

Skjámynd

Daz
Besserwisser
Póstar: 3813
Skráði sig: Sun 20. Okt 2002 09:35
Reputation: 141
Staðsetning: Somewhere something went horribly wrong
Staða: Ótengdur

Re: Háskólanám að loknum menntaskóla

Pósturaf Daz » Fim 19. Maí 2011 10:08

Haxdal skrifaði:er í HR, fínt nám þar. Sérstaklega ef maður vill taka þetta hægar og vinna jafnhliða náminu.

Hef heyrt að HÍ sé meira Theorískt og HR meira Practical, veit ekkert hvort það sé rétt þar sem ég er ekki í HÍ og hef ekkert til að bera saman við :)


Þetta með þeóríuna og praktíkian er eitthvað sem ég hef heyrt, en þar sem ég þekki ekki HR námið nema bara af mjög lítilli afspurn ætla ég ekki að tjá mig mikið meira um það.

HÍ námið er að mér finnst alveg fínt, í það minnsta útskrifaðist ég með næga þekkingu til að koma mér af stað, þó ég sé alveg merkilega Java-miðaður.



Skjámynd

Höfundur
Eiiki
/dev/null
Póstar: 1407
Skráði sig: Þri 09. Nóv 2010 14:23
Reputation: 2
Staðsetning: 1101101
Staða: Ótengdur

Re: Háskólanám að loknum menntaskóla

Pósturaf Eiiki » Fim 19. Maí 2011 10:41

Þakka góð svör og góðar umræður strákar! Ég hafði hugsað mér að vinna meira verklegt við tölvubúnað frekar en að forrita og þess háttar..


Asrock Z68 Pro3-M | i7 2600k | Intel 520 Series 120 GB | GTX 560-Ti | 8GB 1866Mhz | Home made Mahogany case |Custom Water Cooling
Build log: http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?f=1&t=47846

Skjámynd

Daz
Besserwisser
Póstar: 3813
Skráði sig: Sun 20. Okt 2002 09:35
Reputation: 141
Staðsetning: Somewhere something went horribly wrong
Staða: Ótengdur

Re: Háskólanám að loknum menntaskóla

Pósturaf Daz » Fim 19. Maí 2011 10:56

Eiiki skrifaði:Þakka góð svör og góðar umræður strákar! Ég hafði hugsað mér að vinna meira verklegt við tölvubúnað frekar en að forrita og þess háttar..

Rafmagns og tölvuverkfræði er þá líklega næsta skref.




coldcut
Vaktari
Póstar: 2192
Skráði sig: Mið 21. Nóv 2007 02:25
Reputation: 0
Staðsetning: /dev/random
Staða: Ótengdur

Re: Háskólanám að loknum menntaskóla

Pósturaf coldcut » Fim 19. Maí 2011 11:06

Daz skrifaði:Þetta með þeóríuna og praktíkian er eitthvað sem ég hef heyrt, en þar sem ég þekki ekki HR námið nema bara af mjög lítilli afspurn ætla ég ekki að tjá mig mikið meira um það.

HÍ námið er að mér finnst alveg fínt, í það minnsta útskrifaðist ég með næga þekkingu til að koma mér af stað, þó ég sé alveg merkilega Java-miðaður.


haha enda kennarinn mjög mikið fyrir Java.

Eiiki skrifaði:Þakka góð svör og góðar umræður strákar! Ég hafði hugsað mér að vinna meira verklegt við tölvubúnað frekar en að forrita og þess háttar..


Eins og daz segir þá er það bara Rafmagns- og tölvuverkfræði. Er ekki alveg viss en ég held að klemmi hafi farið í það eða sé í því námi.
Kannski að hann geti ausið úr sínum djúpu viskubrunnum hérna.



Skjámynd

Daz
Besserwisser
Póstar: 3813
Skráði sig: Sun 20. Okt 2002 09:35
Reputation: 141
Staðsetning: Somewhere something went horribly wrong
Staða: Ótengdur

Re: Háskólanám að loknum menntaskóla

Pósturaf Daz » Fim 19. Maí 2011 11:50

coldcut skrifaði:
Daz skrifaði:Þetta með þeóríuna og praktíkian er eitthvað sem ég hef heyrt, en þar sem ég þekki ekki HR námið nema bara af mjög lítilli afspurn ætla ég ekki að tjá mig mikið meira um það.

HÍ námið er að mér finnst alveg fínt, í það minnsta útskrifaðist ég með næga þekkingu til að koma mér af stað, þó ég sé alveg merkilega Java-miðaður.


haha enda kennarinn mjög mikið fyrir Java.

Kennarinn? Það var nú aðeins meira en einn sem kenndi þessa kúrsa sem ég fór í gegnum og mismunandi mál, þar á meðal tölvugrafík í C++ og forritunarmál í Fjölni! :crazy




coldcut
Vaktari
Póstar: 2192
Skráði sig: Mið 21. Nóv 2007 02:25
Reputation: 0
Staðsetning: /dev/random
Staða: Ótengdur

Re: Háskólanám að loknum menntaskóla

Pósturaf coldcut » Fim 19. Maí 2011 11:54

Daz skrifaði:Kennarinn? Það var nú aðeins meira en einn sem kenndi þessa kúrsa sem ég fór í gegnum og mismunandi mál, þar á meðal tölvugrafík í C++ og forritunarmál í Fjölni! :crazy


Ég er náttúrulega bara að klára 1. ár en Snorri er allavegana með Tölvunarfræði 1og2, Forritunarmál, Þýðendur og 50% af Viðmótsforritun.

Líklegt að hann hafi kennt þér í Fjölni þar sem hann bjó það til en núna er Hjálmtýr með tölvugrafík.



Skjámynd

raRaRa
Nörd
Póstar: 131
Skráði sig: Þri 10. Okt 2006 11:18
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Háskólanám að loknum menntaskóla

Pósturaf raRaRa » Fim 19. Maí 2011 12:03

Ég valdi sjálfur HR og var mjög sáttur með niðurstöðuna úr náminu. Það eru margir valáfangar sem fara mikið í theoríur, þannig HR er ekkert endilega meira á practical hliðinni, hún er bara meira áberandi þar. Einnig bjóða þeir upp á internship og lokaverkefni í samvinnu við fyrirtæki.

Þetta er mjög góður undirbúningur fyrir vinnumarkaðinn, frekara nám i master eða dr og margt fleira. Ég tala nú ekki um hversu auðvelt er að fá hjálp frá kennara. Gervigreindasetrið er einnig stór plús, þeir eru oft að leita af fólki til að vinna þar með námi, mikið af rannsóknarverkefnum.

Ég hef tekið eftir því að HR er ekki bara í Microsoft tólum, það er byrjað í Java, farið í .NET, Python og C/C++ þannig þetta er bara bland í poka, það er ekki nauðsýn að nota Visual Studio fyrir C/C++.

Svo hafa HR líka opnað fleiri leiðir til að gerast leikjaforritari.

Dæmi um leiðir sem myndu henta vel í HR:
Vefforritari - .NET & ASP.NET + MVC
Leikjaforritari - Línuleg algebra, Tölvugrafík (OpenGL) og leikjaforritunar áfangar sem ég hef þekki ekki nógu vel.
General forritari: Python, .NET, C/C++, Stýrikerfi

En þetta er mitt álit. Vonandi hjálpar þetta þér við valið. Ég vill einnig taka fram að ég þekki ekki námið í HÍ og get ekki byggt skoðun á því hvernig HÍ er miðað við HR. Ég veit bara að HR stóð sig vel og ég er mjög sáttur.