Síða 1 af 2
Gas eða Kol?
Sent: Fim 05. Maí 2011 15:46
af Krissinn
Mig langar að koma með spurningu sem var algeng á internetinu í kringum 2000 - 2004 þegar gasgrillin voru að fóta sig hér á landi eða gasgrillmenningin stóð hvað hæst. Fólk var þá með umræður hvort maturinn væri betri af Kolagrilli eða Gasgrilli og mig langar soldið til að forvitnast hvort væri vinsælla hjá Vökturum

Re: Gas eða Kol?
Sent: Fim 05. Maí 2011 15:49
af gissur1
Einnota útilegugrill bara...
Re: Gas eða Kol?
Sent: Fim 05. Maí 2011 15:50
af KristinnK
Ég grilla alltaf með kolum. Þannig kenndi pabbi minn mér þegar ég var lítill strákur, og þannig geri ég enn í dag. Það er miklu áþreifanlegra og skemmtiegra að kveikja eld og steikja kjöt, en að skrúfa frá einhverju gasi.
Re: Gas eða Kol?
Sent: Fim 05. Maí 2011 15:51
af worghal

ég notaði gas áður en það var mainstream !
en persónulega finnst mér kol betra og skemmtilegra

Re: Gas eða Kol?
Sent: Fim 05. Maí 2011 15:53
af Krissinn
KristinnK skrifaði:Ég grilla alltaf með kolum. Þannig kenndi pabbi minn mér þegar ég var lítill strákur, og þannig geri ég enn í dag. Það er miklu áþreifanlegra og skemmtiegra að kveikja eld og steikja kjöt, en að skrúfa frá einhverju gasi.
Svo innilega sammála þér, Mér finnst persónulega grillmatur af kolagrilli miklu betri svo bara það er einhver ákveðin stemming að grilla á kolagrilli

Re: Gas eða Kol?
Sent: Fim 05. Maí 2011 15:55
af kubbur
ég er gasmaður, hundleiðinlegt að grilla á kolagrillum, tekur langan tíma að hitna osfr, gasið bara skrúfa frá og kveikja og skella á grillið
Re: Gas eða Kol?
Sent: Fim 05. Maí 2011 16:06
af Steini B
Maturinn er betri ef maður grillar af kolum, en maður er bara svo mikið sneggri að grilla á gasi...
Þannig að ég grilla yfirleitt á gasi, svo eru kolin svona spari

Re: Gas eða Kol?
Sent: Fim 05. Maí 2011 16:08
af kubbur
Steini B skrifaði:Maturinn er betri ef maður grillar af kolum, en maður er bara svo mikið sneggri að grilla á gasi...
Þannig að ég grilla yfirleitt á gasi, svo eru kolin svona spari

by far sneggri
Re: Gas eða Kol?
Sent: Fim 05. Maí 2011 16:08
af mind
Kannski meira spurning um þægindi og tíma.
Almenna reglan er sú að því lengri tíma sem það tekur því betri verður útkoman.
Svo er þú ert öfgamanneskja notarðu bara opinn eld og færir þig svo niður eftir því sem þú vild meiri þægindi í harðvið, kol, gas, ofn , pönnu o.s.f.
Að fara frá kolum yfir í gas þá hverfur tilgangurinn fyrir grillinu í mínum augum, get alveg eins gert það í ofni þá.
Re: Gas eða Kol?
Sent: Fim 05. Maí 2011 16:13
af ZiRiuS
Svona úti á svölum heima grilla ég á gasi og myndi ekki nenna einhverju veseni.
Hinsvegar í útileigum og bústaðarferðum þá er stuð að grilla á kol, sérstaklega að taka redneck moovið á þetta og skera tunnu í tvennt og setja kol í það og grind, alveg magnað.
Re: Gas eða Kol?
Sent: Fim 05. Maí 2011 16:15
af dori
Re: Gas eða Kol?
Sent: Fim 05. Maí 2011 16:15
af KristinnK
kubbur skrifaði:ég er gasmaður, hundleiðinlegt að grilla á kolagrillum, tekur langan tíma að hitna osfr, gasið bara skrúfa frá og kveikja og skella á grillið
Ég ætla nú að vitna í dr. Kelso,
,,Nothing in this world worth having comes easy".
Re: Gas eða Kol?
Sent: Fim 05. Maí 2011 16:19
af worghal
KristinnK skrifaði:kubbur skrifaði:ég er gasmaður, hundleiðinlegt að grilla á kolagrillum, tekur langan tíma að hitna osfr, gasið bara skrúfa frá og kveikja og skella á grillið
Ég ætla nú að vitna í dr. Kelso,
,,Nothing in this world worth having comes easy".
og nú ættla ég að quota Dr. Kelso
"what has two thumbs and doesnt give a crap?"

Re: Gas eða Kol?
Sent: Fim 05. Maí 2011 16:42
af Frost
Hef sjálfur bara grillað af gasi en stefni á að grilla af kolum á næstunni.
Re: Gas eða Kol?
Sent: Fim 05. Maí 2011 17:23
af tdog
Gasið gefur ekki þetta ekta grillbragð sem kolin gefa. Samt grilla ég oftar á gasinu, það er fljótlegra.
Talandi um þetta „grillbragð“, borgararnir á Fabrikkunni hafa það, unaðslegt.
Re: Gas eða Kol?
Sent: Fim 05. Maí 2011 19:01
af Nariur
mér finnst "grillbragðið" ekki bæta kjötið ef það er vel kryddað
Re: Gas eða Kol?
Sent: Fim 05. Maí 2011 19:51
af kubbur
Til að fá grillbragð þá er fínt að taka bbq sósu o pensla kjötið svona mínútu aður en maður tekur það af grillinu
Re: Gas eða Kol?
Sent: Fim 05. Maí 2011 20:50
af lukkuláki
Gas er mikið fljótlegra og þægilegra
en kolagrill gefur betra bragð. Ég er með alvöru gasgrill

enda grilla ég allt árið

Re: Gas eða Kol?
Sent: Fim 05. Maí 2011 21:27
af AntiTrust
Gas heima á palli, kol í útileigunni. Mikið meiri stemming í kolunum en það tekur bara svo mikið lengri tíma.
Re: Gas eða Kol?
Sent: Fim 05. Maí 2011 21:47
af worghal
gamli íslensku kennarinn minn sagði einusinni að stemming og stemning væru tveir mismunandi hlutir, stemning er gott stuð en stemming tengist niðurgangi.
Re: Gas eða Kol?
Sent: Fim 05. Maí 2011 21:51
af AntiTrust
worghal skrifaði:gamli íslensku kennarinn minn sagði einusinni að stemming og stemning væru tveir mismunandi hlutir, stemning er gott stuð en stemming tengist niðurgangi.
Skv. orðabók eru báðir rithættir samþykktir.
Re: Gas eða Kol?
Sent: Fim 05. Maí 2011 21:53
af dori
worghal skrifaði:gamli íslensku kennarinn minn sagði einusinni að stemming og stemning væru tveir mismunandi hlutir, stemning er gott stuð en stemming tengist niðurgangi.
Ótrúlega böggandi þegar svona gamlingjar halda rosalega fast í eitthvað sem er löngu farið úr málinu og samfélaginu.
Ég var með bókasafnskennara sem neitaði að viðurkenna að það væri ekki Z í "official" íslenska stafrófinu
](./images/smilies/eusa_wall.gif)
Re: Gas eða Kol?
Sent: Fim 05. Maí 2011 21:55
af worghal
var að fletta í orðabók og þar stendur ekkert um stemmingu. en stemma er þar sem stífla, en stem(m)ning er þar

semsagt stemning er rétt með einu eða tvemur m'um en n'ið er must

Re: Gas eða Kol?
Sent: Fim 05. Maí 2011 22:05
af dori
worghal skrifaði:var að fletta í orðabók og þar stendur ekkert um stemmingu. en stemma er þar sem stífla, en stem(m)ning er þar

semsagt stemning er rétt með einu eða tvemur m'um en n'ið er must

Gömul orðabók? Skoðaðu nýlega stafsetningarorðabók og þá finnurðu þetta. Ætti að vera. Ég nenni ekki að fletta þessu upp til að sjá sjálfur...
Re: Gas eða Kol?
Sent: Fim 05. Maí 2011 22:08
af AntiTrust
worghal skrifaði:var að fletta í orðabók og þar stendur ekkert um stemmingu. en stemma er þar sem stífla, en stem(m)ning er þar

semsagt stemning er rétt með einu eða tvemur m'um en n'ið er must

Nei, í orðabók Eddu og fleiri orðabókum er stemming, stemning og stemmning gildur ritháttur.