Síða 1 af 1

Þá er ég orðinn gamall !!!!

Sent: Mán 11. Apr 2011 17:10
af bulldog
Mynd

Þá er ég víst að verða gamall því að ég verð 35 ára á miðvikudaginn :thumbsd Að sjálfsögðu verður maður að reyna að sýna þroskamerki með aldrinum og mitt verður að fá mér eitthvað nett í tölvuna mína spurning hvað það ætti að vera ? Er að fá í vikunni 2x 2tb sata 3 diska sem verða settir í raid0. Hvað mynduð þið bæta við tölvuna ?

i7 950 @ 4.2 ghz
Gigabyte X58A-UD3R
Noctua NH-D14
Mushkin 3x2 GB DDR3 @ 1600 MHz Redline
GeForce GTX460 XLR8 1024MB
Antec P160
Crucial RealSSD C300 128GB SSD
Antec Truepower 650W
W7 64 bit
6.5 TB + 4 TB sata 3 diskar
Samsung P2450H 24" LCD breiðtjaldsskjár

Ein hugmynd hjá mér var að fá annan Crucial RealSSD C300 128GB SSD og setja í raid0 eruð þið með betri hugmyndir og endilega að koma með rökstuðning af hverju þið mynduð velja eftirfarandi hlut =D>

Re: Þá er ég orðinn gamall !!!!

Sent: Mán 11. Apr 2011 17:23
af kubbur
fer svo rosa mikið eftir því hvað þú ert að gera, mig persónulega myndi vanta meira minni

Re: Þá er ég orðinn gamall !!!!

Sent: Mán 11. Apr 2011 17:24
af vesley
Nýjann tölvukassa ? P160 er orðin ansi gamall. Og er ekkert sérstaklega flottur að mínu mati
Nýjann aflgjafa? Að öllu leyti hljóðlátari og mun ekki lenda í veseni með næstu uppfærslur?
Nýtt skjákort? Fyrir tölvuleikina :)

Re: Þá er ég orðinn gamall !!!!

Sent: Mán 11. Apr 2011 17:28
af Halli13
Nýjan kassa eða aflgjafa :)

Re: Þá er ég orðinn gamall !!!!

Sent: Mán 11. Apr 2011 17:30
af k0fuz
Mér finnst eins og skjákortið þitt sé að bottlenecka restina, finnst þú ættir að fá þér nýtt eða bæta öðru eins við ef þú getur. Og til hamingju með daginn á miðvikudaginn :happy ;)

Re: Þá er ég orðinn gamall !!!!

Sent: Mán 11. Apr 2011 17:34
af Frost
Ætla að vera eins og allir hinir.

Mættir endilega uppfæra í nýjan og vígalegri kassa. Skipta um aflgjafa til að bæta við öðru GTX 460.

Re: Þá er ég orðinn gamall !!!!

Sent: Mán 11. Apr 2011 17:35
af KermitTheFrog
En líttu á björtu hliðarnar. Nú máttu fara í forsetaframboð.

Re: Þá er ég orðinn gamall !!!!

Sent: Mán 11. Apr 2011 17:52
af bulldog
Ég er nýbúinn að fá mér gtx 460 kannski fæ ég mér annað en hvað kassa mynduð þið fara í ?

Ég má því miður ekki fara í forsetaframboð af því að ég er með danskt ríkisfang þar sem ég er fæddur í Færeyjum =D>

Re: Þá er ég orðinn gamall !!!!

Sent: Mán 11. Apr 2011 17:58
af HelgzeN
Haf seríuna
eða eikkern flottan Antec kassa.

Re: Þá er ég orðinn gamall !!!!

Sent: Mán 11. Apr 2011 18:37
af Frost
viewtopic.php?f=11&t=37713

Haf-X er klárlega málið :happy

Re: Þá er ég orðinn gamall !!!!

Sent: Mán 11. Apr 2011 18:41
af bulldog
25 kvikindi .... já spurning :) Ég er svo ánægður samt með kassann sem ég keypti hérna á vaktinni skal skella inn mynd af þessum yndisfagra kassa í kvöld \:D/

Re: Þá er ég orðinn gamall !!!!

Sent: Mán 11. Apr 2011 19:02
af gardar
Myndi bæta við 1 stykki af 2tb disk, og setja diskana þrjá saman í raid5 :)

Re: Þá er ég orðinn gamall !!!!

Sent: Mán 11. Apr 2011 19:14
af Tiger
Myndi hiklaust taka kassann minn :)

Re: Þá er ég orðinn gamall !!!!

Sent: Mán 11. Apr 2011 20:59
af bulldog
Snuddi : fæ ég hann þá á afmælistilboði ? :evillaugh