Síða 1 af 2
Að stela myndum?
Sent: Mið 09. Mar 2011 19:38
af jakobs
Fyrir nokkrum misserum heyrðist hástemmt kvein frá 365 miðlum. Þeir kvörtuðu sáran undan þeim sem voru að stela þáttum þeirra, t.d. næturvaktinni. Þeir eru greinilega vel upplýstir um höfundarréttarmál.
Nú fyrir stuttu birtist grein á vísi.is sem er í eigu 365 miðla. Mynd af fallegri lóu skreytti fréttina. Þessa mynd tók ég í Mývatnssveitinni árið 2008. Það var hvorki haft samband við mig né var þess getið í fréttinni að ég sé höfundur þessarar myndar.
Hér er greinin á vísi.is
http://www.visir.is/loa-sast-i-heimaey/ ... 1110229292Og hér er myndin á síðu minni
http://www.aves.is/aves/birds/php/aves. ... birdId=107365 miðum er greinilega alveg sama um höfundarétt annarra og hika ekki við að stela annarra manna verkum.
Eftir að ég rak augun í þetta, þá sendi ég 365 miðlum reikning fyrir birtingu á þessari mynd. Þeir hinsvegar sjá hvorki ástæðu til að borga fyrir birtinguna né geta höfundar.
Þar sem 365 miðlar virða ekki höfundarrétt annarra, hvers vegna eiga þá aðrir að virða höfundarrétt þeirra?
Kveðja,
Jakob S.
p.s. blaðamennihjá DV eru af sama sauðahúsi og blaðamenn Vísi, stela myndum og birta á þess að hafa samband við höfund.
Frétt DV:
http://www.dv.is/frettir/2011/2/25/loan-er-komin/Mynd mín:
http://www.aves.is/aves/birds/php/aves. ... birdId=107
Re: Að stela myndum?
Sent: Mið 09. Mar 2011 19:40
af Gúrú
Re: Að stela myndum?
Sent: Mið 09. Mar 2011 19:42
af Benzmann
ég myndi kæra þetta...
Re: Að stela myndum?
Sent: Mið 09. Mar 2011 19:43
af Tiger
ha ha ha það er nú lítið mál að spegla myndum. Þetta virðist 99% vera sama mynd. Ég myndi bara tala við myndstef og biðja þá að fara í málið.
Re: Að stela myndum?
Sent: Mið 09. Mar 2011 19:44
af biturk
kærðu þetta OG settu í blöðin og bentu einmitt á að þeir ættu nú ekki að kvarta undan stuldi ef þeir stela sjálfir

Re: Að stela myndum?
Sent: Mið 09. Mar 2011 19:46
af Glazier
Sendu báðum miðlum feitann reikning fyrir myndinni, og taktu fram í leiðinni allt þetta væl í þeim þegar Næturvaktinni var downloadað á netinu.
Re: Að stela myndum?
Sent: Mið 09. Mar 2011 19:47
af Gúrú
Snuddi skrifaði:ha ha ha það er nú lítið mál að spegla myndum. Þetta virðist 99% vera sama mynd. Ég myndi bara tala við myndstef og biðja þá að fara í málið.
Hahaha mocking hjá mér, þeir tóku bara hans mynd, spegluðu henni og köttuðu út grænan part.

Re: Að stela myndum?
Sent: Mið 09. Mar 2011 19:48
af Benzmann
sendir þeim bara reikning upp á 150þús ef ekki meira, fyrir að fá að nota myndina þína

(1stk)
Re: Að stela myndum?
Sent: Mið 09. Mar 2011 19:49
af bulldog
Það er ljótt að stela.
Re: Að stela myndum?
Sent: Mið 09. Mar 2011 19:51
af Glazier
Gúrú skrifaði:Snuddi skrifaði:ha ha ha það er nú lítið mál að spegla myndum. Þetta virðist 99% vera sama mynd. Ég myndi bara tala við myndstef og biðja þá að fara í málið.
Hahaha mocking hjá mér, þeir tóku bara hans mynd, spegluðu henni og köttuðu út grænan part.

Þeir meira að segja höfðu fyrir því að spegla og kroppa myndina áður en hún fór á netið..

Re: Að stela myndum?
Sent: Mið 09. Mar 2011 19:51
af Hvati
Djöfulsins ræningjar! Sendu þeim fyrst reikning uppá myndirnar, síðan ef þeir borga ekki, þá skaltu kæra.
Re: Að stela myndum?
Sent: Mið 09. Mar 2011 19:54
af SolidFeather
Sendu þeim reikning!
Re: Að stela myndum?
Sent: Mið 09. Mar 2011 20:03
af Benzmann
og endilega taktu það fram, að það að nota myndina þína (1stk) í 1 dag kosti 150þús kr. til þess að koma í veg fyrir að þeir ætla að backa eitthvað útúr þessu með að removea myndina til að sleppa við öll vandræði.
Re: Að stela myndum?
Sent: Mið 09. Mar 2011 20:36
af lukkuláki
Kemur fram á síðunni þinni að ekki sé leyfilegt að nota myndir af henni ?
Re: Að stela myndum?
Sent: Mið 09. Mar 2011 20:38
af Gúrú
lukkuláki skrifaði:Kemur fram á síðunni þinni að ekki sé leyfilegt að nota myndir af henni ?
Það stendur hvergi þarna en frekar áberandi er "© Jakob Sigurdsson"
Re: Að stela myndum?
Sent: Mið 09. Mar 2011 20:45
af reyndeer
Djöfuslins hræsnaraskapur. Pottþétt myndi ég kæra þetta ef þetta væri mín mynd.
Þetta er reyndar ekki í fyrsta sinn sem þeir gera þetta:
http://www.helgi.me/2009/11/11/glaepur- ... josmyndum/ 
Re: Að stela myndum?
Sent: Mið 09. Mar 2011 20:55
af Pandemic
lukkuláki skrifaði:Kemur fram á síðunni þinni að ekki sé leyfilegt að nota myndir af henni ?
Það breytir engu hvort það standi eða ekki.
Re: Að stela myndum?
Sent: Mið 09. Mar 2011 21:21
af dodzy
ég mundi ekki hika við að kæra þetta, augljós stuldur þarna á ferð
Re: Að stela myndum?
Sent: Mið 09. Mar 2011 21:50
af lukkuláki
Pandemic skrifaði:lukkuláki skrifaði:Kemur fram á síðunni þinni að ekki sé leyfilegt að nota myndir af henni ?
Það breytir engu hvort það standi eða ekki.
OK ég vissi það ekki. Heldur það fyrir dómi ?
Átt auðvitað bara að fara í hart ekki láta þá komast upp með svona svínarí
Annars langar mig til að segja við þig. Flottar myndir

alveg stórfínar.
Re: Að stela myndum?
Sent: Mið 09. Mar 2011 21:55
af beggi90
Þetta á ekki að viðgangast, að fréttasíða noti mynd þína í óleyfi (s.s fyrir hagnað).
Er það ekki svipað og að sjónvarpstöð myndi nota bút úr Vaktarseríunni fyrir frétt/augl án leyfis?
Re: Að stela myndum?
Sent: Mið 09. Mar 2011 21:57
af snaeji
Ég myndi frekar kæra þá heldur en að senda þeim reikning...
Ef þú sendir þeim reikning þá verður þetta bara vesen og þeir enda líklegast með því að borga hann og ræna bara annarstaðar, en ef þú kærir þá verður til sterk umræða um þetta og varpar ljósi á hvað þeir eru að gera. "Vefmiðill að stela ljósmyndum" hljómar krassandi.
Ef þú kærir ekki þá halda þeir áfram að stela og borga síðan líklegast þessum 1/100 sem kemst að því og aldrei að vita nema það verðir þú aftur í nokkur skipti.
Re: Að stela myndum?
Sent: Mið 09. Mar 2011 22:07
af GuðjónR
Kæra hann ekki hika!
Ég lenti í því að tveimur myndum var stolið af vefsíðu minni solpallar.is og þær notaðar í auglýsingabækling hjá golfaþjónustunni.is fyrirtæki sem er í samkeppni við mig.
Ég sá þetta, hringdi í manninn sem stóð fyrir þessu, hann reyf bara kjaft, sagði mér að halda kjafti meðal annars.
Þegar ég var búinn að skella á hann þá hringdi ég beint í lögræðing sem ég hafði nýlega unnið fyrir og bað hann um að taka málið að sér.
Til að fara hratt yfir sögu þá endaði þetta með því að dómarinn bauð upp á dómssátt, 150.000.- fyrir myndirnar eða 75.000 fyrir hvora.
Við sættums á það, hann hætti að nota myndirnar undir eins og borgaði mér 150þúsund í skaðabætur.
Til að minnast sigursins þá fór éfg og keypti leðursófa fyrir peninginn, enda dettur mér alltaf í hug þegar ég sit og drekk kaffibollann minn að þessi sófi sé í boði gólfaþjónustunar, þegar ég dró hann fyrir dómarann og lét flengja hann!
Ef hann hefði ekki ösrað á mig í símann eins og guð hefðu ekki gefið honum nokkuð vit þá hefði ég ekki þurft að skella á hann og eflaust leyst þetta mál bara í síma. En svona ósvífni og hann skyldi fá að blæða.
Re: Að stela myndum?
Sent: Mið 09. Mar 2011 22:10
af lukkuláki
GuðjónR skrifaði:Kæra hann ekki hika!

Góður ! Þú átt skilið að fá Thule
Hér er stolin mynd af einum slíkum

Re: Að stela myndum?
Sent: Mið 09. Mar 2011 22:14
af Zethic
snaeji skrifaði:Ég myndi frekar kæra þá heldur en að senda þeim reikning...
Ef þú sendir þeim reikning þá verður þetta bara vesen og þeir enda líklegast með því að borga hann og ræna bara annarstaðar, en ef þú kærir þá verður til sterk umræða um þetta og varpar ljósi á hvað þeir eru að gera. "Vefmiðill að stela ljósmyndum" hljómar krassandi.
Ef þú kærir ekki þá halda þeir áfram að stela og borga síðan líklegast þessum 1/100 sem kemst að því og aldrei að vita nema það verðir þú aftur í nokkur skipti.
Eiga 365 ekki alla fjölmiðlana hvort eð er ? Held að enginn fréttamaður sé að fara skrifa grein um þetta í blaðinu, og eiga hættu á að missa vinnuna fyrir að tala um mál sem kemur sér ílla fyrir 365.
Re: Að stela myndum?
Sent: Mið 09. Mar 2011 22:37
af Victordp
Zethic skrifaði:snaeji skrifaði:Ég myndi frekar kæra þá heldur en að senda þeim reikning...
Ef þú sendir þeim reikning þá verður þetta bara vesen og þeir enda líklegast með því að borga hann og ræna bara annarstaðar, en ef þú kærir þá verður til sterk umræða um þetta og varpar ljósi á hvað þeir eru að gera. "Vefmiðill að stela ljósmyndum" hljómar krassandi.
Ef þú kærir ekki þá halda þeir áfram að stela og borga síðan líklegast þessum 1/100 sem kemst að því og aldrei að vita nema það verðir þú aftur í nokkur skipti.
Eiga 365 ekki alla fjölmiðlana hvort eð er ? Held að enginn fréttamaður sé að fara skrifa grein um þetta í blaðinu, og eiga hættu á að missa vinnuna fyrir að tala um mál sem kemur sér ílla fyrir 365.
Mbl, DV bara til að nefna eh sem að 365 á ekki