Ég hef nánast alltaf notast við FireFox en hann er bara eitthvað svo eftirá núna þannig að ég er farinn að nota Google Chrome sem sjálfgefinn vafra. Góður vafri á alla vegu nema það að mér finnst þægilegt að hafa nánast allt sem ég skoða opið...þannig að eftir stutta stund er ég kominn með hauginn allan af flipum. Ég fann viðbót í FireFox sem gerði mér það kleypt að hafa fleiri en eina línu uppi. Er það möguleiki í Google Chrome ? Er búinn að verað reyna að fara í gegnum extensions en finn ekkert sem hentar mér í þetta.
Líka annað sem mér finnst skrítið ég kemst ekki inná http://www.kokomjolk.is, fæ bara bakgrunninn en síðan hleður sig ekki. Einhver sem veit hvað gæti verið að þar ? Setti upp shockwave player en það virtist ekki gera nokkuð.
Ég fann ekkert sniðugt hérna á spjallinu þannig að ég geri bara nýjan þráð...ekki gott að vekja tveggja ára gamla þræði...

Einhver fróður um þetta sem getur aðstoðað mig ?
Takk
Kv. Oak