Síða 69 af 88

Re: Hringdu.is

Sent: Lau 29. Júl 2017 10:10
af Viktor
ponzer skrifaði:Þetta er eflaust eitthvað rassvasa fyrirtæki, t.d þá er hringdu.is skráð á "Hestaleit ehf". gef þessu eitt ár

:o

Re: Hringdu.is

Sent: Lau 29. Júl 2017 17:35
af tomasandri
Ég er líka að lenda í einhverjum leiðindum með ping til útlanda.
Speedtest á speedtest.net gefur mér 7ms ping á Íslandi en 50ms til London og 130ms til NY og svo oft 100+ til minna þekkra staða(t.d. 200ms til Nashvil, Tennessee). Lendi svo af og til(1-4 sinnum í leik) í því þegar ég spila Overwatch að pingið stökkvi úr 60-100ms í 500-2500ms og fer svo aftur niður eftir svona mínútu. Veit ekkert hvort að ég sé að gera eitthvað rangt eða hvort þetta sé á hlið Hringdu.

Re: Hringdu.is

Sent: Lau 12. Ágú 2017 23:58
af Viggi
Nú er netið alveg dottið út hjá mér. Fleirri að lenda í sama?

Re: Hringdu.is

Sent: Sun 13. Ágú 2017 00:01
af Maniax
Viggi skrifaði:Nú er netið alveg dottið út hjá mér. Fleirri að lenda í sama?

Sama hér :(

Er í mosó

Re: Hringdu.is

Sent: Sun 13. Ágú 2017 00:10
af vesi
Ok. Semsagt ekki bara ég.

Re: Hringdu.is

Sent: Sun 13. Ágú 2017 00:11
af gorkur
Sama hér, er á reykjanesi

Re: Hringdu.is

Sent: Sun 13. Ágú 2017 00:15
af teitan
Sama, er á Suðurlandi, ljósnet

Re: Hringdu.is

Sent: Sun 13. Ágú 2017 00:21
af flottur
Netið mitt er fínt, ég er í Garðabæ.

Edit : er með ljósleiðsra

Re: Hringdu.is

Sent: Sun 13. Ágú 2017 00:29
af Viggi
Komið inn aftur :)

Re: Hringdu.is

Sent: Sun 13. Ágú 2017 00:39
af viddi
"Samkvæmt tæknimanni hjá Hringdu varð bilun í kjölfar uppfærslu á ljósnetstengingum og urðu því nokkrir viðskiptavinir netlausir í nokkra stund. Búið að er að greina og leysa vandann."

Re: Hringdu.is

Sent: Sun 13. Ágú 2017 00:45
af vesi
Fixed..Awesome.
Er þetta ekki fyrsta allvöru down-time-ið í smá tíma. Eða man ég bara svona lítið

Re: Hringdu.is

Sent: Sun 13. Ágú 2017 01:06
af HringduSamuel
Það er orðið langt síðan við lentum í einhverjum alvarlegum bilunum sem betur fer. En mannleg mistök geta víst alltaf orðið og sem betur fer vorum við snöggir að greina vandann og leysa hann. Biðjumst velvirðingu á óþægindum sem kunna hafa hlotist af þessu. :)

Re: Hringdu.is

Sent: Sun 13. Ágú 2017 01:11
af worghal
HringduSamuel skrifaði:Það er orðið langt síðan við lentum í einhverjum alvarlegum bilunum sem betur fer. En mannleg mistök geta víst alltaf orðið og sem betur fer vorum við snöggir að greina vandann og leysa hann. Biðjumst velvirðingu á óþægindum sem kunna hafa hlotist af þessu. :)

hva, HringduEgill farinn í sumarfrí? :lol:

Re: Hringdu.is

Sent: Sun 13. Ágú 2017 01:17
af HringduSamuel
worghal skrifaði:
HringduSamuel skrifaði:Það er orðið langt síðan við lentum í einhverjum alvarlegum bilunum sem betur fer. En mannleg mistök geta víst alltaf orðið og sem betur fer vorum við snöggir að greina vandann og leysa hann. Biðjumst velvirðingu á óþægindum sem kunna hafa hlotist af þessu. :)

hva, HringduEgill farinn í sumarfrí? :lol:

Hann er reyndar búinn að vera í sumarfríi en það vill bara til að ég er á vakt núna. ;)

Re: Hringdu.is

Sent: Sun 13. Ágú 2017 01:43
af Maniax
aaaaaaaand down again

edit: í svona 5 mín ;)

Re: Hringdu.is

Sent: Sun 13. Ágú 2017 02:55
af Ranimosk
Þetta gæti ekki hafað gerst á verri tíma. Úrslitaleikurinn í TI7, liðið mitt undir, þvílik spenna .... svo ekkert net. Þegar ég næ svo aftur tengingu er allt búið. Ég var svo brjáluð að ég hefði sagt upp nettengingunni ef það hefði ekki verið nótt. Það er þó bót harmi gegn að liðið mitt vann, samt frekar fúlt að þurfa að lesa úrslitin eftir fjörið frekar en að upplifa þau :(

Re: Hringdu.is

Sent: Sun 13. Ágú 2017 10:27
af olihar
Ég færði ljósleiðaran yfir til Hringdu fyrir stuttu síðan, rak mig reyndar á að þeir reyndu að rukka mig 2 sinnum fyrir mánuðinn, kannski vert að fólk skoði það hjá sér.

Ég ætlaði að færa farsíman yfir til Hringdu en ég ákvað að bíða með það, Ég átti til skjáskot af verðunum hjá þeim sem var kannski ágætt þar sem ég rakst á auglýsingu hjá þeim á mbl.is þar sem þeir voru að auglýsa 25% afslátt af verði, þetta var í gær, s.s. auglýsingin.

Það sem athugavert er að þeir eru að bjóða 25% afslátt af en verðið helst það sama, hvernig getur það staðist.

Verð fyrir.
Photo-01-08-2017,-15-01-13.jpg
Photo-01-08-2017,-15-01-13.jpg (89.42 KiB) Skoðað 2803 sinnum

Verð auglýst með 25% afslætti.
Photo-12-08-2017,-10-39-09.jpg
Photo-12-08-2017,-10-39-09.jpg (161.21 KiB) Skoðað 2803 sinnum

Re: Hringdu.is

Sent: Sun 13. Ágú 2017 16:54
af mainman
Ég fór með fjóra farsíma hérna á heimilinu til Hringdu um dagin því mér var lofað öllu fögru ef ég kæmi til þeirra með farsímana (er búinn að vera með heimasíma og net í fjöldamörg ár hjá þeim).
Strax og það var búið þá fór ég að lenda i því aftur og aftur að það,stóð bara "no service" á skjánum.
Þegar ég hringdi,í þá var ein fyrsta spurningin hvar ég byggi, ég sagði stelpunni að ég byggi í vogum vatnsleysu og þá var svarið " já, það er alveg þekkt vandamál hvað það er lélegt swmband í vogunum".
Var nú ekkert rosalega ánægður með þetta svar því það er nú ekki eins og hin stelpan sem seldi mér pakkan hafi ekki vitað,hvar ég byggi.
svo núna í síðustu viku fór ég með fjölskylduna i sumarbústað og flest tæki þar fóru bara í gegnum símann minn enda er ég með 25gb á honum og síðan í gær fæ eg sms um að gagnamagnið mitt sé búið og að hver 100mb kosti mig 350 krónur svo eg hringdi í þá til að fá auka net og þá er bara svarið að ég geti ekki keypt af þeim meira net og að þetta sé bara limitið.
Hann sagði mér að ég hefði bara átt að vera með hnetu í bústaðnum og ráðlagði mér að fá mér annað símakort fram að mánaðarmótum, hann virtist engan vegin skilja að þetta er símanúmerið mitt í vinnuni og að ég hreinlega gæti ekki skipt um númer.
Hann sagði síðan að 25gb væri bara það stærsta sem síminn bjóði upp á.
Það tók mig nú ekki langan tíma að fletta upp á síðunni hjá símanum getur maður verslað upp í 300gb svo það er nú ekki alveg rétt hjá honum.
Ég verð að hafa kveikt á netinu hjá mér alltaf í símanum á virkum dögum og er ekki alltaf við vinnuna svo eg geti nýtt mér wifi þar og ég er nú þegar kominn langt í 4 þús kall aukareikning vegna umframnets og engin leið fyrir mig að kaupa meira hjá þessu fyrirtæki.
Það verður eitt af því fyrsta sem ég geri á morgun að skipta um símafélag........

Re: Hringdu.is

Sent: Sun 13. Ágú 2017 17:14
af HringduEgill
olihar skrifaði:Ég færði ljósleiðaran yfir til Hringdu fyrir stuttu síðan, rak mig reyndar á að þeir reyndu að rukka mig 2 sinnum fyrir mánuðinn, kannski vert að fólk skoði það hjá sér.

Ég ætlaði að færa farsíman yfir til Hringdu en ég ákvað að bíða með það, Ég átti til skjáskot af verðunum hjá þeim sem var kannski ágætt þar sem ég rakst á auglýsingu hjá þeim á mbl.is þar sem þeir voru að auglýsa 25% afslátt af verði, þetta var í gær, s.s. auglýsingin.

Það sem athugavert er að þeir eru að bjóða 25% afslátt af en verðið helst það sama, hvernig getur það staðist.

Verð fyrir.
Photo-01-08-2017,-15-01-13.jpg

Verð auglýst með 25% afslætti.
Photo-12-08-2017,-10-39-09.jpg

Sælir.

Þetta er bara gamall banner frá því við lækkuðum verðið í það sem það er núna. Þegar þú smellir síðan á einhverja áskrift á bannernum birtist síðan verðið.

Re: Hringdu.is

Sent: Sun 13. Ágú 2017 17:19
af olihar
HringduEgill skrifaði:

Þetta er nákvæmlega það sem ég er að gera þarna á þessum banner, ég smelli á og þá kemur þetta verð... s.s. gamla verðið en samt er það merkt sem 25% afsláttur. What gives?

Gamall banner er ekki rétta svarið hérna, þetta er í birtingu núna.

Re: Hringdu.is

Sent: Sun 13. Ágú 2017 17:25
af HringduEgill
mainman skrifaði:Ég fór með fjóra farsíma hérna á heimilinu til Hringdu um dagin því mér var lofað öllu fögru ef ég kæmi til þeirra með farsímana (er búinn að vera með heimasíma og net í fjöldamörg ár hjá þeim).
Strax og það var búið þá fór ég að lenda i því aftur og aftur að það,stóð bara "no service" á skjánum.
Þegar ég hringdi,í þá var ein fyrsta spurningin hvar ég byggi, ég sagði stelpunni að ég byggi í vogum vatnsleysu og þá var svarið " já, það er alveg þekkt vandamál hvað það er lélegt swmband í vogunum".
Var nú ekkert rosalega ánægður með þetta svar því það er nú ekki eins og hin stelpan sem seldi mér pakkan hafi ekki vitað,hvar ég byggi.
svo núna í síðustu viku fór ég með fjölskylduna i sumarbústað og flest tæki þar fóru bara í gegnum símann minn enda er ég með 25gb á honum og síðan í gær fæ eg sms um að gagnamagnið mitt sé búið og að hver 100mb kosti mig 350 krónur svo eg hringdi í þá til að fá auka net og þá er bara svarið að ég geti ekki keypt af þeim meira net og að þetta sé bara limitið.
Hann sagði mér að ég hefði bara átt að vera með hnetu í bústaðnum og ráðlagði mér að fá mér annað símakort fram að mánaðarmótum, hann virtist engan vegin skilja að þetta er símanúmerið mitt í vinnuni og að ég hreinlega gæti ekki skipt um númer.
Hann sagði síðan að 25gb væri bara það stærsta sem síminn bjóði upp á.
Það tók mig nú ekki langan tíma að fletta upp á síðunni hjá símanum getur maður verslað upp í 300gb svo það er nú ekki alveg rétt hjá honum.
Ég verð að hafa kveikt á netinu hjá mér alltaf í símanum á virkum dögum og er ekki alltaf við vinnuna svo eg geti nýtt mér wifi þar og ég er nú þegar kominn langt í 4 þús kall aukareikning vegna umframnets og engin leið fyrir mig að kaupa meira hjá þessu fyrirtæki.
Það verður eitt af því fyrsta sem ég geri á morgun að skipta um símafélag........

Sælir!

Leitt að heyra með sambandið hjá þér. Við förum í gegnum dreifikerfi Símans og þegar ég skoða Voga á Vatnsleysuströnd á https://hringdu.is/dreifikerfid/ virðist sambandið vera ágætt. Þekkirðu aðra hjá Símanum/Hringdu sem lýsa sömu reynslu?

Annars er 25 GB pakkinn sá stærsti hjá okkur þannig ef þú ert venjulega að fara yfir 25 GB þá borgar sig fyrir þig að vera annars staðar. Við hringjum venjulega í fólk þegar það klárar gagnamagnið sitt og þegar það er komið yfir 25 GB þá bjóðum við yfirleitt að kaupa auka gagnamagn ef notkunin er undantekning (t.d. í fríum eða óvart gleymt að tengja sig við WiFi á router o.s.frv.). Sendu mér allavega skilaboð hérna á Vaktinni svo við getum græjað þennan mánuð og skoðað hvað henti þér í framhaldinu.

Re: Hringdu.is

Sent: Sun 13. Ágú 2017 17:33
af HringduEgill
olihar skrifaði:
HringduEgill skrifaði:
olihar skrifaði:Ég færði ljósleiðaran yfir til Hringdu fyrir stuttu síðan, rak mig reyndar á að þeir reyndu að rukka mig 2 sinnum fyrir mánuðinn, kannski vert að fólk skoði það hjá sér.

Ég ætlaði að færa farsíman yfir til Hringdu en ég ákvað að bíða með það, Ég átti til skjáskot af verðunum hjá þeim sem var kannski ágætt þar sem ég rakst á auglýsingu hjá þeim á mbl.is þar sem þeir voru að auglýsa 25% afslátt af verði, þetta var í gær, s.s. auglýsingin.

Það sem athugavert er að þeir eru að bjóða 25% afslátt af en verðið helst það sama, hvernig getur það staðist.

Verð fyrir.
Photo-01-08-2017,-15-01-13.jpg

Verð auglýst með 25% afslætti.
Photo-12-08-2017,-10-39-09.jpg

Sælir.

Þetta er bara gamall banner frá því við lækkuðum verðið í það sem það er núna. Þegar þú smellir síðan á einhverja áskrift á bannernum birtist síðan verðið.

Þetta er nákvæmlega það sem ég er að gera þarna á þessum banner, ég smelli á og þá kemur þetta verð... s.s. gamla verðið en samt er það merkt sem 25% afsláttur. What gives?

Gamall banner er ekki rétta svarið hérna, þetta er í birtingu núna.

Bannerinn er í birtingu já en efnið hans er gamalt frá því við lækkuðum GSM verðið hjá okkur í það sem það er núna. Prósenturnar segja bara til um hvað verðið lækkaði mikið á þeim tíma. Það er einfaldlega kominn tími á nýjan banner :))

Re: Hringdu.is

Sent: Sun 13. Ágú 2017 18:04
af GuðjónR
HringduEgill skrifaði:...

Heyrðu gamli, ertu ekki í sumarfríi?

Re: Hringdu.is

Sent: Sun 13. Ágú 2017 18:31
af HringduEgill
GuðjónR skrifaði:
HringduEgill skrifaði:...

Heyrðu gamli, ertu ekki í sumarfríi?

Öll sumarfrí taka enda :'(

Re: Hringdu.is

Sent: Sun 13. Ágú 2017 18:33
af GuðjónR
HringduEgill skrifaði:
GuðjónR skrifaði:
HringduEgill skrifaði:...

Heyrðu gamli, ertu ekki í sumarfríi?

Öll sumarfrí taka enda :'(

True... :crying