Síða 4 af 6

Re: Jólagjafir fyrir dömuna

Sent: Þri 27. Nóv 2012 23:29
af korkurinn
Ef eg væri þú myndi ég gefa henni hjartahálsmen með demöntum , flottann kjól og skó :) :) :)

Re: Jólagjafir fyrir dömuna

Sent: Þri 27. Nóv 2012 23:42
af littli-Jake
korkurinn skrifaði:Ef eg væri þú myndi ég gefa henni hjartahálsmen með demöntum , flottann kjól og skó :) :) :)

Greinilegt að þú átt ekki konu. Að ætla að gefa konunni sinni "flotta skó" er nánast vonlaust mission. Ég ætla ekki einusinni út í það að kaupa fyrir þær kjól.

Re: jólagjöf til kærustunnar?

Sent: Þri 27. Nóv 2012 23:43
af Heidar222
mission impossible!

Re: jólagjöf til kærustunnar?

Sent: Þri 27. Nóv 2012 23:53
af tdog
Þessi þráður er gólden

Re: Jólagjafir fyrir dömuna

Sent: Þri 27. Nóv 2012 23:55
af Kjáni
littli-Jake skrifaði:
korkurinn skrifaði:Ef eg væri þú myndi ég gefa henni hjartahálsmen með demöntum , flottann kjól og skó :) :) :)

Greinilegt að þú átt ekki konu. Að ætla að gefa konunni sinni "flotta skó" er nánast vonlaust mission. Ég ætla ekki einusinni út í það að kaupa fyrir þær kjól.
ég gaf kærustunni flotta skó í sumargjöf og hún elskar þá, notar þá virkilega oft og er virkilega ánægð með þá :happy

Re: Jólagjafir fyrir dömuna

Sent: Þri 27. Nóv 2012 23:58
af playman
Kjáni skrifaði:

Is she? ;)

Re: jólagjöf til kærustunnar?

Sent: Þri 27. Nóv 2012 23:59
af tdog
NEI NÚ SEGJI ÉG STOPP. Það er ekki hægt að gefa kvenfólki skó sem þeim líkar. Púnktur, basta.

Re: Jólagjafir fyrir dömuna

Sent: Þri 27. Nóv 2012 23:59
af Kjáni
playman skrifaði:
Kjáni skrifaði:
littli-Jake skrifaði:
korkurinn skrifaði:Ef eg væri þú myndi ég gefa henni hjartahálsmen með demöntum , flottann kjól og skó :) :) :)

Greinilegt að þú átt ekki konu. Að ætla að gefa konunni sinni "flotta skó" er nánast vonlaust mission. Ég ætla ekki einusinni út í það að kaupa fyrir þær kjól.
ég gaf kærustunni flotta skó í sumargjöf og hún elskar þá, notar þá virkilega oft og er virkilega ánægð með þá :happy

Is she? ;)
She really is :o ég var sjálfur virkilega hissa \:D/ var mér að segja að fara með bænir áður en hún opnaði pakkan [-o<

Re: jólagjöf til kærustunnar?

Sent: Mið 28. Nóv 2012 00:06
af Bidman
Gefðu henni heimilistæki maður, helst ryksugu eða brauðrist. Eitthvað sem þig vantar á heimilið.

Ef hún er óánægð, snúðu talinu þá upp í eitthvað um hana, þessar dúllur elska að tala um sjálfar sig. Vektu máls á því að þér finnist hún hafa fitnað, talaðu um broslínurnar eða eitthvað.

:happy

Re: jólagjöf til kærustunnar?

Sent: Mið 28. Nóv 2012 00:10
af playman
Ryksugu eða brauðrist? nei kommmon skoh.
Verður að hafa þetta einfalt og ódýrt, Uppþvottahanska, uppþvottabursta og sápulög, og hún verður hæst ánægð.
Þú munt fá að sjá hvað ég er að tala um þegar að þið farið að "sofa" ;)

Re: jólagjöf til kærustunnar?

Sent: Mið 28. Nóv 2012 00:15
af tdog
Hah, flestir hérna yrðu nú bara sendir inn í eldhús að vaska upp með nýju gjöfunum. En ég held að eyrnalokkar og glingur sé bara mjög heppilegt, ég ætla allavega að setja glingur í pakkann hjá frúnni.

Re: jólagjöf til kærustunnar?

Sent: Mið 28. Nóv 2012 01:47
af J1nX
ætla að gefa minni konu góðan kodda, enda eru hennar koddar ógeðslegir og hún stelur alltaf mínum sem ég fékk í afmælisgjöf þannig ég þarf að sofa með ógeðslegu koddana, svo gef ég henni líka armband sem hún sagði einhverntímann að henni þætti svo flott en týmdi(tímdi?) ekki að kaupa sér það

Re: jólagjöf til kærustunnar?

Sent: Mið 28. Nóv 2012 06:30
af kubbur
smá spurning then, vinkona á afmæli í des, væri asnalegt að gefa hálsmen í afmælisgjöf og eyrnalokka í stíl í jólagjöf ?

Re: jólagjöf til kærustunnar?

Sent: Mið 28. Nóv 2012 06:56
af Plushy
kubbur skrifaði:smá spurning then, vinkona á afmæli í des, væri asnalegt að gefa hálsmen í afmælisgjöf og eyrnalokka í stíl í jólagjöf ?

jebb, henni á eftir að finnast það óþæginlegt nema þið séuð eitthvað "náin".

Re: jólagjöf til kærustunnar?

Sent: Mið 28. Nóv 2012 07:43
af littli-Jake
kubbur skrifaði:smá spurning then, vinkona á afmæli í des, væri asnalegt að gefa hálsmen í afmælisgjöf og eyrnalokka í stíl í jólagjöf ?

já eginlega. Aulalegt að gefa þeim eitthvað sett í skrefum.

Re: jólagjöf til kærustunnar?

Sent: Mið 28. Nóv 2012 08:45
af Daz
tdog skrifaði:NEI NÚ SEGJI ÉG STOPP. Það er ekki hægt að gefa kvenfólki skó sem þeim líkar. Púnktur, basta.

Ekkert mál að gefa þeim skó, fylgjast bara með þeim þegar þær eru að skoða skó og koma svo seinna um daginn og kaupa þá sem hún talaði mest um/skoðaði mest. Verst að þeir kosta líkega líka mest...

Re: jólagjöf til kærustunnar?

Sent: Mið 28. Nóv 2012 08:57
af Jón Ragnar
Bidman skrifaði:Gefðu henni heimilistæki maður, helst ryksugu eða brauðrist. Eitthvað sem þig vantar á heimilið.

Ef hún er óánægð, snúðu talinu þá upp í eitthvað um hana, þessar dúllur elska að tala um sjálfar sig. Vektu máls á því að þér finnist hún hafa fitnað, talaðu um broslínurnar eða eitthvað.

:happy

Tröll :japsmile

Algjört sambandssuicide að gefa heimilistæki í jólagjöf.

tdog skrifaði:NEI NÚ SEGJI ÉG STOPP. Það er ekki hægt að gefa kvenfólki skó sem þeim líkar. Púnktur, basta.

Ekkert mál að gefa þeim skó.

Hef oft gefið minni skó og kjóla. Works everytime :megasmile

Re: jólagjöf til kærustunnar?

Sent: Mið 28. Nóv 2012 09:08
af starionturbo
Ætli það séu ekki fleiri hérna en ég sem eiga kærustu sem á afmæli í desember.

En ég held að ég sé með þetta covered .... konustöff í afmælisgjöf og konustöff í jólagjöf !

Og varðandi skóna ... menn geta farið á hausinn ef þeir kaupa skóna sem hún hefur "alltaf" verið að skoða, það eru skórnir sem hún hefur ekki efni á. Maður hefur alveg séð hátt í 50 þúsund.

Re: jólagjöf til kærustunnar?

Sent: Mið 28. Nóv 2012 09:14
af Jón Ragnar
starionturbo skrifaði:
Og varðandi skóna ... menn geta farið á hausinn ef þeir kaupa skóna sem hún hefur "alltaf" verið að skoða, það eru skórnir sem hún hefur ekki efni á. Maður hefur alveg séð hátt í 50 þúsund.

Þegar ég var úti síðast með henni, þá fundum við Jeffrey Cambell skó sem henni langaði í

VEL yfir 100k :lol:

Re: jólagjöf til kærustunnar?

Sent: Mið 28. Nóv 2012 10:13
af gissur1
Jón Ragnar skrifaði:
starionturbo skrifaði:
Og varðandi skóna ... menn geta farið á hausinn ef þeir kaupa skóna sem hún hefur "alltaf" verið að skoða, það eru skórnir sem hún hefur ekki efni á. Maður hefur alveg séð hátt í 50 þúsund.

Þegar ég var úti síðast með henni, þá fundum við Jeffrey Cambell skó sem henni langaði í

VEL yfir 100k :lol:

Verst að platform hælar eru detta úr tísku :dissed

Re: jólagjöf til kærustunnar?

Sent: Mið 28. Nóv 2012 10:27
af Krissinn
GullMoli skrifaði:Ég hef séð svona náttsloppa, sem eru svona extra mjúkir, í hagkaup. Svo er hagkaup líka með gott úrval af böngsum :D Annars bara þessar dótabúðir, Toys'R'Us t.d.

Ég tek undir það! Kærastan mín verslaði sér náttslopp í Hagkaupum sem kostaði um 6.990 kr, rosa mjúkur, bleikur með svörtum litlum hjörtum..... Ég hef meira að segja prófað hann einn kaldan vetrarmorgun og djöfull var það gott hahaha :D Mæli hiklaust með þessum náttsloppum..... :D

Re: jólagjöf til kærustunnar?

Sent: Mið 28. Nóv 2012 20:07
af korkurinn
aaaaaw, vissi ekki að sumir strákar geta hugsað svona um að gefa koróunum sínum skó i jólagjöf...Heidar222 þú mátt bara gefa mér slopp!!!

Re: jólagjöf til kærustunnar?

Sent: Mið 28. Nóv 2012 20:17
af Heidar222
Melkorka, ég ætlaði að gefa þér uppþvottalögur eða klósettbursta! Bleikan!

Re: jólagjöf til kærustunnar?

Sent: Mið 28. Nóv 2012 20:18
af korkurinn
Relationship over :)

Re: jólagjöf til kærustunnar?

Sent: Mið 28. Nóv 2012 21:12
af Xovius
Ég á svo yndislega kærustu að hún leysti þetta vandamál eiginlega bara fyrir mig. Hún kom sjálf með þá hugmynd að við færum saman í smá verslunarferð í bæinn (búum ekki á höfuðborgarsvæðinu) og versluðum jólagjafir handa hvort öðru. Ætla svo að fara með hana eitthvert fínt út að borða og get verið alveg viss um að henni líki við jólagjöfina sína :)

Þá sprettur reyndar upp ein önnur spurning, hvar er best að fara með hana út að borða?