Ég var að velta því fyrir mér hversu mörg ykkar geta leyst rubik's tening? Ef þú ert ein/n af þeim , hvað ert þú lengi?


Glazier skrifaði:Veit um einn sem er allgjörlega húkt á svona teninga.. hann pantaði sér rúbix kubb frá Kína, minnir að kubburinn sé 6x6 eða 8x8![]()
Og hann á margar tegundir af rúbix kubbum, bara þroskaheft að horfa á hann vesenast í þessu.
Einarr skrifaði:16.68 er metið mitt á 3x3 og 20.19 sec meðaltal af fimm ( e. Avg 5 ). ( held ég sé næst besti íslendingurinn?)
2x2 metið mitt er svo 3.?? og um 8 sec meðaltal af 10 minnir mig, 4x4 metið mitt er um 1:40 min en hef voða lítið æft það og 5x5 er held ég 3:49 eða þar í kring
Edit: bætti metið mitt 14.35 á 3x3 kubb.
KermitTheFrog skrifaði:Þegar ég var upp á mitt besta var metið mitt 0:22 eða 0:27 eða eitthvað nálægt því. Nú leik ég mér með þetta af og til þegar ég sit á skálinni.
Það á víst að vera hægt að leysa hann í minna en 20 hreyfingum úr hvaða stöðu sem er vilja einhverjir vísindamenn meina.