Síða 1 af 1

Usb Snúrur?

Sent: Þri 16. Mar 2010 14:39
af Einarr
vitið þið hvar ég fæ high speed usb 2.0 snúrur með gull tengjum og 2 ferrite her á landi? eins og þessi http://techtools.myshopify.com/collecti ... usb-cables

Re: Usb Snúrur?

Sent: Þri 16. Mar 2010 14:42
af Gúrú
Stórefast svo mikið að einhver sjái sér hag í því að flytja þetta inn, fáðu Buy.is bara til þess.
Þetta er þá 1m snúra komin til þín á ~2500-3000 kr.

Re: Usb Snúrur?

Sent: Þri 16. Mar 2010 15:43
af Nariur
ekki sóa peningunum þínum í einhverja dýra USB snúru, þessar ódýru virka alveg jafn vel, þ.e.a.s. annaðhvort virka USB snúrur eða ekki, það er enginn munur eftir gæðum. Annaðhvort skilar digital merki sér eða ekki, annað en analog þar sem gæði skipta máli.

Re: Usb Snúrur?

Sent: Þri 16. Mar 2010 16:36
af kiddi
Nariur skrifaði:ekki sóa peningunum þínum í einhverja dýra USB snúru, þessar ódýru virka alveg jafn vel, þ.e.a.s. annaðhvort virka USB snúrur eða ekki, það er enginn munur eftir gæðum. Annaðhvort skilar digital merki sér eða ekki, annað en analog þar sem gæði skipta máli.

Þetta er bara ekki satt, kaplar hafa mismikla bandvídd og þ.a.l. mismikil gæði. Þú verður sjaldan eða aldrei var við gæði lélegra kapla þegar þú ert í stuttum lengdum eins og 1.5m, en um leið og þú ferð í eitthvað lengra þá sýna ódýru kaplarnir sínu ljótu hliðar. Tala nú ekki um þá sem eru í hljóðvinnslu, þá skipta gæði kapla meira máli en fyrir flesta aðra, sama hverskonar kaplar það eru.

It is commonly stated that all HDMI cables are created equal because it is a digital signal. While this is close to the truth when the spec is followed, it's not always true. The one major thing that can really destroy your signal quality is the length of the HDMI cable. It's true that HDMI signals are digital, and digital signals are 1's and 0's. The problem is that there is no such thing as a 1 or a 0 in digital electronics. It is represented in various ways. Lack/Presence of a signal, a positively magnetically charged or negatively magnetically charged medium, voltage at a certain value, etc...

How does this relate to your HDMI cable? As the length of the cable increases, not only does the signal strength decrease but so does the differentiation between each subsequent bit. If the signal quality is so bad that the machine at the other end cannot tell where one bit starts and another ends, it can guess (based on the signal strength) an incorrect value. The resulting signal is still digital, is it not? And yet it is incorrect. A poorly constructed cable’s signal degradation is affected by this problem, while high-quality cables often have active boosters. Thanks to this the signal strength stays at values that can be properly read (as a 1 and a 0) and will not blend with their neighboring bits.

Notabene þá gilda alveg sömu lögmál með USB, DVI, og allt annað "digital"

Re: Usb Snúrur?

Sent: Þri 16. Mar 2010 16:51
af hagur
kiddi skrifaði:

Dagsatt.

Ef þig vantar USB kapal sem er 1-3 metrar á lengd, þá þarftu ekkert að pæla í gold-plated connectors og þvílíku. Ef verið er að tala um einhverjar almennilegar lengdir, segjum t.d 10m+, þá kannski pælir maður meira í þessu, eða fær sér active USB extension kapal með equalizer.

Re: Usb Snúrur?

Sent: Þri 16. Mar 2010 16:58
af Cascade
Varðandi kaplana

Ég fékk mér 5m hdmi kapal hjá computer.is mjög ódýrt og er að nota það til að tengja við 42" full hd tæki

Það er fáránlega smooth og ekki sé ég hvernig dýrari kapall gæti verið betri (þeas í þessu tilviki)

Re: Usb Snúrur?

Sent: Þri 16. Mar 2010 17:07
af kiddi
Cascade skrifaði:Varðandi kaplana

Ég fékk mér 5m hdmi kapal hjá computer.is mjög ódýrt og er að nota það til að tengja við 42" full hd tæki

Það er fáránlega smooth og ekki sé ég hvernig dýrari kapall gæti verið betri (þeas í þessu tilviki)

Þú gætir lent í probba ef þú værir með 6.1 DTS hljóð í fulli blasti ofan á 1080P mynd sem er lítið þjöppuð :) Þetta snýst allt um gagnaflutningsgetu.

Re: Usb Snúrur?

Sent: Þri 16. Mar 2010 18:04
af Matti21
http://www.youtube.com/watch?v=BYTlN6wjcvQ

Hér er myndband sem ég mæli algjörlega með að allir horfi á, helst alveg í gegn en ef þið hafið ekki þolinmæðina í það þá verið að tala um hluti sem koma þessum þræði við aðalega í byrjun og svo á 11:55 og aftur á 16:53.
Ég skal alveg vera sammála því að í mjög löngum snúrum gætirðu þurft að eyða meiri pening fyrir betri enangrun, þó að merkið sé digital en þá byrjar maður auðvitað á ódýrustu snúrunni sem þú færð og vinnur þig svo síðan upp ef þú lendir í veseni.
Þessi snúra sem hann linkar hérna á er 3.5 fet eða um einn og hálfur metri. Auka enangrun hefur ekkert að segja.
Maður verður að muna að snúru fyrirtæki (eins og reyndar öll fyrirtæki) reyna að rukka þig allastaðar sem þau geta. Gullhúðun, engangrun, certefied þetta og þetta og you name it. En maður verður samt að spá í hvað það er sem maður er að tengja saman. Hvaða tilgang hefur td. gullhúðaður kapall ef tengin sem verið er að tengja á milli eru ekki gullhúðuð?
Það td. alveg fáranlegt hvað margir geta eytt miklum pening í dýrari hljóðkapla sem koma í veg fyrir truflanir og eru síðan í herbergum sem distorta hljóðið meira en einhver kapall eða rafmagnstruflanir gætu nokkurntíman gert.

Til þess að svara samt upphaflega korkahöfundi þá, af því að þú linkar á síðu sem heitir DJtechtools væri ég mjög mikið til í að fá að vita í hvað þú þarft þennan kapal? Í hvaða vandamáli ertu að lenda með ódýrari kapla? Ég skal lofa þér því að þessi kapall mun ekki laga nein pops eða clicks ef þú ert að lenda í því frá hljóðkortinu. Það er bufferinn sem er að valda því og þá þarftu annaðhvort að hækka hann eða lækka sample rate-ið.

Re: Usb Snúrur?

Sent: Þri 16. Mar 2010 19:42
af Nariur
þú ert að grínast, gagnaflutningshraði USB 2.0 er 480 mb/s, ef kaplarnir höndla það ekki eru það ekki USB 2.0 kaplar. Það er staðallinn.
Það er hárrétt að þegar snúrurnar eru orðnar langar gæti maður farið að lenda í veseni, en ég nefndi það ekki því hann vildi 1,5m langan kapal.

Re: Usb Snúrur?

Sent: Þri 16. Mar 2010 23:00
af Einarr
Er ekki alveg öruggur á lengd en hún þarf ekki að vera löng, er að nota þetta fyrir USB Mixer með innbygðu hljóðkorti og mín snúra hefur stundum annað hvort valdið hljóð dropouti eða sumir takkar ekki virkað tímabundið svo " hvaða snúra sem er " er ekki nóg.

Re: Usb Snúrur?

Sent: Þri 16. Mar 2010 23:03
af Nariur
tjah, ónýtar snýrur eru auðvitað ekki upplagðar

Re: Usb Snúrur?

Sent: Þri 16. Mar 2010 23:05
af Einarr
hef samt allveg prófað nokkrar snúrur á heimilinu sem virka fínt fyrir flakkara og svoleiðis en fara vera með stæla á köflum með mixerinn

Re: Usb Snúrur?

Sent: Þri 16. Mar 2010 23:07
af Matti21
Einarr skrifaði:Er ekki alveg öruggur á lengd en hún þarf ekki að vera löng, er að nota þetta fyrir USB Mixer með innbygðu hljóðkorti og mín snúra hefur stundum annað hvort valdið hljóð dropouti eða sumir takkar ekki virkað tímabundið svo " hvaða snúra sem er " er ekki nóg.

Skal nánast lofa þér því að þetta er ekki snúran, hefurðu prófað svona (ofurenangraða) snúru eða hefurðu einhverjar heimildir fyrir því að hún muni gera betur?
USB upptöku-hljóðkort eru nánast undartekningalaust til vandræða og maður þarf að taka sér ágætis tíma í að finna út rétt sample-rate/buffer size vs. latency. Þetta er í afar fáum tilvikum plug-and-play dæmi.
Ákveðin Intel Chipset hafa líka verið til vandræða með USB hljóðkort og þá dugar oft að kaupa USB PCI kort í tölvuna og tengja hljóðkortið í það.
Ertu með nafnið á þessum mixer?

Re: Usb Snúrur?

Sent: Þri 16. Mar 2010 23:11
af Nariur
Einarr skrifaði:hef samt allveg prófað nokkrar snúrur á heimilinu sem virka fínt fyrir flakkara og svoleiðis en fara vera með stæla á köflum með mixerinn

þá er mixerinn vandamálið

Re: Usb Snúrur?

Sent: Þri 16. Mar 2010 23:14
af Einarr
Nei mixerinn hefur virkað fullkomlega með snúru sem vinur minn á svo gæti verið að mínar séu eitthvað slappar, gti samt seglun frá stóru sirka 10-12" keilum haft áhrif á snúrurnar?

Annars er þetta numark omni.

Re: Usb Snúrur?

Sent: Þri 16. Mar 2010 23:39
af Matti21
Numark omni er nú bara 1x4 Input/Output græja. Færð mun öflugari USB kort en þetta og það þarf engar ofursnúrur með þeim.
Þegar þú segir að græjan hafi virkað fullkomlega með snúru sem vinur þinn á var það þá í sömu tölvu? Sama USB tengið?
Þetta er eiginlega USB midi controller með innbyggðu hljóðkorti. Þetta hljómar svakalega eins og driver vesen. Búinn að athuga sample rate-ið? Átt að geta valið milli 88.2Khz og 44.1Khz. Mundi prófa að lækka í 44.1 ef það er ekki stillt á það nú þegar. Veit ekki hvort þessi græja leyfi þér að stilla bufferinn en ef svo er mundi ég prófað að hækka hann. Hærri buffer setur minni keyrslu á tölvuna, minna álag á USB gagnaflutninginn.
Nú er ég meira inn í upptökuhliðinni en DJ bransanum. Ef þú ert enn að lenda í vandræðum mundi spurja fyrir um þetta á td. http://www.hugi.is/danstonlist/
Þeir geta örugglega hjálpað þér með þetta þar.

Segulsvið frá keilum gæti svo sem haft áhrif en finnst það samt svakalega langsótt. En bara ein leið til þess að komast að því og það er að færa þær.