Síða 1 af 1
Léleg myndgæði (compression vandamál?) í myndum á netinu
Sent: Þri 16. Mar 2010 03:00
af DoofuZ
Það hefur verið að fara svoldið í taugarnar á mér að eftir að ég fékk mér loksins LCD skjá fyrir nokkrum árum síðan að þá fór ég að sjá ýmsa leiðinlega galla í myndum sem ég hef oft sem bakgrunn á desktopinu hjá mér. Fyrst hélt ég að þetta væri ekki svo algengt og fór að leita að betri myndum en sama hvað ég reyni að leita þá virðast allar myndir sem eru í svipuðum stíl og þær sem ég er oftast með sem bakgrunn vera með einn ákveðinn galla sem er að þar sem á bara að vera alveg kolsvartur flötur í þessum myndum þar sé ég alltaf svona leiðinlegan gráan "snjó", sérstaklega í kringum þann texta sem er venjulega á svona myndum. Myndirnar sem ég er að tala um eru aðallega svona motivational djók myndir en hér fyrir neðan er eitt gott dæmi um svona mynd og ef þið eruð ekki með túbuskjá þá ættuð þið að sjá hvað ég er að meina.
Er einhver skýring á þessu? Þetta virðist vera á svotil öllum svona myndum sem ég hef séð hingað til, ég mana ykkur að finna fleiri en eina sem eru ekki svona

Þetta er kannski bara smámunasemi í mér, en mér bara finnst þetta svoldið pirrandi og er ekki alveg að skilja afhverju allar þessar myndir eru nánast eins með þetta


- Lostthegame.jpg (58.41 KiB) Skoðað 1533 sinnum
Re: Léleg myndgæði (compression vandamál?) í myndum á netinu
Sent: Þri 16. Mar 2010 03:52
af intenz
Bastard.
Re: Léleg myndgæði (compression vandamál?) í myndum á netinu
Sent: Þri 16. Mar 2010 04:15
af DoofuZ
Hehe, vissi um leið og ég vadi þessa mynd að hún myndi slá í gegn!

En vandamálið er samt ekkert djók sko, þið þurfið líklega bara að smella á myndina sjálfa (svo hún sjáist öll) til að sjá textann sem er undir henni svo þið sjáið hvað ég er að meina. Er þetta ekki pottþétt eitthvað svona compression vandamál? Skrítið að þetta er í svotill öllum svona myndum

Re: Léleg myndgæði (compression vandamál?) í myndum á netinu
Sent: Þri 16. Mar 2010 04:30
af Danni V8
Ég sé nú bara ekkert athugavert við þessa mynd á mínum LCD skjá. Fyrir utan það að ég skil ekki hvað á að vera fyndið við þetta

Re: Léleg myndgæði (compression vandamál?) í myndum á netinu
Sent: Þri 16. Mar 2010 04:55
af MrT
Ekkert eins og þú lýsir sem ég tek eftir.
Og það er ekkert fyndið við þetta.. Gerpið lét mig tapa leiknum. Engan vegin fyndið. >(
Re: Léleg myndgæði (compression vandamál?) í myndum á netinu
Sent: Þri 16. Mar 2010 08:22
af jakobs
Re: Léleg myndgæði (compression vandamál?) í myndum á netinu
Sent: Þri 16. Mar 2010 08:26
af Danni V8
Sé þessa artifacts á skjánum mínum hérna heima en ekki í vinnunni, enda er vinnuskjárinn gamall 17"HP.
Re: Léleg myndgæði (compression vandamál?) í myndum á netinu
Sent: Þri 16. Mar 2010 10:24
af KermitTheFrog
Ég sé ekkert líkt því sem þú lýsir?
Re: Léleg myndgæði (compression vandamál?) í myndum á netinu
Sent: Þri 16. Mar 2010 15:30
af DoofuZ
Interesting... Það er s.s. hægt að nota mynd með svona jpeg artifacts til að sjá hvort maður er með góðann eða lélegan skjá?

En er eitthvað hægt að laga svona án þess að þurfa að photoshoppa myndirnar eitthvað mikið? Ætla að prófa að fikta smá í Photoshop. Skrítið annars að svotil allar svona motivational myndir séu svona.
Re: Léleg myndgæði (compression vandamál?) í myndum á netinu
Sent: Þri 16. Mar 2010 19:54
af Oak
er þetta ekki bara málið að það er misjafnt hversu vel LCD skjárinn sýni kol svartan lit ?
Re: Léleg myndgæði (compression vandamál?) í myndum á netinu
Sent: Þri 16. Mar 2010 20:17
af Nariur
litli skíthæll
eyðið þessum þræði svo fleiri þurfi ekki að tapa
Re: Léleg myndgæði (compression vandamál?) í myndum á netinu
Sent: Þri 16. Mar 2010 20:25
af chaplin
Held ég hafi unnið?
Re: Léleg myndgæði (compression vandamál?) í myndum á netinu
Sent: Þri 16. Mar 2010 20:32
af Frost
Ég er orðinn þreyttur að tapa þessum fjandans leik...

Re: Léleg myndgæði (compression vandamál?) í myndum á netinu
Sent: Mið 17. Mar 2010 22:05
af DoofuZ
Já, það er víst nánast ómögulegt að vinna hann

En til að fara aðeins aftur back on topic þá er ég búinn að fikta smá í Photoshop, án mikils árangurs, og svo prófaði ég líka forrit sem heitir JPEG Enhancer, sem átti að geta auðveldlega lagað svona en virkaði svo eiginlega bara öfugt, þannig að ég er ekki alveg að finna nógu gott fix fyrir þetta

Að vísu er alveg hægt að redda þessu með örfáum handatökum í Photoshop en þar sem ég er bæði með smá fullkomnunaráráttu og vil helst hafa þetta eins automatic og hægt er að þá er ég ekki alveg að nenna að standa í einhverju sem er aðeins of manual fyrir minn smekk

Er að vonast eftir að finna einhverja rosa einfalda töfralausn sem væri jafnvel hægt að keyra í batch ferli, einhver sem veit um svoleiðis lausn?
En talandi annars um Photoshop, er nokkuð hægt á einfaldan máta að nota þar einhverjar aðgerðir sem velja sjálfkrafa allan svartan "border" flöt og sleppa svo textanum þannig að maður geti fyllt flötinn alveg með kolsvörtum lit til að losna við þetta?

Re: Léleg myndgæði (compression vandamál?) í myndum á netinu
Sent: Mið 17. Mar 2010 22:59
af Oak
getur notað adobe lightroom í það.
er ekki alveg búinn að læra inná það almennilega en þú getur geymt stillingarnar og notað þær svo á þær myndir sem þú vilt. getur t.d. gert allt dökkt ennþá dekkra. getur líklegast gert þetta í ps líka. fín video á youtube til að kenna manni á þetta dót allt saman.
Re: Léleg myndgæði (compression vandamál?) í myndum á netinu
Sent: Mið 17. Mar 2010 23:29
af DoofuZ
Tja, nenni nú varla að standa í því að ná í eitthvað svaka prógram og læra aðeins á það bara til að redda einhverju sem er ekki svo erfitt að gera manually í Photoshop, er helst að vonast eftir því að einhver hér viti um eitthvað sniðugt smáforrit sem getur reddað þessu auðveldlega og jafnvel tekið margar myndir í einu eða að það sé til einhver plugin eða filter fyrir Photoshop sem reddar þessu auðveldlega

Held ég neyðist því líklega bara til þess að gera þetta manually við hverja mynd fyrir sig

Re: Léleg myndgæði (compression vandamál?) í myndum á netinu
Sent: Fim 18. Mar 2010 03:16
af kaladar
DoofuZ skrifaði:Tja, nenni nú varla að standa í því að ná í eitthvað svaka prógram og læra aðeins á það bara til að redda einhverju sem er ekki svo erfitt að gera manually í Photoshop, er helst að vonast eftir því að einhver hér viti um eitthvað sniðugt smáforrit sem getur reddað þessu auðveldlega og jafnvel tekið margar myndir í einu eða að það sé til einhver plugin eða filter fyrir Photoshop sem reddar þessu auðveldlega

Held ég neyðist því líklega bara til þess að gera þetta manually við hverja mynd fyrir sig

Ef þú ert alltaf að fara gera nákvæmlega það sama fyrir hverja mynd þá geturu notað batch aðgerð í photoshop:
Athugað þetta, er svipað í flestum útgáfum af photoshop:
http://www.creativemac.com/2002/04_apr/tutorials/psbatch.htm
Re: Léleg myndgæði (compression vandamál?) í myndum á netinu
Sent: Fim 18. Mar 2010 03:40
af BjarniTS
Hljómar eins og móbofail*
Re: Léleg myndgæði (compression vandamál?) í myndum á netinu
Sent: Fim 18. Mar 2010 14:07
af Oak
ef þú kannt eitthvað á photoshop þá ferðu létt með lightroom
Re: Léleg myndgæði (compression vandamál?) í myndum á netinu
Sent: Fim 18. Mar 2010 14:31
af chaplin
Okey menn virðast tapa hægri og vinstir! Hvernig virkar þetta!? Ég bara skil það ekki! Ég sé stafinu mjög skýrt, ekkert "rugl" í kringum þá, svo eru menn bara farnir í Photoshop og þááá tapa þeir? Whuuut?
Uppls. guide. kthx..
Re: Léleg myndgæði (compression vandamál?) í myndum á netinu
Sent: Fim 18. Mar 2010 16:11
af Kobbmeister
Re: Léleg myndgæði (compression vandamál?) í myndum á netinu
Sent: Fim 18. Mar 2010 16:16
af DoofuZ
Ágætis ábending hjá þér, en ég er nú aldeilis langt frá því að kunna þetta ekki, takk samt!

BjarniTS skrifaði:Hljómar eins og móbofail*
Tja, að vísu hef ég verið í smá samskiptum við Gigabyte varðandi fídus á móðurborðinu sem er ekki að virka almennilega hjá mér svo það er möguleiki að móðurborðið mitt sé smá gallað, en ef þetta myndi tengjast einhverju móbófaili þá væru allir hér sem sjá gallann á myndinni með gölluð móðurborð

Oak skrifaði:ef þú kannt eitthvað á photoshop þá ferðu létt með lightroom
Ok, skoða það kannski betur þá

daanielin skrifaði:Okey menn virðast tapa hægri og vinstir! Hvernig virkar þetta!? Ég bara skil það ekki! Ég sé stafinu mjög skýrt, ekkert "rugl" í kringum þá, svo eru menn bara farnir í Photoshop og þááá tapa þeir? Whuuut?
Uppls. guide. kthx..
Haha

Ekki alveg að fatta leikinn? Kannski hjálpar
þetta þér þá

Ég get svo ekki alveg sýnt betur gallann í myndinni en þið sem sjáið þetta ekki gætuð kannski prófað að stilla brightness eða contrast hærra á skjánum hjá ykkur.