Síða 1 af 1
Ég var aldrei mikið fyrir GusGus...
Sent: Mið 10. Mar 2010 23:23
af Daz
http://www.youtube.com/watch?v=xBbF74JnKhIVá, ég sé eftir því að hafa aldrei farið á tónleika með þeim

Re: Ég var aldrei mikið fyrir GusGus...
Sent: Mið 10. Mar 2010 23:32
af vesley
það er bara að vona að þeir fari að spila bráðlega hér á klakanum

Re: Ég var aldrei mikið fyrir GusGus...
Sent: Mið 10. Mar 2010 23:38
af chaplin
Hef farið á nokkra tónleika með þeim - aldrei verið fyrir vonbrigðum!
Re: Ég var aldrei mikið fyrir GusGus...
Sent: Mið 10. Mar 2010 23:49
af bAZik
Úff, freaky...

Re: Ég var aldrei mikið fyrir GusGus...
Sent: Fim 11. Mar 2010 01:31
af Meso
Ég er búinn að fara á fleiri tónleika með þeim en ég man eftir,
og allir þeir sem ég man eftir voru geggjaðir,
en er ekki málið að bæta úr því og skella sér?
http://midi.is/tonleikar/1/5876
Re: Ég var aldrei mikið fyrir GusGus...
Sent: Fim 11. Mar 2010 08:44
af Daz
Ætli það taki því að fara á tónleika með þeim núna. Ekki fer ég á tónleika með U2 og býst við miklum rebel látum.
Re: Ég var aldrei mikið fyrir GusGus...
Sent: Fös 12. Mar 2010 16:33
af Gerbill
Ég hafði aldrei séð GusGus live en átti einhverja diska og var mjög hrifinn svo ég ákvað að skella mér í sjallann.
Þeir áttu að byrja klukkan 1, þá kemur einhver ömurlegur DJ með lög sem er basically einn taktur through out...svo verður klukkan 2...3...og þá gafst ég upp og fór.
Frændi félaga minns sem beið lengur sagði að þeir hefðu komið rétt fyrir 4, tekið 1-2 lög og farið svo.
Þá missti ég mitt álit á þeim
Re: Ég var aldrei mikið fyrir GusGus...
Sent: Sun 14. Mar 2010 17:15
af Meso
Gerbill skrifaði:Ég hafði aldrei séð GusGus live en átti einhverja diska og var mjög hrifinn svo ég ákvað að skella mér í sjallann.
Þeir áttu að byrja klukkan 1, þá kemur einhver ömurlegur DJ með lög sem er basically einn taktur through out...svo verður klukkan 2...3...og þá gafst ég upp og fór.
Frændi félaga minns sem beið lengur sagði að þeir hefðu komið rétt fyrir 4, tekið 1-2 lög og farið svo.
Þá missti ég mitt álit á þeim
hmmm, það að byrja seint er nú ekkert nýtt hjá þeim, hef aldei séð þau byrja á tilsettum tíma,
en hef aldrei lent í að tónleikarnir séu stuttri en rúml klst.