Síða 1 af 1
ShopUSA
Sent: Mán 08. Mar 2010 20:06
af intenz
Kunnið þið að versla í gegnum þetta? Ég er held ég kominn með allt á hreint fyrir utan hvernig á að greiða fyrir þetta. Vísa ég bara í addressuna sem ég fékk frá ShopUSA og "suit-númerið" mitt og borga svo fyrir vöruna þegar hún kemur til landsins? Þetta er vara bæði af Amazon og eBay.
Re: ShopUSA
Sent: Mán 08. Mar 2010 20:09
af Tiger
Þú borgar fyrir sjálfa vöruna á vefsíðunnni sem þú kaupir hlutinn, en öll innfluttningsgjöld, skatta og toll borgaru svo hjá Shopusa þegar þetta kemur. Og já, þarf að passa að suit númmerið komi fram í addressunni.
Re: ShopUSA
Sent: Mán 08. Mar 2010 22:08
af intenz
Ég greiddi $9.58 (1250 kr.) fyrir vöruna og flutning innan USA. Svo fór ég í gegnum ShopUSA og þar þurfti ég að slá inn kreditkortanúmerið mitt, og fékk þá...
Afgreiðslugjald ShopUSA er ISK 6190.00. Sú fjárhæð verður skuldfærð á greiðslukort þitt þegar varan hefur verið móttekin í vöruhúsi okkar í Virginia Beach. Við áskiljum okkur rétt til að leiðrétta afgreiðslugjaldið ef rangt FOB verð hefur verið skráð, eða ef varan hefur verið skráð í rangan vöruflokk.
Nú skil ég ekki. Er ég að borga upphæð sem nemur fimmföldu verði vörunnar minnar og flutningsverði hennar innan USA? Samt sló ég inn $9.58 í reiknivélina á ShopUSA.is og þá fékk ég SAMTALS: 5.016 kr.
Re: ShopUSA
Sent: Mán 08. Mar 2010 22:15
af tomas52
það væri nú alveg líkt shopusa sko
en mér finnst best bara að kaupa hana beint í gegnum ebay og láta póstinn bara fara yfir hana

Re: ShopUSA
Sent: Mán 08. Mar 2010 22:54
af Tiger
Já ok, þá eru þeir búnir að breyta þessu síðan síðast (sem var fyrir einhverjum 2 árum). En já það er dýrt að gera þetta í gegnum ShopUSA og borgar sig í fæstum tilfellum nema maður sé neyddur til vegna þess að verslunin sendi ekki út fyrir usa. Sérstaklega borgar sig ekki að fara með ódýra hluti þarna í gegn greinilega, hlutfallslega er það miklu dýrara eins og þú saegir.
Re: ShopUSA
Sent: Mán 08. Mar 2010 23:03
af intenz
Re: ShopUSA
Sent: Þri 09. Mar 2010 00:21
af zedro
Ef að seljandinn sendir til Íslands skaltu láta hann gera það. Shop usa er okur.
Re: ShopUSA
Sent: Þri 09. Mar 2010 00:53
af intenz
Zedro skrifaði:Ef að seljandinn sendir til Íslands skaltu láta hann gera það. Shop usa er okur.
Satt satt

Re: ShopUSA
Sent: Þri 09. Mar 2010 02:01
af Carc
Veit einhver um aðra svona þjónustu sem okrar ekki svona gífurlega?
Re: ShopUSA
Sent: Þri 09. Mar 2010 02:15
af intenz
Carc skrifaði:Veit einhver um aðra svona þjónustu sem okrar ekki svona gífurlega?
Buy.is
Re: ShopUSA
Sent: Þri 09. Mar 2010 04:24
af gardar
Carc skrifaði:Veit einhver um aðra svona þjónustu sem okrar ekki svona gífurlega?
http://www.myus.com