Síða 1 af 1

ATH! Brotist inn í tölvufyrirtæki í Hfj í nótt!

Sent: Fös 05. Mar 2010 13:06
af AntiTrust
Vill vekja athygli á því að það var brotist inn í tölvufyrirtæki í Hfj í nótt, miklu magni af nýjum vörum, svosem skjám, prenturum, flökkurum, hörðum diskum, móðurborðum, skjákortum, vinnsluminnum og flr íhlutum var stolið, ásamt talsverðum fjölda af tölvum sem viðskiptavinir voru með í viðgerð, þá helst fartölvur.

Verið sérstaklega varkár við kaup á ónotuðum vörum enn í pakkningum jafnvel, ef ekki er hægt að sýna fram á kaupnótu.

Endilega verið vakandi fyrir sölu á vafasömum varning, og ekki hika við að hafa samband við mig hérna í þræðinum með ábendingum eða í einkaskilaboðum. Fullri nafnleynd heitið.

Re: ATH! Brotist inn í tölvufyrirtæki í Hfj í nótt!

Sent: Fös 05. Mar 2010 14:11
af DeAtHzOnE
Hvaða hálfviti rænir tölvu búð

Re: ATH! Brotist inn í tölvufyrirtæki í Hfj í nótt!

Sent: Fös 05. Mar 2010 14:14
af urban
DeAtHzOnE skrifaði:Hvaða hálfviti rænir tölvu búð



eru menn eitthvað meiri hálfvitar að ræna tölvubúð en aðrar búðir ?
ég mundi segja að það væri mun sniðugara, þar sem að þetta er jú vara sem að hægt er að koma í notkun.

Re: ATH! Brotist inn í tölvufyrirtæki í Hfj í nótt!

Sent: Fös 05. Mar 2010 14:18
af BjarniTS
DeAtHzOnE skrifaði:Hvaða hálfviti rænir tölvu búð


Nenniru að taka netið úr sambandi heima hjá þér ?

Re: ATH! Brotist inn í tölvufyrirtæki í Hfj í nótt!

Sent: Fös 05. Mar 2010 14:19
af DeAtHzOnE
urban skrifaði:
DeAtHzOnE skrifaði:Hvaða hálfviti rænir tölvu búð



eru menn eitthvað meiri hálfvitar að ræna tölvubúð en aðrar búðir ?
ég mundi segja að það væri mun sniðugara, þar sem að þetta er jú vara sem að hægt er að koma í notkun.




Maður á bara ekki að ræna overall. Kennum bara pólverjum um LoL. :D

Re: ATH! Brotist inn í tölvufyrirtæki í Hfj í nótt!

Sent: Fös 05. Mar 2010 14:20
af DeAtHzOnE
BjarniTS skrifaði:
DeAtHzOnE skrifaði:Hvaða hálfviti rænir tölvu búð


Nenniru að taka netið úr sambandi heima hjá þér ?




Gerri það nú reyndar annann hvern sunnudag frá 12:00-12:05. :D

Re: ATH! Brotist inn í tölvufyrirtæki í Hfj í nótt!

Sent: Fös 05. Mar 2010 15:23
af Glazier
DeAtHzOnE skrifaði:
BjarniTS skrifaði:
DeAtHzOnE skrifaði:Hvaða hálfviti rænir tölvu búð


Nenniru að taka netið úr sambandi heima hjá þér ?




Gerri það nú reyndar annann hvern sunnudag frá 12:00-12:05. :D

Næst þegar þú gerir það þá skaltu ekki stinga í samband aftur ;)

Re: ATH! Brotist inn í tölvufyrirtæki í Hfj í nótt!

Sent: Fös 05. Mar 2010 16:05
af DeAtHzOnE
Gerri það nú reyndar annann hvern sunnudag frá 12:00-12:05. :D[/quote]
Næst þegar þú gerir það þá skaltu ekki stinga í samband aftur ;)[/quote]

Hehehe ég þarf nú að spilla net leiki :lol:

Re: ATH! Brotist inn í tölvufyrirtæki í Hfj í nótt!

Sent: Fös 05. Mar 2010 16:12
af chaplin
Hef augun opin, mæli með að þið farið að vakta barnaland.is / er.is ofl. síður - finnst mest allt þar.

Re: ATH! Brotist inn í tölvufyrirtæki í Hfj í nótt!

Sent: Fös 05. Mar 2010 16:31
af BjarniTS
Sammála síðasta ræðumanni.
Gæti líka trúað að eftirspurnir gætu skilað góðum árangri.

Re: ATH! Brotist inn í tölvufyrirtæki í Hfj í nótt!

Sent: Fös 05. Mar 2010 16:32
af Gúrú
Get nú lofað ykkur því að lögreglan fylgist með þeim spjallborðum þó svo að svona stuldur hafi ekki verið að eiga sér stað, svo að þau verða nokk vel vöktuð, sem betur fer :D

Re: ATH! Brotist inn í tölvufyrirtæki í Hfj í nótt!

Sent: Fös 05. Mar 2010 16:58
af rapport
Þetta ástand í þjóðfélaginu er óþolandi...

Þetta skemmir líka fyrir og gerir viðskipti sbr. okkar hér inná vaktinni áhættumeiri og fólk verður tortryggnara...

Re: ATH! Brotist inn í tölvufyrirtæki í Hfj í nótt!

Sent: Fös 05. Mar 2010 17:02
af Gúrú
rapport skrifaði:Þetta skemmir líka fyrir og gerir viðskipti sbr. okkar hér inná vaktinni áhættumeiri og fólk verður tortryggnara...

Mikilvægara finnst mér að fólk muni bara að taka engu persónulega, t.d. að byrja að garga á einhvern fyrir að einu sinni spyrja um nótu.
Þetta er bara mjög sanngjarn hlutur til að spyrja um þegar að nýbyrjaðir notendur ætla að selja þér dýran varning.

Re: ATH! Brotist inn í tölvufyrirtæki í Hfj í nótt!

Sent: Fös 05. Mar 2010 18:36
af Danni V8
Bara smá forvitni, hvernig er komist til móts við fólk sem að átti tölvu í viðgerð og var stolið? Ég veit að það er lítið hægt að gera en er eitthvað gert?

Re: ATH! Brotist inn í tölvufyrirtæki í Hfj í nótt!

Sent: Fös 05. Mar 2010 19:18
af Glazier
Danni V8 skrifaði:Bara smá forvitni, hvernig er komist til móts við fólk sem að átti tölvu í viðgerð og var stolið? Ég veit að það er lítið hægt að gera en er eitthvað gert?

Ætli tryggingarnar dekki ekki svoleiðis ?

Re: ATH! Brotist inn í tölvufyrirtæki í Hfj í nótt!

Sent: Fös 05. Mar 2010 19:26
af nonesenze
O Ó undirheimarnir oðrnir tölvuvæddir.... hvað næst?:S

Re: ATH! Brotist inn í tölvufyrirtæki í Hfj í nótt!

Sent: Fös 05. Mar 2010 19:44
af Lallistori
nonesenze skrifaði:O Ó undirheimarnir oðrnir tölvuvæddir.... hvað næst?:S


Íslensk Erfðagreining býst ég við

Re: ATH! Brotist inn í tölvufyrirtæki í Hfj í nótt!

Sent: Fös 05. Mar 2010 20:53
af AntiTrust
Danni V8 skrifaði:Bara smá forvitni, hvernig er komist til móts við fólk sem að átti tölvu í viðgerð og var stolið? Ég veit að það er lítið hægt að gera en er eitthvað gert?


Við erum að sjálfsögðu tryggðir fyrir þessu bak og fyrir, og þótt við værum það ekki coverar heimilistrygging viðskiptavinarins svona lagað einnig.

Eina raunverulega tjónið eru gögnin sem týnast.

Re: ATH! Brotist inn í tölvufyrirtæki í Hfj í nótt!

Sent: Fös 05. Mar 2010 21:59
af GuðjónR
AntiTrust skrifaði:
Danni V8 skrifaði:Bara smá forvitni, hvernig er komist til móts við fólk sem að átti tölvu í viðgerð og var stolið? Ég veit að það er lítið hægt að gera en er eitthvað gert?


Við erum að sjálfsögðu tryggðir fyrir þessu bak og fyrir, og þótt við værum það ekki coverar heimilistrygging viðskiptavinarins svona lagað einnig.

Eina raunverulega tjónið eru gögnin sem týnast.


Hverjir eruð "þið" ?
Hvaða tölvufyrirtæki er þetta ?

Re: ATH! Brotist inn í tölvufyrirtæki í Hfj í nótt!

Sent: Fös 05. Mar 2010 22:32
af lukkuláki
AntiTrust skrifaði:
Danni V8 skrifaði:Bara smá forvitni, hvernig er komist til móts við fólk sem að átti tölvu í viðgerð og var stolið? Ég veit að það er lítið hægt að gera en er eitthvað gert?


Við erum að sjálfsögðu tryggðir fyrir þessu bak og fyrir, og þótt við værum það ekki coverar heimilistrygging viðskiptavinarins svona lagað einnig.

Eina raunverulega tjónið eru gögnin sem týnast.



Coverar heimilistrygging tölvu sem er einhvernstaðar úti í bæ í viðgerð ?
Þetta vissi ég ekki og miðað við hvað tryggingafélög eru mikill skítur þá trúi ég þessu varla.

Re: ATH! Brotist inn í tölvufyrirtæki í Hfj í nótt!

Sent: Lau 06. Mar 2010 00:24
af AntiTrust
GuðjónR skrifaði:Hverjir eruð "þið" ?
Hvaða tölvufyrirtæki er þetta ?


Miðnet, lítið tölvufyrirtæki/verkstæði í Hfj.

lukkuláki skrifaði:Coverar heimilistrygging tölvu sem er einhvernstaðar úti í bæ í viðgerð ?
Þetta vissi ég ekki og miðað við hvað tryggingafélög eru mikill skítur þá trúi ég þessu varla.


Þetta hef ég frá starfsmanni tjónadeildar í okkar tryggingarfélagi, að heimilistrygging viðkomandi sé í forgangi yfir okkar eigin tryggingar. Var alveg jafn hissa á þessu og þú, og kaupi það ekki fyrr en ég fæ það staðfest frá öðrum tryggingarfyrirtækjum.

Re: ATH! Brotist inn í tölvufyrirtæki í Hfj í nótt!

Sent: Lau 06. Mar 2010 00:42
af himminn
Leiðinlegt þegar eitthvað svona gerist.

Re: ATH! Brotist inn í tölvufyrirtæki í Hfj í nótt!

Sent: Lau 06. Mar 2010 00:59
af lukkuláki
Vonandi finnst þetta bara fljótt og vel áður en þetta fer úr landi :/
Allavega þá getum við hérna á vaktinni gert okkar besta og tilkynnt ef við sjáum eitthvað vafasamt til sölu.