Síða 1 af 2
Tölvutek = Skakkiturnin vs buy.is??
Sent: Mið 17. Feb 2010 15:02
af Tiger
Góðan daginn, eins og flestir vita hérna þá setti Skakkiturnin (Apple á Íslandi) sig upp á móti sölu Buy.is á Apple vörum og sendu málið til lögfræðinga og held það sé ekki en klárað. En núna var ég að heyra frá MJÖG áræðanlegum heimildum að Tölvutek sé að reyna nákvæmlega sama skítinn !!! Þeir hafa haft samband við sinn birgja á Gigabyte vörum og stöðvað innflutning til Buy.is þar sem þeir eiga að heita með umboð fyrir þetta (sem ég hélt að væri ekki til lengur). Og það gekk hjá þeim, og lokaði aðal birgi Buy.is á þá. Frábært að búa á Íslandi segi ég nú bara, þar sem það er virk samkeppni og hagur viðskiptavina er hafður fyrir brjósti

.
Helvítis fokking fokk
Tölvutek missti allavegana mín viðskipti núna for ever.
Re: Tölvutek = Skakkiturnin vs buy.is??
Sent: Mið 17. Feb 2010 15:07
af Gúrú
Þetta er ekki það sama og Skakkiturninn ehf, er að reyna að gera við buy.is

Re: Tölvutek = Skakkiturnin vs buy.is??
Sent: Mið 17. Feb 2010 15:20
af blitz
Ef þetta er satt mun ég sniðganga Tölvutek alveg eins og Sakkaturninn

Re: Tölvutek = Skakkiturnin vs buy.is??
Sent: Mið 17. Feb 2010 15:22
af Glazier
Gúrú skrifaði:Þetta er ekki það sama og Skakkiturninn ehf, er að reyna að gera við buy.is

En samt sem áður ekki löglegt er það ?
En Snuddi, hvar heyrðiru þetta ?
Re: Tölvutek = Skakkiturnin vs buy.is??
Sent: Mið 17. Feb 2010 15:23
af Frost
Re: Tölvutek = Skakkiturnin vs buy.is??
Sent: Mið 17. Feb 2010 15:29
af ingibje
blitz skrifaði:Ef þetta er satt mun ég sniðganga Tölvutek alveg eins og Sakkaturninn

tek undir þetta

Re: Tölvutek = Skakkiturnin vs buy.is??
Sent: Mið 17. Feb 2010 15:30
af Halli25
Kísildalur, Tölvuvirkni og Tæknibær eru að selja Gigabyte í gegnum Tölvutek samkvæmt þessu

Re: Tölvutek = Skakkiturnin vs buy.is??
Sent: Mið 17. Feb 2010 15:32
af Glazier
faraldur skrifaði:Kísildalur, Tölvuvirkni og Tæknibær eru að selja Gigabyte í gegnum Tölvutek samkvæmt þessu 
Og er það löglegt ?
Re: Tölvutek = Skakkiturnin vs buy.is??
Sent: Mið 17. Feb 2010 15:33
af Gúrú
Re: Tölvutek = Skakkiturnin vs buy.is??
Sent: Mið 17. Feb 2010 15:37
af Halli25
Glazier skrifaði:faraldur skrifaði:Kísildalur, Tölvuvirkni og Tæknibær eru að selja Gigabyte í gegnum Tölvutek samkvæmt þessu 
Og er það löglegt ?
að vera með heildsölu á íslandi? síðast þegar ég vissi þá mátti það

annars væri ég atvinnulaus

Re: Tölvutek = Skakkiturnin vs buy.is??
Sent: Mið 17. Feb 2010 15:45
af mind
Sé ekki að þetta ætti að koma fólki sérstaklega á óvart, afleiðing grunntilgangs viðskipta.
Re: Tölvutek = Skakkiturnin vs buy.is??
Sent: Mið 17. Feb 2010 15:49
af dadik
Það sem breyttist með EES var að einkaumboð lögðust af. Allt í einu gátu verslanir eins og Elko flutt sjálfar inn vörur erlendis frá án þess að fara í gegnum heildsalaeinokunina sem var við lýði hérna. Þetta var ömurlegur tími þar sem heilsalarnir okruðu upp úr öllu valdi í trausti þess að þeir gætu einokað markaðinn. Fákeppnin gerði það svo að verkum að samkeppnin milli heildsalanna var lítil sem engin.
Það eru mjög slæm tíðindi ef þetta kerfi er að komast á aftur.
Re: Tölvutek = Skakkiturnin vs buy.is??
Sent: Mið 17. Feb 2010 16:17
af FBG
Hæ
Ég kaupi mínar vörur inn frá birgjum í USA,Evrópu og jafnvel Kína.
Eins og Skakkiturn var að reyna að gera, þá vilja framleiðendur skipta heiminum upp í markaðssvæði. Við búum í Evrópu en erum samt mitt á milli USA og Evrópu. Það er ekkert sem segir það að við eigum að láta bjóða okkur það að kaupa vörur inn á hærra verði, því við búum í Evrópu. Ameríkanar myndu aldrei láta bjóða sér að versla sín raftæki á þeim verðum sem við kaupum þau á. Danir t.d. vita ekki hvað vörugjald er en á Íslandi er 25% vörugjald á öllum sjónvörpum og fullt af öðrum tækjum. Tölvurnar hafa blessunarlega verið lausar við vörugjöld hingað til. Ég hef það t.d. skriflegt frá starfsmanni Apple í Evrópu að honum er nákvæmlega sama þó að ég sé að kaupa inn apple vörur frá USA og selja þær hér. Það kemur þeim ekkert við enda ekkert sem þeir geta gert til þess að stöðva það. Skakkiturn var að reyna að vernda sína okur-álagningarstefnu en tókst það ekki.
Gigabyte hafði samband við einn af mínum birgjum og bannaði alla sölu á móðurborðum til Íslands frá USA. Ísland á að kaupa móðurborðin frá Evrópu samkvæmt þeim. Ég gef skít í allt svona og kaupi móðurborð og aðrar vörur þar sem ég fæ þær á besta mögulega verðinu, þannig að hægt sé að fleyta því yfir til ykkar.
MBK
Friðjón
Buy.is
Re: Tölvutek = Skakkiturnin vs buy.is??
Sent: Mið 17. Feb 2010 16:20
af Tiger

Enda færðu öll mín viðskipti héðan í frá.......og örugglega margra annara.
Re: Tölvutek = Skakkiturnin vs buy.is??
Sent: Mið 17. Feb 2010 16:41
af vesley
allar verslanir sem eru að selja vörur frá Gigabyte nema buy.is eru held ég að kaupa frá Tölvutek. það sama er með Packard Bell fartölvur.
væri gott að fá álit frá eitthverjum eins og Pandemic til að staðfesta það sem rétt er : )
Re: Tölvutek = Skakkiturnin vs buy.is??
Sent: Mið 17. Feb 2010 16:55
af chaplin
Hvað er samkeppni í dag? Svo mæli ég með að fólk kynni sér þau fyrirtæki sem eru með verðvernd, ef buy.is bíður hlutinn á betra verði þá ekki HIKA við það að benda starfsmönnum fyrirtækisins á það og neyða þá til að jafna verðið.
Re: Tölvutek = Skakkiturnin vs buy.is??
Sent: Mið 17. Feb 2010 16:59
af ZoRzEr
Ánægður með Buy.is og hversu gott verð þeir hafa boðið uppá hingað til. Ég mun stunda mikil viðskipti við þá persónulega í lok mars. Hlakka bara til ef ég á að segja eins og er.
Re: Tölvutek = Skakkiturnin vs buy.is??
Sent: Mið 17. Feb 2010 17:01
af blitz
daanielin skrifaði:Hvað er samkeppni í dag? Svo mæli ég með að fólk kynni sér þau fyrirtæki sem eru með verðvernd, ef buy.is bíður hlutinn á betra verði þá ekki HIKA við það að benda starfsmönnum fyrirtækisins á það og neyða þá til að jafna verðið.
Verðvernd Elko virkar t.d. ekki fyrir vefverslanir minnir mig
Tölvutek:
* Tölvan þarf að vera auglýst í blaða- eða tímaritamiðil á Íslandi.
Re: Tölvutek = Skakkiturnin vs buy.is??
Sent: Mið 17. Feb 2010 17:07
af Gúrú
blitz skrifaði:Tölvutek:
* Tölvan þarf að vera auglýst í blaða- eða tímaritamiðil á Íslandi.
Ertu viss um að þetta sé í gildi? Hef ekki séð þetta í langan tíma.
Re: Tölvutek = Skakkiturnin vs buy.is??
Sent: Mið 17. Feb 2010 17:48
af mind
Mjög auðvelt að lesa milli línanna hvað er í gangi í raun.
Elko
Gildir ekki um vörur sem auglýstar eru annars staðar í takmörkuðu magni, eru seldar á netinu eða fela í sér aðra kaupskilmála. Gildir ekki um vörur keyptar í ELKO fríhafnarverslun.
Tölvutek - Gildir bara um tölvur
Tölvan þarf að vera auglýst í blaða- eða tímaritamiðil á Íslandi.
* Tölvan þarf að sjálfsögðu að vera til afgreiðslu hjá auglýsanda á tilteknu verði.
* Gildir meðan tölvan er til hjá Tölvutek og aðeins er afgreidd 1.stk tölva á hvern viðskiptavin.
* Aðeins er hægt að nýta sér VerðVörn við kaup en ekki seinna.
Re: Tölvutek = Skakkiturnin vs buy.is??
Sent: Mið 17. Feb 2010 18:41
af Klemmi
vesley skrifaði:allar verslanir sem eru að selja vörur frá Gigabyte nema buy.is eru held ég að kaupa frá Tölvutek. það sama er með Packard Bell fartölvur.
væri gott að fá álit frá eitthverjum eins og Pandemic til að staðfesta það sem rétt er : )
Við erum með ágætis úrval af Gigabyte vörum og tökum þær allar beint að utan. Sama gildir um nánast allar vörur sem við bjóðum upp á s.s. Antec (sem flestir taka einnig frá Tölvutek), Toshiba, EVGA, Asus, Zalman o.s.frv.
Ef ég ætti að skjóta á hversu mikið við tökum innanlands þá myndi það vera eitthvað milli 2-3% af því vöruúrvali sem við höfum upp á að bjóða.
Sjálfum finnst mér þetta mjög lélegt af þessum stærri batterýum en ef þeir eru svona hræddir við heilbrigða samkeppni þá verða þeir bara að eiga það við sig, en virkar mjög neikvætt fyrir þá til hins almenna viðskiptavinar og vona ég að sem flestir heyri af því hvernig þeir hegða sér

Finnst líklegra að þeir tapi á þessu heldur en græði, en eins og ég segi, það er þeirra að vega og meta.
Re: Tölvutek = Skakkiturnin vs buy.is??
Sent: Mið 17. Feb 2010 18:50
af biturk
jæja, ég sem hélt að það væri loksins komin verslun á akureyri sem væri ekki með eitthvað kjaftæði og væri hægt að treista á.
ég held að það sé orðið alvveg ákveðið hjá mér að ég mun ekki versla við neina aðra verslun nema buy.is ef ég kaupii mér nýjan hlut ef hann vill það er að segja senda mér norður

Re: Tölvutek = Skakkiturnin vs buy.is??
Sent: Mið 17. Feb 2010 19:00
af hagur
biturk skrifaði:jæja, ég sem hélt að það væri loksins komin verslun á akureyri sem væri ekki með eitthvað kjaftæði og væri hægt að treista á.
ég held að það sé orðið alvveg ákveðið hjá mér að ég mun ekki versla við neina aðra verslun nema buy.is ef ég kaupii mér nýjan hlut ef hann vill það er að segja senda mér norður

Hann sendir hvert á land sem er

Re: Tölvutek = Skakkiturnin vs buy.is??
Sent: Mið 17. Feb 2010 21:03
af MrT
hagur skrifaði:biturk skrifaði:jæja, ég sem hélt að það væri loksins komin verslun á akureyri sem væri ekki með eitthvað kjaftæði og væri hægt að treista á.
ég held að það sé orðið alvveg ákveðið hjá mér að ég mun ekki versla við neina aðra verslun nema buy.is ef ég kaupii mér nýjan hlut ef hann vill það er að segja senda mér norður

Hann sendir hvert á land sem er

...án nokkurs aukakostnaðar.
Re: Tölvutek = Skakkiturnin vs buy.is??
Sent: Mið 17. Feb 2010 21:13
af astro
MrT skrifaði:hagur skrifaði:biturk skrifaði:jæja, ég sem hélt að það væri loksins komin verslun á akureyri sem væri ekki með eitthvað kjaftæði og væri hægt að treista á.
ég held að það sé orðið alvveg ákveðið hjá mér að ég mun ekki versla við neina aðra verslun nema buy.is ef ég kaupii mér nýjan hlut ef hann vill það er að segja senda mér norður

Hann sendir hvert á land sem er

...án nokkurs aukakostnaðar.
Enda sanngjarnt og vel gefið fólk þar á bæ.
