Síða 1 af 1
Kísildalur WTF ?
Sent: Þri 16. Feb 2010 15:49
af Victordp
Ég vil afsaka allt sem ég segi hér, er mjög reiður útí þessa búð.
Jæja, fyrir 5-6 vikum bilaði tölvan mín að gerð Asus M51SE, og fer í í Kísildal eftir allt þetta góða sem ég hef heyrt um hana, eftir að "typpið" tekur ekki á móti straum frá hleðslutækinu. Og ég fer þangað með pabba á fínum laugardeigi og segir einn af starfsmönnunum að hann muni far í málið eins fljótt og hægt er, og ég og pabbi förum þá heim. 3 vikum seinna ekki heyrt neitt frá þeim ákveð ég að taka pabba með mér að skoða hvernig allt gengur, þá sendi starfsmaðurinn umboðsaðila Asus á Íslandi e-mail og fékk ekki neitt til baka og "gleymdi" að ítreka það. Þá ákveður hann að panta það að utan, og ég bíð í aðrar 3 vikur og einn daginn (Laugardaginn síðastliðinn) hringir hann í pabba og hann segir að stykkið sé komið ég náttúrulega allveg mjög glaður með það. Svo fer hann með hana (Pabbi) í dag og ég var fyrir 15 min u.þ.b. þá segir hann mér að starfsmaðurinn pantaði stykki SEM PASSAÐI EKKI I TÖLVUNA. Ég vildi bara deila þessu með ykkur Tölvu áhugamönnum um reynslu mína við verslunina KÍSLDAL.
Re: Kísildalur WTF ?
Sent: Þri 16. Feb 2010 16:03
af BjarniTS
Lenti nú eiginlega bara í mjög svipuðu dæmi með Tölvutek , nema þá var um að ræða viftu.
Endalaust bið og ekkert nema vesen.
En á endanum þá gáfu þeir mér smá afslátt af smáræðinu sem ég var að kaupa , en það er ekki peningurinn sem maður pirrar sig yfir heldur helvítis tíminn.
Finn til með þér og skil þig bara mjög vel.
Re: Kísildalur WTF ?
Sent: Þri 16. Feb 2010 16:05
af Victordp
BjarniTS skrifaði:Lenti nú eiginlega bara í mjög svipuðu dæmi með Tölvutek , nema þá var um að ræða viftu.
Endalaust bið og ekkert nema vesen.
En á endanum þá gáfu þeir mér smá afslátt af smáræðinu sem ég var að kaupa , en það er ekki peningurinn sem maður pirrar sig yfir heldur helvítis tíminn.
Finn til með þér og skil þig bara mjög vel.
Takk, "en það er ekki peningurinn sem maður pirrar sig yfir heldur helvítis tíminn" ég er svo alveg sammála, spila mjög mikið leikinn Counter Strike Source, á aðra tölvu sem er "SHIT" og er í henni í 15-30 fps, :S
Re: Kísildalur WTF ?
Sent: Þri 16. Feb 2010 16:16
af biturk
já úff, það er hræðilegt að það hafi farið frá þér mikilvægur tími í cs
en annars skil ég þig mjög vel að það sé leiðnlegt að bíða og fá svo vitlaust en þetta getur gerst því miður, vertu bara feginn að þú þurftir ekki tölvuna vegna vinnu eða eitthvað, þetta tafði bara tölvuleikjaspilun sem er nú ekki hundrað í hættunni

Re: Kísildalur WTF ?
Sent: Þri 16. Feb 2010 16:22
af Victordp
biturk skrifaði:já úff, það er hræðilegt að það hafi farið frá þér mikilvægur tími í cs
en annars skil ég þig mjög vel að það sé leiðnlegt að bíða og fá svo vitlaust en þetta getur gerst því miður,
vertu bara feginn að þú þurftir ekki tölvuna vegna vinnu eða eitthvað, þetta tafði bara tölvuleikjaspilun sem er nú ekki hundrað í hættunni 
haha satt
Re: Kísildalur WTF ?
Sent: Þri 16. Feb 2010 16:27
af einarhr
Fyi þá er ábyrgðarþjónusta fyrir Asus ónýt á Íslandi sérstaklega með fartölvur sem eru keyptar af Asus sjálfum en ekki td frá vöruhúsum í USA. Var sjálfur í miklum vandræðum með þetta hjá Digital Task þar sem Task á sínum tíma seldi haug af Asus fartölvum. Það er ekki óalgengt að þurfa að bíða 3 til 8 vikur eftir varahlut hjá þeim, (td Móðurborði í fartölvu). Höfuðstöðvar Asus á Norðurlöndunum er í Sviþjóð þar sem þjónustan er gjörsamlega ónýt og endaði það með því að ég þurfti að díla við Asus í Taívan og hafðist það fyrir rest en það tók gríðalega langan tíma í hvert skipti að fá varahlut sendan í ábyrgð.
En auðvita er það klúður hjá Kísildal að fá ekki staðfestingu á pöntun hjá Umboðsaðila og alltaf geta orðið mistök við pöntun varahluta og vonandi koma þeir á móts við þig á einhvern hátt þegar réttur varahlutur kemur í hús.
Sjálfur er ég mikill aðdáandi Asus, hef alltaf verið með Asus móðurborð í mínum vélum og einnig átt eins og eina fartölvu frá þeim. Vandamálið er bara vonlaus Þjónusta til söluaðila á Norðurlöndunum en vonandi fer þetta að lagast hjá þeim. Ef þeir væru með sömu þjónustu og td. Toshiba, Fujitsu Siemens og HP þar sem varahlutir taka í flestum tilvikum ekki lengur en 2 ti 3 virka daga að fá þá eftir pöntun þá væri Asus klárlega mitt næsta val í fartölvu.
Risanir eins og HP og Toshiba er mjög meðvitaðir um Asus og aukninguna í sölu hjá þeim síðustu ár en þeir hanga fyrir utan þennan hóp í evrópu þangað til að ábyrgðarþjónustan hjá þeim lagast.
Re: Kísildalur WTF ?
Sent: Þri 16. Feb 2010 17:12
af mind
Skil ekki yfir hverju þú getur verið reiður nema eigin óraunhæfum væntingum.
Les ekki betur úr þessu en vandamálið komi líklega vegna meðferðar frekar en bilunar.
Þú ferð með vélina á eitthvað tölvuverkstæði.
Viðgerðaraðilinn útskýrir fyrir þér hví málið gengur hægt á hreinskilin máta.
Þú gætir hinsvegar lært af þessu þá staðreynd að tölvur og þá sérstaklega fartölvur bila.
Ef þú ert svona reiður útaf tímanum sem þú telur þig hafa misst og kennir löngum viðgerðatíma um það þá ertu einfaldlega að biðja um meira en þú borgaðir fyrir þegar þú keyptir tölvuna.
Ef þú mátt ekki missa fartölvuna til lengri tíma veldu þér þá tölvu með meiri þjónustu eða keyptu tvær, ekki búast við því að fartölvan þín sé ein af þeim fáu sem komist hjá því að bila.
Eða er þetta bara bensín á eldinn hjá mér.
Re: Kísildalur WTF ?
Sent: Þri 16. Feb 2010 17:39
af Victordp
mind skrifaði:Skil ekki yfir hverju þú getur verið reiður nema eigin óraunhæfum væntingum.
Les ekki betur úr þessu en vandamálið komi líklega vegna meðferðar frekar en bilunar.
Þú ferð með vélina á eitthvað tölvuverkstæði.
Viðgerðaraðilinn útskýrir fyrir þér hví málið gengur hægt á hreinskilin máta.
Þú gætir hinsvegar lært af þessu þá staðreynd að tölvur og þá sérstaklega fartölvur bila.
Ef þú ert svona reiður útaf tímanum sem þú telur þig hafa misst og kennir löngum viðgerðatíma um það þá ertu einfaldlega að biðja um meira en þú borgaðir fyrir þegar þú keyptir tölvuna.
Ef þú mátt ekki missa fartölvuna til lengri tíma veldu þér þá tölvu með meiri þjónustu eða keyptu tvær, ekki búast við því að fartölvan þín sé ein af þeim fáu sem komist hjá því að bila.
Eða er þetta bara bensín á eldinn hjá mér.
Hvernig færðu þetta út ?
Re: Kísildalur WTF ?
Sent: Þri 16. Feb 2010 18:02
af TheThing
Victordp skrifaði:mind skrifaði:Skil ekki yfir hverju þú getur verið reiður nema eigin óraunhæfum væntingum.
Les ekki betur úr þessu en vandamálið komi líklega vegna meðferðar frekar en bilunar.
Þú ferð með vélina á eitthvað tölvuverkstæði.
Viðgerðaraðilinn útskýrir fyrir þér hví málið gengur hægt á hreinskilin máta.
Hvernig færðu þetta út ?
Ég held að hann tengt það við það að "typpið" hafi hætt að taka á móti straum. "Typpið" í straumtenginu á fartölvum brotnar ekki nema annaðhvort það er mikið að fikta/reyna á það eða að straumtengið/typpið sjálft er lélegt í tölvunni sjálfri. Ég þekki til þess að sumar fartölvur hafi hreinlega verið með léleg tengi að það þurfti ekki neitt til þess að þeir brotni.
Þú sagðir að þú værir með Asus og samkvæmt minni reynslu hafa þeir yfirleitt ekki verið með léleg tengi. Það þarf átak til þess að svona hlutur brotni og það er erfitt að panta svona tengi af netinu sem passar einmitt í einstaka fartölvu.
Re: Kísildalur WTF ?
Sent: Þri 16. Feb 2010 19:14
af wICE_man
Sæll Victor
Sem starfsmaðurinn sem klúðraði tengjainnkaupunum þá vil ég nota tækifærið og biðjast fyrirgefningar á þeim pirring, ergelsi, leiðindum og almennri vanlíðan sem þessi seinagangur kann að hafa valdið þér.
Þegar þú komst fyrst með tölvuna þá tók ég niður pöntun á tengi fyrir þessa tilteknu tölvu og sendi tölvupóst á umboðsaðila ASUS með ósk eftir upplýsingum um verð og pöntunartíma. Þú tekur tölvuna með þér heim þar sem þú taldir þig getað notað hana svona með herkjum.
Þegar þetta á sér stað stöndum við í miðjum flutningum í nýtt húsnæði og ægilega margt sem að flækir alla starfsemi okkar. Í flutningunum týnist síðan pöntunarblaðið yfir þig og því gleymdi ég að aðhafast frekar í málinu.
Þegar þú síðan kemur rétt rúmum 3 vikum seinna og spyrð um hvernig málið sé statt þá fatta ég að ekkert hefur gerst í málinu. Pabbi þinn spyr hvort að ég geti ekki pantað hlutinn á meðan þið bíðið. Ég þarf ekki að segja neinum sem hefur unnið við innkaup eða pantanir á varahlutum hversu heimskulegt það er að panta hluti í flýti en það geri ég engu að síður enda með fáar málsbætur eins og stóð á málinu. Ég leita að tenginu hjá einum af birgjum okkar sem sérhæfir sig í fartölvustraumtengjum en finn ekki neitt sem er sérstaklega fyrir M51S, ég finn aftur á móti tengi sem er fyrir M50 series. Oft er það svo að notað er yfirheiti seríu sem innifelur í sér undirmódel en ekki alltaf og hér var því miður ekki svo.
Þegar að tengið kemur svo í hús og ég fæ tölvuna í hendur og tek hana sundur til að skipta út tenginu kemur í ljós að þessi tengi eru gjörólík. Ég hringi því í pabba þinn til að greina honum frá stöðu mála og hvaða möguleika ég sé í stöðunni. Heyri í umboðsaðilum ASUS í síma og fæ að vita að líklega sé eki hægt að fá svona tengi frá ASUS þar sem þeir selji þau ekki stök og ætlist ekki til að sé verið að skipta um þau á móðurborðum. Þetta á reyndar við um flesta fartölvuframleiðendur en bara óheppni að ekki skuli vera hægt að fá þau hjá þriðja aðila.
Ég lagfæri tengið á eins traustan hátt eins og mér er kostur með því að smíða í kringum það og hringi í pabba þinn og læt hann vita. Þess má geta að við fengum tölvuna til okkar í dag og erum samtals búnir að vera með hana hjá okkur í innan við 7 klukkutíma þó að málið í heild sinni hafi tekið allan þennan skelfingar langa tíma.
Ég ætla ekki að bera brigður á að mér hafa orðið á mjög leiðinleg mistök í málinu en ég vona að þú verði þó sáttur við lokaniðurstöðuna í þessu máli.
Virðingarfyllst
Guðbjartur Nilsson
Re: Kísildalur WTF ?
Sent: Þri 16. Feb 2010 19:38
af Victordp
wICE_man skrifaði:Sæll Victor

Allt í lagi, vona að við getum átt betri viðskipti í framtiðinni

Re: Kísildalur WTF ?
Sent: Þri 16. Feb 2010 21:39
af rapport
Flott afsökunarbeiðni...
Ef ég væri kominn með "reputation" fyrir áreiðanleika í tölvubransanum þá mundi ég nýuta mér svona þekkingu og reyna að eiga hlutina til "næst" (ábending til Kísildals).
Ekki að ég þekki eitthvað til ykkar eða sé að dissa þetta tilvik, kannast bara við muninn á fyrirtækjum sem þurfa alltaf að panta allt frá Bangladesh og þeim sem segja "tilbúið eftir tvo daga" og geta staðið við það...
Það sem er "Besta þjónustan" hjáaðila eitt er "fallback planið hjá aðila tvö".
Ef íhlutir eru dýrir þá náttúrulega borgar þetta sig ekki...
Ég er að deyja úr pirring vegna Nýherja og vinnutölvunar sem þeir áttu ekki viftu í... p.s. allar R60,R61,T60,T61 týpur nota sömu CPU viftuna og líklega fleiri týpur, ég kalla það lélegt af Nýherja að eiga þetta ekki til, þeir eru í B2B og ættu að vita betur en að bjóða upp á svona. p.s. ég fór með tvær tölvur vegna sama vandamáls og það var bara til ein vifta, vissi svo af allavega 2-3 til viðbótar sem fóru frá okkur í þessa sömu viðgerð í janúar.
Þetta er því líklega ekki surprise hjá þeim að þurfa eiga nokkur stykki, en engum datt í huga að panta fyrr en lagerinn hafði klárast...
Re: Kísildalur WTF ?
Sent: Þri 16. Feb 2010 22:12
af Glazier
@rapport
Pældu í því hvað það væri samt kostnaðarsamt að eiga svona varahluti til á lager í allar vélar og allt sem þeir selja sem mögulega gæti bilað, það mundi setja fyrirtækið allveg á hausinn.
Re: Kísildalur WTF ?
Sent: Mið 17. Feb 2010 20:21
af OverClocker
Ég er nú engin "Kísildalssleikja" eins og margir hérna en það er ekki eins og himin og jörð séu að farast þó að smá mistök gerist hjá þeim!
Hversu oft fær maður úldinn mat í Bónus/Krónunni? eða borgar hærra verð en var verðmerkt í búðinni?
Næstum allar tölvuverslanir eru að gera sitt besta og framlegð í tölvuíhlutageiranum er sú lægsta á landinu en fólk heimtar alveg súperþjónustu.
Re: Kísildalur WTF ?
Sent: Mið 17. Feb 2010 20:31
af Gúrú
OverClocker skrifaði:Hversu oft fær maður úldinn mat í Bónus/Krónunni?
The fu? Hefurðu lent oft í því að fá
úldinn mat í Bónus?
Re: Kísildalur WTF ?
Sent: Mið 17. Feb 2010 20:55
af chaplin
wICE_man skrifaði:Sæll Victor
Sem starfsmaðurinn sem klúðraði tengjainnkaupunum þá vil ég nota tækifærið og biðjast fyrirgefningar á þeim pirring, ergelsi, leiðindum og almennri vanlíðan sem þessi seinagangur kann að hafa valdið þér.
Þegar þú komst fyrst með tölvuna þá tók ég niður pöntun á tengi fyrir þessa tilteknu tölvu og sendi tölvupóst á umboðsaðila ASUS með ósk eftir upplýsingum um verð og pöntunartíma. Þú tekur tölvuna með þér heim þar sem þú taldir þig getað notað hana svona með herkjum.
Þegar þetta á sér stað stöndum við í miðjum flutningum í nýtt húsnæði og ægilega margt sem að flækir alla starfsemi okkar. Í flutningunum týnist síðan pöntunarblaðið yfir þig og því gleymdi ég að aðhafast frekar í málinu.
Þegar þú síðan kemur rétt rúmum 3 vikum seinna og spyrð um hvernig málið sé statt þá fatta ég að ekkert hefur gerst í málinu. Pabbi þinn spyr hvort að ég geti ekki pantað hlutinn á meðan þið bíðið. Ég þarf ekki að segja neinum sem hefur unnið við innkaup eða pantanir á varahlutum hversu heimskulegt það er að panta hluti í flýti en það geri ég engu að síður enda með fáar málsbætur eins og stóð á málinu. Ég leita að tenginu hjá einum af birgjum okkar sem sérhæfir sig í fartölvustraumtengjum en finn ekki neitt sem er sérstaklega fyrir M51S, ég finn aftur á móti tengi sem er fyrir M50 series. Oft er það svo að notað er yfirheiti seríu sem innifelur í sér undirmódel en ekki alltaf og hér var því miður ekki svo.
Þegar að tengið kemur svo í hús og ég fæ tölvuna í hendur og tek hana sundur til að skipta út tenginu kemur í ljós að þessi tengi eru gjörólík. Ég hringi því í pabba þinn til að greina honum frá stöðu mála og hvaða möguleika ég sé í stöðunni. Heyri í umboðsaðilum ASUS í síma og fæ að vita að líklega sé eki hægt að fá svona tengi frá ASUS þar sem þeir selji þau ekki stök og ætlist ekki til að sé verið að skipta um þau á móðurborðum. Þetta á reyndar við um flesta fartölvuframleiðendur en bara óheppni að ekki skuli vera hægt að fá þau hjá þriðja aðila.
Ég lagfæri tengið á eins traustan hátt eins og mér er kostur með því að smíða í kringum það og hringi í pabba þinn og læt hann vita. Þess má geta að við fengum tölvuna til okkar í dag og erum samtals búnir að vera með hana hjá okkur í innan við 7 klukkutíma þó að málið í heild sinni hafi tekið allan þennan skelfingar langa tíma.
Ég ætla ekki að bera brigður á að mér hafa orðið á mjög leiðinleg mistök í málinu en ég vona að þú verði þó sáttur við lokaniðurstöðuna í þessu máli.
Virðingarfyllst
Guðbjartur Nilsson
Props fyrir Kísildal, eins og alltaf!
Re: Kísildalur WTF ?
Sent: Fim 18. Feb 2010 09:13
af ManiO
Gúrú skrifaði:The fu? Hefurðu lent oft í því að fá úldinn mat í Bónus?
Það er nú bara úldin lykt í Bónusverslununum.
Re: Kísildalur WTF ?
Sent: Fim 18. Feb 2010 11:22
af wICE_man
Er það ekki bara svitalyktin af Jóni Ásgeiri?
Annars er ég sjálfur alveg hættur að versla við Bónus nema í neyð. Tók þá ákvörðun eftir að þeyr boycott-uðu Frón á tímabili. ENGINN ABBAST UPP Á FRÓNIÐ!!!

Re: Kísildalur WTF ?
Sent: Fim 18. Feb 2010 11:40
af BjarniTS
wICE_man skrifaði:Sæll Victor
Sem starfsmaðurinn sem klúðraði tengjainnkaupunum þá vil ég nota tækifærið og biðjast fyrirgefningar á þeim pirring, ergelsi, leiðindum og almennri vanlíðan sem þessi seinagangur kann að hafa valdið þér.
Þegar þú komst fyrst með tölvuna þá tók ég niður pöntun á tengi fyrir þessa tilteknu tölvu og sendi tölvupóst á umboðsaðila ASUS með ósk eftir upplýsingum um verð og pöntunartíma. Þú tekur tölvuna með þér heim þar sem þú taldir þig getað notað hana svona með herkjum.
Þegar þetta á sér stað stöndum við í miðjum flutningum í nýtt húsnæði og ægilega margt sem að flækir alla starfsemi okkar. Í flutningunum týnist síðan pöntunarblaðið yfir þig og því gleymdi ég að aðhafast frekar í málinu.
Þegar þú síðan kemur rétt rúmum 3 vikum seinna og spyrð um hvernig málið sé statt þá fatta ég að ekkert hefur gerst í málinu. Pabbi þinn spyr hvort að ég geti ekki pantað hlutinn á meðan þið bíðið. Ég þarf ekki að segja neinum sem hefur unnið við innkaup eða pantanir á varahlutum hversu heimskulegt það er að panta hluti í flýti en það geri ég engu að síður enda með fáar málsbætur eins og stóð á málinu. Ég leita að tenginu hjá einum af birgjum okkar sem sérhæfir sig í fartölvustraumtengjum en finn ekki neitt sem er sérstaklega fyrir M51S, ég finn aftur á móti tengi sem er fyrir M50 series. Oft er það svo að notað er yfirheiti seríu sem innifelur í sér undirmódel en ekki alltaf og hér var því miður ekki svo.
Þegar að tengið kemur svo í hús og ég fæ tölvuna í hendur og tek hana sundur til að skipta út tenginu kemur í ljós að þessi tengi eru gjörólík. Ég hringi því í pabba þinn til að greina honum frá stöðu mála og hvaða möguleika ég sé í stöðunni. Heyri í umboðsaðilum ASUS í síma og fæ að vita að líklega sé eki hægt að fá svona tengi frá ASUS þar sem þeir selji þau ekki stök og ætlist ekki til að sé verið að skipta um þau á móðurborðum. Þetta á reyndar við um flesta fartölvuframleiðendur en bara óheppni að ekki skuli vera hægt að fá þau hjá þriðja aðila.
Ég lagfæri tengið á eins traustan hátt eins og mér er kostur með því að smíða í kringum það og hringi í pabba þinn og læt hann vita. Þess má geta að við fengum tölvuna til okkar í dag og erum samtals búnir að vera með hana hjá okkur í innan við 7 klukkutíma þó að málið í heild sinni hafi tekið allan þennan skelfingar langa tíma.
Ég ætla ekki að bera brigður á að mér hafa orðið á mjög leiðinleg mistök í málinu en ég vona að þú verði þó sáttur við lokaniðurstöðuna í þessu máli.
Virðingarfyllst
Guðbjartur Nilsson
Reglulega vel svarað hjá þér.
Þegar að ég lenti í þessu vandamáli með Dell vél sem ég eignaðist , þá hringdi ég til að mynda niður í umboð og það var bara hlegið af mér þegar að ég spurði hvort að þeir ættu til þennan hlut.
Svo fer ég , finn annað svona móðurborð sem að var skemmt á annan hátt , sker úr því tengið og læt vin minn sem gerði við þetta á lóðverkstæði og allir voru sáttir.
En þetta er alls ekki sjálfsagt finnst mér heldur bara hjálpsemi í þér að mínu mati.
Re: Kísildalur WTF ?
Sent: Fim 18. Feb 2010 12:09
af ronja
Ég verð bara seiga það að einginn í heiminum er fullkominn og ég verð nú bara seiga það ef þú átt tölvu eða ert að fara kaupa tölvu þá er alltaf mikið
vesen kringum þetta, liggur við að það þurfti meiri viðhald utanum tölvur heldur en bíla

Re: Kísildalur WTF ?
Sent: Sun 21. Feb 2010 10:37
af gardar
einarhr skrifaði:Fyi þá er ábyrgðarþjónusta fyrir Asus ónýt á Íslandi
Úff já, ég er með asus m51sn vél sem er í ábyrgð og keypt hjá tölvuvirkni.
Geisladrifið er bilað í vélinni, les ekki dvd diska og getur hvorki skrifað á cd né dvd diska... Ég hélt að þetta væri ekkert mál, að ég gæti skokkað uppeftir og fengið nýtt geisladrif. En svo kemur í ljós að það þarf að senda alla vélina út og láta skipta um geisladrifið þar, s.s. hvorki ég né þeir í tölvuvirkni mega taka geisladrifið úr vélinni
Áætlaður tími fyrir þessa aðgerð á að vera 2-4 vikur, sem er virkilega slæmt þar sem ég nota lappann á hverjum degi