Síða 1 af 1

Verðhækkanir hjá Símanum 1. Mars

Sent: Fim 11. Feb 2010 01:17
af depill
Eða Verð"breytingar" eins og Síminn kallar það

http://www.siminn.is/einstaklingar/farsiminn/verd/nanar/store466/item130949/

Vá mér finnst eins og þeir séu nýbúnir að hækka sínu dýru verðskrá :( Þeir segja 3,5% meðalhækkun en það er mismunandi hækkun og lækkun á hlutum þarna svo...

Jæja hvað finnst fólki ( og já þetta er ekki út af VSKinum, þeir voru búnir að hækka út af því :) )

Re: Verðhækkanir hjá Símanum 1. Mars

Sent: Fim 11. Feb 2010 01:45
af kazgalor
Þeir hækka internetið mitt bara um 12 krónur, svo ætli mér blæði nokkuð af því.

Re: Verðhækkanir hjá Símanum 1. Mars

Sent: Fim 11. Feb 2010 02:08
af gardar
Leið 4, 30 Mb/s - 120 GB Fyrir 8.054 kr.
Leið 4, 30 Mb/s - 120 GB Eftir 8.050 kr.


Verðlækkun? :lol:

Re: Verðhækkanir hjá Símanum 1. Mars

Sent: Fim 11. Feb 2010 13:40
af depill
gardar skrifaði:
Leið 4, 30 Mb/s - 120 GB Fyrir 8.054 kr.
Leið 4, 30 Mb/s - 120 GB Eftir 8.050 kr.


Verðlækkun? :lol:

Eins og ég sagði lækkun á sumum leiðum ( og þess vegna hækkar sumt meira en 3,5% og sumt minna ). Finnst bara Síminn nýta sér hvert tækifæri til að hækka verðskránna þrátt fyrir mikinn rekstarhagnað. Nottulega til þess að bera skuldir móðurfélagsins.

Til dæmis er hækkun á SMSum, skrefgjöldum.

Myndlykill hjá Símanum hækkar t.d. úr 600 úr 690 kr og aukamyndlykill úr 564 kr í 640 kr á mánuði ( Myndlykill sem kostar ekki neitt ... Það er Síminn var auglýsing frá Símanum lengi á flettiskylti uppí Breiddinni ).

Hækka ennfrekar gjöld í að hringja í NOVA ( og reyndar Vodafone líka ) ásamt hækkunum á flest öllu til fyrirtækja ( IP samböndum og skrefgjöldum ) ásamt hækkunum á erlendis símtöl ennfrekar. Reyndar skal það alveg játast að mikið af þessum "hækkunum" eða lækkunum eru til að gera verðskránna þjálari eftir vsk breytingar.

Ánægður með að vera ljúka við að flytja mig yfir til SIP með fyrirtækið hjá mér.

B.t.w svo við tökum það þá er þessi frumdrög mjög góð lesning ( frá Póst og fjarskiptastofnun ). En þar er gert ráð fyrir lækkun á lúkingargjöldum í farsímanetum sem byrja 1.3.2010 ( sama dag og Síminn er að hækka gjöld milli farsímaneta.

En samkv skýrslunni þá samkv. kostnaðargreiningu Símans kostar u.þ.b. 4,5 að ljúka símtali í GSM hjá þeim.

Og samkv. drögunum þá er gert ráð fyrir því að lúkning í neti NOVA muni kosta 10,3 kr ( lækkun frá 12 kr ) og lúkning í neti Vodafone muni kostar 6,5 kr. Og lúkning í öll net eigi að kostar 4,5 kr 1.1.2013.

En hins vegar er bent á það að síðan PTA neyddi Vodafone og Símann að lækka lúkningargjöldin sín í 7,49 kr og neyða þau til að opna fyrir samtengingar beint í farsímanetin og þar með opna fyrir möguleikann að losna við Transit kostnað að þá hafa fjarskiptafyrirtækin ekki lækkað kostnað milli kerfa heldur þvert á móti hækkað hann....

Pirrandi, já mjög. B.t.w http://www.sip.is mæli með þessu fyrir sem flest fyrirtæki. Bjóða uppá flott verð í fyrirtækjatengingum og talsímamálum ( og selja IP síma á eðlilegu verði ) :)

Re: Verðhækkanir hjá Símanum 1. Mars

Sent: Fim 11. Feb 2010 14:00
af Glazier
Þetta minnir mig nú á auglýsinguna hjá einhverri málningavöru verslun..
Einhver kall sem segir að þeir eigi að hækka verðið til að geta lækkað það og svona ehv bla bla..
Síminn hækkar verðið, lækkar það síðan til að laða að sér viðskiptavini og hækkar það síðan aftur.