Síða 1 af 2

"Til hamingju" vaktarar og aðrir landsmenn

Sent: Mið 30. Des 2009 23:44
af ManiO
Jæja, þá er Icesave málið loksins "leyst." Hvað finnst mönnum?

Re: "Til hamingju" vaktarar og aðrir landsmenn

Sent: Mið 30. Des 2009 23:50
af coldcut
LOKSINS!!! Nú getur maður fagnað tvöfalt á morgun \:D/

En annars finnst mér þetta bara "damage control". Engir góðir kostir í stöðunni en þessi bestur af þeim sem komið hafa fram.

Sjálfstæði og framsókn gleyma svolítið að þetta efnahagskerfi var byggt af þeim. Samfylkingin átti auðvitað að stoppa þetta þegar þeir komu í ríkisstjórn en í mínum huga eiga sjálfstæði og framsókn 95% sök á þessu hruni!

Re: "Til hamingju" vaktarar og aðrir landsmenn

Sent: Mið 30. Des 2009 23:55
af hsm
Verð aldrei sáttur við neitt af þessu máli nema þeir sem áttu þátt í þessum veruleika sem við búum við í dag verði gerðir upp og verði láttnir svara til saka. firr verð ég ekki sáttur. [-X

Re: "Til hamingju" vaktarar og aðrir landsmenn

Sent: Mið 30. Des 2009 23:55
af ManiO
Minni fólk á indefence.is en "aðeins" 40.800 manns búnir að skrá sig, þar af um 3000 manns bara frá því að þingfundur hófst áðan.

Re: "Til hamingju" vaktarar og aðrir landsmenn

Sent: Fim 31. Des 2009 00:01
af emmi
Húrra fyrir Samfylkingunni og þessum vanhæfu vitleysingum (Svavar Gests, Indriði Þorláks og fleiri). Vona innilega að landinn hafni þessari ESB inngöngu.

Re: "Til hamingju" vaktarar og aðrir landsmenn

Sent: Fim 31. Des 2009 00:02
af ManiO
emmi skrifaði:Húrra fyrir Samfylkingunni og þessum vanhæfu vitleysingum (Svavar Gests, Indriði Þorláks og fleiri). Vona innilega að landinn hafni þessari ESB inngöngu.

Svavar Gests er náttúrulega skúrkur ársins, það er klárt mál.

Re: "Til hamingju" vaktarar og aðrir landsmenn

Sent: Fim 31. Des 2009 00:05
af halldorjonz
ManiO skrifaði:Minni fólk á indefence.is en "aðeins" 40.800 manns búnir að skrá sig, þar af um 3000 manns bara frá því að þingfundur hófst áðan.

Tilhverss að minna á það? Ekki eins og það sé að fara gera eitthvað, síðan væri bara RUGL að fara með þetta í þjóðaratkvæðagreiðslu, ég meina, hver helduru að vilji borga þetta? Það segja allir nei.
Og hvað þá? Við skuldum þetta, og ef við segjum bara nei, þá mun enginn lána okkur því við borgum ekki...verður litið svoleiðis á okkur... mitt mat

Re: "Til hamingju" vaktarar og aðrir landsmenn

Sent: Fim 31. Des 2009 00:09
af beatmaster
coldcut skrifaði:LOKSINS!!! Nú getur maður fagnað tvöfalt á morgun \:D/

En annars finnst mér þetta bara "damage control". Engir góðir kostir í stöðunni en þessi bestur af þeim sem komið hafa fram.

Sjálfstæði og framsókn gleyma svolítið að þetta efnahagskerfi var byggt af þeim. Samfylkingin átti auðvitað að stoppa þetta þegar þeir komu í ríkisstjórn en í mínum huga eiga sjálfstæði og framsókn 95% sök á þessu hruni!
x2

Þetta með indefence.is og "undirskriftasöfnun" [-X , að skrá sig á heimasíðu er ekki undirskrift!

Svo er alltaf verið að bera þetta saman við fjölmiðlalögin en það voru tugþúsundir handskrifaðar undirskriftir, það er ekki það sama í mínum huga

Það er allt of mikið gert úr "gjá milli þings og þjóðar" í þessu máli 80% venjulegra íslendingaa vill bara að þetta kjaftæði hætti.

Tala nú ekki um fólk sem að skilur ekki orsök og afleiðingu, því er bara ekki viðbjargandi.

Baggalútur tók það best fyrir um daginn, með manninn sem að þoldi ekki af þurfa að skafa af bílnum sínum og vildi fá sjálfstæðisflokkinn aftur til valda því að hann þurfti aldrei að skafa af bílnum þegar að hann var við völd

Ég myndi seint kjósa VG en Steingrímur J er maður ársins að mínu mati, en varðandi mínar persónulegu pólitísku skoðanir þá auglýsi ég eftir alvöru hægri flokki á íslandi (og fólk sem að í alvöru telur X-D vera hægri sinnaðan flokk ætti að kynna sér sögu síðustu 20 ára)

Re: "Til hamingju" vaktarar og aðrir landsmenn

Sent: Fim 31. Des 2009 00:10
af ManiO
halldorjonz skrifaði:
ManiO skrifaði:Minni fólk á indefence.is en "aðeins" 40.800 manns búnir að skrá sig, þar af um 3000 manns bara frá því að þingfundur hófst áðan.

Tilhverss að minna á það? Ekki eins og það sé að fara gera eitthvað, síðan væri bara RUGL að fara með þetta í þjóðaratkvæðagreiðslu, ég meina, hver helduru að vilji borga þetta? Það segja allir nei.
Og hvað þá? Við skuldum þetta, og ef við segjum bara nei, þá mun enginn lána okkur því við borgum ekki...verður litið svoleiðis á okkur... mitt mat

Hvað er að því að senda þetta til dómsstóla? Og ef þú ert ósáttur við þá hugmynd, hvernig væri þá að ganga aftur til viðræðna um samning, og senda núna hæfa menn, ekki einhvern elliæran komma eins og Svavar Gests sem tók 3 daga í að semja um þennan "snilldar" samning. Samning sem sagði meðal annars að íslenska ríkið myndi borga lögfræði kostnað breta og hollendinga? Samning sem bætir við um 10 mánuðum í ógreidda vexti?

Re: "Til hamingju" vaktarar og aðrir landsmenn

Sent: Fim 31. Des 2009 00:13
af intenz
Mér finnst bara ÓTRÚLEGAST að þessi kvikindi bjóði sig fram og séu kosin inn á þing með því fyrir augum almennings að þau séu með ákveðna stefnuskrá og séu fylgjandi lýðræði en kjósi síðan gegn því að fólkið í landinu fái að ráða örlögum barna sinna, barnabarna og komandi kynslóða hvað varðar greiðslubyrði. Þá er ég að tala um þessa þingmenn sem kusu gegn þjóðaratkvæðagreiðslu á frumvarpinu en buðu sig fram fylgjandi lýðræði!

Mig langar líka einna helst til þess að beita Þráinn Bertelsson ofbeldi vegna þess að hann bauð sig fram fyrir hönd Borgarahreyfingarinnar og með ÞJÓÐARATKVÆÐAGREIÐSLU og LÝÐRÆÐI í fyrirrúmi hvað varðaði stefnu. En svo kýs hann á móti þjóðaratkvæðagreiðslu á frumvarpinu og fer fögrum orðum um frumvarpið og áætlanir ríkisstjórnar.

Re: "Til hamingju" vaktarar og aðrir landsmenn

Sent: Fim 31. Des 2009 00:13
af beatmaster
emmi skrifaði:Húrra fyrir Samfylkingunni og þessum vanhæfu vitleysingum (Svavar Gests, Indriði Þorláks og fleiri). Vona innilega að landinn hafni þessari ESB inngöngu.
Af hverju að hafna ESB, til að láta sömu 200 manneskjurnar og afkomendur þeirra sem að hafa sogið til sín allt sem að þetta land hefur upp á að bjóða síðustu 150 árin (með þessum líka glæsta árangri) halda áfram að ríða hinum 300.000 í rassgatið?

Hér verður aldrei lýðræði fyrr en við inngöngu í ESB - Frelsi er ansi víðtækt hugtak!

Re: "Til hamingju" vaktarar og aðrir landsmenn

Sent: Fim 31. Des 2009 00:13
af intenz
halldorjonz skrifaði:
ManiO skrifaði:Minni fólk á indefence.is en "aðeins" 40.800 manns búnir að skrá sig, þar af um 3000 manns bara frá því að þingfundur hófst áðan.

Tilhverss að minna á það? Ekki eins og það sé að fara gera eitthvað, síðan væri bara RUGL að fara með þetta í þjóðaratkvæðagreiðslu, ég meina, hver helduru að vilji borga þetta? Það segja allir nei.
Og hvað þá? Við skuldum þetta, og ef við segjum bara nei, þá mun enginn lána okkur því við borgum ekki...verður litið svoleiðis á okkur... mitt mat

HEFURU HEYRT UM DÓMSTÓLA ????

Re: "Til hamingju" vaktarar og aðrir landsmenn

Sent: Fim 31. Des 2009 00:18
af ManiO
beatmaster skrifaði:
emmi skrifaði:Húrra fyrir Samfylkingunni og þessum vanhæfu vitleysingum (Svavar Gests, Indriði Þorláks og fleiri). Vona innilega að landinn hafni þessari ESB inngöngu.
Af hverju að hafna ESB, til að láta sömu 200 manneskjurnar og afkomendur þeirra sem að hafa sogið til sín allt sem að þetta land hefur upp á að bjóða síðustu 150 árin (með þessum líka glæsta árangri) halda áfram að ríða hinum 300.000 í rassgatið?

Hér verður aldrei lýðræði fyrr en við inngöngu í ESB - Frelsi er ansi víðtækt hugtak!

Lýðræði í ESB? Já, sæll. ESB er besta dæmið um hvað bjúrókratar geta verið skaðlegir mannlegu samfélagi.

Re: "Til hamingju" vaktarar og aðrir landsmenn

Sent: Fim 31. Des 2009 00:19
af beatmaster
ManiO skrifaði:

EDIT:Ég eyddi kommenti mínu, það eru bara of skiptar skoðanir á þessu og ég vill ekki vera dónalegur

Re: "Til hamingju" vaktarar og aðrir landsmenn

Sent: Fim 31. Des 2009 00:28
af ManiO
Hvernig myndi það t.d. auka lýðræði hér á Íslandi að yfir 70% af lögum landsins væru samþykkt í Brussel af öðrum þjóðum? Vissulega fáum við kjörna fulltrúa, en áhrif þeirra væru álíka og húsfluga hefur hér á landi.

Endurskoðenda málin? ESB fór í gegnum 3 endurskoðenda fyrirtæki á skömmum tíma þar sem að þau neituðu að skrifa undir reikninga og voru því reknir.

http://www.telegraph.co.uk/news/worldne ... of-EU.html

Ef þú vilt meira þá verður það að bíða til nýja ársins.

EDIT: beatmaster, ég tók þessu engan veginn illa, enda hefði ég átt að rökstyðja svar mitt strax frá upphafi.

Re: "Til hamingju" vaktarar og aðrir landsmenn

Sent: Fim 31. Des 2009 00:30
af GuðjónR
Svartur dagur. Borga skuldir annara...
Ekki gott.

Re: "Til hamingju" vaktarar og aðrir landsmenn

Sent: Fim 31. Des 2009 00:35
af emmi
Steingrímur J. er viðsnúningur og frasameistari ársins

Re: "Til hamingju" vaktarar og aðrir landsmenn

Sent: Fim 31. Des 2009 00:44
af Gúrú
Úff nú vil ég ekki einu sinni fara og spyrja hvað gerðist... vil ekki vita það.
Ekki var kosið í vil þess að við erum núna að fara að lifa á excel ævintýri starfsmanns AGS sem að byggist á því að við fáum nægan pening fyrir ~mat, olíu og súráli?

Re: "Til hamingju" vaktarar og aðrir landsmenn

Sent: Fim 31. Des 2009 00:51
af rapport
Velkomnir í skuldafangelsið Ísland.

Nú hefur Alþingi skrifað undir sjálsskuldarábyrgð á Icesave fyrir hönd Íslendinga á bankahruninu (ICESAVE) (það var svolítið stupid, þar sem við vitum að bankarnir fóru á hausinn)

Það er almennt ekki góð pólisía að skrifa undir svona ábyrgðir fyrir fólk sem getur ekki borgað, sérstaklega ef maður getur ekki borgað sjálfur.

En það er enn ekki búið að segja mér skv. hvaða ESB reglugerð ríkisstjórninn notar til að réttlæta þennan samning, þ.e.a.s reglugerð sem enginn vafi leikur á um merkingu...

S.s. fyrst þeir vissu ekki hvernig átti að túlka reglugerðina þá eru Bretar og Hollendingar látnir gera það fyrir okkur.

Þetta er kannski allt í tómu tjóni hérna hjá mér, ég hef bara aldrei á ævinni fundist ég eins svikinn og í dag...

Helvítis fokking fokk...

Re: "Til hamingju" vaktarar og aðrir landsmenn

Sent: Fim 31. Des 2009 01:58
af bolti
GuðjónR skrifaði:Svartur dagur. Borga skuldir annara...
Ekki gott.

Sammála þessu.... er eginlega alveg óður útaf þessu....

Re: "Til hamingju" vaktarar og aðrir landsmenn

Sent: Fim 31. Des 2009 03:37
af Legolas
eina sem mig langar að seiga um þetta er að þetta sannar og staðfestir bara að það eru í það minsta 33 :the_jerk_won :sleezyjoe :snobbylaugh :droolboy þroskaheftir útsendarar Satans á alþingi

Re: "Til hamingju" vaktarar og aðrir landsmenn

Sent: Fim 31. Des 2009 04:23
af KrissiK
Legolas skrifaði:eina sem mig langar að seiga um þetta er að þetta sannar og staðfestir bara að það eru í það minsta 33 :the_jerk_won :sleezyjoe :snobbylaugh :droolboy þroskaheftir útsendarar Satans á alþingi

hahah ,, já það má nú segja það :)

Re: "Til hamingju" vaktarar og aðrir landsmenn

Sent: Fim 31. Des 2009 05:05
af Einarr
Neyðist maður ekki bara til að flýja land?

Re: "Til hamingju" vaktarar og aðrir landsmenn

Sent: Fim 31. Des 2009 10:49
af jodazz
Hmm

Ég efast nú um að þessir 33 þingmenn séu svo forheimskir að þeir samþykki þetta nema annað væri í boði. Annars er alveg frábært að flokkurinn sem kom þessu á koppinn með æðislega vel heppnaðri einkavæðingu sé nú að mælast stærstur. Þá getum við bráðum haldið áfram að græða á daginn og grilla á kvöldin.

Annars er dásamlegat að hlusta á fortölur um hið vonda ESB. Staðreyndin er sú að eftir fremur stutta sögu sjálfstæðis þar sem flokkurinn hefur verið við völd mestan part af tímanum þá eru lífskjör hér í hið minnsta helmingi verri en á hinum norðurlöndunum. Maður á lyftara sem vinnur 38 stunda vinnuviku í Danmörku er með 850þús á mánuði miðað við gengið í dag. En að vísu hlýtur hann náttúrulega að hafa það skelfilegt þar sem hann býr ekki lengur í sjálfstæðu landi.

Það sem sárvantar í lýðræðið á Íslandi er að menn fari að kjósa flokka en hætti að halda með þeim líkt og einhverju fótboltaliði.

Annars bara gleðilegt ár og dót.

Re: "Til hamingju" vaktarar og aðrir landsmenn

Sent: Fim 31. Des 2009 11:29
af Daz
Samþykkt icesave þýðir í það minnsta að við getum stundað viðskipti við útlönd á næstunni, ef við hefðum ekki samþykkt er alls óvíst hvað hefði gerst, hversu ósanngjarnt sem það kann að hljóma að borga skuldir einkafyrirtækis. Ég hefði nú haldið að tölvunördar skildu mikilvægi þess að eiga lítið heftann innflutning!! :roll: :lol: