Síða 1 af 2

Vaktarar og flugeldar 2009

Sent: Mið 30. Des 2009 22:14
af Hargo
Jæja hvar kaupa svo notendur vaktarinnar flugeldana í ár? Einkaaðilar, björgunarsveitir eða ungmenna-og íþróttafélög?

Eða eyða menn peningunum kannski frekar í eitthvað annað nytsamlegra en púður?

Ég sjálfur get ekki haldið áramót án þess að kaupa eitthvað smávegis í það minnsta. Nota yfirleitt flöskupening í að kaupa flugeldana en það safnast ansi mikið af tómum flöskum kringum jólin á heimilið og foreldrar mínir láta mig yfirleitt hreinsa út þeirra flöskur sem safnast heima hjá þeim líka. Þurfti reyndar að bæta aðeins við þann pening í ár svo ég fengi nú eitthvað sem varið er í, maður fær orðið ansi lítið púður fyrir peninginn...

Re: Vaktarar og flugeldar 2009

Sent: Mið 30. Des 2009 22:15
af bulldog
að sjálfsögðu hjá Björgunarsveitunum ( í mínu tilfelli Sandgerðis ). Ef þú verslar af einkaaðila þá skaltu muna að biðja um símanúmerið hjá þeim svo að þeir geti bjargað þér ef þú þarft á því að halda ...

Re: Vaktarar og flugeldar 2009

Sent: Mið 30. Des 2009 22:19
af viddi
Ekki neinstaðar... Rándýrt þetta drasl

Re: Vaktarar og flugeldar 2009

Sent: Mið 30. Des 2009 22:20
af halldorjonz
björgunarsveitinni :) .. EEEN verðið vá,
1 tralli og gos, minnsta sem maður getur eiginlega keypt, 11þús, what!!!
og "flugeldatilboð", 2 tertur og 1 fjölskpakki.. 48ÞÚSUND??? :hnuss

Re: Vaktarar og flugeldar 2009

Sent: Mið 30. Des 2009 22:36
af emmi
Löngu hættur að kaupa þetta drasl. Horfi bara á hina vitleysingana skjóta nokkrum þúsundköllum uppí loftið. :)

Re: Vaktarar og flugeldar 2009

Sent: Mið 30. Des 2009 22:46
af vesley
eyði ekki krónu þetta ár. nóg fyrir mig að eiga vitlausann frænda sem eyðir tugum jafnvel hundrað þúsund krónum í þetta ár hvert.

Re: Vaktarar og flugeldar 2009

Sent: Mið 30. Des 2009 23:01
af bixer
keyptum kökur fyrir 20 Þús og smádót fyrir 5 þús hjá björgunarsveitini, hugsa samt að ég fari og kaupi næst minnsta fjölskyldupakkann líka...

Re: Vaktarar og flugeldar 2009

Sent: Mið 30. Des 2009 23:18
af Hargo
Já verðið hjá Björgunarsveitinni er svakalega hátt. Vona samt þeirra vegna að þeir fái fín viðskipti, samkeppnin er orðin meiri í þessum bransa. Ég keypti samt eitthvað smá af þeim en fór svo á aðra flugeldasölu og styrkti íþróttafélag hverfisins í leiðinni, verðið var aðeins hóflegra þar.

Sá að stærsti fjölskyldupakkinn hjá Björgunarsveitinni er á 21 eða 22 þús. Sá ívið stærri fjölskyldupakka hjá einkaaðila á tæpan 12 þús kall, eitthvað sem heitir Alvöru Flugeldar. Það var freistandi að fara þangað og fá gott verð en ég hafði það ekki í mér, vil frekar vita af peningunum fara á staði sem þarfnast þeirra.

Re: Vaktarar og flugeldar 2009

Sent: Mið 30. Des 2009 23:26
af Ulli
ég spái ekkert í því hvar eg versla þetta.
mér finst tildæmis að það eigi ekki að setja einkaleifi við sölu flugelda.

keypti eina litla tertu og risastórt skot blis.kostaði hmm....10:000kr endist kanski í 2 mínutur...

Re: Vaktarar og flugeldar 2009

Sent: Mið 30. Des 2009 23:42
af hsm
bulldog skrifaði:að sjálfsögðu hjá Björgunarsveitunum ( í mínu tilfelli Sandgerðis ). Ef þú verslar af einkaaðila þá skaltu muna að biðja um símanúmerið hjá þeim svo að þeir geti bjargað þér ef þú þarft á því að halda ...

Eiga þeir sem kaupa ekki neitt (þá að sjálfsögðu eru þeir ekki að styrkja neinn) ekki líka að hringja eitthvað annað ???
Þetta er ekki sangjörn auglýsingarherferð.

Vill taka það fram að ég stið björgunarsveitina en á annan hátt í dag. ég er sjómaður(í mínu tilfelli róum við frá Sandgerði :) ) og vill að sjálfsögðu vita af góðu fólki ef ég þarf á því að halda.

Ég er hættur að kaupa fyrir sjálfan mig og lét dóttir mína hafa 20.000 kr og sagði henni að þetta væru peningar fyrir flugelda, en þar sem hún þorir ekki að koma nálægt þessu greiið og hefur ekki gaman að þessu, þá lét ég hana ráða hvort að hún fengi flugelda eða eitthvað annað.
Og ég held að niðurstaðan hafi verið auka stýripinni og leikur í PS3.

Gleðileg áramót til ykkar allra ( líka þeirra sem kaupa af einkaaðilum og þeim sem kaupa ekki neitt ) :8)

Re: Vaktarar og flugeldar 2009

Sent: Mið 30. Des 2009 23:46
af ManiO
Ég er hættur að nenna þessu en foreldrar mínir eyða slatta í þetta, enda fjöldi fólks sem flykkist heim til okkar í vænt partí.

Re: Vaktarar og flugeldar 2009

Sent: Mið 30. Des 2009 23:49
af Glazier
Kaupi hjá gullborg því ég get ekki fengið víti hjá björgunarsveitunum og fyrst maður er mættur í gullborg til að kaupa víti afhverju þá ekki að kaupa allt annað líka hjá gullborg og fá magnafsláttt ? :D
Nenni ekki að kaupa þetta hér og þar ;)

Re: Vaktarar og flugeldar 2009

Sent: Fim 31. Des 2009 00:00
af halldorjonz
Glazier skrifaði:Kaupi hjá gullborg því ég get ekki fengið víti hjá björgunarsveitunum og fyrst maður er mættur í gullborg til að kaupa víti afhverju þá ekki að kaupa allt annað líka hjá gullborg og fá magnafsláttt ? :D
Nenni ekki að kaupa þetta hér og þar ;)


Hvað kostar 1 vítisterta núna?

Re: Vaktarar og flugeldar 2009

Sent: Fim 31. Des 2009 00:14
af vesley
halldorjonz skrifaði:
Glazier skrifaði:Kaupi hjá gullborg því ég get ekki fengið víti hjá björgunarsveitunum og fyrst maður er mættur í gullborg til að kaupa víti afhverju þá ekki að kaupa allt annað líka hjá gullborg og fá magnafsláttt ? :D
Nenni ekki að kaupa þetta hér og þar ;)


Hvað kostar 1 vítisterta núna?



1200 krónur held ég að þær kosti.

Re: Vaktarar og flugeldar 2009

Sent: Fim 31. Des 2009 00:55
af Klemmi
Er fólk enn að rífa í sundur Vítisterturnar bara til að fá öflugri kínverja?

Re: Vaktarar og flugeldar 2009

Sent: Fim 31. Des 2009 01:02
af Hargo
Vítistertan var á 600kr í fyrra skv. þessari síðu....

Greinilega mikil hækkun í gangi.

http://www.netbudir.is/viti.htm

Re: Vaktarar og flugeldar 2009

Sent: Fim 31. Des 2009 01:10
af sakaxxx
Klemmi skrifaði:Er fólk enn að rífa í sundur Vítisterturnar bara til að fá öflugri kínverja?


krakkar eru alltaf krakkar, enda var það ógeðslega gaman í gamladaga :D

ég er allavega búinn að kaupa það sem ég nota á morgun 3 froskapakka og ylupakka :lol:

Re: Vaktarar og flugeldar 2009

Sent: Fim 31. Des 2009 02:32
af Glazier
Hargo skrifaði:Vítistertan var á 600kr í fyrra skv. þessari síðu....

Greinilega mikil hækkun í gangi.

http://www.netbudir.is/viti.htm

nei, þær voru líka á 1.200 kr. í fyrra..
Reyndar var það þannig að ef þú keyptir eina borgaðiru 1.200 kr. ef þú keyptir 2 borgaðiru held ég 1.800 kr. og svo lækkaði alltaf verð per stykki eftir því sem þú keyptir fleyrri.
Ég reyndar fékk allveg magnaðann afslátt þarna og keypti 20 vítistertur (1 kassa) á 7 þús. kall :D

Re: Vaktarar og flugeldar 2009

Sent: Fim 31. Des 2009 02:52
af blitz
Allt keypt hjá einkaaðilum eins og undanfarin ár.

Re: Vaktarar og flugeldar 2009

Sent: Fim 31. Des 2009 03:15
af zedro
Flugbjörgunarsveitin er málið :D og allar aðrar björgunarsveitir líka. Vill að einhver komi að bjarga mér ef ég A) festist útá landi í stormi B) þakið fýkur af í óveðri C) týnist uppá jökli ... o.s.frv.

Re: Vaktarar og flugeldar 2009

Sent: Fim 31. Des 2009 15:12
af Hargo
Glazier skrifaði:
Hargo skrifaði:Vítistertan var á 600kr í fyrra skv. þessari síðu....

Greinilega mikil hækkun í gangi.

http://www.netbudir.is/viti.htm

nei, þær voru líka á 1.200 kr. í fyrra..
Reyndar var það þannig að ef þú keyptir eina borgaðiru 1.200 kr. ef þú keyptir 2 borgaðiru held ég 1.800 kr. og svo lækkaði alltaf verð per stykki eftir því sem þú keyptir fleyrri.
Ég reyndar fékk allveg magnaðann afslátt þarna og keypti 20 vítistertur (1 kassa) á 7 þús. kall :D


Nú okei, þá eru þetta eflaust eldgömul verð þarna á þessari heimasíðu.

En hvað hefurðu að gera við heilan kassa af þessu? Eru þetta magnaðar tertur? Eða ertu kannski að taka þetta í sundur?

Re: Vaktarar og flugeldar 2009

Sent: Fim 31. Des 2009 15:22
af halldorjonz
Taka þetta í sundur mjög líklega, ekkert gaman að þessari tertu annars.

Re: Vaktarar og flugeldar 2009

Sent: Fim 31. Des 2009 15:39
af lukkuláki
Ég keypti flugelda af Landsbjörg áðan en ég lít meira á þetta sem stuðning við björgunarsveitirnar en óþarfa peningaeyðslu. (Sjálfsblekking:) )

Gleðilegt nýtt ár strákar og takk fyrir 2009

Re: Vaktarar og flugeldar 2009

Sent: Fim 31. Des 2009 15:55
af bixer

Re: Vaktarar og flugeldar 2009

Sent: Fim 31. Des 2009 16:22
af DoofuZ
Ég keypti tvær stórar tertur hjá einkaaðila (vinnufélagi pabba) og fékk fínan afslátt og svo eina aðeins minni tertu í viðbót :D Svo á ég einhverja flugelda síðan í fyrra, sumt sem lekur púðri svo því verður hent en annað fer í "öruggar" hendur bróður míns :twisted: (enda þori ég varla að koma nálægt gömlum flugeldum hehe :roll:)

Sumum sem ég þekki finnst það samt ekki svo sniðugt að versla við einkaaðila, en eins og hefur komið fram hér þá eru björgunarsveitirnar mun dýrari og það hafa ekki allir efni á því í dag.