Síða 1 af 1

Eru Fikniefni Eiturlyf

Sent: Sun 20. Des 2009 21:13
af andribolla
http://extranova.org/view/293

rak augun í spjallið á þessu torrenti.
hrein heimska eða staðreind ? hehe
----- >>

fíkniefni
Flokkur:
Other > E-books
Skrár:
1
Stærð:
51.58 MiB (54087262 Bytes)
Sent:
2009-09-28 23:40:41
By:
Deilendur:
5
Skráasugur:
0
Athugasemdir
8 Skrifa athugasemd


NÁ Í ÞESSA DEILISKRÁ
allar þær upplýsingar sem þú hefur nokkru sinni viljað að vita um fíkiefni. nema hvernig á að fá þau. ritstýrt og gefið út af high times liðinnu.
NÁ Í ÞESSA DEILISKRÁ
8 athugasemd(ir)

1. - 09-28 23:41
þetta ætti að virka núna.
2. - 09-29 07:47
insendandi þessa torrents er eitthvað
heimskur !!!!
að senda fíkniefni og hvernig maður fær þau ?
heimska!!!
3. - 09-29 08:05
hvað ertu að tala um, ég tók það skýrt og greinilega fram í lýsingunni að það stæði ekki í bókinni.
4. - 09-29 18:36
Ja veistu ekki að það er bæði stórhættulegt og líka stranglega bannað að lesa sig til um fíkniefni.
5. - 09-29 19:23
já, vinur minn las um bók læknisfræðilega notkun marijúana og hann endaði heiladauður í dái.
6. - 09-29 21:48
hahaha :D
7. - 09-29 23:58
4. palli93 - Í dag 18:36
Ja veistu ekki að það er bæði stórhættulegt og líka stranglega bannað að lesa sig til um fíkniefni.



HAHA! Made my day!
8. - 09-30 12:04
Eru Fikniefni Eiturlyf

Re: Eru Fikniefni Eiturlyf

Sent: Sun 20. Des 2009 21:17
af bulldog
heheheheh

Re: Eru Fikniefni Eiturlyf

Sent: Mán 21. Des 2009 03:02
af JohnnyX
gaman hvað krakkar í þessu landi eru gáfaðir...

Re: Eru Fikniefni Eiturlyf

Sent: Mán 21. Des 2009 04:18
af Gúrú
JohnnyX skrifaði:gaman hvað krakkar í þessu landi eru gáfaðir...

Ég gæti sagt það sama um meirihluta allra í opinberra starfsmanna(og alla stjórnmálamenn) hér á landi...

Re: Eru Fikniefni Eiturlyf

Sent: Mán 21. Des 2009 04:34
af Viktor
Kaffi, sígarettur og áfengi eru fíkniefni.

Re: Eru Fikniefni Eiturlyf

Sent: Mán 21. Des 2009 05:03
af MrT
Ég býst við að það fari eftir hvernig maður skilgreinir fíkniefni og eiturlyf hvort þau séu það sama, en vissulega myndi vera eitthvað overlap fyrir hvaða almennilegu skilgreiningar sem er.

Re: Eru Fikniefni Eiturlyf

Sent: Mán 21. Des 2009 09:16
af Viktor
MrT skrifaði:Ég býst við að það fari eftir hvernig maður skilgreinir fíkniefni og eiturlyf hvort þau séu það sama, en vissulega myndi vera eitthvað overlap fyrir hvaða almennilegu skilgreiningar sem er.


Fíkniefni:
deyfandi eða örvandi efni sem veldur fíkn og getur orðið vanabindandi, vímuefni, vímugjafi

Re: Eru Fikniefni Eiturlyf

Sent: Mán 21. Des 2009 09:37
af bulldog
Sigarettur eru t.d. löglegt fíkniefni.

Re: Eru Fikniefni Eiturlyf

Sent: Mán 21. Des 2009 12:18
af kazgalor
Ég vona að það séu ekki mörg dæmi um svona fávitaskap. Þó svo að neysla og flutningur vissra fíkniefna sé bönnuð, þá hefur aldrei verið bannað að leita sér að þekkingu. (Nema í kína, en þeir eru líka kommúnistar.)

Fáfræði er líklega einn versti og jafnframt útbreyddasti sjúkdómur í heiminum, og mér finnst sorglegt að verða vitni af svona.

Re: Eru Fikniefni Eiturlyf

Sent: Mán 21. Des 2009 12:38
af JohnnyX
kazgalor skrifaði:Ég vona að það séu ekki mörg dæmi um svona fávitaskap. Þó svo að neysla og flutningur vissra fíkniefna sé bönnuð, þá hefur aldrei verið bannað að leita sér að þekkingu. (Nema í kína, en þeir eru líka kommúnistar.)

Fáfræði er líklega einn versti og jafnframt útbreyddasti sjúkdómur í heiminum, og mér finnst sorglegt að verða vitni af svona.


It's bad because knowledge is power!

Re: Eru Fikniefni Eiturlyf

Sent: Mán 21. Des 2009 13:16
af biturk
fíkniefni eru mörg hver bara tilgreind sem eiturlyf í hræðsluáróðri og lagalegum skilgreiningi!

til dæmis er ekkert ávanabindandi efni í grasi og ekki heldur í sýru!

Re: Eru Fikniefni Eiturlyf

Sent: Mán 21. Des 2009 13:21
af urban
biturk skrifaði:fíkniefni eru mörg hver bara tilgreind sem eiturlyf í hræðsluáróðri og lagalegum skilgreiningi!

til dæmis er ekkert ávanabindandi efni í grasi og ekki heldur í sýru!



enda eru það með réttu ekki fíkniefni.
en eiturlyf eru það samt sem áður.

Re: Eru Fikniefni Eiturlyf

Sent: Mán 21. Des 2009 14:31
af vesley
sagt var við mig á eitthverri kynningu að áfengi væri eiturlyf .

s.s. eina löglega eiturlyfið. vímugjafi og eitthvað svoleiðis : O

Re: Eru Fikniefni Eiturlyf

Sent: Mán 21. Des 2009 14:53
af urban
vesley skrifaði:sagt var við mig á eitthverri kynningu að áfengi væri eiturlyf .

s.s. eina löglega eiturlyfið. vímugjafi og eitthvað svoleiðis : O


með réttu þá er tóbak einnig eiturlyf og fíkniefni.

Re: Eru Fikniefni Eiturlyf

Sent: Mán 21. Des 2009 15:15
af bulldog
urban nákvæmlega það sem ég sagði fyrir ofan.

Re: Eru Fikniefni Eiturlyf

Sent: Mán 21. Des 2009 15:16
af biturk
vesley skrifaði:sagt var við mig á eitthverri kynningu að áfengi væri eiturlyf .

s.s. eina löglega eiturlyfið. vímugjafi og eitthvað svoleiðis : O


áfengi hefur eitrandi áhrif á líkamann og er þar með eiturlyf. og það er löglegt

of mikil kaffidrykkja hefur stórskaðandi áhrif á hina ýmsu þætti líkamans og er eiturlyf líka og þar að auki hel ávanabindandi.

sígarettur skaða marga og marga illa en alls ekki alla, nikótín er mjög ávanabindandi en aftur á móti er skaðsemi nikótíns og sígarettna mjög mjög MJÖG útblásið og bendi ég áhugasömum á að googla sig til staðreinda um efni sem eru í sígarettum en ekki bara forvarnarsíður á mismunandi tungumálum því að það segir alls ekki sannleikann....enda eru það forvarnir og ætlað til að halda fólki frá einhverjum hlutum og er alltaf kryddað með lágmarki 200 tegundum :lol:

Re: Eru Fikniefni Eiturlyf

Sent: Mán 21. Des 2009 15:25
af bulldog
ertu að segja að sigarettur séu ekki skaðlegar ?

Re: Eru Fikniefni Eiturlyf

Sent: Mán 21. Des 2009 15:38
af biturk
ég er að segja að þr eru ekki eins skaðlegar og forvarnir eru að reina að segja okkur, ekki að þær séu ekki skaðlegar.

en hver trúi því sem hver vill, en ég á mjög erfitt með að trúa þessu bulli í forvörnum sem telja gras lífshættulegt og reina að telja okkur trú um að óbeinar reykingar séu stór stór hættulegar!

bendi til dæmis á þáttinn

second hand smoking með pen and teller

Re: Eru Fikniefni Eiturlyf

Sent: Mán 21. Des 2009 15:52
af Hnykill
hehehe svei ! =) það eina sem mér finnst erfitt er að hætta reykja sígarettur.. þetta er nánast baðað uppúr ávanabindandi efnum svo maður geti nú ekki hætt of auðveldlega =/
bjór og kaffi er bara hollur morgunmatur miðað við þær. svo var maður oft með eina og eina plöntu inní skáp hjá sér þegar maður var yngri.. ehemm 8-[ það var nú ekki merkilegra en það að maður hætti bara þegar maður fékk leið á þessu. maður lá allavega ekki í svitabaði uppí rúmi að reyna sofna í heila viku eins og þegar ég reyndi að kicka þessu nikótín drasli.

Re: Eru Fikniefni Eiturlyf

Sent: Mán 21. Des 2009 16:06
af tolli60
biturk skrifaði:fíkniefni eru mörg hver bara tilgreind sem eiturlyf í hræðsluáróðri og lagalegum skilgreiningi!

til dæmis er ekkert ávanabindandi efni í grasi og ekki heldur í sýru!

Afengi inniheldur ekki fíknivalda en samt nógu margir sem eru alkhólistar,og hafa goldið það með lífi sínu eða fórnað fjölskyldum sínum fyrir það.Ætli við þekkjum ekki allir slík dæmi.,,því miður,

Re: Eru Fikniefni Eiturlyf

Sent: Mán 21. Des 2009 16:16
af ManiO
Til eru tvær gerðir af fíkn. Andleg og líkamleg. Andleg fíkn er hins vegar oft fylgjandi líkamlegri fíkn.

Re: Eru Fikniefni Eiturlyf

Sent: Mán 21. Des 2009 18:41
af bulldog
þeir sem eru alltaf í ræktina eru endorfínfíklar

Re: Eru Fikniefni Eiturlyf

Sent: Mán 21. Des 2009 19:55
af JohnnyX
bulldog skrifaði:þeir sem eru alltaf í ræktina eru endorfínfíklar


eða vilja rækta líkama sinn...

Re: Eru Fikniefni Eiturlyf

Sent: Mán 21. Des 2009 20:00
af bulldog
já eða það :)