Síða 1 af 2

Mkv í Avi, breytast gæðin?

Sent: Sun 20. Des 2009 10:24
af zlamm
Halló.

Flakkarinn minn (Sjá viðhengi) styður 720p og 1080i, eða svo segir á kassanum. Hinsvegar getur hann ekki spilað mkv fæla.
Ef ég fæ mér mkv to Avi converter minka þá gæðin?

Re: Mkv í Avi, breytast gæðin?

Sent: Sun 20. Des 2009 11:09
af Matti21
Skiptir ekki máli. MKV er bara container-inn. Þessi flakkari spilar ekki H.264 efni sem er codecinn og því mundirðu þurfa að breyta öllum myndunum úr H.264 í Mkv container í Xvid í Avi container og þá mundirðu án efa tapa gæðum. Ef þú mundir vanda þig svakalega við þetta og eyða mjööög miklum tíma í að converta þessu þá gætirðu tapað frekar litlum gæðum í endanum en ég skal lofa þér því að þessi flakkari ræður ekki við bitrate-ið í HD myndum hvort sem er.
Það er ástæða fyrir því að HD flakkarar kosta meira.

Re: Mkv í Avi, breytast gæðin?

Sent: Sun 20. Des 2009 11:22
af Godriel
ef þú vilt reyna að spila án þess að missa gæðin farðu eftir þessu
http://www.wikihow.com/Convert-MKV-Into ... nd-Quality

Re: Mkv í Avi, breytast gæðin?

Sent: Sun 20. Des 2009 11:52
af Amything
Prófaðu forrit GOTSent.

Stilltu það eins og sést á litlu myndinni hérna, það er bara velja xbox360. Ég er engin sérfræðingur en ég held að það tapist engin gæði: http://www.videohelp.com/tools/GOTSent

Reyndar held ég að hljóðið re-encodist þannig að það verður ekki upprunalegt en þykist vita að vidjóið er bara strippað út og ekki breytt.

Man ekki alveg en gætir þurft að breyta síðan endingunni í .avi þegar forritið er búið að klára.

Re: Mkv í Avi, breytast gæðin?

Sent: Sun 20. Des 2009 18:22
af zlamm
Mig langar að geta spilað myndirnar á flakkaranum

Re: Mkv í Avi, breytast gæðin?

Sent: Sun 20. Des 2009 18:36
af Sæþór
Spurning þá bara að reyna að selja þennan og fá þér alvöru flakkara sem spilar þessar skrár. Þ.e H.264 / Mkv
Meira future proof :)

Re: Mkv í Avi, breytast gæðin?

Sent: Sun 20. Des 2009 18:38
af zlamm
Amything skrifaði:Prófaðu forrit GOTSent.

Stilltu það eins og sést á litlu myndinni hérna, það er bara velja xbox360. Ég er engin sérfræðingur en ég held að það tapist engin gæði: http://www.videohelp.com/tools/GOTSent

Reyndar held ég að hljóðið re-encodist þannig að það verður ekki upprunalegt en þykist vita að vidjóið er bara strippað út og ekki breytt.

Man ekki alveg en gætir þurft að breyta síðan endingunni í .avi þegar forritið er búið að klára.

Ég reyndi en ég fatta þetta ekki...

Re: Mkv í Avi, breytast gæðin?

Sent: Sun 20. Des 2009 18:46
af Godriel
þá myndi ég selja þennan sem þú ert með og uppfæra í WD TV HD H.264

Re: Mkv í Avi, breytast gæðin?

Sent: Sun 20. Des 2009 18:49
af ElbaRado
Ég myndi frekar kaupa WD TV LIVE ef þú ert að fara að spila .mkv því að gamla græjan spilar ekki DTS hljóð

Re: Mkv í Avi, breytast gæðin?

Sent: Sun 20. Des 2009 19:42
af zlamm
ElbaRado skrifaði:Ég myndi frekar kaupa WD TV LIVE ef þú ert að fara að spila .mkv því að gamla græjan spilar ekki DTS hljóð

Og hvað er hann að kosta?

Re: Mkv í Avi, breytast gæðin?

Sent: Sun 20. Des 2009 19:45
af Tiger
Ég mæli með Tvix spilurunum hiklaust. Á einn og er að fara að fá mér annan.

Re: Mkv í Avi, breytast gæðin?

Sent: Sun 20. Des 2009 21:19
af bulldog
Ég keypti WD HD um daginn hann spilar mkv :)

Re: Mkv í Avi, breytast gæðin?

Sent: Sun 20. Des 2009 21:32
af zlamm
Ég ætla ekki að kaupa nýjann...

Re: Mkv í Avi, breytast gæðin?

Sent: Sun 20. Des 2009 21:40
af Vectro
zlamm skrifaði:Ég ætla ekki að kaupa nýjann...

Þá ertu ekki að fara að spila 720p efni á næstunni. Ekki í MKV container eða með H.264 encoding.

Re: Mkv í Avi, breytast gæðin?

Sent: Mán 21. Des 2009 12:07
af zlamm
nei.

Re: Mkv í Avi, breytast gæðin?

Sent: Mán 21. Des 2009 12:36
af Blues-
Var að fá mér Popcorn C-200 .. það er andskoti sem spilar allt ..
Mæli hiklaust með honum.

Re: Mkv í Avi, breytast gæðin?

Sent: Mán 21. Des 2009 13:59
af Amything
zlamm skrifaði:
Amything skrifaði:Prófaðu forrit GOTSent.

Stilltu það eins og sést á litlu myndinni hérna, það er bara velja xbox360. Ég er engin sérfræðingur en ég held að það tapist engin gæði: http://www.videohelp.com/tools/GOTSent

Reyndar held ég að hljóðið re-encodist þannig að það verður ekki upprunalegt en þykist vita að vidjóið er bara strippað út og ekki breytt.

Man ekki alveg en gætir þurft að breyta síðan endingunni í .avi þegar forritið er búið að klára.

Ég reyndi en ég fatta þetta ekki...

uh? hvað fattarðu ekki?

Allavega getur þetta forrit gert það sem þú biður um. Xbox360 stillingin heitir bara það, virkar ekki bara á xbox. Ef hún virkar ekki þá bara prófa aðrar stillingar.

Re: Mkv í Avi, breytast gæðin?

Sent: Mán 21. Des 2009 15:02
af hagur
Blues- skrifaði:Var að fá mér Popcorn C-200 .. það er andskoti sem spilar allt ..
Mæli hiklaust með honum.

Mætti ég spyrja hvar þú keyptir hann? Pantaðiru hann á netinu? Hvað borgaðirðu fyrir hann?

Re: Mkv í Avi, breytast gæðin?

Sent: Mán 21. Des 2009 15:25
af zlamm
Amything skrifaði:
zlamm skrifaði:
Amything skrifaði:Prófaðu forrit GOTSent.

Stilltu það eins og sést á litlu myndinni hérna, það er bara velja xbox360. Ég er engin sérfræðingur en ég held að það tapist engin gæði: http://www.videohelp.com/tools/GOTSent

Reyndar held ég að hljóðið re-encodist þannig að það verður ekki upprunalegt en þykist vita að vidjóið er bara strippað út og ekki breytt.

Man ekki alveg en gætir þurft að breyta síðan endingunni í .avi þegar forritið er búið að klára.

Ég reyndi en ég fatta þetta ekki...

uh? hvað fattarðu ekki?

Allavega getur þetta forrit gert það sem þú biður um. Xbox360 stillingin heitir bara það, virkar ekki bara á xbox. Ef hún virkar ekki þá bara prófa aðrar stillingar.

Ég fattaði ekki hvernig ég ætti að fara í Settings í forritinu. þegar ég ýtti á það gerðist ekkert.

Re: Mkv í Avi, breytast gæðin?

Sent: Mán 21. Des 2009 15:57
af Blues-
hagur skrifaði:
Blues- skrifaði:Var að fá mér Popcorn C-200 .. það er andskoti sem spilar allt ..
Mæli hiklaust með honum.

Mætti ég spyrja hvar þú keyptir hann? Pantaðiru hann á netinu? Hvað borgaðirðu fyrir hann?

Pantaði af vefnum hjá Popcorn ..
Tók 2 vikur að koma .. kostaði 300$ plús 35.000 kall í innflutningsgjöld + skatta.
Setti í hann 500gb 2.5 disk og Blu-ray drif .. þannig að þetta er svona 100.000 kr. pakki

Re: Mkv í Avi, breytast gæðin?

Sent: Mán 21. Des 2009 18:38
af JReykdal
Blues- skrifaði:

FFFFFFFUUUUUUUUUUUUUUUU!

Þá fær maður sér frekar ION græju og setur xbmc á það.

Re: Mkv í Avi, breytast gæðin?

Sent: Mán 21. Des 2009 19:46
af techseven
Blues- skrifaði:
hagur skrifaði:
Blues- skrifaði:Var að fá mér Popcorn C-200 .. það er andskoti sem spilar allt ..
Mæli hiklaust með honum.

Mætti ég spyrja hvar þú keyptir hann? Pantaðiru hann á netinu? Hvað borgaðirðu fyrir hann?

Pantaði af vefnum hjá Popcorn ..
Tók 2 vikur að koma .. kostaði 300$ plús 35.000 kall í innflutningsgjöld + skatta.
Setti í hann 500gb 2.5 disk og Blu-ray drif .. þannig að þetta er svona 100.000 kr. pakki

Þetta er ekki ódýr pakki, en þú getur huggað þig við að þú ert í góðum vídeó-málum! :sleezyjoe

Re: Mkv í Avi, breytast gæðin?

Sent: Mán 21. Des 2009 21:36
af Blues-
Yep, þetta er fullorðins ..
Er með 3 aðra UpNP spilara á heimanetinu .. og Linux server inní þvottahúsi sem hýsir efnið.
Nenni ekki að vera með suðandi vélar útum alla íbúð til að spila digital media

Re: Mkv í Avi, breytast gæðin?

Sent: Fös 12. Mar 2010 13:12
af zlamm
Ég hringdi niður í Tölvuverkstæðið og spurðist fyrir um þetta. Þeir bentu mér á ykkur. Hafiði engar fleiri hugmyndir?

Re: Mkv í Avi, breytast gæðin?

Sent: Sun 14. Mar 2010 15:30
af ManiO
zlamm skrifaði:Ég hringdi niður í Tölvuverkstæðið og spurðist fyrir um þetta. Þeir bentu mér á ykkur. Hafiði engar fleiri hugmyndir?

Staðreyndin er sú að þetta HDMI tengi er bara sölutrikk.

Þú ert ekki að fara að spila HD efni á þessum flakkara, hann er ekki til þess gerður.

Búið að benda þér á nokkra sem spila HD efni og það sé í raun eina lausnin. Ef þú vilt ekki viðurkenna það þá er það þitt mál en ekki okkar.