Síða 1 af 2
Avatar 3D - Laugarásbíó REALD - Vonbrigði!
Sent: Lau 19. Des 2009 12:56
af gRIMwORLD
Ég fór að sjá Avatar í gær í Laugarásbíó. Valdi að sjá hana í 3D (eins og leikstjórinn mælir með henni)
Vil byrja á því að segja að ég hef bara tvisvar áður séð myndir í bíó í þrívídd. Fyrst var það í Danmörku, þar sem ég sá stuttmynd af litlum flugum sem þvælast með NASA til tunglsins, og svo fór ég á Ice Age 3 með litlu stelpuna mína í Kringlubíó.
Myndin átti að byrja kl 22:10 svo ég var mættur tímanlega kl 21:40 (að ég hélt

). Það var löng röð og þéttur hópur fyrir framan hurðina inn í sal. Þegar hurðin var loks opnuð heyrðust stunur og urg í mönnum er þeir ruddust inn í sal. Svo mikill var atgangurinn að starfsmaður þurfti að öskra yfir hópinn að róa sig. Ró og þögn færðist yfir hópinn sem entist í 5 sekúndur og þá var byrjað að riðjast aftur. Maður þurfti ekki að hafa fyrir því að labba sjálfur, eftir að ég steig inn í hópinn þá var engin leið að snúa við, hugsaði bara um það eitt að láta ekki einhvern sveittan nördinn kremja kókina mína. Af einhverjum ástæðum þá var önnur hurðin lokuð þannig að þegar ég var á leið inn í bíósalinn þá leið mér eins og verið væri að troða mér í gegnum pasta pressu. Ég fann OK sæti rétt fyrir neðan miðju.
Ég ætla ekki að skemma fyrir neinum með því að tala um myndina sjálfa, sagan var flott og þetta er klárlega stærsta myndin sem komið hefur út í langan tíma.
Það sem böggaði mig hinsvegar óheyrilega mikið og skemmdi mikið fyrir mér var REALD. Þetta 3D var ekki að virka fyrir mig. Það var rosalega mikið um ghosting og heilu atriðin voru blurruð að undanskildum fáeinum hausum. Mest pirraði mig hvar rauður litur var úr sync og 3D dýptin því ekki að skila sér. Ef ég lokaði vinstra auganu þá fór rauði liturinn og dýptin í leiðinni.
Ég fór að velta því fyrir mér hvort þetta væri eitthvað í augunum á mér, var ég ekki að aðlagast þessu nægilega? Aldeilis ekkert að mér. Önnur atriði komu frábærlega vel út og því ljóst að eitthvað mikið var að.
Þar sem þetta var mest megnis alla myndina að bögga mig þá hef ég ákveðið að fara aftur á hana í öðru bíói. Svo bara að verða sér út um hana þegar hún kemur á BR og upplifa skerpuna og sjá þá myndina upp á nýtt.
Ég googlaði þetta issue og rambaði inn á review frá gagnrýnanda sem fór á AVATAR þar sem eitthvað mikið virtist vera að í sýningartækjunum, kunnáttuleysi eða bilun? Gestirnir fengu allavega aðra sýningu og fannst þessum hann eins og hann hafi verið að horfa á allt aðra mynd í fyrra skiptið, svo mikill var munurinn.
http://www.boston.com/ae/movies/articles/2009/12/19/will_viewers_see_3_d_avatar_as_it_was_meant_to_be_seen/
Re: Avatar 3D - Laugarásbíó REALD - Vonbrigði!
Sent: Lau 19. Des 2009 13:13
af lukkuláki
Hugsanlega er mikill munur að fara á myndina í Háskólabíó ?
Þeir eru með nýjar 3D sýningarvélar sem eiga að vera þær bestu á Íslandi.
Re: Avatar 3D - Laugarásbíó REALD - Vonbrigði!
Sent: Lau 19. Des 2009 13:19
af razrosk
Er svo 100% sammála,fór á 00.00 sýningu í laugarásbíó og mér fannst 3D dæmið það alveg ekki að gera sig, maður sá "regnbogaliti" á sumum stöðum í myndinni og mér fannst það eyðileggja 3-víddina... ætla á hana aftur í kvöld í Hálskólabíó...
Hefur einhver reynslu þaðan? Endilega deilið!!
Re: Avatar 3D - Laugarásbíó REALD - Vonbrigði!
Sent: Lau 19. Des 2009 13:29
af Gúrú
Fór á hana á forforsýningu þarna með skólanum og þetta er alveg rétt hjá þér, það voru fullt af stöðum í myndinni sem að voru bara beinlínis með RAUÐUM strikum vinstra megin á einhverjum tréum, og ekkert lítið breið strik, fullt af blörri og ég sat í miðju fyrir miðju svo að það makar ekki sense að það hafi verið staðsetningin að verkum ...
Re: Avatar 3D - Laugarásbíó REALD - Vonbrigði!
Sent: Lau 19. Des 2009 13:33
af GuðjónR
Ég var alveg ákveðinn í að sjá þessa mynd, svo fór einhver að líkja þessu við Lord of the rings....og þá missti ég allan áhuga.
Enda Lord og the ring klárlega ofmetnaðasta, langdregnasta og leiðinlegasta mynd allra tíma.
popp og kók...núna verður mér slátrað
Re: Avatar 3D - Laugarásbíó REALD - Vonbrigði!
Sent: Lau 19. Des 2009 14:05
af ManiO
Avatar, mest hypeaða mynd frá upphafi. Hef ekki náð að átta mig á hvað það sé sem dregur fólk að þessu rugli.
Re: Avatar 3D - Laugarásbíó REALD - Vonbrigði!
Sent: Lau 19. Des 2009 14:09
af lukkuláki
Smekkurinn er misjafn ekki dæma myndina óséða fyrirfram út frá því sem öðrum finnst kannski er hún gjörólík LOTR í þínum augum.
Re: Avatar 3D - Laugarásbíó REALD - Vonbrigði!
Sent: Lau 19. Des 2009 14:14
af g0tlife
Gaman að lesa svona góða og vel uppsetta grein high five á það.
En ég er ekkert spenntur fyrir að sjá hana í 3-D þar sem flestir sem ég þekki segja það sama.
Ég vil bara sjá hana venjulega eins og maður hefur gert með flest allar stórar myndir

Re: Avatar 3D - Laugarásbíó REALD - Vonbrigði!
Sent: Lau 19. Des 2009 14:27
af KermitTheFrog
Ég er fyrir löngu búinn að ákveða að sjá þessa mynd ekki. Hef séð 2 trailera sem heilla mig bara enganveginn.
Og svo verð ég að fá að lola smá:
grimworld skrifaði:hugsaði bara um það eitt að láta ekki einhvern sveittan nördinn kremja kókina mína
Re: Avatar 3D - Laugarásbíó REALD - Vonbrigði!
Sent: Lau 19. Des 2009 15:32
af halldorjonz
ég fór á þessa mynd ekki í 3D heldur 2D og mér fannst hún bara mjög góð
Flottar tæknibrellur, og rosalega vel gerð bara, flott saga.
Re: Avatar 3D - Laugarásbíó REALD - Vonbrigði!
Sent: Lau 19. Des 2009 16:28
af razrosk
halldorjonz skrifaði:ég fór á þessa mynd ekki í 3D heldur 2D og mér fannst hún bara mjög góð
Flottar tæknibrellur, og rosalega vel gerð bara, flott saga.
tss mæli með að þu farir á hana i 3D.... allt önnur upplifun

(þaeas ef að þvívíddinn tekst)
Re: Avatar 3D - Laugarásbíó REALD - Vonbrigði!
Sent: Lau 19. Des 2009 16:34
af Fumbler
Já, þetta fer bara að verða þannig að maður verðir að fara 2 sinnum á myndina.
Re: Avatar 3D - Laugarásbíó REALD - Vonbrigði!
Sent: Lau 19. Des 2009 16:37
af halldorjonz
razrosk skrifaði:halldorjonz skrifaði:ég fór á þessa mynd ekki í 3D heldur 2D og mér fannst hún bara mjög góð
Flottar tæknibrellur, og rosalega vel gerð bara, flott saga.
tss mæli með að þu farir á hana i 3D.... allt önnur upplifun

(þaeas ef að þvívíddinn tekst)
já við ætluðum að gera það, vorum í röðinni 3 saman, og 3 gaurar fyrir framan okkur fengu akkúrat seinustu 3 miðana haha..
Re: Avatar 3D - Laugarásbíó REALD - Vonbrigði!
Sent: Lau 19. Des 2009 16:58
af Matti21
Skora á þig að láta Laugarásbíó vita því mér finnst bíóhús á íslandi oft leggja alveg grátlega lítið upp úr því að gera sýninguna sem besta og hægt er fyrir áhorfandann, tala nú ekki um fyrir okkur græjuperrana sem látum öll smávæginleg atriði fara í taugarnar á okkur

.
Hef heyrt að þessi mynd sé skuggalega flott í 3D svo það kæmi mér ekkert á óvart ef að Laugarásbíó hafi bara klúðrað þessu. Ætlaði á þessa mynd í smárabíó í gær en það var uppselt í 3D svo við ákváðum að bíða með það. Kanski maður kíki í Laugarásbíó í kvöld.
Þessi 3D tækni á samt langt í leið með að verða almennileg og James Cameron sjálfur hefur oft talað illa um hana og tönnlast á því að 24 rammar á sek (sem er standard fyrir bíómyndir) sé engan vegin nóg fyrir myndir í 3D og það er alveg nokkuð til í því hjá honum. Mismunandi hvað fólk tekur mikið eftir því.
Re: Avatar 3D - Laugarásbíó REALD - Vonbrigði!
Sent: Lau 19. Des 2009 17:13
af GullMoli
Strákar mínir, þið pantið miðana á miði.is og fáið þá senda í símann (MMS).
Sparið ykkur 50kr per miða (held ég alveg pottþétt) og þurfið ekki að bíða í neinni röð eftir því að fá miða heldur labbið bara beint inn
Ég keypti 2 miða í smárann (3D) og fékk eitt strikamerki sent í símann. Svo er það bara scannað þar sem tekið er við miðunum og allt í gúddí.
Ég mætti að vísu alltof seint eða um 10-15 min í sýningatíma og þá var komin svaaakaleg röð fyrir utan bíósalinn. Svo ég endaði í þriðju fremstu röð, næst lengst til vinstri.. Ótrúlegt en satt þá truflaði það mig lítið en ég held að 3D hefði virkað betur ef ég hefði fengið betra sæti.
Það er klárt mál að ég fer aftur á þessa mynd í Háskólabíói. Nýrri og betri vélar og svo öðruvísi gleraugu sem eiga víst að vera þægilegri.
Re: Avatar 3D - Laugarásbíó REALD - Vonbrigði!
Sent: Lau 19. Des 2009 17:26
af GuðjónR
GullMoli skrifaði:Ég keypti 2 miða í smárann (3D) og fékk eitt strikamerki sent í símann. Svo er það bara scannað þar sem tekið er við miðunum og allt í gúddí.
uhm...var síminn scannaður?

Re: Avatar 3D - Laugarásbíó REALD - Vonbrigði!
Sent: Lau 19. Des 2009 17:40
af razrosk
GuðjónR skrifaði:GullMoli skrifaði:Ég keypti 2 miða í smárann (3D) og fékk eitt strikamerki sent í símann. Svo er það bara scannað þar sem tekið er við miðunum og allt í gúddí.
uhm...var síminn scannaður?

Jam
Re: Avatar 3D - Laugarásbíó REALD - Vonbrigði!
Sent: Lau 19. Des 2009 18:24
af GullMoli
GuðjónR skrifaði:GullMoli skrifaði:Ég keypti 2 miða í smárann (3D) og fékk eitt strikamerki sent í símann. Svo er það bara scannað þar sem tekið er við miðunum og allt í gúddí.
uhm...var síminn scannaður?

Heh, já. Myndin af trikamerkinu er skönnuð.
Re: Avatar 3D - Laugarásbíó REALD - Vonbrigði!
Sent: Sun 20. Des 2009 14:45
af razrosk
Fór í háskólabíó í gær og vá hvað Dolby 3D er geggjað og skýrt. Í seinni hluta myndarinnar á einum stað í svona ca. 5-8 sek fór einhvað í fokk hjá þeim og kom smá ghostun en fyrir utan það var allt annað að sjá þessa mynd í 3D sem VIRKAÐI.
Re: Avatar 3D - Laugarásbíó REALD - Vonbrigði!
Sent: Mán 21. Des 2009 01:38
af Pandemic
Að sjá AVATAR er eins og að sjá Lion King í fyrsta skipti þegar maður var lítill, var að koma af þessari mynd áðan og hún er ólýsanleg. Ég skelli henni í topp 10 myndum sem ég hef séð.
Re: Avatar 3D - Laugarásbíó REALD - Vonbrigði!
Sent: Mán 21. Des 2009 01:50
af Matti21
Pandemic skrifaði:Að sjá AVATAR er eins og að sjá Lion King í fyrsta skipti þegar maður var lítill, var að koma af þessari mynd áðan og hún er ólýsanleg. Ég skelli henni í topp 10 myndum sem ég hef séð.
Leið nákvæmlega svona þegar ég kom úr bíóinu í gær. Breyttist einmitt í 6 ára strák aftur meðan ég sat í bíósalnum....Hinsvegar, þegar ég hugsaði síðan um myndina síðar varð ég fyrir svolitlum vonbrigðum.
Karakter sköpunin lítil sem engin. "Vondu kallarnir" hefðu ekki getað orðið meira vondir þó þeir hefðu verið með einglyrni. Hryllilega löng, sum atriði fannst mér svakalega kjánaleg myndin í heild var fyrirsjáanlegri en Bond mynd. Miðað við handrit sem Cameron er búinn að vera að blaðra um og vinna að í hvað, 12 ár finnst mér ekki mikið til þess koma.
Leikararnir voru samt frábærir og Sam Worthington er klárlega uppáhalds nýji hollywood leikarinn minn í augnablikinu. Tæknibrellurnar voru líka ótrúlega flottar og þrívíddin algjörlega geðveik. Í sumum atriðum leið mér eins og ég væri inn í sama herbergi og leikararnir og þetta bætti alveg svakalegri dýpt við myndina.
Þetta er svakalega flott mynd og mér finnst að sem flestir ættu að sjá hana, en þá engöngu í 3D og bara sem eitthvað tæknilegt afrek. Pínu sýn inn í next gen þar sem að við erum ekki að fara að fá neitt skýrari mynd en HD þá er 3D eina leiðin til þess að fara. Sem bíómynd finnst mér þetta samt bara ekkert sérstök mynd.
Re: Avatar 3D - Laugarásbíó REALD - Vonbrigði!
Sent: Mán 21. Des 2009 02:01
af gRIMwORLD
razrosk skrifaði:Fór í háskólabíó í gær og vá hvað Dolby 3D er geggjað og skýrt. Í seinni hluta myndarinnar á einum stað í svona ca. 5-8 sek fór einhvað í fokk hjá þeim og kom smá ghostun en fyrir utan það var allt annað að sjá þessa mynd í 3D sem VIRKAÐI.
Ég ætla einmitt að sjá hana aftur í Háskólabíó, í Dolby 3D
Sendi mail á Laugarásbíó í gær...ekki alveg að búast við svari en sjáum til hvað setur.
Re: Avatar 3D - Laugarásbíó REALD - Vonbrigði!
Sent: Mán 21. Des 2009 02:31
af appel
Einstaklega góð fantasy/scifi mynd.
Það er eiginlega ekki hægt að segja neitt slæmt um myndina.
Algjört meistarstykki.
Mun fara aftur á hana í bíó, enda sjaldan sem maður fær fullnægingu í bíó

Re: Avatar 3D - Laugarásbíó REALD - Vonbrigði!
Sent: Mán 21. Des 2009 02:36
af Some0ne
GuðjónR skrifaði:Ég var alveg ákveðinn í að sjá þessa mynd, svo fór einhver að líkja þessu við Lord of the rings....og þá missti ég allan áhuga.
Enda Lord og the ring klárlega ofmetnaðasta, langdregnasta og leiðinlegasta mynd allra tíma.
popp og kók...núna verður mér slátrað
Já held að þú ættir ekkert að tjá þig framar um kvikmyndir.
Annars fór ég á nexus forsýninguna í Smárabíó og mér fannst 3D dæmið koma mjög vel út og var ekkert var við nett svona fail dæmi eins og þið eruð að tala um að hafi skeð í Laugarásbíó. Annars ef ég væri að fara á myndina núna myndi ég fara í Háskólabíó útaf Dolby3D.
Annars er þetta hörkumynd, eina sem ég get sett útá hana er að sagan er hálfgerð endurtugga úr pocahontas liggur við.
Re: Avatar 3D - Laugarásbíó REALD - Vonbrigði!
Sent: Mán 21. Des 2009 02:43
af Gúrú
Some0ne skrifaði:Annars er þetta hörkumynd, eina sem ég get sett útá hana er að sagan er hálfgerð endurtugga úr pocahontas liggur við.
Þú sérð ekkert að því að hvert einasta atriði er fyrirsjáanlegt eins og enginn sé morgundagurinn?