Síða 1 af 1

PS3: Amazon.co.uk vs. Elko

Sent: Fim 03. Des 2009 09:45
af eoo
Pantaði mér 4 ps3 leiki og eina Blu-ray mynd á Amazon.co.uk og kostaði þetta komið hingað heim viku seinna á rúmlega 18 þús með öllu.

Fór svo að ganni á Elko.is og tók saman hvað þessi pakki kostaði þar.
Kom mér virkilega á óvart verðið þaðan...þori eiginlega ekki að segja það.

34.500 kr. !!!!!

Hvaða grín er þetta?

Re: PS3: Amazon.co.uk vs. Elko

Sent: Fim 03. Des 2009 09:48
af BjarniTS
uuu . . .. Ísland ?

Re: PS3: Amazon.co.uk vs. Elko

Sent: Fim 03. Des 2009 10:03
af Gothiatek
Já og pældu í því að íslenska krónan í dag er nánast einskis virði....en samt er miklu ódýrara að panta að utan og notast við Visa/Euro gengið!

Re: PS3: Amazon.co.uk vs. Elko

Sent: Fim 03. Des 2009 10:24
af kazgalor
Það er frekar heavy álagning á svona löguðu. Pabbi minn er flugmaður og kemur að utan með alla ps3 leiki fyrir mig, sparar mér tugi þúsunda.

Re: PS3: Amazon.co.uk vs. Elko

Sent: Fim 03. Des 2009 11:42
af gardar
kazgalor skrifaði:Það er frekar heavy álagning á svona löguðu. Pabbi minn er flugmaður og kemur að utan með alla ps3 leiki fyrir mig, sparar mér tugi þúsunda.


Langar pabba þinn ekki ótrúlega til þess að spara mér nokkra þúsundkalla?