Síða 1 af 1

hvernig jólagjafir gefur nördinn?

Sent: Sun 22. Nóv 2009 15:26
af bixer
jæja eins og flestir vita þá er jólahátíðin í næsta mánuði. þar sem það er kreppa og mig langar frekar að eyða í tölvuíhluti þá var ég að velta því fyrir mér að gera heimatilbúnar gjafir, eitthvað í tölvunni helst.
er búinn að fá einhvejrar hugmyndir t.d. boli-dagatöl-myndaalbúm og eitthvað rugl en ekkert sem mig langar að gera svo ég spyr ykkur, er eitthvað sem ykkur dettur í hug

Re: hvernig jólagjafir gefur nördinn?

Sent: Sun 22. Nóv 2009 16:06
af BjarniTS
Grafa upp gamlan hdd og setja í box of fylla hann af Þáttum og bíómyndum og gefa ?

Re: hvernig jólagjafir gefur nördinn?

Sent: Sun 22. Nóv 2009 16:38
af Zorglub
Tekur nokkra gamla harðadiska, rífur þá í sundur og býrð til óróa, eða listaverk úr plöttunum :megasmile

Re: hvernig jólagjafir gefur nördinn?

Sent: Sun 22. Nóv 2009 21:51
af biggi1
Zorglub skrifaði:Tekur nokkra gamla harðadiska, rífur þá í sundur og býrð til óróa, eða listaverk úr plöttunum :megasmile



Túrtappaórói er jólagjöfin í ár

Re: hvernig jólagjafir gefur nördinn?

Sent: Sun 22. Nóv 2009 22:05
af Frost
Ég gerði einu sinni svona gjöf. Tók saman myndir af fjölskyldunni setti þær saman og bjó til video úr þeim og gaf familiunni allir rosa ánægðir með hana.

Re: hvernig jólagjafir gefur nördinn?

Sent: Sun 22. Nóv 2009 22:47
af intenz
Ég brenndi tónlistar geisladiska fyrir mömmu og systur mína síðustu jól, bjó einnig til cover og setti lagalista að aftan. Rosa flott. :)

Re: hvernig jólagjafir gefur nördinn?

Sent: Sun 22. Nóv 2009 23:05
af depill
Ef þú ert með sjónvarpskort eða basicly einhverja aðstöðu til þess að taka upp af gömul spólum, er það ekki óvinsælt að gefa stafrænaðar videospólur sem hafa verið lengi niðrí skúffu hjá foreldrunum..... eithvað sem hefur ekki verið horft á heillengi, jafnvel að gera eithvað skemmtilegt myndband úr heildinni.