Síða 1 af 1

Gætuð þið hjálpað mér?

Sent: Lau 03. Okt 2009 21:52
af Frost
Allt í einu fékk ég brennandi áhuga á console leikjatölvum. Ég á erfitt með að ákveða mig, hvort ég ætti að fá mér XBOX 360 eða PS3 slim. Komið með ykkar álit, ég tek ekki við svörum frá PS3 "lovers" eða XBOX "lovers", ég vill fá góð rök fyrir þessu máli.

Re: Gætuð þið hjálpað mér?

Sent: Lau 03. Okt 2009 22:01
af arnar7
Sjálfur á ég ps3 og myndi ekki hugsa mér að fá mer xbox hehe,

finnst bara mun betra að spila ps3 og svona heldur en xbox...

Líka það að frítt er að spila á netinu og svona skemmtilegheit :)

En amk mæli ég í hástert með PS3!

Re: Gætuð þið hjálpað mér?

Sent: Lau 03. Okt 2009 22:04
af himminn
Playstation 3 er með betri vélbúnað, grafík og síðan bluray. Betri upp á framtíðina að mínu mati.

Ég er samt playstation fanboy og stolltur að því.

(svo er god of war og gran turismo á playstation)

Re: Gætuð þið hjálpað mér?

Sent: Lau 03. Okt 2009 22:08
af Vectro
Xbox. Betri leikir, betri stuðningur við online spilun. Meira um að aukapakkar komi eingöngu á xbox eða mun fyrr en á playstation.

Re: Gætuð þið hjálpað mér?

Sent: Lau 03. Okt 2009 22:09
af Krisseh
Fékk fljótt leið á Ps3, hef ekki en prófað Xbox360,

Blueray - Ps3
Wlan - ps3, 360?

Hefði haldið að Xbox360 væri skemmtilegasti kostur,

Ef þú spyrð mig hvort mundi ég velja milli Xbox360 eða Ps3 slim, þá hefði ég valið Eliet Xbox360, en annar kosturinn væri einfaldega bara nokkuð góða Pc tölvu

Re: Gætuð þið hjálpað mér?

Sent: Lau 03. Okt 2009 22:12
af blitz
Elska fanboys.

Ef þú ferð á gametrailers.com og skoðar "console comparision" þá kemur oftast í ljós að Xbox360 ownar PS3 grafíklega séð.

Betri leikir á Xbox, betri netspilun, meira exclusive content (GTAIV), betri fjarstýringar, auðvelt að modda hana til að geta spilað afritaða leiki etc etc etc

Re: Gætuð þið hjálpað mér?

Sent: Lau 03. Okt 2009 22:29
af SteiniP
Mér finnst xbox360 miklu skemmtilegri. Ætla bara að nefna Gears of war, Fable 2 og Halo. Allt geðveikir leikir sem að koma bara út á 360.
Fjarstýringarnar eru miklu þægilegri.
Það er hægt að softmodda hana.
Xbox live
...

Re: Gætuð þið hjálpað mér?

Sent: Lau 03. Okt 2009 22:33
af AntiTrust
Bara það eitt að BluRay er í PS3 en ekki Xbox er nógu mikið atriði til að þess að negla niður valið fyrir mig ef ég væri í þínum sporum. Ef það hefði ekki dugað þá er MGS PS3 platform only - enough said.

En, sem PS3 fanboy ætla ég að halda mig úr þessum umræðum. Svipað og Win vs. Mac - in the end, smekksatriði.

Re: Gætuð þið hjálpað mér?

Sent: Lau 03. Okt 2009 22:57
af Frost
XBOX it is then! Veit einhver um búð sem að gæti flutt þannig inn fyrir mig? Nenni ekki að vera að standa í því veseni að kaupa af netinu.

Re: Gætuð þið hjálpað mér?

Sent: Lau 03. Okt 2009 23:08
af SteiniP
Frost skrifaði:XBOX it is then! Veit einhver um búð sem að gæti flutt þannig inn fyrir mig? Nenni ekki að vera að standa í því veseni að kaupa af netinu.

Held það sé best bara að panta af amazon.co.uk. Ég efast um að verslanir eins og BT og Elko séu að standa í sérpöntunum og ef svo er þá fengirðu hana ábyggilega á einhverju stórkostlegu verði.
Það eru líka oft margir að selja á xbox360.is

Re: Gætuð þið hjálpað mér?

Sent: Lau 03. Okt 2009 23:13
af Frost
Já ok en ég vill ekkert hafa hana mikið notaða, kannski er hún jafnvel stolin.

Re: Gætuð þið hjálpað mér?

Sent: Lau 03. Okt 2009 23:20
af Kobbmeister
Þá spyrð þú um nótu.

Re: Gætuð þið hjálpað mér?

Sent: Lau 03. Okt 2009 23:21
af Frost
Ok :D