Lag með Simma og Jóa, Michael Jackson lag?
Sent: Mán 14. Sep 2009 14:34
Stuttu eftir að það var komið í allar fréttir að Michal Jackson væri dáinn þá frétti ég af lagi sem Simmi og Jói gerðu sem var skopstæling á Bad sem hét Dead þar sem þeir sungu "I'm dead, I'm dead..." og skilst mér að þetta lag hafi verið spilað á Bylgjunni mjög snemma eftir dánarfregnir kappans. Ég er búinn að gúgla aðeins og kíkti svo líka inná síðuna þeirra á bylgjan.is en lagið er ekki þar. Hefur einhver heyrt þetta lag? Er það kannski ekki til eða slepptu þeir bara að setja það á netið til að særa engan? 
