Síða 1 af 1

Ákvörðun um risavaxið gagnaver tekin í september

Sent: Þri 25. Ágú 2009 14:14
af Gúrú
Frétt á Vísi.

sem vill reisa gagnaver hér á landi sem samsvarar átta knattspyrnuvöllum að stærð.


HOTTTTTT.

Re: Ákvörðun um risavaxið gagnaver tekin í september

Sent: Þri 25. Ágú 2009 14:20
af AntiTrust
Pant OC'a það.

Re: Ákvörðun um risavaxið gagnaver tekin í september

Sent: Þri 25. Ágú 2009 16:59
af KermitTheFrog
Nú verður einhver að fræða mig. Hvað nákvæmlega gerir svona ver?

Re: Ákvörðun um risavaxið gagnaver tekin í september

Sent: Þri 25. Ágú 2009 17:07
af AntiTrust
Þetta er bara huge ass ofurvel kældur vélarsalur fyrir netþjóna, gagnageymslur, og öflugar vélar með mikla reiknigetu.

Fyrir utan allt gott sem þetta gerir fyrir landið og atvinnumarkað, þá er annar stór hlutur sem fylgir þessu, pressa á aðgang að nýjum sæstreng. Svona gagnaver þurfa 20-40falt þá bandvídd sem við erum að nota eins og er.

Re: Ákvörðun um risavaxið gagnaver tekin í september

Sent: Þri 25. Ágú 2009 17:10
af dori
AntiTrust skrifaði:Fyrir utan allt gott sem þetta gerir fyrir landið og atvinnumarkað, þá er annar stór hlutur sem fylgir þessu, pressa á aðgang að nýjum sæstreng. Svona gagnaver þurfa 20-40falt þá bandvídd sem við erum að nota eins og er.

Við erum samt að selja rafmagnið okkar svo ógeðslega ódýrt í svona stóriðju. Svo fyrir utan það þá fer auðvitað sæstrengurinn sem er lagður fyrir svona gagnaver pottþétt allur í gagnaverið sjálft. En það skapast örugglega atvinna sem væri geðveikt.

Re: Ákvörðun um risavaxið gagnaver tekin í september

Sent: Þri 25. Ágú 2009 17:59
af Minuz1
Ekki öll gagnaver eru með bandvíddarstarfssemi, sum flytja gögn bara með flugi og frakt.

Re: Ákvörðun um risavaxið gagnaver tekin í september

Sent: Þri 25. Ágú 2009 18:55
af beatmaster
Um gagnaver:

Gagnaver, sem einnig er nefnt netþjónabú, er aðalstöð fyrir tölvubúnað og ýmiskonar gögn. Heppilegt þykir að staðsetja gagnaver á Íslandi vegna endurnýjanlegrar orku og þeirrar staðreyndar að hér á landi er mun minni þörf á kælingu fyrir tölvubúnað en víða annars staðar.

Re: Ákvörðun um risavaxið gagnaver tekin í september

Sent: Þri 25. Ágú 2009 18:57
af CendenZ
væri örugglega mjög sniðugt að setja ofan á stálgrindina risavaxið heatsink module og helst hafa húsið á kjalarnesinu, þar er nú alltaf rok!

Re: Ákvörðun um risavaxið gagnaver tekin í september

Sent: Þri 25. Ágú 2009 19:31
af vesley
verður algjör snilld ef þetta verður byggt.

Re: Ákvörðun um risavaxið gagnaver tekin í september

Sent: Þri 25. Ágú 2009 19:47
af stefan251
nice þetta mun hjálpa íslandi