MezzUp skrifaði:Fyrirtæki greiða sama virðisauka og allir aðrir, ég hef allavega ekki heyrt um nein sér vsk. þrep fyrir fyrirtæki. Á móti kemur að fyrirtæki fá endurgreiddan vsk. af vörum sem keyptar eru og notaðar til reksturs. Coldcut gæti hugsanlega skráð tölvuna á fyrirtækið, en þá held ég að hann væri í raun að fremja skattsvik.
Fyrirtækið þarf að kaupa tölvuna ( og greiða hana ) og hlutirnn ( í þessu tilviki tölvan ) á að vera notuð í reksturinn. Og fyrirtækið þarf jafnframt að vera í virðisaukaskyldum rekstri ( og þar með VSK númer ) og þá getur fyrirtækið talið VSKinn fram sem Innskatt og fengið VSKinn endurgreiddan í næsta uppgjöri ( þarf samt að leggja út fyrir honum í byrjun ).
Vona að þetta skýri þetta út aðeins fyrir þér, þetta er ekki ætlað til þess að fyrirtæki geti verið VSK frjáls

Heldur að þau séu eingöngu að greiða virðisaukann á vörunum/þjónustunni sem þau selja og eins og MezzUp segir að þá yrði það skattsvik ef það sé ekki notað í reksturinn ( sem gæti orðið erfitt að sanna að sé ekki samt )
MezzUp skrifaði:benzmann skrifaði:tölvubúnaður er ekki tollfrjáls
uuuu, víst?
Maður borgar allavega hvorki tollgjöld né vörugjöld af tölvubúnaði, heldur bara vsk. Endilega komdu með tengil á aðrar upplýsingar ef að þú ætlar áfram að halda þessu fram.
Bara taka undir með MezzUp. Tölvubúnaður er með 0% tolli og 0% vörugjöldum eingöngu VSKi

( Það eru samt alveg undantekningar, og það fer eftir skilgreingu þinni á tölvubúnaði hvort að "allur2 tölvubúnaður sé tollfrjáls. En hins vegar tölvur o.s.frv eru tollfrjálsar.