Síða 1 af 1

Fusion Render Node for Cloud Computing!

Sent: Fös 19. Jún 2009 20:38
af TwiiztedAcer
http://www.youtube.com/watch?v=bzVCZdctASY

Núna erum við að tala saman!
discuss

Hérna er einn að spila GTA4 gegnum browser

http://www.youtube.com/watch?v=hvZKmSvO ... re=related

Re: Fusion Render Node for Cloud Computing!

Sent: Lau 20. Jún 2009 02:44
af dori
TÖFF!

Re: Fusion Render Node for Cloud Computing!

Sent: Lau 20. Jún 2009 11:49
af Gunnar
getur einhver lýst þessu á íslensku hvað þetta er? :lol:

Re: Fusion Render Node for Cloud Computing!

Sent: Lau 20. Jún 2009 11:56
af dori
Ég held að ég hafi skilið þetta rétt, ef ef ekki þá leiðréttir mig bara einhver.

Sko, það sem er í gangi þarna er að það er verið að keyra alla render vinnsluna fyrir tölvuleiki á server (in the cloud, eins og þeir kalla það). Svo keyrir þessi server líka vefþjón sem servar því sem hann rendarði og tekur á móti input frá notanda og sendir í forritið sem er verið að rendara.

Þetta er, held ég, mjög grunn og einfölduð útskýring á því sem var í gangi.

Re: Fusion Render Node for Cloud Computing!

Sent: Sun 21. Jún 2009 00:03
af Gúrú
Þú færð mynd á skjáinn hjá þér (leik) og sendir inn skipun, serverinn tekur á móti því, er að runna leikinn og tekur því á móti skipuninni og sendir þér mynd.
Svona 50000 þúsund sinnum á klukkustund.

Og þú þarft ekki neitt nema Firefox eða hvaða vafra sem er til að runna þennan leik, ekkert install eða neitt, og þú þarft ekki að runna hann heldur serverinn.

Re: Fusion Render Node for Cloud Computing!

Sent: Sun 21. Jún 2009 01:23
af Orri
Held að þetta muni aldrei koma til með að virka á Íslandi nema eitthvað fyrirtæki taki það að sér að setja upp svona servera hér á landi.

Re: Fusion Render Node for Cloud Computing!

Sent: Sun 21. Jún 2009 01:50
af palmi6400
þetta er sammt helvíti nett.

Re: Fusion Render Node for Cloud Computing!

Sent: Sun 21. Jún 2009 02:02
af Sydney
Ég vil nú helst hafa mitt stuff á minni tölvu.

Hvað á maður að gera ef maður er ekki nettengdur #-o

Re: Fusion Render Node for Cloud Computing!

Sent: Sun 21. Jún 2009 03:44
af dori
Þetta er náttúrulega bara concept ennþá eins og segir í myndbandinu er ekki einu sinni komið hljóð ennþá. Það sem er svona geðveikt er það að það er verið að keyra þungu myndvinnsluna sem við kaupum rándýru skjákortin fyrir á vefþjóni. Þetta þýðir að þú munt ekki þurfa mjög öfluga tölvu til að keyra gríðarlega flotta tölvuleiki. Við erum að tala um gríðarlega mikla framför í tækni og auðvitað er þetta ekkert praktískt nema það verði komið háhraðanet sem þú kemst á hvar sem er (3g?) og er ódýrt.

En ef þetta er náin framtíð þá er ég spenntur... :D

Re: Fusion Render Node for Cloud Computing!

Sent: Þri 07. Júl 2009 13:30
af Halli25
Quake Live BETA er í gangi og það er að ganga vel að spila hana skv. félaga mínum. Quake live er keyrt svona svo það þarf ekkert að vera server hérlendis.

Re: Fusion Render Node for Cloud Computing!

Sent: Sun 12. Júl 2009 11:40
af TwiiztedAcer
faraldur skrifaði:Quake Live BETA er í gangi og það er að ganga vel að spila hana skv. félaga mínum. Quake live er keyrt svona svo það þarf ekkert að vera server hérlendis.


Var að prófa hann um daginn
fínn leikur en ég er alveg hræðilegur í honum :?