Síða 1 af 1

Innlent eða erlent niðurhal?

Sent: Þri 09. Jún 2009 12:57
af coldcut
Sælir

Heyriði ég var að spá að þegar maður er að downloada updateum af is.archive.ubuntu.com er það þá innlent eða erlent niðurhal?

Og sama sagan með ftp://ftp.is.FreeBSD.org/pub/FreeBSD/ ?

Re: Innlent eða erlent niðurhal?

Sent: Þri 09. Jún 2009 13:12
af machinehead
Ég hef notað Costaware til að sjá hvort niðurhalið sé innlent eða erlent.
Virkar fínt að mínu mati

http://www.costaware.net/

Re: Innlent eða erlent niðurhal?

Sent: Þri 09. Jún 2009 13:19
af coldcut
þarna er nú bara windows lausnir þannig að það hjálpar mér ekki mikið =/

Re: Innlent eða erlent niðurhal?

Sent: Þri 09. Jún 2009 13:28
af ManiO
Getur notað heimasíðu hjá ISPanum býst ég við. Þær eru ansi snöggar að uppfæra. Sæktu bara einvher nokkur hundruð meg af þessu og tjékkaðu svo á hreyfingunni.

Re: Innlent eða erlent niðurhal?

Sent: Þri 09. Jún 2009 13:48
af emmi
Start > Run > cmd = tracert ftp.is.freebsd.org sýnir þér hvort þetta sé innanlands eður ei.

Re: Innlent eða erlent niðurhal?

Sent: Þri 09. Jún 2009 13:54
af depill
Hvernig væri bara að svara honum almennilega.

Já báðir þessir mirror eru íslenskir. FreeBSD mirrorinn er í raun og veru bara ftp.rhnet.is stóri íslenski mirrorinn og ubuntu mirrorinn er líklegast LHÍ mirrorinn sem er einna mest notaði.

Það er jú hægt að tracert og sjá pakkaleiðina og hreinlega sjá að pakkinn fer ekki út. Einnig er hægt að bara lookupa ( dig, nslookup e.t.c. ) til þess að sjá ip töluna, sumir eins og ég vita íslensku ip netin frekar vel ( þau má sjá hér http://www.rix.is/is-as-nets.html ).

Svo bjóða Síminn og Vodafone uppá þjónustur sem athuga IP tölurnar með tóli sem heitir "Hvar er vefþjóninn?" Það er hér á vefsíðu Símans.

En já í stuttu svari, báðir mirrorarnir eru á RHnet netinu og eru þess vegna innanlands.+

Bætt við: Hins vegar skal athugast með ports collectionið hjá FreeBSD að það sækir stundum orginal packana ( mig minnir yfirleitt, allavega síðast þegar ég var að FreeBSDast ) á orginal mirrorana á pökkunum sem eru yfirleitt erlendis.

Re: Innlent eða erlent niðurhal?

Sent: Þri 09. Jún 2009 15:17
af CendenZ
og bara til að bögga Depil, þá er fedora 11 komið út!

http://fedoraproject.org/

Re: Innlent eða erlent niðurhal?

Sent: Þri 09. Jún 2009 21:08
af coldcut
ókei takk fyrir svörin...en hvernig í fjandanum getur þá verið að ég hafi farið yfir 4gb erlent niðurhal í síðasta mánuði? Fyrst að þessir speglar eru íslenskir þá er Síminn að skíta á síg í gagnamælingum. Eina sem ég er búinn að sækja erlendis frá er einn .iso af EasyPeasy og svo kannski 5 forrit fyrir Ubuntu (ef þau eru þá erlent niðurhal).

En veit einhver af hverju það er svona dýrt að fá yfirlit yfir netnotkun hjá Símanum? Seinast þegar ég fór yfir gagnamagnið þá var ég að spá í að fá yfirlit en þá kostaði það morðfjár :x

p.s. bið ykkur um að vera ekki að bögga ADSL 1 tenginguna mína, er að reyna að fá m&p til að skipta í Vodafone ljósleiðara :D

Re: Innlent eða erlent niðurhal?

Sent: Þri 09. Jún 2009 21:38
af depill
CendenZ skrifaði:og bara til að bögga Depil, þá er fedora 11 komið út!

http://fedoraproject.org/


Og ætli skíturinn sé loksins orðinn eithvað góður aftur. RH/Fedora hefur sogið undanfarið, skil ekki fólk sem kann að meta yum, ég bara skil ekki yum.

coldcut skrifaði:ókei takk fyrir svörin...en hvernig í fjandanum getur þá verið að ég hafi farið yfir 4gb erlent niðurhal í síðasta mánuði? Fyrst að þessir speglar eru íslenskir þá er Síminn að skíta á síg í gagnamælingum. Eina sem ég er búinn að sækja erlendis frá er einn .iso af EasyPeasy og svo kannski 5 forrit fyrir Ubuntu (ef þau eru þá erlent niðurhal).

En veit einhver af hverju það er svona dýrt að fá yfirlit yfir netnotkun hjá Símanum? Seinast þegar ég fór yfir gagnamagnið þá var ég að spá í að fá yfirlit en þá kostaði það morðfjár

p.s. bið ykkur um að vera ekki að bögga ADSL 1 tenginguna mína, er að reyna að fá m&p til að skipta í Vodafone ljósleiðara


Þarft þú heldur ekki að fara í ljósleiðara Vodafone, bara kannski í Bestur tenginguna hjá Símanum ? Anyhows, 4 GB niðurhal shit, það er ekkert smá lítið, tenging hérna heima ( án þess að það sé neitt niðurhal ) er notuð að minnsta kosti 350 - 550 MB á dag, YouTube, fréttavefir og allur anskotinn, svo shit við myndum ekki lifa það ( 4 í heimili ).

Mér dettur svo sem ýmislegt í hug, til dæmis YouTube sem er klárlega einhver mesta bandvíddarsuga sem til er. Ef þú athugar á yfirlitið á þjónustuvefnum er einhver dagur sem stendur uppúr, færðu ekki einhver svör úr því.


Ástæðan fyrir því hversu dýrt það ( vegna þess að ég veit hvað ferlið er ) giska ég sé að þeir séu að rukka þig heilan tíma af tíma tæknimanna sem þurfa basicly að taka út mánuð af netflow gögnum. Allavega man ég að þetta kostaði 10.000 kr hjá Vodafone ( væntanlega án VSK, án þess að vita það ) og það er aðeins undir því sem var rukkað fyrir Tæknimann 2 ( sem ég var, og fjandinn ég vældi alltaf yfir því að ég vildi fá ef það væri ekki nema 10% af þessu :P, aldrei fékk ég kr ).

Mín ágiskun.