Síða 1 af 1

Plata heimasíður og láta þær halda að ég sé á íslandi?

Sent: Mán 01. Jún 2009 20:21
af addi32
Daginn... veit að titillinn er frekar langsóttur.

En þannig er mál með vexti að ég er að fara til Köben í fyrramálið og mig langar svo að sjá leikinn á laugardaginn (ísland Holland). Er nokkuð viss um að ég geti ekki horft á hann á ruv.is þar sem ég er ekki staddur á landinu.

Er hægt að breyta einhverjum proxy stillingum eða einhverju svo ruv.is haldi að ég sé á íslandi en ekki danmörku??

Öll hjálp rosalega vel þegin... (eða önnur ráð þar sem mér dettur þetta bara í hug)

ps. Efast um að leikurinn verði sýndur (steamaður) á netinu og hægt að horfa á hann á sopcast.

Re: Plata heimasíður og láta þær halda að ég sé á íslandi?

Sent: Mán 01. Jún 2009 20:26
af AntiTrust
Hentu bara upp proxy server á heimavélinni þinni.

Re: Plata heimasíður og láta þær halda að ég sé á íslandi?

Sent: Mán 01. Jún 2009 20:31
af addi32
Og það er gert hvernig?

Re: Plata heimasíður og láta þær halda að ég sé á íslandi?

Sent: Mán 01. Jún 2009 20:34
af AntiTrust

Re: Plata heimasíður og láta þær halda að ég sé á íslandi?

Sent: Mán 01. Jún 2009 20:36
af halldorjonz
handbolti eða fótbolti?

Re: Plata heimasíður og láta þær halda að ég sé á íslandi?

Sent: Mán 01. Jún 2009 23:05
af addi32
Fótboltinn

Re: Plata heimasíður og láta þær halda að ég sé á íslandi?

Sent: Þri 02. Jún 2009 00:18
af Dagur
Ef þú hefur SSH aðgang að tölvu á landinu þá er mjög auðvelt að tengjast í gegnum hana. Þú gerir bara ssh -D 9999 username@ip-address-of-ssh-server á tölvunni sem þú tengist frá og setur localhost:9999 sem proxy í browsernum þínum.

Nánar útskýrt hér http://ubuntu.wordpress.com/2006/12/08/ ... -browsing/

Re: Plata heimasíður og láta þær halda að ég sé á íslandi?

Sent: Þri 02. Jún 2009 08:46
af Hargo
Þegar ég var erlendis tókst mér að streama Svíþjóð - Ísland gegnum þessa síðu: http://www.myp2p.eu/competition.php?competitionid=&part=sports&discipline=football

Finnst alveg líklegt að Ísland - Holland poppi þarna inn, getur allavega haft þetta í huga ef proxy dæmið klikkar hjá þér.

Re: Plata heimasíður og láta þær halda að ég sé á íslandi?

Sent: Þri 02. Jún 2009 09:44
af ManiO
Þarf eitthvað að horfa á þennan leik? Verður útkoman ekki bara Ísland 0, Holland "eitthvað hroðalega mikið"? :wink:

Re: Plata heimasíður og láta þær halda að ég sé á íslandi?

Sent: Þri 02. Jún 2009 10:08
af Glazier
svona fyrst það er þráður um þetta þá ætla ég ekki að gera annan en ef höfundur vill ekki að ég spurji hér getur hann beðið mig um að gera nýjann þráð ;)

Ég er í noregi og vantar að komast inná http://www.icebits.net http://www.vbits.org http://www.istorrent.net og allar þessar íslensku torrent síður sem blocka á erlendar IP tölur
get ég platað þær síður og látið þær halda að ég sé með íslenska IP tölu og komist inn á hana ? (ég ætla ekki að downloada né deila þar sem ég er á svo lélegri tengingu að það tæki heilann dag að sækja eina bíómynd)

Re: Plata heimasíður og láta þær halda að ég sé á íslandi?

Sent: Þri 02. Jún 2009 10:19
af Gúrú
Glazier skrifaði:Ég er í noregi og vantar að komast inná http://www.icebits.net http://www.vbits.org http://www.istorrent.net og allar þessar íslensku torrent síður sem blocka á erlendar IP tölur
get ég platað þær síður og látið þær halda að ég sé með íslenska IP tölu og komist inn á hana ? (ég ætla ekki að downloada né deila þar sem ég er á svo lélegri tengingu að það tæki heilann dag að sækja eina bíómynd)


Gefðu spjallborðunum smá frí?

Það var annars einhver að segja þér hvernig þú gerir þetta, annars held ég að enginn sé að fara að bjóða þér að SSH'a í gegnum tölvuna sína hér á landi.

Re: Plata heimasíður og láta þær halda að ég sé á íslandi?

Sent: Þri 02. Jún 2009 10:25
af Halli25
http://www.att.is/index.php?cPath=247

þetta er einfaldasta leiðin tel ég. Tengir slingbox við sjónvarpið heima hjá þér og horfir svo á það i tölvunni í gegnum forrit. Jafnvel hægt að nota 3G síma og horfa á sjóvarpið í gegnum hann :)

Re: Plata heimasíður og láta þær halda að ég sé á íslandi?

Sent: Þri 02. Jún 2009 10:34
af Gúrú
faraldur skrifaði:http://www.att.is/index.php?cPath=247

þetta er einfaldasta leiðin tel ég. Tengir slingbox við sjónvarpið heima hjá þér og horfir svo á það i tölvunni í gegnum forrit. Jafnvel hægt að nota 3G síma og horfa á sjóvarpið í gegnum hann :)


Hvernig er það einfaldara að kaupa 25 þúsund króna tæki en að slá inn tölustafi í browserinn í 5-10 mín? :?

Re: Plata heimasíður og láta þær halda að ég sé á íslandi?

Sent: Þri 02. Jún 2009 11:11
af Halli25
Færð þá allar stöðvarnar sem þú ert að borga fyrir líka hvar sem er í heiminum... sýnist vera hellingur af póstum hérna og enginn einföld lausn og ég myndi treysta mömmu minni til að setja Slingbox upp í hallæri! ;)

Re: Plata heimasíður og láta þær halda að ég sé á íslandi?

Sent: Þri 02. Jún 2009 11:51
af Gúrú
faraldur skrifaði:Færð þá allar stöðvarnar sem þú ert að borga fyrir líka hvar sem er í heiminum... sýnist vera hellingur af póstum hérna og enginn einföld lausn og ég myndi treysta mömmu minni til að setja Slingbox upp í hallæri! ;)


Við erum að tala um að horfa á fótboltaleik í gegnum rúv.is eémr.

Re: Plata heimasíður og láta þær halda að ég sé á íslandi?

Sent: Þri 02. Jún 2009 12:29
af Halli25
sorry að ég skildi benda á aðra lausn herra gúru

Re: Plata heimasíður og láta þær halda að ég sé á íslandi?

Sent: Þri 02. Jún 2009 12:53
af Gúrú
So sorry en mér fannst bara fáránlegt að segja að 'einfaldasta lausnin' sé að kaupa sér 25 þúsund króna tæki og hooka það upp fyrir morgundaginn bara til að geta horft á það live útí köben :?

Re: Plata heimasíður og láta þær halda að ég sé á íslandi?

Sent: Þri 02. Jún 2009 12:59
af Halli25
Gúrú skrifaði:So sorry en mér fannst bara fáránlegt að segja að 'einfaldasta lausnin' sé að kaupa sér 25 þúsund króna tæki og hooka það upp fyrir morgundaginn bara til að geta horft á það live útí köben :?

Lausn til framtíðar meðan hitt er tímabundið hax auk þess sem að mín lausn virkar jafnvel á drasl 3G tengingu uppí sumarbústað!

Re: Plata heimasíður og láta þær halda að ég sé á íslandi?

Sent: Þri 02. Jún 2009 20:33
af Daz
faraldur skrifaði:
Gúrú skrifaði:So sorry en mér fannst bara fáránlegt að segja að 'einfaldasta lausnin' sé að kaupa sér 25 þúsund króna tæki og hooka það upp fyrir morgundaginn bara til að geta horft á það live útí köben :?

Lausn til framtíðar meðan hitt er tímabundið hax auk þess sem að mín lausn virkar jafnvel á drasl 3G tengingu uppí sumarbústað!

Þú varst aldrei með 56.6 módem var það nokkuð? Eða 28.8? :8)

Re: Plata heimasíður og láta þær halda að ég sé á íslandi?

Sent: Mið 03. Jún 2009 09:18
af Halli25
Reyndar var ég heillengi á 56K og er með ISDN hjá tengdapabba...! Færð ekki góðan hraða uppí sumarbústað á 3G langt frá sendinum ;)