Síða 1 af 2

Vesen að sjá gagnamagn hjá Vodafone

Sent: Mið 08. Apr 2009 09:28
af ManiO
Jæja, nú er ég alveg að gefast upp á sauðunum hjá Vodafone. Í miðjum mars ca. þá hætti ég að geta séð gagnamagnið mitt á vodafone síðunni en gat séð það á tal síðunni.... Þar til í dag. Einhver annar sem er hjá þeim í ljósinu og er að lenda í þessu? Ætla að þrýsta á foreldrana til að skipta netinu yfir til hringiðunnar, en er einhver sem getur sagt mér hvort hægt sé að fá stærri gagnamagns pakka en 40 gig?


Ætti líka kannski að minnast á að ég er engan veginn að fá 50 Mbit, niðurhal hefur aldrei farið yfir 700 KB/S og upphal aldrei yfir 650 KB/S.

Re: Vesen að sjá gagnamagn hjá Vodafone

Sent: Mið 08. Apr 2009 11:36
af mind
Er að hætta í ljósinu hjá Vodafone vegna ítrekaðra vandamála. Var orðinn þreyttur á að vera dreginn á asnaeyrunum með tómum loforðum um úrbætur í marga mánuðu en þeim fannst samt sjálfsagt mál að rukka mig fullt verð á meðan. Staðfesti áður en ég skipti að vandamálin voru ekki til staðar hjá Símanum.

Mér finnst ekki mikið til koma með internet þjónustur síðustu árin , mesti tíminn fer í að velja minnst lélega kostinn í staðinn fyrir að vera velja bestan af góðum.

En eftir að rannsaka málið þá kommst ég að því í stuttu hlutirnir eru svona í augnablikinu:
Vodafone = Ekki tölvuleikjahæft, margir MMORPG virka illa og rosalega mikið af FPS á í vandamálum með ping, mjög óstöðugur download hraði erlendis.
Hringiðan = Tölvuleikjahæft fyrir MMORPG en ekki fyrir skotleiki of hátt ping á of mörgum stöðum. Veit ekki með download.
Síminn = Bara ADSL tengingar því miður en mjög tölvuleikjahæft og töluvert fullkomnari búnaður notaður í "throttling". Stöðugur download þar til maður fer að limit.

Re: Vesen að sjá gagnamagn hjá Vodafone

Sent: Mið 08. Apr 2009 11:47
af ManiO
Vodafone má eiga að að online í PS3 leikjum virkaði vel.

Re: Vesen að sjá gagnamagn hjá Vodafone

Sent: Mið 08. Apr 2009 16:03
af icup
Tal er með 80gig á mánuði.

Re: Vesen að sjá gagnamagn hjá Vodafone

Sent: Mið 08. Apr 2009 16:13
af Gúrú
Hringdi akkúrat fyrir viku og heimtaði að ég fengi að sjá gagnamagnið mitt þegar að mér hentaði til þess að geta gert ráðstafanir ef að ég á lítið magn eftir snemma í mánuðinum.

"Ég læt tæknimanninn vita".

Þess má til gamans geta að ég spurði hvað ég væri með mikið akkúrat núna og hann sagði 27.4GB, og alltaf þegar að ég fór í ADSL gagnamagnssíðuna á vodafone.is sagði síðan mér 27.4GB, sama hvenær í mánuðinum og sama í hvaða mánuði =D>
Þess má til gamans geta að ég er nú með 27.4GB sótt :? , og síðustu 5 mánuði stendur tala á millibilinu 0-250MB.

Re: Vesen að sjá gagnamagn hjá Vodafone

Sent: Mið 08. Apr 2009 16:31
af ManiO
icup skrifaði:Tal er með 80gig á mánuði.



Vill líka helst bara losna við að versla við þessa glæpamenn hjá Tal og Vodafone.

Re: Vesen að sjá gagnamagn hjá Vodafone

Sent: Mið 08. Apr 2009 23:44
af icup
Tja það eru 3 fyrirtæki eins og er(sem ég veit um) sem eru með ljós. Tal-vóda-Hringiðann


Persónulega mundi ég versla við tal. En bara því ég þekki fólk þar. Annars er þetta mjög takmörkuð þjónusta eins og er.

Re: Vesen að sjá gagnamagn hjá Vodafone

Sent: Sun 12. Apr 2009 12:07
af prg_
Ég vinn nú hjá Vodafone og verð að segja að þetta er toppfyrirtæki. Við hljótum að geta fundið útúr'essu með gagnamagnssíðuna, en ping í leikjum þekki ég ekki... enda ekki tæknimaðurinn sem talað er við :P

Re: Vesen að sjá gagnamagn hjá Vodafone

Sent: Þri 14. Apr 2009 18:51
af ManiO
Jæja, þökk sé prg_ er vandamálið nú úr sögunni.

Re: Vesen að sjá gagnamagn hjá Vodafone

Sent: Þri 14. Apr 2009 20:17
af GuðjónR
Með fullri viðringu fyrir VodaFone, áður Íslandssíma þá var ég þar í gamla daga og það tók mig hálft ár að fá reikning sem ég átti ekki að borga niðurfelldan.
Það dugði ekki að fara í neytendasamtökin og öll þau battery sem við höfum, það var ekki fyrr en ég birti ljósrit af reikningnum á tilveran.is að einhver dúdd hafði samband
og sagðist fella reikninginn niður sviss pæng ef ég fjarlægði ljósritið....

Kúgun á móti kúgun er það eina sem þessi fyrirtæki skilja, það er ekkert til sem heitir viðskiptavild á íslenskum fjarskiptamarkaði.

Re: Vesen að sjá gagnamagn hjá Vodafone

Sent: Þri 14. Apr 2009 22:50
af icup
Hvaða þrolli setti 86þús fyrir 1 gig umframm.

Re: Vesen að sjá gagnamagn hjá Vodafone

Sent: Þri 14. Apr 2009 23:17
af GuðjónR
icup skrifaði:Hvaða þrolli setti 86þús fyrir 1 gig umframm.

Einhver þroskaheftur starfsmaður, þegar ég ætlaði að finna hann og drepa þá var hann flúinn land.

Re: Vesen að sjá gagnamagn hjá Vodafone

Sent: Mið 15. Apr 2009 16:32
af Demon
Ég hef lent í veseni með vodafone og óborgaða reikninga. Ekki jafn gróft og GuðjónR en þó, mikið ströggl að láta mig borga eitthverja reikninga sem ég átti aldrei að borga.

En ég er búinn að hafa netið hjá þeim seinustu tvö ár allavega og ég á ekki miklum vandræðum með að fá hraða á netinu. Sure torrent er hægara en áður en ég hef samt auðveldlega verið að ná í þá þætti/leiki sem mig vantar.
Sama með MMORPG, spilaði WoW slatta seinasta ár og pingið var um 200ms venjulega. Ekkert súper en ekkert sem ég þarf að væla yfir heldur.

Re: Vesen að sjá gagnamagn hjá Vodafone

Sent: Mið 15. Apr 2009 16:52
af Hargo
Er með ljós hjá Vodafone og get skoðað mitt gagnamagn eðlilega, það stendur núna í 6,19GB sem er nokkuð eðlilegt bara miðað við að fyrri mánuði hef ég yfirleitt endað í 9-11GB.

Hef ekkert upp á Vodafone að klaga, þeir hafa yfirleitt leyst mín vandamál vel og örugglega, er með allt mitt hjá þeim og þeir eru mjög liðlegir. Ég er líka sérstaklega ánægður með sjónvarpsþjónustuna hjá þeim, hún er rock solid miðað við Skjáinn hjá Símanum, það hökti og fraus í sífellu hjá mér og ég var orðinn ansi þreyttur á að eyða kvöldunum í að hlusta á lyftutónlist í boði Símans.

Re: Vesen að sjá gagnamagn hjá Vodafone

Sent: Mið 15. Apr 2009 18:40
af ManiO
Vill nefna það bara aftur að þetta er komið í lag. Tengingin var merkt sem fyrirtækjatenging og þvi var kippt í laginn þökk sé prg_.

Re: Vesen að sjá gagnamagn hjá Vodafone

Sent: Mið 15. Apr 2009 22:41
af prg_
Það er náttúrulega engin leið að svara fyrir reikning frá sautjánhundruðogsúrkál, en samt gott að neytendur hafa gott minni!! Sjálfur held ég mikilli tryggð við þau fyrirtæki sem reynast mér vel (og öfugt) og skil þetta því mjög vel.

Hins vegar hafa öll reikninga- og þjónustumál verið tekin mikið í gegn undanfarin 2 ár og er toppfólk á þessum vígstöðvum í Skútuvoginum, ykkur er því alveg óhætt að „koma heim“ sem hafið þurft að flýja :)

...og ef það er eitthvað vesen, þá bara látiði mig vita og ég redda málunum, hehe...

Re: Vesen að sjá gagnamagn hjá Vodafone

Sent: Mið 15. Apr 2009 23:20
af Gunnar
prg_ skrifaði:Það er náttúrulega engin leið að svara fyrir reikning frá sautjánhundruðogsúrkál, en samt gott að neytendur hafa gott minni!! Sjálfur held ég mikilli tryggð við þau fyrirtæki sem reynast mér vel (og öfugt) og skil þetta því mjög vel.

Hins vegar hafa öll reikninga- og þjónustumál verið tekin mikið í gegn undanfarin 2 ár og er toppfólk á þessum vígstöðvum í Skútuvoginum, ykkur er því alveg óhætt að „koma heim“ sem hafið þurft að flýja :)

...og ef það er eitthvað vesen, þá bara látiði mig vita og ég redda málunum, hehe...

prg_ sem starfsmaður vodafone getur þú svara afhverju gagnamagnið sem má niðurhala hjá ykkur er svona lítið?
afhverju eru þið ekki með 80 GB eins og Tal. eða bara jafnvel meira?
hef alldrei skilið afhverju það er verið að takmarka þetta.
ef eitt fyrirtæki tekur allt þak af hjá sér þá færu MJÖG margir þangað er það ekki pointið? að fá sem flesta viðskiptavini?

Re: Vesen að sjá gagnamagn hjá Vodafone

Sent: Mið 15. Apr 2009 23:49
af depill
[quote="prg_"}
Hins vegar hafa öll reikninga- og þjónustumál verið tekin mikið í gegn undanfarin 2 ár og er toppfólk á þessum vígstöðvum í Skútuvoginum, ykkur er því alveg óhætt að „koma heim“ sem hafið þurft að flýja :)

...og ef það er eitthvað vesen, þá bara látiði mig vita og ég redda málunum, hehe...[/quote]

Svo ég skjóti smá á þig prg_, hvar er sambærileg þjónusta frá Vodafone og "Þjónustuvefur/Þínar Síður" Símans. Ég myndi segja að það væri svona u.þ.b. eina sem virkilega rígheldur mig hjá Símanum. Ég vill hafa sundurliðun á reikninginum mínum , vegna þess að ég hef oft þurft að gera athugasemdir og fá endurgreidda reikninga bæði hjá Vodafone og Símanum, en já Vodafone kostaði það allavega síðan rétt um 200 kr, og öfugt við það sem þið segið á vefsíðu ykkar var ég rukkaður fyrir ( og sagt samkv 1414 að það ætti að vera þannig ) fyrir hvert númer en ekki hvern reikning ( og ég þrí skipti reikningunum, Net, GSM og Borðsími svo það væri samt mikill aukakostnaður á pappír ).

Hjá Símanum fæ ég ókeypis sundurliðun á netinu, sem er sýnir mér hvaða símafélag það er, hvað það stóð lengi yfir, hvað það kostaði mig og gefur mér fullt af filteringum og ég get farið alveg ótrúlega langt aftur í tímann. Sótt í gamla reikninga og nýja og séð hreifingaryfirlit. Þegar maður er eins og ég að bóka reikninga fyrir fyrirtæki og hreinlega bara að passa uppá símnotkun hjá fyrirtæki, þá er þetta algjört god send og Vodafone fær alveg MJÖG stóran mínus fyrir að hafa ekki þessa þjónustu ( þótt að Vodafone sé búinn að vera lofa henni lengi ).

Svo er komin tímasetning ?

( já og til að bæta við, þá get ég gert fullt af sniðugum fídusum, eins og að panta nýjar þjónustur, taka af hringiflutninga og setja á ( og það meiri segja mörg í einu, sem er geðveikt gott ef að fólk sé að fara erlendis og maður getur gert það fyrir það ), breytt áskriftarleiðum og bætt við GPRS pökkum, Þjónustuvefurinn hjá Símanum er það sem lætur þá vera með að mínu mati bestu þjónustuna og ég hef ekkert að kvarta uppá svartímann allavega í fyrirtækjaþjónustunni ( tækniþjónustan opinn 24/7 eins og 1414 ) )

Re: Vesen að sjá gagnamagn hjá Vodafone

Sent: Mið 15. Apr 2009 23:55
af prg_
Stutta og einfalda svarið er að niðurhalið kostar okkur einfaldlega alveg gígantískar upphæðir, þá er ég að tala um útlandatenginguna, sem er fullnýtt nánast allan sólarhringinn (þrátt fyrir að torrent traffík sé skrúfuð verulega niður meginpart sólarhringsins). Útlandatengingarnar eru dýrar, mjög dýrar, og ef niðurhal væri gefið frjálst, eða losað um þær takmarkanir sem nú gilda, þá ætti fyrirtækið engra annarra úrkosta en að stækka tenginguna. Til að gera það þyrfti að punga út fúlgum fjár (í erlendum gjaldeyri) sem myndi þýða gjaldskrárhækkun á línuna.

Af hverju eru útlandatengingar dýrar? Lítið aðeins á landakortið og þá kannski blasir það við! :shock:

Í nýjasta útspili „okkar“ var gefinn skítur í hraðatakmarkanir á tengingum, einmitt vegna þess að það kostar okkur lítið sem ekkert aukalega (á okkar eigin ADSL kerfi). Nýju ADSL pakkarnir okkar taka mið af því hvaða gagnamagn þú þarft og þarftu ekki lengur að kaupa mikið gagnamagn til að fá mikinn hraða. Það er líka nýjung hjá okkur að skrúfa niður hraða erlenda niðurhals notandans þegar pakkinn er fullnýttur til að forða viðskiptavinum frá því að greiða umframmagn.

Það hefur svo líka tíðkast að bjóða mörgum stóra „GB pakka“ á hóflegu verði og láta þá sem hala aðeins litlu niður (85% fara ekki yfir 10 gíg eða eitthvað álíka) niðurgreiða niðurhalið hjá hinum. Eðlilegt? Sanngjarnt? Það er svo bara pólitísk ákvörðun að hafa frekar 90% ánægða með lægra mánaðargjald og að allir greiði fyrir það niðurhal sem þeir nota.

Ég gæti svo byrjað að tala um hvað allt yfir 40 GB er fáránlega mikið og í langflestum tilvikum yfirdrifið af ólöglegu efni sem er sótt þegar gagnamagn fer í hæstu hæðir. Auðvitað eru sumir að sækja sér efni í HD (sem væri hægt að kaupa löglega með Blu-Ray útgáfum), en alla jafna jafngilda 40 GB u.þ.b. 75 klst af efni í SD. Til að geta horft á slíkt magn þyrfti einstaklingurinn að horfa á efni í u.þ.b. tvo og hálfan tíma á dag. Hver finnur áhugavert efni, sem er þess virði að dánlóda frá útlöndum, í svo miklu magni? Sjálfur hef ég held ég einu sinni læðst yfir 30 gíg en er samt nokkuð stífur í bransanum.

Ehh... þetta átti ekki alveg að vera svona löng fréttatilkynning! Minni bara á að ég tala hérna sem einstaklingur en ekki fulltrúi fyrirtækisins #-o

Re: Vesen að sjá gagnamagn hjá Vodafone

Sent: Mið 15. Apr 2009 23:57
af prg_
depill skrifaði:Svo er komin tímasetning ?


Er í prófunum, verður opnað innan skamms. Bara láta mig vita ef þú vilt taka þátt í þeim... :8)

Re: Vesen að sjá gagnamagn hjá Vodafone

Sent: Fim 16. Apr 2009 00:06
af Gunnar
ok takk fyrir flott svar :)

Re: Vesen að sjá gagnamagn hjá Vodafone

Sent: Fim 16. Apr 2009 00:53
af depill
prg_ skrifaði:Er í prófunum, verður opnað innan skamms. Bara láta mig vita ef þú vilt taka þátt í þeim... :8)

Takk fyrir gott boð, en ég er bara með "NetTengill" og ADSL án Heimasíma hjá Vodafone svo sé svo sem lítinn tilgang í því eins og er. En ef ég sé þetta opnast hjá ykkur ( búinn að vera lofað þetta svo oft ) að þá mun ég eflaust íhuga að færa viðskiptin aftur ;)

Re: Vesen að sjá gagnamagn hjá Vodafone

Sent: Fim 16. Apr 2009 01:48
af GuðjónR
prg_ skrifaði:Ehh... þetta átti ekki alveg að vera svona löng fréttatilkynning! Minni bara á að ég tala hérna sem einstaklingur en ekki fulltrúi fyrirtækisins #-o

Mér finnst mjög gott að heyra frá starfsmönnum fyrirtækjanna sem geta útskýrt hlutina á mannamáli eins og þú og depill gerið svo vel.
Og það er ekkert athugavert við það að menn "taki upp hanskann" fyrir sitt fyrirtæki.

Re: Vesen að sjá gagnamagn hjá Vodafone

Sent: Fim 16. Apr 2009 01:57
af Minuz1
prg_ skrifaði:Stutta og einfalda svarið er að niðurhalið kostar okkur einfaldlega alveg gígantískar upphæðir, þá er ég að tala um útlandatenginguna, sem er fullnýtt nánast allan sólarhringinn (þrátt fyrir að torrent traffík sé skrúfuð verulega niður meginpart sólarhringsins). Útlandatengingarnar eru dýrar, mjög dýrar, og ef niðurhal væri gefið frjálst, eða losað um þær takmarkanir sem nú gilda, þá ætti fyrirtækið engra annarra úrkosta en að stækka tenginguna. Til að gera það þyrfti að punga út fúlgum fjár (í erlendum gjaldeyri) sem myndi þýða gjaldskrárhækkun á línuna.

Af hverju eru útlandatengingar dýrar? Lítið aðeins á landakortið og þá kannski blasir það við! :shock:

Í nýjasta útspili „okkar“ var gefinn skítur í hraðatakmarkanir á tengingum, einmitt vegna þess að það kostar okkur lítið sem ekkert aukalega (á okkar eigin ADSL kerfi). Nýju ADSL pakkarnir okkar taka mið af því hvaða gagnamagn þú þarft og þarftu ekki lengur að kaupa mikið gagnamagn til að fá mikinn hraða. Það er líka nýjung hjá okkur að skrúfa niður hraða erlenda niðurhals notandans þegar pakkinn er fullnýttur til að forða viðskiptavinum frá því að greiða umframmagn.

Það hefur svo líka tíðkast að bjóða mörgum stóra „GB pakka“ á hóflegu verði og láta þá sem hala aðeins litlu niður (85% fara ekki yfir 10 gíg eða eitthvað álíka) niðurgreiða niðurhalið hjá hinum. Eðlilegt? Sanngjarnt? Það er svo bara pólitísk ákvörðun að hafa frekar 90% ánægða með lægra mánaðargjald og að allir greiði fyrir það niðurhal sem þeir nota.

Ég gæti svo byrjað að tala um hvað allt yfir 40 GB er fáránlega mikið og í langflestum tilvikum yfirdrifið af ólöglegu efni sem er sótt þegar gagnamagn fer í hæstu hæðir. Auðvitað eru sumir að sækja sér efni í HD (sem væri hægt að kaupa löglega með Blu-Ray útgáfum), en alla jafna jafngilda 40 GB u.þ.b. 75 klst af efni í SD. Til að geta horft á slíkt magn þyrfti einstaklingurinn að horfa á efni í u.þ.b. tvo og hálfan tíma á dag. Hver finnur áhugavert efni, sem er þess virði að dánlóda frá útlöndum, í svo miklu magni? Sjálfur hef ég held ég einu sinni læðst yfir 30 gíg en er samt nokkuð stífur í bransanum.

Ehh... þetta átti ekki alveg að vera svona löng fréttatilkynning! Minni bara á að ég tala hérna sem einstaklingur en ekki fulltrúi fyrirtækisins #-o


Hvað kostar niðurhalið okkur mikið? Heyrt mikið af svona fullyrðingum....proof or STFU
Hvað skilar Farice miklu tapi/gróða á mánuði/ári? Eru símafyrirtækin að tapa á viðskiptum við Farice og fá síðan fullt af arðgreiðslum eða eignamyndun í kapplinum?
Hvað kostar að fullnýta strenginn miðað við að nýta hann ekki? (raunverulegur kostnaður við hvert GB) annar kostnaður á að leggjast yfir alla notendur strengsins.

Re: Vesen að sjá gagnamagn hjá Vodafone

Sent: Fim 16. Apr 2009 12:12
af prg_
Minuz1 skrifaði:Hvað kostar niðurhalið okkur mikið? Heyrt mikið af svona fullyrðingum....proof or STFU
Hvað skilar Farice miklu tapi/gróða á mánuði/ári? Eru símafyrirtækin að tapa á viðskiptum við Farice og fá síðan fullt af arðgreiðslum eða eignamyndun í kapplinum?
Hvað kostar að fullnýta strenginn miðað við að nýta hann ekki? (raunverulegur kostnaður við hvert GB) annar kostnaður á að leggjast yfir alla notendur strengsins.


Í fyrsta lagi er ég ekki fjármálaspegúlant og í öðru lagi er eitthvað af þessum upplýsingum ekki opinbert, eins og svo margt í rekstri fyrirtækja. Hins vegar getur þú grúskað í ársskýrslu Farice:
http://is.farice.is/media/frettir//Fari ... s_2008.pdf
Mér sýnist í fljótu bragði að tekjur Farice af sölu bandvíddar árið 2008 hafi numið 6.576.529 evrum. Á tengi dagsins í dag er kostnaður þeirra sem kaupa þessa bandvídd því um 1,1 milljarður króna.

Samkvæmt Póst- og fjar (skýrsla um fjarskiptamarkaðinn á Íslandi fyrri hluta árs 2008):
http://www.pta.is/upload/files/Tölfræðiskýrsla%20á%20fyrri%20helmingi%20ársins%202008.pdf
er fjöldi xDSL tenginga á Íslandi tæp 95 þúsund.

Út frá þessum tölum ætti kostnaður við þessa bandvídd (án fyrirtækjatenginga!) að vera 11.165 kr. á ári á hverja tengingu. Inn í þessa upphæð er ekki tekinn kostnaður við ADSL tenginguna sjálfa, eðlilega álagningu, rekstrarkostnað og gamla góða virðisaukann sem er á allri smásölu. 40 GB tenging hjá Vodafone kostar 2.000 kr. meira en 5 GB tengingin. Það má því grófreikna að inniföldu 5 GB-in í minnsta pakkanum eru sirka 285 kr. af heildarverðinu, 3.690 kr. 285 kr.*12 gera 3.420 kr., ef tekinn er af því VSK og 20% álagning þá sitja eftir rúmar 2.000 kr. sem heimili með 5 GB pakka borgar (in theory) í erlent niðurhal á ári. Aðrir borga meira.

Tek enn og aftur fram að ég er nú bara að grúska í þessu mér til ánægju og yndisauka, er ekki hluti af því teymi sem sér um bissniss hliðina hér hjá fyrirtækinu. Það getur hver sem er skoðað þessi gögn sem ég er að vísa í og dregið eigin ályktanir.