Síða 1 af 1
Ný íslensk leikjasíða
Sent: Þri 30. Des 2008 21:02
af davidelvar
Ný íslensk leikjasíða..
http://www.vefleikir.is 
Ég er ekkert að biðja ykkur að fara inná þetta. Ef þið hafið ekki áhuga á því ekki gera það þá. Hélt nú bara að menn hefðu gaman af þessu.
Re: Ný íslensk leikjasíða
Sent: Þri 30. Des 2008 21:31
af Gunnar
davidelvar skrifaði:Var að finna þessa íslensku leikjasíðu, ég hef allavana ekki séð hana áður, held að hún sé ný. Hún heitir
http://www.vefleikir.is 
ja ok og þú ert semsagt ekki að auglýsa hana? :O með svo marga posta hér bara venjulegur náungi að bua til aðgang hér og posta fyrsta postinn þinn um leikjasíðu

en jæja /care

Re: Ný íslensk leikjasíða
Sent: Mið 31. Des 2008 00:47
af machinehead
Þreytandi síður, nóg til af þeim.
Re: Ný íslensk leikjasíða
Sent: Mið 31. Des 2008 00:55
af Gúrú
Sæll Davíð Elmar Másson, ertu labbandi á milli spjallborða auglýsandi síðuna þína til þess að..? Sé engar auglýsingar þarna eða neitt.
Stofnaðir bara einkafélag og alles?

Re: Ný íslensk leikjasíða
Sent: Mið 31. Des 2008 01:16
af halldorjonz
Flott síða
Re: Ný íslensk leikjasíða
Sent: Mið 31. Des 2008 01:53
af Gúrú
Fannst bara cheezy hvernig þú gerðir innleggið fyrst...
Re: Ný íslensk leikjasíða
Sent: Mið 31. Des 2008 01:58
af davidelvar
Já ég skil alveg hvernig þetta lýtur út en ég var nú ekkert að reyna að "spama" spjallið hérna, vildi nú bara deila þessu með ykkur.
Re: Ný íslensk leikjasíða
Sent: Mið 31. Des 2008 02:07
af Gúrú
davidelvar skrifaði:Já ég skil alveg hvernig þetta lýtur út en ég var nú ekkert að reyna að "spama" spjallið hérna, vildi nú bara deila þessu með ykkur.
Eitt skil ég samt ekki: Þessi síða lítur út fyrir að vera margtuga klukkutíma vinna, og þú ert ekki með auglýsingar?
Re: Ný íslensk leikjasíða
Sent: Mið 31. Des 2008 02:28
af daremo
Flott síða. Þokkalega slow samt. Ruby on rails + heimatenging er slæm blanda

Re: Ný íslensk leikjasíða
Sent: Mið 31. Des 2008 02:39
af davidelvar
daremo skrifaði:Flott síða. Þokkalega slow samt. Ruby on rails + heimatenging er slæm blanda

haha hún verður nú bara ekki hraðvirkari en þetta núna í upphafi. Því miður.

Gúrú skrifaði:davidelvar skrifaði:Já ég skil alveg hvernig þetta lýtur út en ég var nú ekkert að reyna að "spama" spjallið hérna, vildi nú bara deila þessu með ykkur.
Eitt skil ég samt ekki: Þessi síða lítur út fyrir að vera margtuga klukkutíma vinna, og þú ert ekki með auglýsingar?
Já það fór gríðarlega mikil vinna í þetta, en nú í upphafi verða ekki neinar auglýsingar. Þær koma líklega seinna til þess að standa undir kostnaði.
Ekki hika við það að hafa samband við mig í gegnum PM ef þið sjáið eitthvað athugavert við hana eða þið viljið koma með uppástungu að nýjum eiginleika eða eitthvað álíka.
Re: Ný íslensk leikjasíða
Sent: Mið 31. Des 2008 03:03
af Gúrú
Hæstu einkun - Hæstu einkunn
Svo er öll
þessi síða skrýtin, hvað eggsaktlí á hún að gera/vera? :

Re: Ný íslensk leikjasíða
Sent: Mið 31. Des 2008 03:20
af davidelvar
Gúrú skrifaði:Hæstu einkun - Hæstu einkunn
Svo er öll
þessi síða skrýtin, hvað eggsaktlí á hún að gera/vera? :

Ferðu á þessa síðu þegar þú ferð í "Minn aðgangur" ? Ef svo er þá er þetta bara villa hjá mér, ætla að kíkja á þetta. Takk.
Re: Ný íslensk leikjasíða
Sent: Mið 31. Des 2008 04:35
af Danni V8
Nice. Leikjasíða sem er ekki búið að blokka í vinnunni

Spennandi að sjá hvað það endist lengi

Re: Ný íslensk leikjasíða
Sent: Mið 31. Des 2008 08:06
af techseven
davidelvar skrifaði:Ný íslensk leikjasíða..
http://www.vefleikir.is 
Ég er ekkert að biðja ykkur að fara inná þetta. Ef þið hafið ekki áhuga á því ekki gera það þá. Hélt nú bara að menn hefðu gaman af þessu.
Mér finnst ekkert að því að menn komi einhverju sem þeir eru að gera á framfæri, á meðan það er bara 1 póstur. Ég held að við lifum það alveg af og mér sýnist bara sumir vera ánægðir að frétta af þessu.
Hitt er annað mál að þú áttir strax í byrjun að nefna það að þetta væri á þínum vegum...
Re: Ný íslensk leikjasíða
Sent: Mið 31. Des 2008 11:35
af emmi
Mæli með að þú hýsir þetta á Íslandi. Ekkert leiðinlegra en að skoða hægar vefsíður. Lítur annars mjög vel út.

Re: Ný íslensk leikjasíða
Sent: Mið 31. Des 2008 12:30
af Sydney
Danni V8 skrifaði:Nice. Leikjasíða sem er ekki búið að blokka í vinnunni

Spennandi að sjá hvað það endist lengi

http://www.hidemyass.com
Re: Ný íslensk leikjasíða
Sent: Mið 31. Des 2008 14:08
af depill
daremo skrifaði:Flott síða. Þokkalega slow samt. Ruby on rails + heimatenging er slæm blanda

Ekki sé ég að forritunarmál hefði skippt neinu máli varðandi hraða á síðu. Og mér sýnist þetta líka ekki vera RoR heldur php ( vefleikir.is/index.php er til ) og svo virðist þetta vera í Kanada en ekki á heimatengingu. En hæg er hún fjandinn hafi það, er ekki betra að hýsa þetta hjá bara fyrirtækjum eins og 1984 eða Netberg. Bæði að styrkja Íslenskt og fá töluvert meiri hraða í þetta sem væri líklegra til success

Re: Ný íslensk leikjasíða
Sent: Mið 31. Des 2008 15:54
af davidelvar
depill.is skrifaði:daremo skrifaði:Flott síða. Þokkalega slow samt. Ruby on rails + heimatenging er slæm blanda

Ekki sé ég að forritunarmál hefði skippt neinu máli varðandi hraða á síðu. Og mér sýnist þetta líka ekki vera RoR heldur php ( vefleikir.is/index.php er til ) og svo virðist þetta vera í Kanada en ekki á heimatengingu. En hæg er hún fjandinn hafi það, er ekki betra að hýsa þetta hjá bara fyrirtækjum eins og 1984 eða Netberg. Bæði að styrkja Íslenskt og fá töluvert meiri hraða í þetta sem væri líklegra til success

Síðan er búin til í PHP og MySQL. En já síðan er á hýsingu í Kanada.
Er síðan hæg hjá öllum eða, ef svo er hjá hvaða fyrirtæki eru þið með netið? Hún virkar nefnilega fínt hjá mér.