Síða 1 af 2

Fyndnar myndir og þess háttar tengt kreppunni

Sent: Mið 22. Okt 2008 21:00
af DoofuZ
Ég var að spá hvort það væri ekki sniðugt að pósta hingað öllum myndum og öðru skemmtilegu tengdu kreppunni sem hefur verið að ganga manna á milli í tölvupósti. Það myndi kannski lífga svoldið uppá andan hjá mönnum og það væri gaman fyrir þá sem fá ekki mikið af "ruslpóst"/fjöldapóst sem innihalda þessar myndir. Góð hugmynd? :)

Re: Fyndnar myndir og þess háttar tengt kreppunni

Sent: Mið 22. Okt 2008 21:10
af Zorglub
Hugmyndafræði dagsins :D

SÓSÍALISMI
Þú átt 2 kýr.
Þú gefur nágranna þínum aðra þeirra.

KOMMÚNISMI
Þú átt 2 kýr.
Ríkið tekur þær báðar og gefur þér mjólk.

FASISMI
Þú átt 2 kýr.
Ríkið tekur þær báðar og selur þér mjólk.

NASISMI
Þú átt 2 kýr.
Ríkið tekur þær báðar...og skýtur þig svo.

SKRIFRÆÐI
Þú átt 2 kýr.
Ríkið tekur þær báðar, skýtur aðra þeirra, mjólkar hina og hellir
svo allri mjólkinni.

HEFÐBUNDINN KAPITALISMI
Þú átt 2 kýr.
Þú selur aðra þeirra og kaupir naut. Þú stofnar kúabú og hagnast
vel. Þú hagnast vel, selur kúabúið og sest í helgan stein

SÚRREALISMI
Þú átt 2 gíraffa.
Ríkið krefst þess að þú farir í harmonikkunám.

BANDARÍSKA FYRIRTÆKI
Þú átt 2 kýr.
Þú selur aðra þeirra og þvingar hina til að gefa af sér mjólk á við
fjórar kýr. Þú ræður svo sérfræðing til að komast að því hvers vegna
hún datt niður dauð.

ÁHÆTTUFJÁRFESTINGAR - Íslendingar
Þú átt 2 kýr.
Þú selur 3 þeirra til fyrirtækis á opnum markaði með veði í
gervifyrirtæki mágs þíns, gengur svo frá yfirtöku með vísan í
skráningu á markaði þannig að þú færð allar 4 kýrnar tilbaka og
skattaívilnanir vegna einnar til viðbótar. Afurðarétturinn af kúnum
6 er færður yfir á fyrirtæki í Karíbahafinu, en leynilegur
meirihlutaeigandi þess selur þér aftur réttinn að öllum 7 kúnum.
Samkvæmt ársskýrslu á fyrirtækið nú 8 kýr, með eigendarétti að einni
til viðbótar. Þú selur eina kú til þess að þóknast ónefndum
stjórnmálamanni og átt þá níu kýr. Rétturinn að nautinu er seldur
almenningi í hlutafjárútboði.

FRANSKT FYRIRTÆKI
Þú átt 2 kýr.
Þú ferð í verkfall, skipuleggur mótmæli og tefur umferð...vegna þess
að þú vilt eiga þrjár kýr.

JAPANSKT FYRIRTÆKI
Þú átt 2 kýr.
Þú endurhannar þær þannig að þær verða tíu sinnum minni, en
framleiða tuttugu sinnum meiri mjólk. Þú markaðssetur svo nýja
teiknimyndahetju, „Kúmann“, sem nær miklum vinsældum um allan heim.

ÞÝSKT FYRIRTÆKI
Þú átt 2 kýr.
Þú endurhannar þær þannig að þær lifa í 100 ár, éta einu sinni í
mánuði og mjólka sig sjálfar.

ÍTALSKT FYRIRTÆKI
Þú átt 2 kýr.
Þú veist ekki hvar þær eru niðurkomnar. Þú ákveður að fá þér að
borða.

RÚSSNESKT FYRIRTÆKI
Þú átt 2 kýr.
Þú telur þær og kemst að því að þú átt 5 kýr.
Þú telur þær aftur og kemst að því að þú átt 42 kýr.
Þú telur þær enn og aftur og kemst að því að þú átt 2 kýr.
Þú hættir að telja og opnar aðra vodkaflösku.

SVISSNESKT FYRIRTÆKI
Þú átt 5000 kýr. Engin þeirra tilheyrir þér í raun.
Þú rukkar eigendurna fyrir geymsluna.

KÍNVERSKT FYRIRTÆKI
Þú átt 2 kýr.
Þú ræður 300 manns til að mjólka þær. Þú segir atvinnuleysi í
lágmarki og blómstrandi landbúnað. Þú handtekur fréttmanninn sem
sagði frá stöðunni eins og hún er í raun og veru.

INDVERSKT FYRIRTÆKI
Þú átt tvær kýr.
Þú tilbiður þær.

BRESKT FYRIRTÆKI
Þú átt tvær kýr.
Báðar eru með gin-og klaufaveiki

ÁSTRALSKT FYRIRTÆKI
Þú átt 2 kýr.
Bissnessinn gengur vel.
Þú lokar skrifstofunni og færð þér nokkra kalda til að halda upp á
það.

NÝ-SJÁLENSKT FYRIRTÆKI
Þú átt tvær kýr.
Sú til vinstri er asskoti löguleg.

ÍRASKT FYRIRTÆKI
Allir virðast eiga fjölda kúa.
Þú segir öllum að þú eigir enga.
Enginn trúir þér svo þeir sprengja þig í tætlur og ráðast inn í
landið.
Þú átt enn engar kýr, en þú býrð þó amk í lýðræðisríki núna...

Re: Fyndnar myndir og þess háttar tengt kreppunni

Sent: Mið 22. Okt 2008 21:51
af ManiO

Re: Fyndnar myndir og þess háttar tengt kreppunni

Sent: Mið 22. Okt 2008 23:16
af axyne
Back to Basics

Re: Fyndnar myndir og þess háttar tengt kreppunni

Sent: Mið 22. Okt 2008 23:37
af Nariur
"engin lánsviðskipti" LOL :lol: #-o

Re: Fyndnar myndir og þess háttar tengt kreppunni

Sent: Fim 23. Okt 2008 00:17
af Hjöllz
Smá brandari handa ykkur viðskiptavökturum.

Geir Haarde og Davíð Oddson eru í útsýnisflugi þegar Davíð segir allt í einu,
"Ef ég myndi henda 1000króna seðli út úr vélinn myndi ég gleðja einn Íslending!"
Það er ekkert svarar Geir.
"Ef ég myndi henda 5 þúsund köllum út úr vélinni myndi ég gleðja fimm Íslendinga!!"

Flugmaðurinn var að verða frekar þreyttur á þeim og segir loks í kallkerfinu...

"Ef ég myndi nú henda ykkur báðum út yrði ég þjóðargersemi!!!"

Re: Fyndnar myndir og þess háttar tengt kreppunni

Sent: Fim 23. Okt 2008 01:21
af Gúrú
axyne skrifaði:Back to Basics

VÁ hvað hann er líkur Tom Cruise í The Rain Man!!

Re: Fyndnar myndir og þess háttar tengt kreppunni

Sent: Fös 24. Okt 2008 11:58
af DoofuZ
Er enginn með einhverjar fleiri skemmtilegar myndir? Myndir í svipuðum dúr og "Skitnir - Skeindir af ríkinu"? Hér er allavega einn góður brandari :D

An American said: "We have George Bush, Stevie Wonder, Bob Hope and
Johnny Cash." And an Icelander replied: "We have Geir Haarde, no
Wonder, no Hope and no Cash…"

:lol:

Re: Fyndnar myndir og þess háttar tengt kreppunni

Sent: Fös 24. Okt 2008 15:18
af Lester
Zorglub skrifaði:Hugmyndafræði dagsins :D
...

WIN

Breytt af stjórnanda

Re: Fyndnar myndir og þess háttar tengt kreppunni

Sent: Fös 24. Okt 2008 15:20
af ManiO
Lester skrifaði:
WIN

Næst skaltu fjarlægja mestan hluta af quoteinu þegar það er svona langt...

Re: Fyndnar myndir og þess háttar tengt kreppunni

Sent: Fös 24. Okt 2008 17:20
af hallihg
Lester skrifaði:
Zorglub skrifaði:Hugmyndafræði dagsins :D
...

WIN

Breytt af stjórnanda

Annars frábært innlegg í umræðuna. Þú ert á öðrum degi og stendur þig vel.

Re: Fyndnar myndir og þess háttar tengt kreppunni

Sent: Sun 26. Okt 2008 21:39
af Zorglub
Geir var niðrá þingi að rökræða í hálfum hljóðum við Ingibjörgu, æsir sig svo aðeins og segir með miklum handahreifingum "Sjálfstæðisflokkurinn er svarið"
Steingrímur J heyrir í þeim, lítur upp, hristir hausinn og segir svo stundarhátt "ef að sjálfstæðisflokkurinn er svarið, þá hefur spurningin verið út í hött!" :lol:

Re: Fyndnar myndir og þess háttar tengt kreppunni

Sent: Þri 28. Okt 2008 12:24
af Zorglub
Mynd

Smá brandari

Sent: Þri 28. Okt 2008 21:56
af Ordos
Ég er með eitthað líka :8)

Bandaríkjamenn segja:"We have Gorge Bush, Stevie Wonder, Bob Hope, and Jhonny Cash"
Íslendingar svara:"We have Geir Haarde, no Wonder, no Hope, and no Cash

Re: Smá brandari

Sent: Þri 28. Okt 2008 21:59
af ManiO
Ordos skrifaði:Ég er með eitthað líka :8)

Bandaríkjamenn segja:"We have Gorge Bush, Stevie Wonder, Bob Hope, and Jhonny Cash"
Íslendingar svara:"We have Geir Haarde, no Wonder, no Hope, and no Cash

Hver er Gorge Bush? En svona án gríns má minnast á að ekki er alslæmt að lesa svör annarra,

DoofuZ skrifaði:Er enginn með einhverjar fleiri skemmtilegar myndir? Myndir í svipuðum dúr og "Skitnir - Skeindir af ríkinu"? Hér er allavega einn góður brandari :D

An American said: "We have George Bush, Stevie Wonder, Bob Hope and
Johnny Cash." And an Icelander replied: "We have Geir Haarde, no
Wonder, no Hope and no Cash…"

:lol:

Re: Fyndnar myndir og þess háttar tengt kreppunni

Sent: Þri 28. Okt 2008 22:53
af axyne
Kreppusmókur

Re: Fyndnar myndir og þess háttar tengt kreppunni

Sent: Þri 28. Okt 2008 23:03
af axyne
hverjum að kenna ?

Re: Fyndnar myndir og þess háttar tengt kreppunni

Sent: Mán 03. Nóv 2008 09:27
af DoofuZ
Var að rekast á eina góða mynd... :lol:
(Myndin í fullri stærð er hér)

Re: Smá brandari

Sent: Mán 03. Nóv 2008 10:21
af Ordos
4x0n skrifaði:
Ordos skrifaði:Ég er með eitthað líka :8)

Bandaríkjamenn segja:"We have Gorge Bush, Stevie Wonder, Bob Hope, and Jhonny Cash"
Íslendingar svara:"We have Geir Haarde, no Wonder, no Hope, and no Cash

Hver er Gorge Bush? En svona án gríns má minnast á að ekki er alslæmt að lesa svör annarra,

DoofuZ skrifaði:Er enginn með einhverjar fleiri skemmtilegar myndir? Myndir í svipuðum dúr og "Skitnir - Skeindir af ríkinu"? Hér er allavega einn góður brandari :D

An American said: "We have George Bush, Stevie Wonder, Bob Hope and
Johnny Cash." And an Icelander replied: "We have Geir Haarde, no
Wonder, no Hope and no Cash…"

:lol:

Úps sorry :oops:

Re: Fyndnar myndir og þess háttar tengt kreppunni

Sent: Fim 06. Nóv 2008 14:55
af tomas52
svo er líka pælingin ef að við höfðum lagt 100 þús í hlutabréf hjá glitni þá væri það komið níðrí 2000 kall

en ef við höfðum keypt bjór fyrir 100 þús þá værum við með 20 þús úr flöskupening og helmingi ánægðari;)

Re: Fyndnar myndir og þess háttar tengt kreppunni

Sent: Fim 06. Nóv 2008 15:44
af lukkuláki
tomas52 skrifaði:svo er líka pælingin ef að við höfðum lagt 100 þús í hlutabréf hjá glitni þá væri það komið níðrí 2000 kall

en ef við höfðum keypt bjór fyrir 100 þús þá værum við með 20 þús úr flöskupening og helmingi ánægðari;)

Ha ? ....
Ef við kaupum FAXE sem er ódýr kostar 132 kr dósin allavega síðast þegar ég gáði og dósir eru ódýrari en gler.
Þá kaupum við (757x132=99.924kr) 757 bjóra og það er nú ekki nema 10 kall frá endurvinnslunni
fyrir að skila þessu þannig að þetta passar ekki.
757x10 =7570

Til þess að fá 20.000 kall þá þarf maður að skila 2000 dósum.
Ekki trúa öllu sem þú lest.

Re: Fyndnar myndir og þess háttar tengt kreppunni

Sent: Fim 06. Nóv 2008 16:32
af gudjonnet
lukkuláki skrifaði:
tomas52 skrifaði:svo er líka pælingin ef að við höfðum lagt 100 þús í hlutabréf hjá glitni þá væri það komið níðrí 2000 kall

en ef við höfðum keypt bjór fyrir 100 þús þá værum við með 20 þús úr flöskupening og helmingi ánægðari;)

Ha ? ....
Ef við kaupum FAXE sem er ódýr kostar 132 kr dósin allavega síðast þegar ég gáði og dósir eru ódýrari en gler.
Þá kaupum við (757x132=99.924kr) 757 bjóra og það er nú ekki nema 10 kall frá endurvinnslunni
fyrir að skila þessu þannig að þetta passar ekki.
757x10 =7570

Til þess að fá 20.000 kall þá þarf maður að skila 4000 dósum.
Ekki trúa öllu sem þú lest.

Já nei nei.
Til þess að fá 20.000 kall þá þarf maður að skila 2000 dósum ef dósin kostar 10krónur eins og í dæminu sem þú leggur upp.
Þetta er nú frekar einföld stærðfræði.

Re: Fyndnar myndir og þess háttar tengt kreppunni

Sent: Fim 06. Nóv 2008 16:49
af lukkuláki
gudjonnet skrifaði:

Já andskotinn .... smá klúður
:)

Re: Fyndnar myndir og þess háttar tengt kreppunni

Sent: Fim 06. Nóv 2008 16:56
af einzi
Og þar sem þessi brandari en nú kominn að utan þar sem bjórinn er ódýr þá ætti þetta alveg að ganga upp

Re: Fyndnar myndir og þess háttar tengt kreppunni

Sent: Fim 06. Nóv 2008 17:20
af lukkuláki
einzi skrifaði:Og þar sem þessi brandari en nú kominn að utan þar sem bjórinn er ódýr þá ætti þetta alveg að ganga upp

:? Ekki á Íslandi
Þá þarf dósin að kosta 50 kall