Síða 1 af 1
Utanlandshraði er ca 0KB/sec
Sent: Þri 30. Sep 2008 20:32
af Frikkasoft
OMG, það er allt dautt hjá mér, ég bara get ekki sótt erlendar síður, það er næstum ómögulegt!
Ég er með 8mbps tengingu hjá vodafone, og þeir í þjónustuverinu hafa ekki ennþá svarað mér í símanum.
Er einvhver að lenda í svipuðu?
Re: Utanlandshraði er ca 0KB/sec
Sent: Þri 30. Sep 2008 20:35
af Bassi6
Jamm sama hér
Re: Utanlandshraði er ca 0KB/sec
Sent: Þri 30. Sep 2008 20:47
af kiddi
Ég er hjá vodafone og allt í fínu lagi, fínasti hraði á torrent traffík líka.
Re: Utanlandshraði er ca 0KB/sec
Sent: Þri 30. Sep 2008 20:48
af ManiO
Frekar hægt hjá mér en virkar þó, ljósleiðari hjá Vodafone.
Re: Utanlandshraði er ca 0KB/sec
Sent: Þri 30. Sep 2008 21:01
af Frikkasoft
Ég náði loks sambandi við vodafone.
Það kom í ljós að ég er kominn í 82GB í erlent download (en ég vil taka fram að ég er á vinnutölvu og ég hef ekki neitt notað torrent). Þjónustufulltrúinn sagði mér að fyrir 2 mán breyttu þeir reglunum, þannig að allir sem fara yfir 80GB á mánuði fara sjálfkrafa yfir á sömu 512KB línuna sem þýðir nánast stopp!
Þar sem ég hef verið góður viðskiptavinur vodafone og reglulega haldið mér innan 80GB kemur þetta mér mjög á óvart að þetta skuli vera gert svona harkalega og án viðvörunar. Sérstaklega í ljósi þess að þetta er gert seinasta dag í mánuðinum. Þjónustufulltrúin sagði mér bara að bíða í 3 klst þangað til það koma mánaðarmót og þá kemur þetta í lag, en það þýðir að ég get ekkert unnið á meðan! Þegar ég hótaði að skipta um símafélag sagði hann mér að öll önnur símafélög eru að gera það sama.
Getið þið staðfest að þetta er að gerast í ykkar símafélögum?
Er eitthvað símafélag sem gerir þetta ekki ?
Re: Utanlandshraði er ca 0KB/sec
Sent: Þri 30. Sep 2008 21:14
af Ordos
Tja, þótt ég hafi aldrei náð yfir 62GB erlent niðurhal þá fæ ég næstum alltaf mjög hæga tengingu hjá Tal 12Mbit tengingu erlent download limit er 80GB.
Re: Utanlandshraði er ca 0KB/sec
Sent: Þri 30. Sep 2008 21:44
af ManiO
Er víst þannig að ljósleiðaratengingin hjá Vodafone er tímabundið með ótakmarkað magn af erlendu niðurhali þar sem þeir hafa ekki hugbúnað til að fylgjast með þessu, sjá hérna
viewtopic.php?f=18&t=19381&p=183140&hilit=vodafone#p183140En fyrst þetta er vinnutenging og þú þarft að niðurhala miklu magni væri ekki ósniðugt að fara í fyrirtækjatengingar þar sem boðið er upp á meira en 80 gig/mánuð.
Re: Utanlandshraði er ca 0KB/sec
Sent: Mið 01. Okt 2008 20:34
af Frikkasoft
Heimilistölvan mín er nokkurskonar vinnutölva
Ég er að hugsa um að skipta yfir í Tal því þá mun ég spara mér umtalsverðar upphæðir á hverjum mánuði.
Hvernig er ykkar reynsla af Tal?
Re: Utanlandshraði er ca 0KB/sec
Sent: Mið 01. Okt 2008 23:11
af ManiO
Hef heyrt afar slæma hluti, man ekki alveg slóðina en það var stór umræða um þetta á er.is.
Re: Utanlandshraði er ca 0KB/sec
Sent: Lau 04. Okt 2008 00:43
af Heliowin
Frikkasoft skrifaði:Heimilistölvan mín er nokkurskonar vinnutölva
Ég er að hugsa um að skipta yfir í Tal því þá mun ég spara mér umtalsverðar upphæðir á hverjum mánuði.
Hvernig er ykkar reynsla af Tal?
Mér fannst einu sinni að Hive hafi verið að stýra hraða skráarniðurhals hjá mér eða venjulegu dánlódi. Ég var þá að hlaða niður nokkrum skrám frá ólíkum aðilum og voru þær allar á sama hraða eða þrjár skrár eða svo á 15KB/sec hver eða eitthvað þannig

Re: Utanlandshraði er ca 0KB/sec
Sent: Lau 04. Okt 2008 05:57
af DaRKSTaR
sami kvótinn á símanum og sama þar á teninginum, þeir segjast skerða hraðann fari maður yfir þennann kvóta.
ég reini að halda mig innann marka, nennir ekki einhverju veseni.
bítti engu hvert þú færir þig.. þetta er allt sama ruslið.
Re: Utanlandshraði er ca 0KB/sec
Sent: Lau 04. Okt 2008 10:16
af DoofuZ
Frikkasoft skrifaði:Ég náði loks sambandi við vodafone.
Það kom í ljós að ég er kominn í 82GB í erlent download (en ég vil taka fram að ég er á vinnutölvu og ég hef ekki neitt notað torrent).
Þú ert þó ekki að hlusta eitthvað á netútvarp? Vinur pabba míns lennti nefnilega í því hér fyrir nokkrum árum þegar allar tengingarnar voru með þökin að hann var bara með svona vinnutölvu og svo eftir fyrsta mánuðinn þá fékk hann þennan svaka háa reikning og skildi ekki neitt í neinu. Svo þegar pabbi spurði mig hvað málið gæti verið þá nefndi hann að kallinn hefði nú haft eitthvað netútvarp þarna í gangi stanslaust og þá benti ég honum auðvitað á það að það telst að sjálfsögðu sem download

En annars varðandi netþjónusturnar, ég er hjá Tal og hef nú lítið slæmt að segja varðandi hraða eða eitthvað annað þess háttar í dag, það var bara eitthvað vesen með það allt fyrsta árið eða svo, en það sem mér finnst fáránlegt er að þeir eru að auglýsa verð t.d. á 12Mb tengingu sem þeir segja að sé 5990 kr. á mánuði en ég er hins vegar að borga aðeins yfir 6000 kallinn fyrir það og er það víst vegna þess að ofaná bætist, en er ekki innifalið, leigukostnaður fyrir router og eitthvað svoleiðis rugl. Það er bara fáránlegt!

Svoleiðis kostnaður á að sjálfsögðu að vera innifalinn í auglýstu verði...
Re: Utanlandshraði er ca 0KB/sec
Sent: Fös 17. Okt 2008 23:23
af akarnid
DoofuZ skrifaði: mér finnst fáránlegt er að þeir eru að auglýsa verð t.d. á 12Mb tengingu sem þeir segja að sé 5990 kr. á mánuði en ég er hins vegar að borga aðeins yfir 6000 kallinn fyrir það og er það víst vegna þess að ofaná bætist, en er ekki innifalið, leigukostnaður fyrir router og eitthvað svoleiðis rugl. Það er bara fáránlegt!

Svoleiðis kostnaður á að sjálfsögðu að vera innifalinn í auglýstu verði...
Samt...afhverju ættu þeir að hafa það með? Hvað með þá sem eiga sinn eigin router og eru ekki að leigja hann af ISPanum? Öll svona gjöld sem eru ekki skylda fyrir alla eiga ekki að vera með í tótal auglýstu verði.
Re: Utanlandshraði er ca 0KB/sec
Sent: Lau 18. Okt 2008 00:20
af Gúrú
akarnid skrifaði:DoofuZ skrifaði: mér finnst fáránlegt er að þeir eru að auglýsa verð t.d. á 12Mb tengingu sem þeir segja að sé 5990 kr. á mánuði en ég er hins vegar að borga aðeins yfir 6000 kallinn fyrir það og er það víst vegna þess að ofaná bætist, en er ekki innifalið, leigukostnaður fyrir router og eitthvað svoleiðis rugl. Það er bara fáránlegt!

Svoleiðis kostnaður á að sjálfsögðu að vera innifalinn í auglýstu verði...
Samt...afhverju ættu þeir að hafa það með? Hvað með þá sem eiga sinn eigin router og eru ekki að leigja hann af ISPanum? Öll svona gjöld sem eru ekki skylda fyrir alla eiga ekki að vera með í tótal auglýstu verði.
Einmitt.. Þetta er eins og að kvarta undan því að þeir segi ótakmörkuð símtöl í alla og svo þarftu að leigja af þeim síma því þú átt ekki síma?! Hneyksli...