Þannig er mál með vexti að einhverntíman fyrir mánuðum síðan þá var maður sem vildi pirra félaga sinn, starfsmann hjá leikjabúðakeðju að nafni Game Stop í Bandaríkjunum, sem er mjög stór. Hugmyndin var sú að láta fólk hringja í búðina sem félaginn var að vinna í (Game Stop) og biðja hann um leik sem er ekki hægt að fá í búðunum, sökum þess að hann er eldgamall NES leikur.
Hann lét mynd af Game Stop félaga sínum á 4chan og lét síma búðarinnar sem félaginn vann fylgja með og sagði fólki að hringja og biðja um Battletoads. Mjög margir hringdu og þetta gekk mjög vel hjá spaugaranum. Eftir um 15 mínútur var félaginn orðinn mjög pirraður og skellti á alla sem hringdu í sambandi við Battletoads.
Svo þróaðist þessi hugmynd lengra. Nú er þetta mikið vandamál hjá Game Stop keðjunni, fólk að hringja bara til að vera með leiðindi og biðja um Battletoads og starfsmennirnir mjög pirraðir. Um leið og þú minnist á Battletoads í símtali við þá, þá skella þeir á um leið.
Ég og félagi minn sáum svona þráð á 4chan um daginn og þar í comments var símanúmer og upplýsingar um eina búð Game Stop og við ákváðum að slá á þráðinn til Bandaríkjanna

Ég: Hello, I'm calling from Iceland and I'm looking for this game
GS: Yes, could you give me any information about it ?
Ég: Yes, I was wondering about this game called Grand Theft Auto.
GS: Yes, we have the GTA4 on PS3 starting at [man ekki] $.
Ég: Oh, have you got it on PS1 ?
GS: No we don't.
Ég: Why not?
GS: Because it's out dated.
Ég: What do you mean out dated?
GS: It's just old and it doesn't sell anymore.
Ég: Ok, how much does an PS3 cost?
GS: It starts at [man ekki] $
Ég: Hmmm... and do you have to own a PS2 so you are able to buy a PS3?
GS: No.
Ég: Ok, but does PS3 run Battletoads?
-Skellt á mig-
Þetta fannst okkur sanna ansi vel hve mikið vandamál þetta er orðið, og mér fannst þetta rugl fyndið

Hvað finnst ykkur? Er hægt að púlla eitthvað svona á Íslandi?
