Síða 1 af 2
HIVE og SKO að sameinast...
Sent: Sun 04. Maí 2008 20:37
af GuðjónR
...og boða allt að 30% verðlækkun...
Trúir einhver svona bulli ?? ?? ??
Re: Tal og SKO að sameinast...
Sent: Sun 04. Maí 2008 20:42
af Skuggasveinn
Hive og Sko sameinast í Tal er það ekki réttara ?
Re: Tal og SKO að sameinast...
Sent: Sun 04. Maí 2008 20:46
af GuðjónR
Skuggasveinn skrifaði:Hive og Sko sameinast í Tal er það ekki réttara ?
Hárrétt, búinn að laga titilinn

...en trúir einhver þessu?
Re: Tal og SKO að sameinast...
Sent: Sun 04. Maí 2008 20:51
af Dazy crazy
GuðjónR skrifaði:Skuggasveinn skrifaði:Hive og Sko sameinast í Tal er það ekki réttara ?
Hárrétt, búinn að laga titilinn

...en trúir einhver þessu?
Af hverju ekki, 1. apríl er löngu búinn og þeir segjast geta þetta með því að vera ekki í "research" dæmi og tækniframþróun eins og síminn og einhverjir fleiri sem hækki gjaldið hjá þeim. Sko hefur reynst mér vel og ég hef ekkert lent í neinu cappi eða öðru slíku og ég er búinn að dl 97 GB Erlendis frá nákvæmlega núna það sem af er þessum mánuði. (Örfáar Hd myndir og þættir frá BBC).
Re: HIVE og SKO að sameinast...
Sent: Sun 04. Maí 2008 20:54
af Skuggasveinn
Svona fyrirtæki getur kannski lækkað verð á þessari þjónustu í einhvern stuttann tíma, á þeim tíma geta þeir laðað slatta af auðginntu fólki til sín og svo hækkað smám saman verð aftur.
Re: HIVE og SKO að sameinast...
Sent: Sun 04. Maí 2008 21:00
af GuðjónR
Skuggasveinn skrifaði:Svona fyrirtæki getur kannski lækkað verð á þessari þjónustu í einhvern stuttann tíma, á þeim tíma geta þeir laðað slatta af auðginntu fólki til sín og svo hækkað smám saman verð aftur.
Akkúrat, eða boðið MAX12 internet tengingu á eitthvað minna en hinir, svo þegar á reynir þá er þetta MIN1 tenging...þú ert heppinn að ná 10% af þeim hraða sem þú ert að borga fyrir.
Boðaði Atlantsolía ekki verðlækkun á benzíni þegar þeir komu? Veit ekki betur en að þeir séu alveg jafn snöggir að hækka verðið og hinir og ekki eru þeir ódýrari.
Re: HIVE og SKO að sameinast...
Sent: Sun 04. Maí 2008 21:21
af daremo
GuðjónR skrifaði:Boðaði Atlantsolía ekki verðlækkun á benzíni þegar þeir komu? Veit ekki betur en að þeir séu alveg jafn snöggir að hækka verðið og hinir og ekki eru þeir ódýrari.
Atlantsolía lofaði því að vera alltaf krónu ódýrari en hin olíufélögin, sama hvað.
Þeir virðast hafa gleymt því loforði því að í dag er bensínið þeirra á nákvæmlega sama verði og hjá hinum.
http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/20 ... verdi_vid/Að sögn Stefáns Kjærnested er ætlunin að selja olíulítrann að minnsta kosti krónu ódýrari en hin félögin á markaðnum.
Það er sorglegt hvað samkeppni er léleg á íslandi.
Re: HIVE og SKO að sameinast...
Sent: Sun 04. Maí 2008 23:30
af GuðjónR
Einmitt...enda er maður farinn að taka svona yfirlýsingum með fyrirvara.
Re: HIVE og SKO að sameinast...
Sent: Mán 05. Maí 2008 11:18
af CendenZ
Þetta nýja nafn er ekkert smá catcy, liggur við að maður hafi heyrt þetta áður
Re: HIVE og SKO að sameinast...
Sent: Mán 05. Maí 2008 11:21
af hagur
Verður maður ekki að gefa þeim "the benefit of doubt" ?
Ég myndi alveg íhuga þetta ef ég væri ekki með GSM/Internet í gegnum vinnuveitanda minn.
Skora samt á þá sem ætla að flytja sig yfir að vera á varðbergi, dugar ekkert annað en að veita fyrirtækjum sem maður verslar við, smá aðhald.
Re: HIVE og SKO að sameinast...
Sent: Mán 05. Maí 2008 12:44
af depill
Hmm þar sem að ég veit að nýtengingar eru ekki það sama og HIVE tengingarnar og að gömlu HIVE tengingarnar eiga eflaust eftir að verða betri þegar það verður flutt og að heimasíminn er ekki lengur VoIP og að GSMið er ja GSM með góðu dreifisvæði. Þá ætla ég bara að hoppa yfir til TAL.
Ég meina 1000 kr fyrir heimasímann, 4.990 kr fyrir 8 Mb/s tengingu, 0 kr í mánaðargjald fyrir GSM símann minn í áskrift er nú bara ágætislækkun á símreikning. Ég er allavega nógu mikil mella til þess að vera ekki svo loyal símafyrirtækinu mínu að ég er bara hjá til þess að vera hjá þeim. Ef svo TAL breyta verðskránni sinni þannig að það verður hagstæðara hjá mér að vera hjá einhverjum öðrum þá bara skipti ég aftur.
En eins og er, þá er það að borga 5.990 kr á mánuði í heildarmánaðargjöld fyrir GSM, Heimasíma og ADSL + lægstu verðskránna að hringja úr heimasíma og GSM nóg fyrir mig að skipta ( loksins kostar jafn mikið að hringja heimasími -> GSM og GSM->GSM, heimasími í GSM-> 14.9 kr sem er lægra en Heimasími Síminn-> GSM Síminn og Heimasími Vodafone -> GSM Vodafone ).
Mjög auðveld ákvörðun fyrir mig allavega

Re: HIVE og SKO að sameinast...
Sent: Mán 05. Maí 2008 13:14
af Pandemic
GuðjónR skrifaði:...og boða allt að 30% verðlækkun...
Trúir einhver svona bulli ?? ?? ??
Lykilorðið í þessari setningu er
allt að
Re: HIVE og SKO að sameinast...
Sent: Mán 05. Maí 2008 15:25
af emmi
Sigmar markaðsstjóri Tal talar um það í útvarpsþætti Zuuber í morgun um að það sé ótakmarkað niðurhal og vitna ég orðrétt í orð hans hér fyrir neðan:
"Af hverju ertu takmarkaður á Internetinu sem dæmi? Við eru með ótakmarkað niðurhal í öllum Internetpökkunum okkar."
En þegar maður skoðar 9. grein skilmála þeirra þá kemur í ljós að þetta er bara nákvæmlega sama platið og Síminn og Vodafone eru með í gangi.
"Áskrifanda er óheimilt að trufla, skerða eða á nokkurn hátt hafa áhrif á notkun annarra viðskiptavina. Eftirfarandi atriði falla undir það að geta haft áhrif á eða skert þjónustu til annara viðskiptavina. Ef erlent gagnamagn fer yfir sem svarar 80GB á 30 dögum á 8mb og 12mb og 60GB á 30 dögum á 1mb og 4mb áskilur Tal sér rétt til að synja áskrifanda um þjónustu um stundarsakir eða til frambúðar eða grípa til annara ráðstafana til að draga úr notkun áskrifanda."
Ég vona innilega að íslendingar hætti að láta bjóða sér svona þjónustu og fals auglýsingar.
Re: HIVE og SKO að sameinast...
Sent: Mán 05. Maí 2008 15:44
af Viktor
Tal? Vodafone á þetta. Sé ekki tilganginn í öllum þessum félögum.
Re: HIVE og SKO að sameinast...
Sent: Mán 05. Maí 2008 20:19
af CraZy
Sallarólegur skrifaði:Tal? Vodafone á þetta. Sé ekki tilganginn í öllum þessum félögum.
Var það ekki þannig að tal breyttist í ogVodafone á sínum tíma? Held að þetta sé annað tal, ekki það að ég hafi sett mig eitthvað inní þetta.
Re: HIVE og SKO að sameinast...
Sent: Mán 05. Maí 2008 20:21
af Gúrú
CraZy skrifaði:Sallarólegur skrifaði:Tal? Vodafone á þetta. Sé ekki tilganginn í öllum þessum félögum.
Var það ekki þannig að tal breyttist í ogVodafone á sínum tíma? Held að þetta sé annað tal, ekki það að ég hafi sett mig eitthvað inní þetta.
Er hann ekki að meina að vodafone eigi markaðinn? "owni"
Re: HIVE og SKO að sameinast...
Sent: Mán 05. Maí 2008 21:06
af GuðjónR
Svo er spurning hvernig þeir telja skrefin, rukka þeir fyrir hverja talaða sec, eða rukka þeir fyrir 20 næstu sec, eða ef þú talar eina sec fram yfir mínútu reiknast þá ný mínúta?
Allaveganna var ég einn af þeim vitlausu sem lét HIVE plata sig á sínum tíma, ég ætla að halda ró minni þó að einhver komi og þykist ætla að gera heiminum greiða.
Re: HIVE og SKO að sameinast...
Sent: Þri 06. Maí 2008 11:12
af CraZy
Gúrú skrifaði:CraZy skrifaði:Sallarólegur skrifaði:Tal? Vodafone á þetta. Sé ekki tilganginn í öllum þessum félögum.
Var það ekki þannig að tal breyttist í ogVodafone á sínum tíma? Held að þetta sé annað tal, ekki það að ég hafi sett mig eitthvað inní þetta.
Er hann ekki að meina að vodafone eigi markaðinn? "owni"
ah meinar, getur velverið

En já ég vona að þetta fari ekki í rugl ég var að skipta yfir í sko, nokkrum dögum áður en þeir sameinuðust.
Re: HIVE og SKO að sameinast...
Sent: Þri 06. Maí 2008 13:50
af Amything
GuðjónR skrifaði:Svo er spurning hvernig þeir telja skrefin, rukka þeir fyrir hverja talaða sec, eða rukka þeir fyrir 20 næstu sec, eða ef þú talar eina sec fram yfir mínútu reiknast þá ný mínúta?
Allaveganna var ég einn af þeim vitlausu sem lét HIVE plata sig á sínum tíma, ég ætla að halda ró minni þó að einhver komi og þykist ætla að gera heiminum greiða.
Held að Hive hafi bjargað heiminum fyrir downloadara samt. Það var upphaf ótakmarkaðs downloads.
En já, ég fór til þeirra í upphafi og það var frekar skelfilegt þangað til ég flúði.
Re: HIVE og SKO að sameinast...
Sent: Þri 06. Maí 2008 19:50
af Viktor
CraZy skrifaði:Sallarólegur skrifaði:Tal? Vodafone á þetta. Sé ekki tilganginn í öllum þessum félögum.
Var það ekki þannig að tal breyttist í ogVodafone á sínum tíma? Held að þetta sé annað tal, ekki það að ég hafi sett mig eitthvað inní þetta.
Vodafone á stærstan hluta í þessu nýja "Tal" heyrðist mér á Stöð2 fréttinni.
Re: HIVE og SKO að sameinast...
Sent: Þri 06. Maí 2008 21:54
af Turtleblob
Sýnist þeir vera með "ótakmarkað niðurhal" eins og Hive:
Regla 9 hjá Tal skrifaði:Áskrifanda er óheimilt að trufla, skerða eða á nokkurn hátt hafa áhrif á notkun annarra viðskiptavina. Eftirfarandi atriði falla undir það að geta haft áhrif á eða skert þjónustu til annara viðskiptavina. Ef erlent gagnamagn fer yfir sem svarar 80GB á 30 dögum á 8mb og 12mb og 60GB á 30 dögum á 1mb og 4mb áskilur Tal sér rétt til að synja áskrifanda um þjónustu um stundarsakir eða til frambúðar eða grípa til annara ráðstafana til að draga úr notkun áskrifanda.
Samt ekkert lítið. Enginn í neitt rosalegri hættu held ég.
Finnið skilmálana
hérÉg hef mest bara áhyggjur af því að þeir byrji að hægja á þeim notendum sem eru langt undir þessu limit-i.
Re: HIVE og SKO að sameinast...
Sent: Þri 06. Maí 2008 22:35
af GuðjónR
Turtleblob skrifaði:Ég hef mest bara áhyggjur af því að þeir byrji að hægja á þeim notendum sem eru langt undir þessu limit-i.
Ef notendur verða með 5-20kbs hraða frá útlöndum á torrent eins og hefur verið hjá HIVE þá er útilokað að ná þessu limiti. ´
350mb fæll, 3 weeks and two days left.
Re: HIVE og SKO að sameinast...
Sent: Mið 07. Maí 2008 09:11
af Pandemic
Re: HIVE og SKO að sameinast...
Sent: Mið 07. Maí 2008 17:05
af Gúrú
Tók ekki langan tíma :O
Re: HIVE og SKO að sameinast...
Sent: Mið 07. Maí 2008 20:16
af GuðjónR
Nákvæmlega "my point".
Vonandi að fólk láti ekki glepjast, það er ekki verið að gera neytendum nokkurn greiða, enda hver rekur fyrirtæki með þá hugsun?
Kannski blóðbankinn.