Síða 1 af 2

Tugur mótmælenda handtekinn "Eldsneytismótmæli"

Sent: Mið 23. Apr 2008 14:26
af Gets

Re: Tugur mótmælenda handtekinn "Eldsneytismótmæli"

Sent: Mið 23. Apr 2008 14:40
af Xyron
Meira fíflið sem henti grjótinu í lögguna!

Re: Tugur mótmælenda handtekinn "Eldsneytismótmæli"

Sent: Mið 23. Apr 2008 14:56
af coldcut
haha það var svo fyndið að fylgjast með þessu! Sérstaklega fyrstu átökunum!

Einhver bílstjóri að reyna að komast að bílnum sínum og þá ætlaði löggan bara í hann, þá kom óeirðalöggan og lokaði lögguna af og einhverjir 3 mótmælendur fóru að ýta á skildina hjá óeirðalöggunni. En nei birtast þá ekki bara 2 sérsveitarpiltar rétt skriðnir yfir tvítugt með úðabrúsa og annar þeirra öskrar aftur og aftur: "GAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAS!!! GAAAAAAAAAAAAAAAAAAS!!! GAAAAAAAAAAAAAAAAS!!!" eins og einhver kleppari!

eftir það sem löggan gerði með því að úða piparúða á mótmælendur sem mér sýndust alls ekki ógnandi þá áttu þeir nú hálfpartinn skilið að löggan hafi verið grýtt, þó ég styðji það að sjálfsögðu ekki!

Re: Tugur mótmælenda handtekinn "Eldsneytismótmæli"

Sent: Mið 23. Apr 2008 15:36
af hagur
Sjá svo þessa sorglegu, athyglissjúku unglinga þarna að kasta eggjum í lögregluna [-X Til hvers í ósköpunum?

Svo finnst mér þessi mótmæli vera komin útfyrir öll velsæmismörk. Að keyra hægt um götur borgarinnar, gott og vel, en það sem var í gangi þarna í dag eru bara skrílslæti.

Re: Tugur mótmælenda handtekinn "Eldsneytismótmæli"

Sent: Mið 23. Apr 2008 15:39
af gumol
Sammála öllum nema coldcut

Re: Tugur mótmælenda handtekinn "Eldsneytismótmæli"

Sent: Mið 23. Apr 2008 15:46
af Viktor
Að sjá þetta wannabe herlið hans Björns. Þvílíkt mikið gert úr þessu, viðbúnaðurinn eins og þetta séu hryðjuverkamenn. Er að horfa á fyrstu mínúturnar

http://dagskra.ruv.is/streaming/sjonvar ... le=4410184

Re: Tugur mótmælenda handtekinn "Eldsneytismótmæli"

Sent: Mið 23. Apr 2008 15:57
af coldcut
gumol: horfðirðu á þetta í sjónvarpinu eða? sérsveitarmennirnir, þá sérstaklega einn, voru eins og verstu klepparar! Löggan gerði ekki það sem af henn er ætlast! Í svona tilfellum á að beita múgsefjun en eins og ég sá þetta (RÚV) þá gerði hún lítið í þá áttina. Einn maður var handtekinn fyrir það að segja að löggan væri þroskaheft því hún lamdi hann þegar hún var að elta uppi einhvern "höfuðpaur" eins og það var kallað.

Sjá svo þessa sorglegu, athyglissjúku unglinga þarna að kasta eggjum í lögregluna [-X Til hvers í ósköpunum?


lögreglan gerði nú í því að egna þá upp því alltaf var einn eða fleiri lögreglumaður sem tók skjöldinn úr "varnarstöðu" og glotti að ungmennunum, þeir lögregluþjónar hafa nú ekki fengið mikla þjálfun í múgsefjun!

Annars sýnir þetta aftur að mínu mati vanmátt lögreglunnar en það mátti einnig sjá hér um árið þegar FalunGong meðlimir voru "teknir úr umferð"! Það er ljóst að mínu mati að það þarf verulega að hreinsa til í dómsmálaráðuneytinu og hlúa betur að menntun lögreglumanna/kvenna!

Re: Tugur mótmælenda handtekinn "Eldsneytismótmæli"

Sent: Mið 23. Apr 2008 16:16
af k0fuz
coldcut skrifaði:Það er ljóst að mínu mati að það þarf verulega að hreinsa til í dómsmálaráðuneytinu og hlúa betur að menntun lögreglumanna/kvenna!



Ókei ég bara verð að segja þetta..

Lögreglumaður getur verið karlmaður og kvennmaður þannig að það var óþarfi að skrifa "/kvenna"

Keekkkk

En já mér finnst þetta bara hlægilegt hvernig lögreglumennirnir stóðu þarna eins og asnar og vissu ekki upp né niður hvað þeir ættu að gera..

Re: Tugur mótmælenda handtekinn "Eldsneytismótmæli"

Sent: Mið 23. Apr 2008 16:21
af Viktor
k0fuz skrifaði:Lögreglumaður getur verið karlmaður og kvennmaður þannig að það var óþarfi að skrifa "/kvenna"


Satt... kvenmaður, karlmaður. Bæði menn.

Re: Tugur mótmælenda handtekinn "Eldsneytismótmæli"

Sent: Mið 23. Apr 2008 16:38
af djjason
gumol skrifaði:Sammála öllum nema coldcut


I second that.

Re: Tugur mótmælenda handtekinn "Eldsneytismótmæli"

Sent: Mið 23. Apr 2008 16:56
af natti
Já, það er gott að geta dæmt fólk úr fjarlægð.

Skal ekki segja, en ef að mótmælendur eru farnir að ýta á óeirðarlögregluna, semsagt farnir að veitast að lögreglu, er þá óeðlilegt að aðrir lögreglumenn komi þeim til aðstoðar við að dreifa hópnum?
Miðað við þessa lýsingu þá get ég ekki skilið þetta öðruvísi en að lögreglan hafi verið að verja sig.

Edit: var að horfa á þetta frá rúv.
Ok. Aðila 1 meinaður aðgangur að bílnum sínum. (þeir færa sig ekki og honum gert grein fyrir að hann komist ekki í bílinn sinn)
Aðili 1 + nokkrir aðrir ráðast að lögreglu til þess að reyna að brjóta sér leið í gegnu lögreglu og að bílnum.

röksemdarfærsla aðila #1 og félaga er að lögreglan hafi byrjað.
yeah...

Re: Tugur mótmælenda handtekinn "Eldsneytismótmæli"

Sent: Mið 23. Apr 2008 17:51
af Dr3dinn
Sko að veitast gegn lögreglu er náttúrulega algjörlega heimskulegt.

Þ.e.a.s allt ofbeldi gegn lögreglu.

Að sjálfsögðu má deila um aðgerðir of harðar eður ei, en ef einhver ræðist eða ógnar lögreglumanni
skil ég vel samstarfsfélaga hann að aðstoða hann sem mér skildist af myndum á stöð2 og mbl.

Ég styð mótmælum gegn þessu háa bensín verði, en það sem telst til lögbrota styð ég engan veginn.

Með lögum skal land byggja.

Re: Tugur mótmælenda handtekinn "Eldsneytismótmæli"

Sent: Mið 23. Apr 2008 18:00
af DaRKSTaR
þetta er snilld.

menn mótmæla og halda að olían lækki.. jafnvel ríkið taki öll álög af þessu. flott.

hvað ætti síðan ríkið að sækja alla þessa milljarða sem þeir verða af við að taka álögur af eldsneiti?

veit.. hækka skattinn í 50% á okkur.. kannski ná þeirri upphæð til baka á ári

Re: Tugur mótmælenda handtekinn "Eldsneytismótmæli"

Sent: Mið 23. Apr 2008 21:51
af coldcut
k0fuz skrifaði:Ókei ég bara verð að segja þetta..

Lögreglumaður getur verið karlmaður og kvennmaður þannig að það var óþarfi að skrifa "/kvenna"

Keekkkk


Sallarólegur skrifaði:Satt... kvenmaður, karlmaður. Bæði menn.


jájá við skulum endilega láta umræðuna snúast uppí einhvern tittlingaskít!

Ég er sammála Darkstar í því að lækkun á bensínverði mun bara koma í hausinn á borgurum á öðrum stöðum þ.e.a.s. með auknum sköttum eða álögum á aðra hluti, því miður! En hvernig væri nú bara að fara að ganga í ESB, taka upp evruna og hættu þessum endalausa þjóðarstoltsrembingi? Ég er ekki að segja að bensínverð muni eitthvað lækka þá en það mun allavega koma á stöðugleika aftur á landinu og þá verður aðeins minni ólga í samfélaginu! Ef ég væri í þeirri aðstöðu að geta mótmælt á almannafæri eins og bílstjórarnir hafa verið að gera, þá mundi ég mótmæla ýmsu öðru en bensínverði því það er svo margt rangt í landinu!

spilling í ríkisstjórn og stjórnmálum, gríðar háir tollar á ótrúlegustu hluti, verið að draga úr útgjöldum til lögreglu (samanber niðurskurð hjá lögregluembættinu á Suðurnesjum) og ég gæti haldið lengi áfram!

Re: Tugur mótmælenda handtekinn "Eldsneytismótmæli"

Sent: Fim 24. Apr 2008 00:56
af k0fuz
coldcut skrifaði:jájá við skulum endilega láta umræðuna snúast uppí einhvern tittlingaskít!



Skulum ekkert fara æsa okkur yfir smá leiðréttingi er það? :lol:

Re: Tugur mótmælenda handtekinn "Eldsneytismótmæli"

Sent: Fim 24. Apr 2008 01:17
af Demon
Það sem gleymist kannski í þessari umræðu er að bíljstórarnir eru að mótmæla tilskildum hvíldartíma í samningum frekar en háu bensínverði. Annars samkvæmt þeim myndböndum sem ég hef séð frá þessu þá er ekki hægt að túlka þenna á einn veg eða annan bara útfrá þeim.
Eina sem maður sér í myndböndum á netinu er lögreglan að handsama hávaðasama menn í mótmælandahópnum sem voru lítið að gera nema æsa aðra upp. Það er rökrétt í sjálfu sér að gera það. Kannski virkar það soldið geðveikislegt að öskra GAAAS framan í hóp af fólki en þegar það er allt öskrandi og það þarf eitthvernveginn að koma því í skilningum að beitt verði táragasi ef það færir sig ekki. Efast um að það hefði virkað að tala rólega á þessum tímapunkti.

Re: Tugur mótmælenda handtekinn "Eldsneytismótmæli"

Sent: Fim 24. Apr 2008 15:16
af urban
Demon skrifaði:Það sem gleymist kannski í þessari umræðu er að bíljstórarnir eru að mótmæla tilskildum hvíldartíma í samningum frekar en háu bensínverði. Annars samkvæmt þeim myndböndum sem ég hef séð frá þessu þá er ekki hægt að túlka þenna á einn veg eða annan bara útfrá þeim.
Eina sem maður sér í myndböndum á netinu er lögreglan að handsama hávaðasama menn í mótmælandahópnum sem voru lítið að gera nema æsa aðra upp. Það er rökrétt í sjálfu sér að gera það. Kannski virkar það soldið geðveikislegt að öskra GAAAS framan í hóp af fólki en þegar það er allt öskrandi og það þarf eitthvernveginn að koma því í skilningum að beitt verði táragasi ef það færir sig ekki. Efast um að það hefði virkað að tala rólega á þessum tímapunkti.


me´r finnst eiginlega það allra besta við það að þeir voru aldrei með neitt gas(táragas)
þeir voru með maze úða (basicly piparsprey)

Re: Tugur mótmælenda handtekinn "Eldsneytismótmæli"

Sent: Fim 24. Apr 2008 15:27
af Windowsman
http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/0 ... egluthjon/

Lögreglumaður var kýldur í andlitið þegar atvinnubílstjórar voru að sækja bíla sína sem hirtir voru af lögreglu á Suðurlandsvegi í gær. Atvikið átti sér stað á geymslusvæði lögreglunnar við Kirkjusand en samkvæmt upplýsingum mbl.is er árásarmaðurinn ekki úr hópi atvinnubílstjóra.

Árásarmaðurinn var handsamaður á staðnum og er lögregla að flytja hann í járnum til yfirheyrslu á lögreglustöðina við Hverfisgötu. Lögregluþjónninn var fluttur með sjúkrabifreið á Landspítalann en ekki er vitað hversu alvarleg meiðsl hans eru.

Eftir árásina á lögregluþjóninn hætti lögregla við að afhenda atvinnubílstjórunum bílana og er fjöldi lögregluþjóna á svæðinu. Að sögn Einars Árnasonar, eins úr hópi bílstjóranna sem ætluðu að sækja bíla sína, fordæma atvinnubílstjórar árásina og tilefnislausa.



Hneyksli.

Re: Tugur mótmælenda handtekinn "Eldsneytismótmæli"

Sent: Fim 24. Apr 2008 16:14
af gumol
Myndband af þessu á visir.is : http://visir.is/article/20080424/FRETTI ... 11302&sp=1

Hvað er að fólki? Ekki nóg með að það sé einhver sem ræðst á lögguna heldur er einhver þarna sem er að horfa á að klappa og hvetja hann áfram. Fæðingarhálfvitar!

Re: Tugur mótmælenda handtekinn "Eldsneytismótmæli"

Sent: Fim 24. Apr 2008 16:47
af Demon
Sammála. Mér finnst líka mjög ólíklegt að aðilinn sé ekki úr hópi atvinnubílstjóra. Hvers vegna var hann þarna annars? Og hverjir voru að hvetja hann áfram? :evil:

Re: Tugur mótmælenda handtekinn "Eldsneytismótmæli"

Sent: Fim 24. Apr 2008 17:08
af Klemmi
Demon skrifaði:Sammála. Mér finnst líka mjög ólíklegt að aðilinn sé ekki úr hópi atvinnubílstjóra. Hvers vegna var hann þarna annars? Og hverjir voru að hvetja hann áfram? :evil:


Þessir gæjar ljúga öllu til að það komi sem best út fyrir þá ... sögðu í gær að allt hefði soðið upp úr þegar þeir voru á leiðinni að færa einn bílinn burt, en löggan hafi meinað honum aðgang að bílnum og allt farið í rugl ... einhvernveginn á ég bágt með að trúa því að hann hafi einfaldlega ætlað að fjarlægja bílinn ...

Re: Tugur mótmælenda handtekinn "Eldsneytismótmæli"

Sent: Fim 24. Apr 2008 21:08
af Demon
Klemmi skrifaði:
Demon skrifaði:Sammála. Mér finnst líka mjög ólíklegt að aðilinn sé ekki úr hópi atvinnubílstjóra. Hvers vegna var hann þarna annars? Og hverjir voru að hvetja hann áfram? :evil:


Þessir gæjar ljúga öllu til að það komi sem best út fyrir þá ... sögðu í gær að allt hefði soðið upp úr þegar þeir voru á leiðinni að færa einn bílinn burt, en löggan hafi meinað honum aðgang að bílnum og allt farið í rugl ... einhvernveginn á ég bágt með að trúa því að hann hafi einfaldlega ætlað að fjarlægja bílinn ...


Einmitt, fannst alltaf soldið erfitt að kyngja því.

Svo ef eitthver hefur ekki séð, þá er bróðir árásamannsins í dag ekkert svakalega sáttur við að atvinnubílstjórar vilji ekki kannast við félaga úr þeirra röðum.

http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/04/24/sturla_ekki_a_okkar_abyrgd/

Re: Tugur mótmælenda handtekinn "Eldsneytismótmæli"

Sent: Fim 24. Apr 2008 22:35
af GuðjónR
Maður er bara í hálfgerðu sjokki yfir þessu öllu saman :shock:

Re: Tugur mótmælenda handtekinn "Eldsneytismótmæli"

Sent: Fim 24. Apr 2008 23:43
af Revenant
Því miður er það þannig ef þú ögrar lögreglunni þá ertu bara að kalla þetta yfir þig.

Re: Tugur mótmælenda handtekinn "Eldsneytismótmæli"

Sent: Fös 25. Apr 2008 09:29
af Dr3dinn
Demon skrifaði:Sammála. Mér finnst líka mjög ólíklegt að aðilinn sé ekki úr hópi atvinnubílstjóra. Hvers vegna var hann þarna annars? Og hverjir voru að hvetja hann áfram? :evil:


Heyrðu menn ekki viðtalið við Talsmann billstjóra hann vissi að einstaklingurinn sem hafði ráðist á
lögreglumanninn hafði átt við meiðsli að stríða ?

Þeir afneita bara einum af sínum eigin mönnum þegar þeim hentar.

Lögreglan sagðist líka vita að þessi maður var bíllstjóri sem var í fararbroddi hjá bílstjórunum.

Afsakið en ég bara hef misst alla sjón á þessum mótmælum og styð þetta engan veginn.

Og það er hárrétt hjá mönnum, annars staðar yrði náð í þessa upphæð ef skattarnir myndi lækka á bensín
50% er alveg ein hugmynd sem er hugsanlega ekkert langt frá því.

T.d. tollar á áfengi voru seinast (og skattar) 18,4 milljarðar !

Þetta eru allt tollar og skattar sem verða að vera. Ef við viljum ekki grafa okkur í djúpan skurð skatta.