Síða 1 af 1

Grunnkóði EVE Online (client) kominn á netið

Sent: Þri 15. Apr 2008 13:50
af Dagur
http://thepiratebay.org/tor/4128183/Eve_Online_Source(client_side)_Code

Ég mæli ekki með að þið reynið að sækja þetta. Þeir geta lokað aðgangnum ykkar.

Re: Grunnkóði EVE Online (client) kominn á netið

Sent: Þri 15. Apr 2008 14:06
af Turtleblob
Er eitthvað hægt að gera við þetta, meina, verður leikurinn sjálfur fyrir miklum áhrifum ef einhver breytir þessu?

Re: Grunnkóði EVE Online (client) kominn á netið

Sent: Þri 15. Apr 2008 15:19
af Revenant
Þetta er ekki source kóðinn sjálfur. Aðeins pyc fælarnir decompælaðir í python kóða sem er aðeins hluti af clientnum. Slashdot

Re: Grunnkóði EVE Online (client) kominn á netið

Sent: Þri 15. Apr 2008 15:39
af hallihg
Hvernig fóru þeir að þessu?

Þori ekki að vera að fikta í þessu ef þeir geta suspendað aðgangnum hjá manni...

Re: Grunnkóði EVE Online (client) kominn á netið

Sent: Þri 15. Apr 2008 16:01
af ManiO
Væri ekki réttara sagt að segja "lekið" í stað "kominn"?

Re: Grunnkóði EVE Online (client) kominn á netið

Sent: Þri 15. Apr 2008 16:46
af Dagur
4x0n skrifaði:Væri ekki réttara sagt að segja "lekið" í stað "kominn"?


Tæknilega lak hann ekki út og jafnvel þótt að það væri rétt þá er hann samt kominn á netið :P

Re: Grunnkóði EVE Online (client) kominn á netið

Sent: Þri 15. Apr 2008 17:04
af einzi
Er þetta ekki allt eitthvað sem maður getur extractað úr game skránnum? "Lekið", ekki bara meira að einhver hafi extract, decompile, zip og leak

Re: Grunnkóði EVE Online (client) kominn á netið

Sent: Þri 15. Apr 2008 17:19
af Gúrú

Re: Grunnkóði EVE Online (client) kominn á netið

Sent: Þri 15. Apr 2008 20:13
af CendenZ
þetta er compilaður python einsog revenant sagði.
Alveg gagnslaust.

Re: Grunnkóði EVE Online (client) kominn á netið

Sent: Þri 15. Apr 2008 21:13
af Dagur
Hann er ekki gagnslaus ef menn ætla að búa til bot (en það er einmitt það sem þessi gaur er að kvarta undan). En ég efast um að þetta sé mikill öryggisvandi.

Re: Grunnkóði EVE Online (client) kominn á netið

Sent: Mið 16. Apr 2008 18:46
af CendenZ
Dagur skrifaði:Hann er ekki gagnslaus ef menn ætla að búa til bot (en það er einmitt það sem þessi gaur er að kvarta undan). En ég efast um að þetta sé mikill öryggisvandi.


Ég held að Eve forritarar séu það snjallir að koma í veg fyrir það.

Spurning um að spila herkænsku, leyfa kódanum að vera úti í nokkrar vikur, leyfa einhverjum að smíða bot.

koma svo með client update sem kemur í veg fyrir virkni botans, þá verða userar bustaðir og tíminn sem fór í botasmíði fer til einskins.

Re: Grunnkóði EVE Online (client) kominn á netið

Sent: Mið 16. Apr 2008 23:04
af Dagur
Samkvæmt þessum texta þá hefur það verið hægt lengi og ekkert verið gert. Það kæmi mér heldur ekki á óvart, þetta er vandamál í mörgum leikjum og erfitt að eiga við.

Re: Grunnkóði EVE Online (client) kominn á netið

Sent: Fim 17. Apr 2008 12:45
af natti
Fryst þetta er svona meinlaust og einfalt, afhverju eru þeir þá að banna/loka aðgangi hjá fólki sem að downloadar kóðanum?

Ég er ekki leikjaspilari og hef aldrei prufað eve.

Re: Grunnkóði EVE Online (client) kominn á netið

Sent: Fim 17. Apr 2008 12:52
af CendenZ
natti skrifaði:Fryst þetta er svona meinlaust og einfalt, afhverju eru þeir þá að banna/loka aðgangi hjá fólki sem að downloadar kóðanum?

Ég er ekki leikjaspilari og hef aldrei prufað eve.



Uppá prinsippið. :wink:

Re: Grunnkóði EVE Online (client) kominn á netið

Sent: Fim 17. Apr 2008 13:13
af Revenant
CendenZ skrifaði:
natti skrifaði:Fryst þetta er svona meinlaust og einfalt, afhverju eru þeir þá að banna/loka aðgangi hjá fólki sem að downloadar kóðanum?

Ég er ekki leikjaspilari og hef aldrei prufað eve.



Uppá prinsippið. :wink:


Líka vegna þess að í EULA sem allir spilarar þurfa að samþykkja er þessi klausa:

You may not reverse engineer, disassemble or decompile, or attempt to reverse engineer or derive source code from, all or any portion of the Software, or from any information accessible through the System (including, without limitation, data packets transmitted to and from the System over the Internet), or anything incorporated therein, or analyze, decipher, "sniff" or derive code (or attempt to do any of the foregoing) from any packet stream transmitted to or from the System, whether encrypted or not, or permit any third party to do any of the same, and you hereby expressly waive any legal rights you may have to do so. If the Software and/or the System contains license management technology, you may not circumvent or disable that technology.

Re: Grunnkóði EVE Online (client) kominn á netið

Sent: Fös 18. Apr 2008 16:06
af gumol
Þú ert Íslendingur að kaupa leik frá íslensku fyrirtæki til að nota í tölvu á Íslandi og færð svo lagatexta á ensku til að samþykkja. Sniðugt.

Re: Grunnkóði EVE Online (client) kominn á netið

Sent: Sun 20. Apr 2008 19:23
af natti
gumol skrifaði:Þú ert Íslendingur að kaupa leik frá íslensku fyrirtæki til að nota í tölvu á Íslandi og færð svo lagatexta á ensku til að samþykkja. Sniðugt.

Leikurinn er nú samt ekki á íslensku er það?

Re: Grunnkóði EVE Online (client) kominn á netið

Sent: Sun 20. Apr 2008 19:27
af hallihg
gumol skrifaði:Þú ert Íslendingur að kaupa leik frá íslensku fyrirtæki til að nota í tölvu á Íslandi og færð svo lagatexta á ensku til að samþykkja. Sniðugt.


Og af þessum 300.000 áskrifendum, hversu margir helduru að séu Íslendingar? Ég get sagt þér að hlutfallið er frekar lágt, það var kannski hærra hér á árum áður en vinsældir leiksins hérlendis hafa minnkað en aukist stórlega í Bandaríkjunum.

Re: Grunnkóði EVE Online (client) kominn á netið

Sent: Sun 20. Apr 2008 22:10
af gumol
Auðvitað er ástæða fyrir þessu, ég myndi nú samt setja fyrirvara við hvort þetta teldist vera á skýru og skiljanlegu máli ef EVE færi að kæra einhvern Íslending fyrir brot á honum.