Síða 1 af 1

Istorrent málinu vísað frá

Sent: Fim 27. Mar 2008 17:01
af Stebet
Ætli það sé einhver vonarglæta um smá vit í kollinum á dómstólunum eftir allt saman?

http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/03/27/mali_gegn_istorrent_visad_fra/

:D

Re: Istorrent málinu vísað frá

Sent: Fim 27. Mar 2008 17:05
af Viktor
Stebet skrifaði:Ætli það sé einhver vonarglæta um smá vit í kollinum á dómstólunum eftir allt saman?


Hvað meinarðu með þessu?


-
Annars er þetta mjög gott, fannst Torrent.is alltaf til sóma.

Re: Istorrent málinu vísað frá

Sent: Fim 27. Mar 2008 17:10
af Stebet
Sallarólegur skrifaði:Hvað meinarðu með þessu?


Meina að dómstólarnir hljóta að sjá að ef þeir myndu ætla að samþykkja lögbann á síðum eins og torrent.is þá geta þeir alveg eins sett lögbann á googla líka eða lokað á alla internetumferð eða gert internetþjónustuaðilana ábyrga fyrir dreifingu efnisins.

Er semsagt að meina að þeir hafi vonandi séð hversu mikið þeir hefðu verið að hengja bakara fyrir smið með því að samþykkja lögbannið sem þeir gerðu sem betur fer ekki.

Það er samt ekkert öruggt. Maður á eftir að sjá rök héraðsdóms fyrir frávísuninni.

Sent: Fim 27. Mar 2008 18:42
af Gúrú
Stebet skrifaði:Meina að dómstólarnir hljóta að sjá að ef þeir myndu ætla að samþykkja lögbann á síðum eins og torrent.is þá geta þeir alveg eins sett lögbann á googla líka eða lokað á alla internetumferð eða gert internetþjónustuaðilana ábyrga fyrir dreifingu efnisins.


með lélegri rökum sem ég hef séð...

Re:

Sent: Fös 28. Mar 2008 07:48
af Stebet
Gúrú skrifaði:með lélegri rökum sem ég hef séð...


Og langar þig til þess að útskýra þetta nánar eða á ég að líta á þessi mótrök þín sem enn lélegri rök? :P

Re: Istorrent málinu vísað frá

Sent: Fös 28. Mar 2008 10:10
af hallihg
Mjög gott mál að þessu hafi verið vísað frá. En samt slæmt að enginn niðurstaða hafi fengist, s.s. hvorki sekt né sýknun.

Þess vegna er lögbannið ennþá í gildi, þar til dómstólar segja annað. SmáÍs á örugglega eftir að áfrýja þessu til hæstaréttar. Vonum bara að SvavarL vinni þar, verði sýknaður og lögbannið fellt úr gildi.