Gúrú skrifaði:Eruð þið að grínast? Hún eyðir ekki einu sinni vírusunum, býður bara upp á "setja í sóttkví", svo er þetta rándýrt, hægt, tekur alltof mikið af vinnsluminni, og tekur mun meiri tíma og finnur færri vírusa heldur en fríu vírusvarnirnar.
Með því að setja hluti í "sóttkví" er búið að fjarlægja "vírusinn" eins og menn vilja oft kalla þetta. Það er hins vegar mjög sjaldgæft í dag að vírusar gangi lausum hala, yfirleitt er um Trójuhesta, bakdyraforrit og niðurhalara að ræða.
Mér þykir áskriftin ekki dýr miðað við aðrar varnir. Íslenskir áskrifendur búa vel að hafa framleiðandann á landinu með því að ganga *frítt* að þjónustu sem erfitt er að fá hjá öðrum veiruvarnarframleiðendum og veiruhreinsun sem hjá mörgum tölvuverkstæðum er fokdýr.
Ég legg til að þú prófir nýjustu útgáfuna af F-PROT. Síðasta árið hefur FRISK þrjár viðurkenningar af fjórum, sem er mjög góður árangur. Nýjasta prófið sem gaf VB100 viðurkenningu var á Vista SP1 og fékk F-PROT Antivirus 100% einkunn í öllum flokkum og aðeins 3 önnur forrit náðu þessu svona vel.
(
Linkur á "sögu FRISK" á VirusBulletin vefnum, þarf login/pass en það má fá á
BugMeNot)
Já, svona meðal annars, þá heiti ég Finnbogi og er þjónustustjóri hjá Friðriki Skúlasyni ehf.

Við höfum velt fyrir okkur að setja upp spjallborð á
http://www.frisk.is ef áhugi er fyrir því. Skyldu menn hins vegar hafa áhuga á að koma veiruvörnum, vírusaðstoð og þess konar pælingum fyrir hér á vaktin.is spjallinu, þá er ég alls ekki á móti því. Þetta er stórfínt forum hérna.
Svo að lokum, þá eru þessar fölsku vírusvarnir flestar tilkomnar vegna smits sem kallast iðulega Virtumonde, Smitfraud, Zlob o.fl. Engin vírusvörn virðist taka á öllum þeim afbrigðum sem eru í gangi af þessu, það koma ný afbrigði í hverri viku eða oftar að því er virðist. Ég mæli með að prófa
Smitfraudfix tólið, það gefur oft góða raun.
Vona að þetta hjálpi.