Síða 1 af 1

Hvernig er tæknikunnátta lögreglunnar og hvar er thevikingba

Sent: Þri 04. Mar 2008 18:56
af Dazy crazy
Eru Thevikingbay mennirnir farnir í felur vegna stóra dc++ málsins eða er síðan bara biluð eins og venjulega.

Tæknikunnátta lögreglunnar virðist ekki vera upp á marga fiska þar sem það tók þá 8 mánuði að flytja 14000 gígabæti af efni á milli harðra diska.

Hafa kannski notað usb1 minnislykil til þessa verks eða skrifað efnið niður á blað og teiknað.

Sent: Þri 04. Mar 2008 19:27
af Gúrú
UUUUUUUUU.. Nei.

Hvaða freaking samsæriskenningar verður fólk alltaf að koma með?!?!

Þetta er svo alls'ekki'tengd tækni við Direct Connect... Og þeir eru ekki að hýsa neitt annað en dc gaurarnir...

Þeir sögðu á spjallborðinu að síðan væri ekki að virka sem skyldi, að það væru of mörg óþörf forrit ofl. og þeir ætluðu að formatta serverana og setja allt upp by hand, sem átti að taka umþb. þrjá tíma...

Fylgstu bara með á Spjallborðinu þeirra ef þú vilt vita hvenær síðan fer niður, en það er alveg óþarfi að koma með samsæriskenningu á hvert server restart... Sérstaklega þegar þeir gefa 1 dags fyrirvara...

EDIT


Finnst einnig skondið að þú hafir bara komið með 2 kosti, farnir í felur eða serverinn bilaður 'eins og venjulega'.....

Hvernig væri bara að spyrja?

Sent: Þri 04. Mar 2008 19:53
af Dazy crazy
Afsakið að ég búi ekki á spjalli Thevikingbay og þetta var spurning.

Það er spurning í nafni póstsins en ég kom ekki fyrir y og ?

Re: Hvernig er tæknikunnátta lögreglunnar og hvar er theviki

Sent: Þri 04. Mar 2008 20:00
af urban
dagur90 skrifaði:Eru Thevikingbay mennirnir farnir í felur vegna stóra dc++ málsins eða er síðan bara biluð eins og venjulega.

Tæknikunnátta lögreglunnar virðist ekki vera upp á marga fiska þar sem það tók þá 8 mánuði að flytja 14000 gígabæti af efni á milli harðra diska.

Hafa kannski notað usb1 minnislykil til þessa verks eða skrifað efnið niður á blað og teiknað.


ekki helduru að það hafi verið eingöngu verið að færa efnið á milli diska ?

það var verið að útbúa copy og skrá niður allt á þessum diskum...

Sent: Þri 04. Mar 2008 21:02
af Dazy crazy
Lestu greinina áður en þú æsir þig.

Í henni stendur orðrétt:

Áður en hægt var að flokka efnið þurfti að flytja það á harða diska í eigu lögreglunnar. Sú afritun tók átta mánuði. Undir eðlilegum kringumstæðum ætti slík afritun ekki að taka mikið lengri tíma en viku.

Kannski var allt efnið hidden og lögreglan var svona lengi að átta sig á því hvernig átti að taka það af. Þetta finnst mér bara ansi skondið. :lol:

Edit: Fann fréttasíðu strandarinnar: http://www.p2p.is/legal/

Sent: Þri 04. Mar 2008 21:38
af Gúrú
P2P síðan er ekki tengd torrent síðunum en hún er um þær, þeir hafa einfaldlega lesið þetta á spjallborðinu.


Og þú spurðir bara hvort síðan væri biluð eða hvort þeir væru farnir í felur...

Sent: Þri 04. Mar 2008 21:42
af Dazy crazy
Gúrú skrifaði:P2P síðan er ekki tengd torrent síðunum en hún er um þær, þeir hafa einfaldlega lesið þetta á spjallborðinu.


Og þú spurðir bara hvort síðan væri biluð eða hvort þeir væru farnir í felur...


sooooo...

Pósturinn heitir ...Og hvar er thevikingba, sem er spurning.

Sent: Mið 05. Mar 2008 14:05
af Gúrú
og þráðurinn segir

Eru Thevikingbay mennirnir farnir í felur vegna stóra dc++ málsins eða er síðan bara biluð eins og venjulega.


Svo er ekki einu sinni spurningamerki þarna.

Sent: Mið 05. Mar 2008 15:16
af Dazy crazy
Enda er þetta ekki spurning. þetta er tilgáta.

Sent: Mið 05. Mar 2008 15:33
af Gúrú
Soz boldaði þetta vitlaust.... Skal edita...