Síða 1 af 1
Umsjónarmenn Pirate Bay ákærðir
Sent: Fim 31. Jan 2008 12:57
af beatmaster
mbl.is skrifaði:Sænskur saksóknari hefur lagt fram ákæru á hendur umsjónarmanna vefsíðunnar The Pirate Bay, og sakar þá um að hafa aðstoðað milljónir manna um allan heim við að brjóta lög um höfundarrétt.
Á vefsíðunni deilir fólk með sér skrám með vísunum á efni á stafrænu sniðið, á borð við kvikmyndir, tónlist og annað höfundarréttarvarið efni. Vefurinn var stofnaður árið 2004 og nota á bilinu 10-15 milljónir manna hann að öllun jöfnu.
Hakan Roswell, saksóknari, segir vefinn hafa tekjur af auglýsingum og þannig hagnist umsjónarmenn vefjarins á ólöglegri dreifingu.
Ef þeir fjórir sem hafa verið handteknir verða fundnir sekir bíður þeirra allt að tveggja ára fangelsisvist.
Á lista yfir efni sem sótt hefur verið með hjálp Pirate Bay, sem saksóknarinn hefur lagt fram, eru plötur á borð við Let It Be með Bítlunum, Intensive Care, með Robbie Williams og kvikmyndin um Harry Potter og eldbikarinn.
Vefsíðunni var um tíma lokað í maí árið 2006, en hún var opnuð fáeinum dögum síðar eftir að vefurinn hafði verið settur upp á netþjónum í Hollandi.
Fyrir þau 0.000009% sem að vita ekki hvaða síða þetta er má kíkja á hana
hérna
Sent: Fim 31. Jan 2008 12:58
af CendenZ
Græðgin á það til að fella lýðinn.
Sent: Fim 31. Jan 2008 13:12
af halldorjonz
Meira hér á ensku, frétt frá TPB:
http://torrentfreak.com/pirate-bay-is-safe-080131/
"
The Pirate Bay is not hosted in Sweden anymore, in fact, the Pirate Bay crew claims that they themselves have no idea where the servers are located. After the raid on their servers in 2006, they decided that it was better not to know where they are. One thing is sure though, they are not hosted in just one country." haha snilld

Sent: Fim 31. Jan 2008 13:15
af CendenZ
Þeir eru ekki á höttunum eftir síðunni sjálfri heldur að sakfella þá sem hagnast á rekstrinum.
Þeir verða kærðir fyrir skattsvik og að hafa hagnast á rekstri á ólöglegum vef.
Sent: Fim 31. Jan 2008 13:36
af Dagur
CendenZ skrifaði:Þeir eru ekki á höttunum eftir síðunni sjálfri heldur að sakfella þá sem hagnast á rekstrinum.
Þeir verða kærðir fyrir skattsvik og að hafa hagnast á rekstri á ólöglegum vef.
Þeir verða samt fyrst að sýna fram á að vefurinn sé ólöglegur í því landi sem þjónarnir eru áður en þeir geta gert það.
Það er til dæmis alveg löglegt fyrir Íslending að reka spilavíti í Las Vegas þótt hann megi það ekki hér á landi.
Sent: Fim 31. Jan 2008 17:41
af CendenZ
Dagur skrifaði:CendenZ skrifaði:Þeir eru ekki á höttunum eftir síðunni sjálfri heldur að sakfella þá sem hagnast á rekstrinum.
Þeir verða kærðir fyrir skattsvik og að hafa hagnast á rekstri á ólöglegum vef.
Þeir verða samt fyrst að sýna fram á að vefurinn sé ólöglegur í því landi sem þjónarnir eru áður en þeir geta gert það.
Það er til dæmis alveg löglegt fyrir Íslending að reka spilavíti í Las Vegas þótt hann megi það ekki hér á landi.
En hagnaðurinn má ekki renna óskertur í vasa þessa einstaklings og notkunin verður þá einungis að vera í las vegas.
Ef Piratebay hefði ekki verið með sölu á fatnaði eða öðrum vörum hefði málið ekki orðið til.
Sent: Fim 31. Jan 2008 20:24
af zedro
Mér finnst að svona torrent síður ættu að láta allan gróða renna óskiptann til góðgerðamála!

Sent: Fim 31. Jan 2008 22:37
af eigill3000
Zedro skrifaði:Mér finnst að svona torrent síður ættu að láta allan gróða renna óskiptann til góðgerðamála!

Góðgerðamál = Download...?

Sent: Fim 31. Jan 2008 22:58
af zedro
eigill3000 skrifaði:Zedro skrifaði:Mér finnst að svona torrent síður ættu að láta allan gróða renna óskiptann til góðgerðamála!

Góðgerðamál = Download...?

Nei, bara taka alla gróða af auglýsingum og gefa í sjóði.
Sent: Fös 01. Feb 2008 12:03
af ErectuZ
Mér skilst að allur gróði sem rekstraraðilar piratebay hafa uppúr sölu á fatnaði, auglýsingum o.fl fari ekki í þeirra eigin vasa heldur í viðhald á síðunni og vélbúnaði.
Veit svosem ekki hve mikill sannleikur er í því, en já, það er spurning hvað myndi gerast ef þeir myndu gefa allan umframgróða til góðgerðarmála, myndu þá saksóknararnir vera álitnir sem illir að vera að taka burtu gróða frá góðgerðarmálum?
