Síða 1 af 2

Hvernig síma ætti ég að kaupa mér?

Sent: Mán 07. Jan 2008 11:04
af kristjanm
Nú vill svo til að gamli Nokia síminn minn er að gefast upp og mig vantar nýjan síma sem má helst ekki kosta meira en 10-15 þúsund.

Vitiði um einhverja góða síma sem þið getið mælt með?

Er að leita að síma sem virkar og endist vel. Er meira fyrir Nokia en aðra síma, en er tilbúinn til að skoða allt.

Sent: Mán 07. Jan 2008 12:04
af Andriante
Kauptu bara einhver 3.000 kr vinnumanna síma af farsímalagernum..

Þeir endast lengst :)

Sent: Mán 07. Jan 2008 15:06
af Viktor
Andriante skrifaði:Kauptu bara einhver 3.000 kr vinnumanna síma af farsímalagernum..

Þeir endast lengst :)

Sammála. Ekki taka þessu persónulega en MÉR finnst heimskulegt að kaupa dýra síma. Þá er ég að tala um ef ég myndi fara að kaupa mér núna. Það er yfirleitt ekkert meira sem þú getur notað í þessum dýru símum, þarf maður ekki bara getað hringt, skrifað sms og vistað númer?

Sent: Mán 07. Jan 2008 16:21
af gumol
Ég mæli með nokia 3110 classic. Að vísu aðeins yfir bugetinu þínu en ég á svona síma og er mjög ánægður með hann.

Annars ef þú ert þessi típa sem keyrir um á gömlum skoda og ert ennþá að nota vasadiskóið þitt þá er 3000 króna síminn góður kostur.

Sent: Mán 07. Jan 2008 19:47
af Andriante
gumol skrifaði:Ég mæli með nokia 3110 classic. Að vísu aðeins yfir bugetinu þínu en ég á svona síma og er mjög ánægður með hann.

Annars ef þú ert þessi típa sem keyrir um á gömlum skoda og ert ennþá að nota vasadiskóið þitt þá er 3000 króna síminn góður kostur.

Eða ef maður er þessi týpa sem notar símann sinn í að senda sms, hringja og vista númer eins og 90% þeirra sem eiga dýra síma gera.

Ég á síma með 3G, myndavél og öllum þessum andskota. Hef aldrei notað neitt af því. Bruðl og ekkert annað.

Sent: Mán 07. Jan 2008 19:50
af gumol
"...to each, according to his needs."

Þetta snýst um þægindi. Ódýrir símar eru oftast gerðir úr ódýrustu mögulegu hlutum. Litaskjár, þægilegir takkar, auðvelt og gott viðmót o.s.frv.

Hverjum hefði getað dottið í hug að armbandsúr, vekjaraklukkur, heimasímar o.fl. myndu víkja fyrir GSM símum?

Þú notar bílinn þinn til að komast frá A til B. Þessvegna áttu að fá þér eins ódýran bíl og þú getur fengið þér.

Ný Toyota, fussum svei. Bruðl og ekkert annað.

Sent: Mán 07. Jan 2008 20:57
af CraZy
Ég á k810i
Besti sími sem ég hef átt, kannski aðeins fyrir ofan þitt verð en þess virði að skoða ef þú villt alltí einu fara að spreða :)
Ótrúleg þægilegt að hafa svona góða myndavél í símanum svona þegar maður nennir ekki að vera með dslr vélina og allan arsenalin með

Sent: Mán 07. Jan 2008 21:08
af Blackened
CraZy skrifaði:Ég á k810i
Besti sími sem ég hef átt, kannski aðeins fyrir ofan þitt verð en þess virði að skoða ef þú villt alltí einu fara að spreða :)
Ótrúleg þægilegt að hafa svona góða myndavél í símanum svona þegar maður nennir ekki að vera með dslr vélina og allan arsenalin með

Ég á einmitt k790i sem er í rauninni sami sími og k810i nema bara annað "boddý" og ekki 3G

Klárlega besti sími sem ég hef átt.. átti k750 á undan honum og á eftir að kaupa mér k850i á eftir þessum..

Ég nota helling af öllu þessu "óþarfa bruðl drasli" sem að er í þessum síma eins og tildæmis útvarpið, vekjaraklukkuna, myndavélina nota ég óspart bæði í vinnu og frítíma, stundum ef maður sér eitthvað sniðugt þá sendir maður mynd beint úr símanum á bloggið, hlustaði mikið á mp3 áður en ég fékk mér Zune, Nota Bluetooth handfrjálsan búnað, les mbl.is þegar ég er á klósettinu og svo mætti lengi telja..

Eins og einhver sagði.. þetta er bara spurning um þægindi.. Að segja að 90% þeirra sem eiga þessa "dýru" síma noti aldrei nema 10% af möguleikunum er bara vitleysa.. allir sem ég þekki sem eiga svona síma nota flesta þessa fídusa at one point or another

Sent: Mán 07. Jan 2008 21:21
af CraZy
Blackened skrifaði:

yup, toppurinn að komast á myspace þegar ég einhverstaðar að bíða :oops:

Sent: Mán 07. Jan 2008 21:22
af SolidFeather
Oh hvað ég sakna k750i símans minns. Hann var að bila þannig að ég fór og keypti mér k250i og hann er eitthvað svo mikið drasl. Maður fann það alveg á 750 hvað hann var solid og gott tæki.

Sent: Þri 08. Jan 2008 09:52
af Halli25
SolidFeather skrifaði:Oh hvað ég sakna k750i símans minns. Hann var að bila þannig að ég fór og keypti mér k250i og hann er eitthvað svo mikið drasl. Maður fann það alveg á 750 hvað hann var solid og gott tæki.

Solid og svo bilaði hann... sorry bara varð :)

Sent: Þri 08. Jan 2008 11:24
af CendenZ
faraldur skrifaði:
SolidFeather skrifaði:Oh hvað ég sakna k750i símans minns. Hann var að bila þannig að ég fór og keypti mér k250i og hann er eitthvað svo mikið drasl. Maður fann það alveg á 750 hvað hann var solid og gott tæki.

Solid og svo bilaði hann... sorry bara varð :)

Þessir símar eru viðkvæmir fyrir raka... skiptir engu máli hvaða sími það er..

muniði eftir vatnsheltasímanum frá nokia

hann var bara ekki rakaheldur þannig þegar þú opnaðir hylkið í raka .. þá var hann ótrúlega viðkvæmur.

sony ericson eru lang lang bestir, ég er búinn að eiga ógrynni af símum, en sony ericsson Os-in eru miklu betri en nokia og samsung

Sent: Þri 08. Jan 2008 12:38
af TechHead
CendenZ skrifaði:sony ericson eru lang lang bestir, ég er búinn að eiga ógrynni af símum, en sony ericsson Os-in eru miklu betri en nokia og samsung

Hjartanlega sammála.

Sent: Þri 08. Jan 2008 13:47
af GuðjónR
Þetta er allt drasl, ekkert af þessu er hannað til að endast.

Sent: Þri 08. Jan 2008 14:11
af Halli25
GuðjónR skrifaði:Þetta er allt drasl, ekkert af þessu er hannað til að endast.

Akkúrat Nokia lærði það the hard way með 5110 sem endist og endist að þeir mættu ekki búa til annan svoleiðis síma til að fara ekki á hausinn :)

Sent: Þri 08. Jan 2008 14:57
af GuðjónR
faraldur skrifaði:
GuðjónR skrifaði:Þetta er allt drasl, ekkert af þessu er hannað til að endast.

Akkúrat Nokia lærði það the hard way með 5110 sem endist og endist að þeir mættu ekki búa til annan svoleiðis síma til að fara ekki á hausinn :)

Akkúrat, lítill bisness í því að hanna síma sem endast ár eftir ár.

Sent: Þri 08. Jan 2008 21:45
af Andri Fannar
Ég á Samsung U600 - http://www.gsmarena.com/samsung_u600-1851.php
Frábær sími finnst mér, er búinn að fá mér 2gb microSD kort í hann og svona. Mjög góður. Reyndar aðeins fyrir ofan 10-15 þúsundin þín :o

Sent: Þri 08. Jan 2008 23:41
af Ic4ruz
Lol, Ég á Samsung X820 6.9 mm, þynnsti simi i heimi var keyptur á 20.000 i simanum. mjög góður simi að minu mati, með frábæra 2.0 megapixla myndavel og mp3 stuðing :) nettur.

Sent: Mið 09. Jan 2008 01:12
af elfmund
ég er með iPhone

keypti mér hann í September, daginn sem fyrsta crackið kom út

þetta er besta tæknigræja í heimi og ef þið hafið ekki prófað að fikta í honum, haldið kjafti þangað til þið gerið það :)

ótrúúúúúleg græja og ég hlakka svakalega til að fá iPhone version 2 sem verður kynntur á þriðjudaginn á kynningu hjá Apple!!!

:shock:

Sent: Mið 09. Jan 2008 03:00
af hsm
elfmund skrifaði:ég er með iPhone

keypti mér hann í September, daginn sem fyrsta crackið kom út

þetta er besta tæknigræja í heimi og ef þið hafið ekki prófað að fikta í honum, haldið kjafti þangað til þið gerið það :)

ótrúúúúúleg græja og ég hlakka svakalega til að fá iPhone version 2 sem verður kynntur á þriðjudaginn á kynningu hjá Apple!!!

:shock:

iPhone er lófatölva/iPod með innbyggðum síma.
Þeir sem ætla að fá sér síma til að hringja, sms og kanski mms þá fá þeir sér ekki iPhone það er alveg á hreinu því að þetta er hlunkur.
En ég neita því ekki að þetta er snilldar græja fyrir þá sem nota þetta í annað en bara að hringja og senda/fá sms.

En ég reikna samt með því að fá mér svona tölvu/síma því að ég er tækjasjúkur :oops:

Sent: Mið 09. Jan 2008 09:30
af CraZy
þegar iPhone er kominn uppí eitthvað meira en þessi 8gb þá fæ ég mér hann kannski, en í augnablikinu er þetta ónothæft tbh..

Sent: Mið 09. Jan 2008 10:02
af GuðjónR
Ic4ruz skrifaði:Lol, Ég á Samsung X820 6.9 mm, þynnsti simi i heimi var keyptur á 20.000 i simanum. mjög góður simi að minu mati, með frábæra 2.0 megapixla myndavel og mp3 stuðing :) nettur.

Samsung? hvað þarftu að hlaða hann oft á dag? meina á viku??

Sent: Fim 10. Jan 2008 13:52
af kristjanm
Keypti mér Sony Ericsson W200 síma á 14.900, ætti að duga í að hringja og senda sms :)

http://www.gsmarena.com/sony_ericsson_w200-1824.php

Sent: Fim 10. Jan 2008 20:25
af elfmund
CraZy skrifaði:þegar iPhone er kominn uppí eitthvað meira en þessi 8gb þá fæ ég mér hann kannski, en í augnablikinu er þetta ónothæft tbh..

ónothæft vegna "plássleysis" ?

Sent: Fim 10. Jan 2008 21:34
af Ic4ruz
GuðjónR: Góð spurning, þaðp er eimmit eini vandamálið með hann, full hleðsla dugir i cirka 2 daga. Allt i lagi fyrir mig þar semeg kemst i rafmagn á hverjum einasta dagi. :)