Síða 1 af 1
útsölur
Sent: Þri 18. Des 2007 17:07
af tomas52
er einhvað ódýrara að kaupa tölvudót í janúar þegar útsölurnar eru???
Sent: Þri 18. Des 2007 18:54
af Selurinn
Skarpur
Sent: Þri 18. Des 2007 19:14
af Birkir
Það er ekkert að þessari spurningu. Sjálfur hef ég samt ekki svarið.
Sent: Þri 18. Des 2007 19:15
af kiddi
Held að í janúar muni verð
lækka aftur í það sem þau voru... rétt áður en jólavertíðin byrjaði

Sent: Þri 18. Des 2007 21:25
af Yank
Selurinn skrifaði:Skarpur
LOL
Þér ferst m.v. margar spurningar sem þú kemur með sjálfur.
Edit.
Almennt hefur ekki tíðkast að vélbúnaður sé á sérstökum útsölum. A.m.k er harla ólíklegt að hlutir eins og 8800GT skjákort komi með að vera á 20-30% útsölu.
kvöldið
Sent: Mið 19. Des 2007 00:33
af tomas52
já en ég var nú að spá á örgjöfum, móðurborðum og vinnsluminnum var að spá í uppfærslu það er málið
en eru það yfirleitt bara nýju vörurnar eða hvað?
Jólatilboð
Sent: Mið 19. Des 2007 00:43
af Gets
Langar að koma einu að, ég er samt ekki með óyggjandi sannanir fyrir því en málið er að mér sýnist sem svo að sumar tölvuveslanir sem eru að auglýsa grimt þessa dagana og eru að auglýsa "jólatilboð" lækki bara verðin á örfáum hlutum og þá svo lítið að ekki taki því að minnast á það, málið er nefnilega það að hinn almenni neitandi fylgist ekkert með verði á tölvu eða tölvuíhlutum og gleipir bara við "jólatilboði" verðið hefur jafnvel ekki lækkað neitt, bara búið að setja "jólatilboð" fyrir framan verðmiðan og þá eru allir sáttir.
Ég ætla að reina að muna eftir því næstu jól að gera verðkönnun 1 des 2008 "jafnvel aðeins fyrr" og bera verðin saman við jólatilboðin þá.
PS. Ég skil ekki alveg þessa áráttu en ég fylgist gríðarlega vel með verðsveiflum á tölvuíhlutum hjá öllum verslunum á landinu.
Re: Jólatilboð
Sent: Mið 19. Des 2007 01:15
af Selurinn
Gets skrifaði:Langar að koma einu að, ég er samt ekki með óyggjandi sannanir fyrir því en málið er að mér sýnist sem svo að sumar tölvuveslanir sem eru að auglýsa grimt þessa dagana og eru að auglýsa "jólatilboð" lækki bara verðin á örfáum hlutum og þá svo lítið að ekki taki því að minnast á það, málið er nefnilega það að hinn almenni neitandi fylgist ekkert með verði á tölvu eða tölvuíhlutum og gleipir bara við "jólatilboði" verðið hefur jafnvel ekki lækkað neitt, bara búið að setja "jólatilboð" fyrir framan verðmiðan og þá eru allir sáttir.
Ég ætla að reina að muna eftir því næstu jól að gera verðkönnun 1 des 2008 "jafnvel aðeins fyrr" og bera verðin saman við jólatilboðin þá.
PS. Ég skil ekki alveg þessa áráttu en ég fylgist gríðarlega vel með verðsveiflum á tölvuíhlutum hjá öllum verslunum á landinu.
Þú ert heldur ekkert óklár heldur

Sent: Mið 19. Des 2007 12:31
af JReykdal
Er þessum gögnum ekki haldið til haga á vaktinni?
Sent: Mið 19. Des 2007 12:37
af kiddi
Ég þykist vita nokkuð vel, að hlutir sem hafa litla álagningu, t.d. RAM, HDD, CPU's, flökta ekki mikið í verði yfir jólin.
Hinsvegar, aukahlutirnir, tölvumýs, vefmyndavélar, tölvuskjáir, allur fjandinn - að það eru mörg tilfelli þar sem verð HÆKKA fyrir jólin, fá á sig Jólatilboðsstimpil, og lenda svo á ÚTSÖLU eftir jól á sama verði og þau voru í nóvember.
Þetta er auðvitað ekki algilt um allar verslanir, en þetta hefur gerst

Sent: Mið 19. Des 2007 13:08
af ÓmarSmith
BT anyone ?
Sent: Mið 19. Des 2007 15:37
af Xyron
ÓmarSmith skrifaði:BT anyone ?
Held nú að BT menn eru talsvert öðruvísi en margar sérhæfðar íhlutabúðir.. BT er með "alvöru" útsölur. Venjulega verið frekar ódýrt útsöluhlutirnir hjá þeim.. Enda með þannig lager að þeir þurfa á því að halda til að rýma fyrir nýjum vörum
Sent: Mið 19. Des 2007 17:28
af hagur
Ég keypti mér þráðlausan Logitech rumblepad stýripinna í október á 3.990 kall.
Núna fyrir nokkrum dögum fæ ég snepil heim frá viðkomandi ónefndri verslun sem er rækilega merktur "JÓLATILBOÐ" með stórum stöfum.
Á þessum snepli var einmitt téður rumblepad stýripinni, ásamt ýmsu öðru, og verðið var sem fyrr, 3.990 krónur.
Ekki gott jólatilboð það, eða hvað.