Síða 1 af 1
Viðkvæm málefni.
Sent: Mán 19. Nóv 2007 12:42
af cue
Hvernig stendur á að þráð um útlendinga var lokað.
Umræðurnr voru mjög rólegar og ekkert skítkast
Sent: Mán 19. Nóv 2007 12:54
af einzi
Mín skoðun á þessari lokun er að vissulega er þetta viðkvæmt málefni en ég tel að þetta sé ekki rétti vettfangur fyrir svona umræðu. Fái þetta að malla lengur þá er nokkuð víst að það sjóði uppúr á endanum. Það er mín skoðun.
En ég lokaði ekki þessum þráði og ætla að leifa viðkomandi stjórnanda að svara þessu betur.
Sent: Mán 19. Nóv 2007 13:01
af GuðjónR
Ég held að elv hafi lokað honum á þeim forsendum að umræðurnar voru farnar í hring...sem er rétt.
Auðvitað er málefnið viðkvæmt og sitt sýnist hverjum.
En svona mál verður að ræða og það frá öllum hliðum án þess að einhverjir setji sig á háan hest og hrópi rasismi eða fasismi.
Það hafa allir rétt á skoðunum.
Sent: Mán 19. Nóv 2007 13:01
af cue
einzi skrifaði:Mín skoðun á þessari lokun er að vissulega er þetta viðkvæmt málefni en ég tel að þetta sé ekki rétti vettfangur fyrir svona umræðu. Fái þetta að malla lengur þá er nokkuð víst að það sjóði uppúr á endanum. Það er mín skoðun.
En ég lokaði ekki þessum þráði og ætla að leifa viðkomandi stjórnanda að svara þessu betur.
Það er ekki rangt hjá þér að það gæti soðið uppúr.
En það þarf ekki að byrgja brunnin, við erum (flestir) það fullorðnir að við getum rætt þessi mál án þess að missa okkur.
Tölvu menn hugsa meira rökrétt en annað fólk, þess vegna vænti ég meira af þeim...?
Rangur staður?
Koniakstofan er fyrir alment spjall, engar hömlur á hvað það er.
Sent: Mán 19. Nóv 2007 13:03
af GuðjónR
Jú það má ræða allt í koníakinu....og cue..ef þér finnst vanta upp á umræðuna þá er þér velkomið að halda henni áfram hér.
Sent: Mán 19. Nóv 2007 13:08
af cue
GuðjónR skrifaði:Ég held að elv hafi lokað honum á þeim forsendum að umræðurnar voru farnar í hring...sem er rétt.
Auðvitað er málefnið viðkvæmt og sitt sýnist hverjum.
En svona mál verður að ræða og það frá öllum hliðum án þess að einhverjir setji sig á háan hest og hrópi rasismi eða fasismi.
Það hafa allir rétt á skoðunum.
Það er engin ástæða að loka þræðinum. Í raun kemur þráðurinn þráðstjóranum ekkert við nema þar sé eitthvað sem brítur í bága við reglur vefsins.
Ég held einmitt að engin hafi hrópað "rasismi eða fasismi", þetta voru einmitt umræður frá öllum hliðum.
Sent: Mán 19. Nóv 2007 13:09
af GuðjónR
cue skrifaði:GuðjónR skrifaði:Ég held að elv hafi lokað honum á þeim forsendum að umræðurnar voru farnar í hring...sem er rétt.
Auðvitað er málefnið viðkvæmt og sitt sýnist hverjum.
En svona mál verður að ræða og það frá öllum hliðum án þess að einhverjir setji sig á háan hest og hrópi rasismi eða fasismi.
Það hafa allir rétt á skoðunum.
Það er engin ástæða að loka þræðinum. Í raun kemur þráðurinn þráðstjóranum ekkert við nema þar sé eitthvað sem brítur í bága við reglur vefsins.
Ég held einmitt að engin hafi hrópað "rasismi eða fasismi", þetta voru einmitt umræður frá öllum hliðum.
Gott og vel...fellst á þessi rök...þráður opnaður.
Sent: Mán 19. Nóv 2007 13:09
af cue
GuðjónR skrifaði:Jú það má ræða allt í koníakinu....og cue..ef þér finnst vanta upp á umræðuna þá er þér velkomið að halda henni áfram hér.
Nei ég var búinn. Fannst bara óþarfi að loka. Finnst að þannig eigi ekki að standa að verki.
Sent: Mán 19. Nóv 2007 13:11
af GuðjónR
Þráður opnaður

Sent: Mán 19. Nóv 2007 13:11
af einzi
Einmitt, þetta var mín skoðun en ég var ekki búinn að loka á þetta því jú koníakstofan þar sem allt fer vel með koníaki og vindli þá er ég ekki að þröngva mínum skoðunum upp á aðra
Það getur soðið upp úr með öll mál þrátt fyrir að umræðan sé friðsamleg, viðkvæm mál finnst mér vera mjög lík púðurtunnu, þarf ekki nema einn neista til að allt springi.
Sent: Mán 19. Nóv 2007 13:54
af elv
Ef ég væri pólskur hommi/eða bara íslensk stelpa væri ég sármóðguð af þessum tiltekna þræði
"Þú samþykkir að senda ekki inn nein innlegg þar sem kemur fram móðgandi, særandi, dónaleg, hótanir, hatursfull, kynferðisleg eða annað efni"
Þetta er kannski of víðtækt fyrir ykkur
