Síða 1 af 1

Verðsamkeppni

Sent: Mán 25. Jún 2007 11:19
af appel
Var aðeins að líta á Verðvaktina (tm) :) og sá að computer.is er orðið númer eitt í lágum verðum, eru með margar vörur og eru grænir hvar víðast.

Hafði talið að att.is væru bestir í þessu, en svo er ekki lengur :\

smá bara ... póstur :)

Sent: Mán 25. Jún 2007 19:29
af GuðjónR
Já gaman af þessu...en núna var att.is að svara fyrir sig og hrifsa til baka slatta af grænu...
Forvitnilegt að sjá hvert þetta stefnir.

Sent: Þri 26. Jún 2007 14:08
af appel
Já, þeir eiga hörðu diskana og örgjövana núna! computer.is á hinsvegar vinnsluminnis-flokkinn.

Ég held ég hafi aldrei orðið vitni af jafn góðri samkeppni á íslandi og í tölvuvörum. Flest önnur fyrirtæki á öðru sviði endast ekki í nema nokkrar vikur þar til allt fer í sama gamla farið, en ég tek hattinn af fyrir att og öðrum aðilum sem eru búnir að standa sig einsog hetjur í nokkur ár!

Sent: Lau 14. Júl 2007 21:14
af prg_
Tek undir að Tölvulistinn og Tæknibær eiga heiður skilið fyrir að koma upp þessum lágvörunetverslunum, ég versla undantekningarlítið við annan hvort (eftir því hvort Kópavogur eða Skipholtið er nær hverju sinni).