Til hamingju Hafnfirðingar og Höfuðborgarbúar allir!!

Allt utan efnis

Halli13
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 305
Skráði sig: Lau 06. Mar 2010 21:49
Reputation: 11
Staðsetning: Kópavogur
Staða: Ótengdur

Re: Til hamingju Hafnfirðingar og Höfuðborgarbúar allir!!

Pósturaf Halli13 » Mán 12. Sep 2011 22:43

tdog skrifaði:
Halli13 skrifaði:
GuðjónR skrifaði:Nóg af álverum á Íslandi, það hlýtur að vera hægt að gera eitthvað annað.


Af hverju ekki álver, hvað er svona slæmt við þau?

Og hvað viltu fá annað sem að skapar bæði atvinnu og gjaldeyri?


Þú hefur væntanlega ekki séð álver.

Er annars sammála því að við þurfum mannfrekan iðnað. T.d tvo oliuborpalla... Og ríkisrekið oliúfélag.


Sorry double post en...

Og hvar ætlaru að fá þessa olíuborpalla, á svæði sem er ekki búið að rannsaka og verður hugsanlega ekki tilbúið til vinnslu fyrr en eftir ~10 ár.

Og hvað á ríkisrekið olíufélag að hjálpa okkur?



Skjámynd

tdog
Vaktari
Póstar: 2012
Skráði sig: Mán 06. Des 2010 17:32
Reputation: 24
Staða: Ótengdur

Re: Til hamingju Hafnfirðingar og Höfuðborgarbúar allir!!

Pósturaf tdog » Mán 12. Sep 2011 22:51

Einkarekstur er ekki alltaf lausnin. Ríkisrekið olíufélag gæti skilað fleiri miljörðum í kassann. Það hefur sýnt sig að einkareknir bankar virka illa í svona litlu þjóðfélagi. Fjárfestir á ekki að eiga banka sem lánar honum fyrir hverju glæfraverkinu á eftir öðru. Það þyrfti þó að setja strangar reglur um stjórn fyrirtækisins og störf þess, stofnun dótturfélaga og fjárfestingar. Góð prósenta af tekjum þessa olíufélags ættu hiklaust að renna í skattmann og skattar á launafólk gætu þá lækkað.

Það á að dæla fé og mannskap í rannsóknir á Drekasvæðinu hið snarasta. Ef núna er ekki rétti tíminn þá veit ég ekki hvenær. Og Núbó á að fá 10% af Grímsstöðum á Fjöllum undir hótelið sitt. Hugsið ykkur hvað túristaiðnaðurinn fyrir austan myndi vaxa og dafna. Ég tala nú ekki um þau störf sem skapast við byggingu hótelsins og afleidda þjónustu við það.

Hugsa út fyrir kassann strákar.



Skjámynd

mercury
Besserwisser
Póstar: 3357
Skráði sig: Fös 31. Júl 2009 16:15
Reputation: 64
Staða: Ótengdur

Re: Til hamingju Hafnfirðingar og Höfuðborgarbúar allir!!

Pósturaf mercury » Mán 12. Sep 2011 22:54

endilega drita niður þessum álverum eins og hægt er. svakaleg atvinna bakvið þetta og þetta skilar góðri summu. og svo er ekki langt síðan ég heyrði í fréttum að það var verið að bjóða út leit af olíu á íslands miðum og 6 fyrirtæki tóku þátt í því svo það fer hugsanlega einhvað að ske þar. Ég er hinsvegar alveg sammála því að það mætti reyna að vinn álið meira. td framleiða boddy hluti í bíla og þessháttar.



Skjámynd

FriðrikH
Geek
Póstar: 894
Skráði sig: Lau 22. Sep 2007 20:25
Reputation: 28
Staða: Ótengdur

Re: Til hamingju Hafnfirðingar og Höfuðborgarbúar allir!!

Pósturaf FriðrikH » Mán 12. Sep 2011 23:11

Það eru gömul vísindi og ný að það er ekki sniðugt að setja öll eggin sín í sömu körfuna, það á við með þetta eins og annað. Ég er hlynntur fleiri virkjunum en mér finnst að það eigi helst að nota raforkuna í eitthvað annað en álver. Á meðan það er næg eftirspurn eftir orku, sérstaklega "grænni" orku þá finnst mér að við eigum að reyna að nota hana í eitthvað annað til þess að vernda okkur gagnvart sveiflum á heimsmarkaðsverði á áli, en sveiflurnar á því eru talsvert miklar.




everdark
Ofur-Nörd
Póstar: 261
Skráði sig: Sun 04. Apr 2004 18:29
Reputation: 18
Staða: Ótengdur

Re: Til hamingju Hafnfirðingar og Höfuðborgarbúar allir!!

Pósturaf everdark » Mán 12. Sep 2011 23:27

"ISAL kaupir vörur og þjónustu af íslenskum aðilum fyrir yfir 5 milljarða króna á ári – fyrir utan raforku."

...og þið vælið?



Skjámynd

FriðrikH
Geek
Póstar: 894
Skráði sig: Lau 22. Sep 2007 20:25
Reputation: 28
Staða: Ótengdur

Re: Til hamingju Hafnfirðingar og Höfuðborgarbúar allir!!

Pósturaf FriðrikH » Mán 12. Sep 2011 23:30

everdark skrifaði:"ISAL kaupir vörur og þjónustu af íslenskum aðilum fyrir yfir 5 milljarða króna á ári – fyrir utan raforku."

...og þið vælið?


Ég væli alls ekki, allt gott og blessað með þessi álveg sem þegar eru hérna. Ég held að það sé bara ekki það skynsamlegasta til að gera við þá orku sem við þurfum að selja í framtíðinni sé að setja hana í enn fleiri álver. Það er svona eins og að setja allt spariféð sitt alltaf í peningamarkaðssjóð 9 en ekkert í skuldabréf :)



Skjámynd

Halli25
Bara að hanga
Póstar: 1577
Skráði sig: Fim 13. Sep 2007 12:42
Reputation: 67
Staðsetning: Hveragerði
Staða: Ótengdur

Re: Til hamingju Hafnfirðingar og Höfuðborgarbúar allir!!

Pósturaf Halli25 » Þri 13. Sep 2011 09:10

everdark skrifaði:"ISAL kaupir vörur og þjónustu af íslenskum aðilum fyrir yfir 5 milljarða króna á ári – fyrir utan raforku."

...og þið vælið?

Það er ekki gott að setja öll egginn í sömu körfu. Fínt að hafa álver en er ekki komið nóg nú þegar af þeim?
Mun gáfulegra að fá fjárfestingu í fjölbreyttari iðnaði svo þegar heimsmarkaðsverð á áli fellur þá fari ekki allt til fjandans!


Starfsmaður @ IOD


everdark
Ofur-Nörd
Póstar: 261
Skráði sig: Sun 04. Apr 2004 18:29
Reputation: 18
Staða: Ótengdur

Re: Til hamingju Hafnfirðingar og Höfuðborgarbúar allir!!

Pósturaf everdark » Þri 13. Sep 2011 10:26

Halli25 skrifaði:
everdark skrifaði:"ISAL kaupir vörur og þjónustu af íslenskum aðilum fyrir yfir 5 milljarða króna á ári – fyrir utan raforku."

...og þið vælið?

Það er ekki gott að setja öll egginn í sömu körfu. Fínt að hafa álver en er ekki komið nóg nú þegar af þeim?
Mun gáfulegra að fá fjárfestingu í fjölbreyttari iðnaði svo þegar heimsmarkaðsverð á áli fellur þá fari ekki allt til fjandans!


Hvaðan ætlar þú að "fá fjárfestingu"? Áhættufjárfestar eru skíthræddir við Ísland.



Skjámynd

Halli25
Bara að hanga
Póstar: 1577
Skráði sig: Fim 13. Sep 2007 12:42
Reputation: 67
Staðsetning: Hveragerði
Staða: Ótengdur

Re: Til hamingju Hafnfirðingar og Höfuðborgarbúar allir!!

Pósturaf Halli25 » Þri 13. Sep 2011 12:26

everdark skrifaði:
Halli25 skrifaði:
everdark skrifaði:"ISAL kaupir vörur og þjónustu af íslenskum aðilum fyrir yfir 5 milljarða króna á ári – fyrir utan raforku."

...og þið vælið?

Það er ekki gott að setja öll egginn í sömu körfu. Fínt að hafa álver en er ekki komið nóg nú þegar af þeim?
Mun gáfulegra að fá fjárfestingu í fjölbreyttari iðnaði svo þegar heimsmarkaðsverð á áli fellur þá fari ekki allt til fjandans!


Hvaðan ætlar þú að "fá fjárfestingu"? Áhættufjárfestar eru skíthræddir við Ísland.

Sýnist nú ekki vanta fjárfesta miðað við ásóknina í orkuna á Norðausturlandi og það eru ekki bara álfyrirtæki að sækjast eftir henni þar.


Starfsmaður @ IOD