Til hamingju Hafnfirðingar og Höfuðborgarbúar allir!!

Allt utan efnis
Skjámynd

Stutturdreki
Vaktin er ávanabindandi
Póstar: 1680
Skráði sig: Þri 27. Apr 2004 14:03
Reputation: 24
Staða: Ótengdur

Pósturaf Stutturdreki » Mán 02. Apr 2007 17:27

Það skilur enginn hvernig 'sósíalískt hagkerfi er byggt upp' enda virkar það engan vegin :)

Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6423
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Reputation: 284
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf gnarr » Mán 02. Apr 2007 17:56

ok.. þú semsagt segir að hagkerfi allra evrópulanda virki ekki?

Fynnst þér kapítalískt hagkerfi bandaríkjamanna virka betur?

"Give what you can, take what you need."

Skjámynd

CendenZ
Stjórnandi
Póstar: 2814
Skráði sig: Fös 04. Apr 2003 08:54
Reputation: 203
Staðsetning: Á þessu spjalli
Staða: Ótengdur

Pósturaf CendenZ » Mán 02. Apr 2007 17:58

ef við hækkun skatta fara einstaklingar og fyrirtæki úr landi.

Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6423
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Reputation: 284
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf gnarr » Mán 02. Apr 2007 18:20

hvernig færðu það út?

"Give what you can, take what you need."

Skjámynd

ManiO
Besserwisser
Póstar: 3963
Skráði sig: Fim 08. Jún 2006 18:40
Reputation: 0
Staðsetning: Seltjarnarnes
Staða: Ótengdur

Pósturaf ManiO » Mán 02. Apr 2007 19:01

gnarr skrifaði:hvernig færðu það út?

Ef fjármagnstekjuskattur hækkar fara flest hátekjufyrirtæki úr landi, það eru mörg dæmi um það.

Og finnst þér semsagt sniðugt að hafa velkerfi þar sem annar hver maður getur bara lifað frekar góðu lífi af ríkinu?

"Knowledge is knowing that a tomato is a fruit,
wisdom is knowing not to put one in a fruit salad."

gumol
Besserwisser
Póstar: 3929
Skráði sig: Sun 27. Okt 2002 00:12
Reputation: 0
Staðsetning: Kópavogur
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf gumol » Mán 02. Apr 2007 19:46

GuðjónR skrifaði:Hehehe gaman að sjá ykkur litlu pungana hafa svona sterkar skoðanir.
Margir ykkar hafa aldrei kosið og hafa ekki aldur til að kjósa núna í apríl.
Samt virðist þið vita upp á hár hvernig kaupin gerast á eyrinni....
Auðvelt að lesa út úr póstunum ykkar hvað um er rætt við matarborðið hjá ykkur.

Já, ég passa alltaf að spurja mömmu áður en ég segi álit mitt á hlutunum.

Allir sem eru ekki sammála GuðjónR eru bara mömmustrákar sem hafa ekki vit á hlutunum

gnarr skrifaði:ok.. þú semsagt segir að hagkerfi allra evrópulanda virki ekki?

Fynnst þér kapítalískt hagkerfi bandaríkjamanna virka betur?

Þegar þú talar um öll evrópuríki, ertu þá að meina Sovíetríkin?

Skjámynd

Höfundur
GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16271
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 1995
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf GuðjónR » Mán 02. Apr 2007 20:11

gumol skrifaði:
GuðjónR skrifaði:Hehehe gaman að sjá ykkur litlu pungana hafa svona sterkar skoðanir.
Margir ykkar hafa aldrei kosið og hafa ekki aldur til að kjósa núna í apríl.
Samt virðist þið vita upp á hár hvernig kaupin gerast á eyrinni....
Auðvelt að lesa út úr póstunum ykkar hvað um er rætt við matarborðið hjá ykkur.

Já, ég passa alltaf að spurja mömmu áður en ég segi álit mitt á hlutunum.

Svona svona...ekki taka þetta svona til þín kallinn minn...:)

Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6423
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Reputation: 284
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf gnarr » Mán 02. Apr 2007 20:26

gumol skrifaði:Þegar þú talar um öll evrópuríki, ertu þá að meina Sovíetríkin?

Nei, enda eru "sovíet ríkin" ekki til enn þann dag í dag..
Fyrir utan það að þau voru byggð á hreinum (og spilltum) áætlurnarbúskap en ekki blönduðu hagkerfi eins og (nánast) öll önnur ríki evrópu, sem byggja á blönduðu hagkerfi.

"Give what you can, take what you need."

Skjámynd

CendenZ
Stjórnandi
Póstar: 2814
Skráði sig: Fös 04. Apr 2003 08:54
Reputation: 203
Staðsetning: Á þessu spjalli
Staða: Ótengdur

Pósturaf CendenZ » Mán 02. Apr 2007 21:53

Félagshyggja virkar ekki þegar spilling og græðgi er til staðar.

Vinstri sinnaðir sem og miðjusinnaðir reyna hvað eftir annað að neita þessari fullyrðingu, á meðan aðrar þjóðir hlægja að okkur.

Virkar mjög vel í sögum og bókmenntum, en bara alls ekki í raunveruleikanum.

Skjámynd

Stutturdreki
Vaktin er ávanabindandi
Póstar: 1680
Skráði sig: Þri 27. Apr 2004 14:03
Reputation: 24
Staða: Ótengdur

Pósturaf Stutturdreki » Mán 02. Apr 2007 22:11

gnarr skrifaði:ok.. þú semsagt segir að hagkerfi allra evrópulanda virki ekki?

Fynnst þér kapítalískt hagkerfi bandaríkjamanna virka betur?
Sosíalismi kæfir niður allt einstaklings frumkvæði og heftir alla framför og hagkvæmni. Það eru ekki öll ríki evrópu með 'Social' stjórn og socialismi í dag er almennt ekkert annað en hallærisleg meðalmennska sem getur ekki tekið afstöðu í neinu. (lesist samfylkingin.. sem hefur td. engan annann tilgang en koma sjálfstæðisflokkum frá völdum). Er eitthvað ríki í evrópu sem getur kallast efnahagslegt stórveldi?

Mér finnst kapitalismi virka miklu betur, bara ekki endilega bandarískur.

gumol
Besserwisser
Póstar: 3929
Skráði sig: Sun 27. Okt 2002 00:12
Reputation: 0
Staðsetning: Kópavogur
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf gumol » Mán 02. Apr 2007 23:48

GuðjónR skrifaði:Svona svona...ekki taka þetta svona til þín kallinn minn...:)
Ekkert illa meint :)

Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6423
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Reputation: 284
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf gnarr » Mið 04. Apr 2007 16:06

Stutturdreki skrifaði:Er eitthvað ríki í evrópu sem getur kallast efnahagslegt stórveldi?

Mér finnst kapitalismi virka miklu betur, bara ekki endilega bandarískur.

Svíðþjóð er eitt socialískasta ríki evrópu og líka eitt ríkasta og best gangandi. Ég myndi alveg ganga það langt að kalla þá efnahagslegt stórveldi.

Bandaríski kapítalisminn er orðinn mjög social smitaður. Tildæmis eru þeir með "public" skóla, sjúkrahús fyrir "fátæku aumingjana" og eru með nokkra miðstýringu og ríkisfjárveitingar í vegakerfi, lögreglu, sjúkralið og fleiri hluti.

Skrítið hvernig fólk vill alltaf fá alla þessa fríu hluti án þess að þurfa að gefa neitt í þá sjálft.

"Give what you can, take what you need."

Skjámynd

djjason
Ofur-Nörd
Póstar: 258
Skráði sig: Fim 06. Maí 2004 23:39
Reputation: 0
Staðsetning: Boston, MA
Staða: Ótengdur

Pósturaf djjason » Mið 04. Apr 2007 16:14

gnarr skrifaði:

Public skólar í Bandaríkjunum eru nú ekkert nýtt af nálinni. Hefur verið til í mörg mörg ár. Margir af stórum háskólunum eru til dæmis State skólar.

Djöfull er ég samt orðinn þreyttur á þessum öfga kommentum eins og "sjúkrahús fyrir fátækja aumingja". Sorglegt.

"Only wimps use tape backup: _real_ men just upload their important stuff on ftp, and let the rest of the world mirror it"
- Linus Thorvalds

Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6423
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Reputation: 284
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf gnarr » Mið 04. Apr 2007 16:19

nú.. Hvað viljið þið þá kalla þessa fátæku sem að hafa ekki efni á að fara á alvöru sjúkrahúsin? Ef þú ert svona þreyttur á þessum "öfga kommentum", komdu þá með leiðréttingar á þeim. Mér þykir það frekar slapt að véfengja rök með því að segjast vera þreyttur á þeim.

Ég var heldur aldrei að segja að public skólar væru eitthvað nýtt, heldur að þeir væru socialiskt fyrirbæri í þessu kapítalíska ríki.

"Give what you can, take what you need."

Skjámynd

djjason
Ofur-Nörd
Póstar: 258
Skráði sig: Fim 06. Maí 2004 23:39
Reputation: 0
Staðsetning: Boston, MA
Staða: Ótengdur

Pósturaf djjason » Mið 04. Apr 2007 16:50

gnarr skrifaði: Ef þú ert svona þreyttur á þessum "öfga kommentum", komdu þá með leiðréttingar á þeim. Mér þykir það frekar slapt að véfengja rök með því að segjast vera þreyttur á þeim.

Hvernig er það gnarr....má maður bara ekki tjá sig á þessum vef um sínar skoðanir (nota bene, engar rökræður, engin véfenging, bara persónuleg skoðun) án þess að menn bregðist ókvæða við og vilji fara í eitthvað rifrildi. Ég get ekki lesið annað út úr þessu svari þínu en þú haldir að ég hafi verið að hrekja eitthvað sem þú sagðir á bak aftur...og greinilega án þess að koma með neinar sannanir.

Hverslags vitleysisgangur er þetta? Finnst þér það slappt? Þá bara finnst þér það. Ég veit ekki til þess að ég hafi lagt í einhverja mikla baráttu til þess að véfengja það sem þú sagðir. Mér þætti þá allavega gott ef þú gætir bent á þau skrif mín, ég get allavega ekki komið auga á þau.

Hvað sagði ég? Ég er orðinn þreyttur á öfgafullum kommentum. Pólitísk umræða hefur breyst á undanförunum 2 - 3 árum úr því að vera málefnaleg umræða í það að vera munnlegt skítkast með hreint út sagt fáranlegum orðaforða. Það var það eina sem ég kommentaði á.

Áður en einhver byrjar að segja "en hægri menn segja alveg svoleiðis líka...." þá vil ég taka fram áður en menn lesa ekki póstinn minn áður en þeir svara að ég tengdi öfgafull komment ekkert við neina sérstaka pólistíska hreyfingu.

Þetta er bara mín skoðun. Ég held að menn geti alveg rætt hlutina á þess að nota svona orðalag...það er allt og sumt. Ef að mín skoðun að ég sé orðinn þreyttur á öfgafullum kommentum er "véfenging" á þínum "rökum" (hversu mikil sem þau voru eða vel studd) þá þarf ég greinilega að fara að endurskoða það hvernig ég tjái mig.

Ps. Ég eyddi heldur engu púðri í að leiðrétta þig varðandi public skóla. Ég einfaldlega benti á að þeir væru ekkert nýtt af nálinni til að vekja athygli að í annars flóknu og víða löskuðu Bandarísku hagkerfi væri að finna margt "sósíalískt".

Pss. Ef texti er illskiljanlegur eða ekki í samhengi þá biðst ég fyrirfram afsökunnar. Búferlaflutningar til kapítalistanna hafa greinilega haft slæm árif á íslenskuna :)

Breytt: Reyndi að laga stafsetningarvillur.

"Only wimps use tape backup: _real_ men just upload their important stuff on ftp, and let the rest of the world mirror it"

- Linus Thorvalds

kjarnorkudori
Nörd
Póstar: 126
Skráði sig: Fim 09. Nóv 2006 22:14
Reputation: 14
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf kjarnorkudori » Mið 04. Apr 2007 19:24

Afhverju ekki að stækka álverið?
Álverið í straumsvík er að nýta sirka 50% af sínum mengunarkvóta.
Þeir munu setja nýjan tækjabúnað og leggja rafmagnslínur í jörð.
Ef stækkunin færi í gang myndu skapast fleiri störf og tekjur álversins myndu margfaldast, fyrir mér er það næg ástæða og eflaust hægt að finna margar fleiri.

Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6423
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Reputation: 284
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf gnarr » Mið 04. Apr 2007 21:49

djjason skrifaði:
gnarr skrifaði: Ef þú ert svona þreyttur á þessum "öfga kommentum", komdu þá með leiðréttingar á þeim. Mér þykir það frekar slapt að véfengja rök með því að segjast vera þreyttur á þeim.

Hvernig er það gnarr....má maður bara ekki tjá sig á þessum vef um sínar skoðanir (nota bene, engar rökræður, engin véfenging, bara persónuleg skoðun) án þess að menn bregðist ókvæða við og vilji fara í eitthvað rifrildi. Ég get ekki lesið annað út úr þessu svari þínu en þú haldir að ég hafi verið að hrekja eitthvað sem þú sagðir á bak aftur...og greinilega án þess að koma með neinar sannanir.

Hverslags vitleysisgangur er þetta? Finnst þér það slappt? Þá bara finnst þér það. Ég veit ekki til þess að ég hafi lagt í einhverja mikla baráttu til þess að véfengja það sem þú sagðir. Mér þætti þá allavega gott ef þú gætir bent á þau skrif mín, ég get allavega ekki komið auga á þau.

Hvað sagði ég? Ég er orðinn þreyttur á öfgafullum kommentum. Pólitísk umræða hefur breyst á undanförunum 2 - 3 árum úr því að vera málefnaleg umræða í það að vera munnlegt skítkast með hreint út sagt fáranlegum orðaforða. Það var það eina sem ég kommentaði á.

Áður en einhver byrjar að segja "en hægri menn segja alveg svoleiðis líka...." þá vil ég taka fram áður en menn lesa ekki póstinn minn áður en þeir svara að ég tengdi öfgafull komment ekkert við neina sérstaka pólistíska hreyfingu.

Þetta er bara mín skoðun. Ég held að menn geti alveg rætt hlutina á þess að nota svona orðalag...það er allt og sumt. Ef að mín skoðun að ég sé orðinn þreyttur á öfgafullum kommentum er "véfenging" á þínum "rökum" (hversu mikil sem þau voru eða vel studd) þá þarf ég greinilega að fara að endurskoða það hvernig ég tjái mig.

Ps. Ég eyddi heldur engu púðri í að leiðrétta þig varðandi public skóla. Ég einfaldlega benti á að þeir væru ekkert nýtt af nálinni til að vekja athygli að í annars flóknu og víða löskuðu Bandarísku hagkerfi væri að finna margt "sósíalískt".

Pss. Ef texti er illskiljanlegur eða ekki í samhengi þá biðst ég fyrirfram afsökunnar. Búferlaflutningar til kapítalistanna hafa greinilega haft slæm árif á íslenskuna :)

Breytt: Reyndi að laga stafsetningarvillur.

Ok. ég skil núna hvað þú varst að fara. Misskildi þig áðan, byðst afsökunar á þessu.

"Give what you can, take what you need."

Skjámynd

Stutturdreki
Vaktin er ávanabindandi
Póstar: 1680
Skráði sig: Þri 27. Apr 2004 14:03
Reputation: 24
Staða: Ótengdur

Pósturaf Stutturdreki » Mið 04. Apr 2007 23:19

kjarnorkudori skrifaði:Afhverju ekki að stækka álverið?
Álverið í straumsvík er að nýta sirka 50% af sínum mengunarkvóta.
Þeir munu setja nýjan tækjabúnað og leggja rafmagnslínur í jörð.
Ef stækkunin færi í gang myndu skapast fleiri störf og tekjur álversins myndu margfaldast, fyrir mér er það næg ástæða og eflaust hægt að finna margar fleiri.
Veit svo sem ekki hvar þú býrð en hvernig þætti þér að hafa álver á lækjatorgi? Hafnarfjarðarbær á eftir að byggja þarna allt í kring og það er eiginlega bara bjánalegt að hafa svona verksmiðju við hliðina á byggð.

Persónulega finnst mér vera komið nóg af álverum, kominn tími á fjölbreyttari iðnað. Hvað gerist ef álverð hrynur og öllum álverunum á íslandi verður lokað? Opps.. enginn iðnaður eftir á íslandi.. hvað ætli margir fái málshætti um egg og körfur um páskana.

gumol
Besserwisser
Póstar: 3929
Skráði sig: Sun 27. Okt 2002 00:12
Reputation: 0
Staðsetning: Kópavogur
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf gumol » Fim 05. Apr 2007 00:58

gnarr skrifaði:Skrítið hvernig fólk vill alltaf fá alla þessa fríu hluti án þess að þurfa að gefa neitt í þá sjálft.
Nákvæmlega. Það er akkurat þannig sem þetta verður alltaf. Sumir borga mikið en aðrir næstum ekki neitt, allir fá sömu þjónustu. Þannig sósíalismi gengur út á að sumir fái alla þessa fríu hlutii án þess að gefa mikið í þá sjálf

Þeir sem eru ríkir (sem ég er farinn að halda að sumum finnist vera dauðasynd) borga brúsan fyrir þá sem eru með lægri laun (ekki endilega fátækir).

Sem betur fer er búið að afnema hátekjuskattinn og eignaskattinn. Lækkun á tekjuskattinum er næst.

Stutturdreki skrifaði:Veit svo sem ekki hvar þú býrð en hvernig þætti þér að hafa álver á lækjatorgi? Hafnarfjarðarbær á eftir að byggja þarna allt í kring og það er eiginlega bara bjánalegt að hafa svona verksmiðju við hliðina á byggð.

Persónulega finnst mér vera komið nóg af álverum, kominn tími á fjölbreyttari iðnað. Hvað gerist ef álverð hrynur og öllum álverunum á íslandi verður lokað? Opps.. enginn iðnaður eftir á íslandi.. hvað ætli margir fái málshætti um egg og körfur um páskana.

Ég hef nú aldrei heyrt talað um svæðið kringum straumsvík sem miðbæ eða hjarta Hafnarfjarðar eins og ég held að lækjartorg sé í Reykjavík. Endilega bentu á eitthverja aðra útflutningsgrein sem álverin koma í veg fyrir að sé hægt að stunda. Það er betra að hafa 2 stórar útflutningsgreinar en ekki bara fiskinn.
Síðast breytt af gumol á Fim 05. Apr 2007 01:09, breytt samtals 1 sinni.

Skjámynd

ManiO
Besserwisser
Póstar: 3963
Skráði sig: Fim 08. Jún 2006 18:40
Reputation: 0
Staðsetning: Seltjarnarnes
Staða: Ótengdur

Pósturaf ManiO » Fim 05. Apr 2007 11:45

Og af hverju er fólk líka alltaf að benda á hin og þessi ríki og segja hvað sé sniðugt við þeirra stjórnarfar? Hvernig væri að við myndum frekar taka frumkvæði?

Staðreyndin er sú að við allar stjórnir fylgja gallar, skiptir ekki hvort það sé kapítalismi eða sósíalismi. Persónulega finnst mér gallarnir verri við sósíalisma, en það er mín skoðun.

Ég er samt ekki að segja að ég sé á móti velferðarkerfi, en eins og því er hagað í nær öllum löndum er það meingallað. Á meðan vinnufært fólk lifir af velferðarkerfinu og lyftir ekki fingri þá er ekki rétt farið að.

"Knowledge is knowing that a tomato is a fruit,

wisdom is knowing not to put one in a fruit salad."

Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6423
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Reputation: 284
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf gnarr » Fim 05. Apr 2007 12:38

Skrítið að það sé circa 4.5% atvinnuleysi í USA, þar sem að atvinnulausir fá ekkert frá ríkinu, á meðan það er 1.3% á íslandi. Ég myndi segja að þetta kerfi sem við búum við virki margfalt betur en kapítalisminn.

Það er bara staðreynd að það er sama og enginn á íslandi sem að ákveður hreinlega að hann nenni ekki að vinna. Þessir örfáu atvinnulausu er þeir sem eru að skipta um vinnu og eru þessvegna atvinnulausir rétt á meðan.

gumol skrifaði:
gnarr skrifaði:Skrítið hvernig fólk vill alltaf fá alla þessa fríu hluti án þess að þurfa að gefa neitt í þá sjálft.
Nákvæmlega. Það er akkurat þannig sem þetta verður alltaf. Sumir borga mikið en aðrir næstum ekki neitt, allir fá sömu þjónustu. Þannig sósíalismi gengur út á að sumir fái alla þessa fríu hlutii án þess að gefa mikið í þá sjálf

Það eru nú yfirleitt þeir hæst launuðustu sem að leggja hvað mest á sig að svíkjast undan skatti.

Það er heldur ekki verið að tala um að gefa þeim fátæku utanlandsferðir eða bíla, heldur þá hluti sem að eru þannig séð nauðsinlegir til að geta komist af í samfélaginu og að gefa nýjum einstaklingum séns á að byrja frá sama grunni og allir aðrir.

Frýtt hjúkrunar og menntakerfi ásamt fleiri hlutum er eitthvað sem að er nauðsinlegt til að allir eigi sömu möguleika í lífinu.

Til dæmis, þá kostar ein önn í menntaskóla á íslandi um það bil 700.000kr fyrir hvern nemanda. Það er spurning hversu margir hefðu einusinni íhugað að fara í skóla ef maður þyrfti að borga þetta í einu lagi við skráningu í skólann.

"Give what you can, take what you need."

Skjámynd

elv
Of mikill frítími
Póstar: 1980
Skráði sig: Sun 23. Mar 2003 21:53
Reputation: 19
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf elv » Fim 05. Apr 2007 21:57

Mjög gaman að fylgjast með þessari umræðu, tala nú ekki um þegar menn vilja meina að það sé hægt að reka ríkissjóð svo mikið betur og dæla peningum í hitt og þetta.
Þannig að , mig langar að sjá ykkur gera æfingu sem ASÍ lætur fólk gera á námskeiðum.
Ríkissjóður er með sirka 300millarða(að vísu rétt yfir 270 milljarðar í þeim gögnum sem ég er með, þau eru frá 2004, en þetta er svipað í dag) innkomu og hérna fyrir neðan eru útgjalda liðinir, skiptið þessu svo

Almenn opinber þjónusta
Löggæsla og öryggismál
Fræðslumál
Heilbrigðismál
Almannatryggingar og velferðarmál
Húsnæðis-, skipulags- og hreinsunarmál
Menningar- og kirkjumál
Eldsneytis- og orkumál
Landbúnaðar- og sjávarútvegsmál
Iðnaðarmál
Samgöngumál
Önnur útgjöld vegna atvinnuvega
Önnur útgjöld ríkissjóðs

Var mjög gaman hjá okkur að sjá hvar fólk vildi spara og láta meira í staðinn

ps og ekki svindla á þessu :wink:

Birkir
Kerfisstjóri
Póstar: 1284
Skráði sig: Fim 13. Nóv 2003 15:57
Reputation: 0
Staðsetning: Utan þjónustusvæðis
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Birkir » Fös 06. Apr 2007 01:29

elv skrifaði:Mjög gaman að fylgjast með þessari umræðu, tala nú ekki um þegar menn vilja meina að það sé hægt að reka ríkissjóð svo mikið betur og dæla peningum í hitt og þetta.
Þannig að , mig langar að sjá ykkur gera æfingu sem ASÍ lætur fólk gera á námskeiðum.
Ríkissjóður er með sirka 300millarða(að vísu rétt yfir 270 milljarðar í þeim gögnum sem ég er með, þau eru frá 2004, en þetta er svipað í dag) innkomu og hérna fyrir neðan eru útgjalda liðinir, skiptið þessu svo

Almenn opinber þjónusta
Löggæsla og öryggismál
Fræðslumál
Heilbrigðismál
Almannatryggingar og velferðarmál
Húsnæðis-, skipulags- og hreinsunarmál
Menningar- og kirkjumál
Eldsneytis- og orkumál
Landbúnaðar- og sjávarútvegsmál
Iðnaðarmál
Samgöngumál
Önnur útgjöld vegna atvinnuvega
Önnur útgjöld ríkissjóðs

Var mjög gaman hjá okkur að sjá hvar fólk vildi spara og láta meira í staðinn

ps og ekki svindla á þessu :wink:

Það er lítið hægt að skipta þessu á meðan maður hefur ekki núverandi skiptingu, þá til að miða við.

Skjámynd

elv
Of mikill frítími
Póstar: 1980
Skráði sig: Sun 23. Mar 2003 21:53
Reputation: 19
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf elv » Fös 06. Apr 2007 11:04

Afhverju segjir þú það.
Ég meina hvernig myndir þú skipta þessu...útá gengur þetta.
Ekki hvernig þetta er :wink:

Birkir
Kerfisstjóri
Póstar: 1284
Skráði sig: Fim 13. Nóv 2003 15:57
Reputation: 0
Staðsetning: Utan þjónustusvæðis
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Birkir » Fös 06. Apr 2007 12:26

Vegna þess að maður verður að gera sér einhverja grein fyrir því hvað hver geiri þarf.

Eftir það getur maður síðan farið að draga saman og bæta við... :wink: